Morgunblaðið - 03.06.1984, Page 36

Morgunblaðið - 03.06.1984, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 1984 UÓSMÆÐUR Á ÍSLANDI — æviágrip 1626 ljósmæðra ásamt fróðleik um stéttina — rætt við Björgu Einarsdóttur rit- stjóra verksins í tilefni af útkomu þess ÞESSA dagana er að koma út ritverkið „Ljósmæöur á Is- landi“, sem Ljósmæðrafélag íslands gefur út. Bók þessi er nú kemur fyrir sjónir manna eftir alllangan undirbúning er tveggja binda verk og eru þau til samans á 12. hundrað síður. Ifyrra bindinu eru auk for- mála útgáfustjórans, Stein- unnar Finnbogadóttur fyrr- um formanns Ljósmæðrafélags fs- lands, æviágrip 1626 ljósmæðra en í þeim hópi eru reyndar um 10 ljósfeður eða yfirsetumenn, þar af einn sem var lærður. Tímabilið sem þessi æviágrip ná yfir er frá 1761, þegar skipuleg ljósmæðra- fræðsla hófst hér á landi og til 1982. ÚR VERÖLD KVENNA — BARNSBURÐUR f síðara bindinu er saga Ljós- mæðrafélags íslands frá stofnun þess 2. maí 1919 og til 1979, en þá varð félagið 60 ára og af því tilefni var ráðist í þessa útgáfu. Helga Þórarinsdóttir sagnfræðingur hef- ur ritað félagssöguna, sem er prýdd fjölda mynda úr starfi Ljósmæðrafélagsins og af forystu- Björg Einarsdóttir ásamt Helgu Þórarinsdóttur sagnfræðingi og Har- aldi Péturssyni fræðimanni fletta handritum Haralds að ljósmæðratali. í safni hans voru upplýsingar um 1173 ljósmæður, þar af voru 146 ólærðar. Myndin er tekin 1978. Valgerður Kristjónsdóttir og Björg Einarsdóttir aö störfum við stéttartal Ijósmæðra í aprfl 1982. Á síðustu stigum vinnslunnar var síminn óspart notaður. mönnum stéttarinnar. Þá er all- löng ritgerð eftir Önnu Sigurðar- dóttur, forstöðumann Kvenna- sögusafns íslands, sem hún nefnir „Úr veröld kvenna — Barnsburð- ur“. í ritgerð Önnu, sem einnig er prýdd fjölda mynda, kemur fram mikill fróðleikur um ljósmæðra- starfið frá upphafi vega hér á landi, og raunar miklu fyrr og víð- ar. Þar kemur einnig fram sam- anburður á aðstæðum fyrr og nú, og hverju samtakamáttur kvenna fær áorkað. í síðara bindinu eru einnig áhaldaskrár ljósmæðra með myndum og sést þar vel hvaða áhöld voru tilskilin í tösku ljós- mæðranna á fyrri hluta þessarar aldar. Einnig eru þar til saman- burðar myndir af gömlum áhöld- um, sem til eru á byggðasöfnum víðs vegar um lændið. Þá er skrá yfir ljósmóðurum- dæmin eins og þau voru ákveðin með lögum árið 1875, en með þeim lögum var sveitaryfirvöldum gert að manna hvert umdæmi lærðum ljósmæðrum. Segja má að það kerfi sé enn við lýði á nokkrum stöðum á landinu en er að láta undan síga fyrir nýrri tilhögun. Sem kunnugt er hefur landinu öllu verið skipt í heilsugæslusvæði og reistar heilsugæslustöðvar en þar starfa meðal annars ljósmæður. Skrá er einnig yfir próf ljós- mæðra frá árinu 1761 og til 1982. Sést þar hversu menntun Ijós- mæðra átti undir högg að sækja framan af árum, og síðan hvernig henni fleygir fram með nýrri löggjöf og breyttum aðstæðum. Launastríd og kröfur um aukna menntun Launastríð og kröfur um aukna mennt- un virðast hafa verið fylgifiskar ljósmóð- urstéttarinnar ekki síður en annarra stétta. Kemur þetta skýrt fram í ritgerð- um þeirra Helgu Þórarinsdóttur og Onnu Sigurðardóttur, sem fyrr voru nefndar. Segja má að launastríðið hefjist með fyrstu lærðu ljósmóðurinni, sem var dönsk og kom hingað til lands 1761 fyrir tilstilli Bjarna Pálssonar, er þá var nýtekinn við embætti landlæknis og var raunar eini læknirinn á öllu landinu. í hans verka- hring var auk alls annars að mennta ljósmæður. Fpkk hann hingað Margrete Jensdóttur Magnússon, nýútskrifaða í ljósmóðurfræðum frá Fæðingarstofnun- inni í Kaupmannahöfh, til verklegrar kennslu ljósmóðurefna, en síðan prófaði hann þær í fræðunum. Þegar á fyrsta ári útskrifuðu þau fimm ljósmæður, þær fyrstu hér á landi. Margrete hin danska var gift íslenskum manni, járnsmið er fékk vinnu við Innréttingar Skúla fógeta í Reykjavík. Hvort það var af því að hún var gift manni í launaðri vinnu, að illa gekk að fá dönsku stjórnina til að samþykkja laun til ljósmóðurinnar, er ekki auðvelt að sjá nú, en það tók landlækninn nokkur ár að fá tilskilin laun handa henni viðurkennd. En launastríði íslenskra ljósmæðra var þar með ekki lokið, eins og sést á æviágripi Bjargar Hildibrandsdóttur er uppi var 1824-1900. 133. Björg Hildibrandsdóttir f.23.10.1824 að Ekkjufelli, Fellahreppi, N-Múl. d.28.2.1900 í Bót, Hróarstungu. Faðir: H.b. Ekkjuf. (f.1775 d.7.4.1836) Þor- varðss. b. Brekkugerði Einarssonar og Guðrúnar Sturludóttur frá Hóli. Móðir: Guðrún yngri (f.1784 d.22.2.1855) Guð- mundsd. b. Arnaldsst. í Fljótsdal og Hnefilsdal, Jökuldhr. Árnasonar og Helgu Vigfúsdóttur frá Njarðvík. Björg ólst upp á Bakka í Norðf. en fl. með Petri Havsteen, þá sýslum. í Múlasýslu, síðar amtmanni, til Akureyrar um 1850 og sigldi á hans vegum til náms. Ljósm.próf í Khöfn 30.4.1853. Ljósm. Húsavíkur- og Tjörneshrumd. 1853— 30.5.1872; Fellahrumd. 1872-30.12. 1885. Björg var blóðtökumaður og hafði einnig undir höndum eitthvað af lækn- ingaáhöldum. Björg undi illa hvernig komið var launakjörum ljósmæðra, sneri sér beint til yfirvaldanna, sýslum. og amtm., fyrir sína hönd og stéttar- innar, en án árangurs. Með bréfi til sýslum. i Þingeyjars. 12.1.1863 neitar hún að veita launum sínum mótttöku, en óskar þeim skipt milli stéttarsystra sinna sem launaviðbót (sbr. Þjóðskjala- safn — Landlæknissafn J/2: Um ljós- mæður) og starfaði án launa 1863— 1876, er ný launalög tóku gildi; sagði starfi sínu lausu 1885. (81). Sama var upp á teningnum varðandi menntunarmálin — þau voru snemma mikið áhugaefni innan stéttarinnar. Get- um við í því efni farið aftur til ársins 1809 og „konungsstjórnar" Jörundar það sumar. Virkisstjóri Jörundar, Malmqvist að nafni, var giftur ljósmóður bæjarins, Johanne Marie Jörgensdóttur, og varð hún ein af stoðum og styttum Jörundar og tók hann meðal annars bætta fræðslu ljósmæðra á stefnuskrá sína. Þetta kemur fram í ævi- ágripi Johanne er hér birtist. 812. Johanne Marie Jörgensdóttir Wiez- end, síðar Malmqvist f. um 1763 vænt- anlega í Danmörku. Ljósm.nám í Khöfn. Johanne var eini umsækjandi um embætti ljósmóðurinnar í Reykja- víkurumd. 1803; skipuð þar með „cans- elli“bréfi dags. 17. sept. s. á. og til 1812, lausn 12. sept. þ.á. — M.II. 5.5.1805 Pet- er Malmqvist sænskur beykir og versl- unar„assistent“ í Rvík (f. um 1781). Malmqvist fl. frá íslandi árið 1811 en Johanne ári síðar er hún losnaði úr ljósmóðurembættinu; með henni var Isaach, f. um 1805, óskilgetinn sonur beykisins. Ekki er kunnugt um hver var fyrri maður Johanne. Malmqvist hjón- in urðu gestgjafar Jörundar hunda- dagakonungs meðan hann hafði viðdvöl í Rvík 1809 og var beykirinn virkis- stjóri í Battaríinu, sem Jörundur lét reisa hjá vörinni í landi Arnarhóls við Rvík. Meðal stefnumála Jörundar á ís- landi var bætt ljósmæðrafræðsla og mun Johanne Malmqvist hafa átt þar frumkvæði. Reit hún hundadagakon- ungi bréf dags. 13. ágúst 1809 um þessi mál; bréfið er birt í bindi þessa rits í kaflanum um ljósmæðramenntun á ís- landi í sögu Ljósmæðrafélags íslands, sjá frekari umfjöllun þar. í doktorsrit- gerð Helga P. Briem, „Byltingin 1809“ útg. Rvík 1936, er sagt frá samskiptum Jörundar og frú Malmqvist (s. 299—300 og 397—398) Ljósmóðurumd. Johanne Malmqvist var Reykjavíkurkaupstaður og Reykjavíkursókn. Hún bjó í fyrstu í Svenska húsinu (Austurstræti 20) og síðar í Brúnsbæ (Tjarnargötu 4, áður beykisbúð Innréttinganna). HarPé: Klemens Jónsson: Saga Reykjavíkur, I—II. Rvík, 1929, Helgi P. Briem: Sjálfstæöi íslands 1809, Rvík, 1936.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.