Morgunblaðið - 03.06.1984, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 03.06.1984, Qupperneq 39
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 3. JÚNl 1984 39 ÞINGBRÉF eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON á ríkissjóði. Auk þess samdráttar í sköttum á eyðslu, sem slíkt hlaut að hafa í för með sér, valda beinar ákvarðanir um lækkun skatta 550 m. kr. tekjutapi ríkissjóðs að mati Þjóðhagsstofnunar." Lagahreinsun og samræming laga „Þegar rætt er um lagahreinsun hefur einkanlega verið horft á nokkur ákvæði frá 13. öld, ellegar 17., 18. og 19. öld. Þótt ljóst sé að þar sé að finna ákvæði sem að skaðlausu má fella niður eru þau ekki mikil að vöxtum, né heldur til neins trafala, en setja sum hver skemmtilegan svip á safnið. Jónsbókarákvæðin frá 1281 munu vera alveg einstök í lagasafni nú á dögum og minna á langa sögu Al- þingis sem löggjafarstofnunar. Hinsvegar er mikil nauðsyn að hreinsa til í löggjöfþessarar aldar . . . “ V ’ Svo segir í nefndaráliti allsherj- arnefndar Sameinaðs þings um tillögu til þingsályktunar um lagahreinsun og samræmingu gildandi laga, sem samþykkt var, nokkuð breytt, í lok þingsins. Þingsályktunin hljóðar svo: „Alþingi ályktar: I) Að fela ríkisstjórninni að leita eftir samstarfi við Lagastofnun Háskóla íslands um fram- haldsvinnslu lagasafns með þeim hætti: a) að fella nýja löggjöf í tölvu- skráðan texta lagasafns 1984, þannig að ávallt sé tiltækur réttur texti gildandi laga í landinu, b) undirbúa hreinsun úreltra ákvæða úr núgildandi lögum og gera tillögur um niðurfellingu lagabálka sem engum tilgangi þjóna lengur og fella má úr gildi og um greinar gildandi laga sem eðlilegt er og nauðsynlegt að sam- ræma, c) gera reglugerðum sömu skil um brottfellingu og samræmingu, d) leggja á ráð um framtíðar- skipun á útgáfu laga og reglugerða og alhiiða upplýsingamiðlun um réttarreglur, enda verði tölvu- tækni hagnýtt eftir því sem kostur er og henta þykir. 2) Að fela ríkisstjórninni að sjá til þess að maður verði ráðinn til framkvæmdar á þessu verkefni. 3) Að kjósa nefnd níu manna til ráðuneytis um framkvæmd fram- angreindra verkefna." Tillagan um lagahreinsun og samræmingu, sem nú er orðin að þingsályktun, allnokkuð breytt, var flutt af fimm þingmönnum úr jafnmörgum þingflokkum (fyrsti flutningsmaður Árni Gunnars- son). Henni fylgdi ítarleg greinar- gerð eftir dr. Pál Sigurðsson, dós- ent. Þingsályktun þessi er hin þarf- asta. Alþingi hefur á stundum flýtt sér um of í lagasetningu, svo keyrt hefur úr hófi. Einföldustu hlutir eru bundnir í lög. Þá hefur Alþingi ekki nýtt að ráði svokall- aða „sólarlagsaðferð", þ.e. að binda gildistíma laga við ákveðinn reynslu- eða árafjölda. Séu þau síðan ekki metin verð endurnýjun- ar falla þau sjálfvirkt úr gildi. Grisjun og samræming laga og reglna er meir en tímabær. Notaðu ökuljósin - alltaf

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.