Morgunblaðið - 03.06.1984, Page 41

Morgunblaðið - 03.06.1984, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 1984 41 Dagskrá Listahátíðar í dag og á morgun 12.15 KJARVALSSTAÐIR: íslenski dansflokkurinn kynnir börnum listdans. 14.00 LÆKJARTORG: Morse-látbragsleikhópurinn leikur listir sínar fyrir yngstu kynslóðina. 15.00 LISTASAFN ASÍ: Opnun á sýningu Leirlistafé- lagsins. Á sýningu er saga ís- lenskrar leirlistar rakin í máli og mvndum. 16.30 FELAGSMIÐSTÖÐIN GERÐUBERGI: Opnun á sýningu á verkum fé- lagsmanna í Textilfélaginu. 16.30 LÆKJARTORG: Whoopee-hljómsveit Bob Kerrs slettir úr klaufunum. 17.00 SÝNINGARSALURINN ÍSLENSK LIST: Opnun á sýningu á verkum fé- laga í Listmálarafélaginu. 20.00 GAMLA BÍÓ: „Nir man har kánslor" eftir Maríu Jotuni. Gestaleikur frá Borgarleikhúsinu í Stokk- hólmi. Leikendur: Birgitta Ulfsson og Stina Ekblad. 20.30 BÚS’TAÐAKIRKJA: Tónleikar níu sellóleikara undir stjórn Gunnars Kvaran. Einsöngvari: Elísabet Erlings- dóttir. 21.00 LAUGARDAUSHÖLL: Norrokk, samnorræn rokkhá- tíð. Hljómsveitirnar Clinic Q, Imperiet, Hefty Load, Circus Modern, bursar og Vonbrigði skemmta. 22.00 BROADWAY: Kvenna-jasshljómsveitin Quintetten, Martial Solai, Whoopee-hljómsveit Bob Kerrs og íslenskir jassleikarar sjá um djammið. MÁNUDAGUR 17.00 LÆKJARTORG: Morse-látbragðsleikhópurinn heillar börn á öilum aldri. 20.00 GAMLA BÍÓ: Ensku látbragðslistamennirn- ir Adam Darius og Kazimir Kol- esnik sýna. 22.00 BRÖADWAY: Hljómsveitirnar frá Norrokk hátíðinni leika fyrir dansi. Fimm grafík- listamenn í Gallerí Lækjartorgi GALLERÍ Lækjartorg opnaði í gær sýninguna „Opin sýning '84 — Grafík 5“ á vegum Lista- miðstöðvarinnar hf. Eins og nafn sýningarinnar gefur e.t.v. til kynna sýna ömm grafíklista- menn verk sín þarna. Þeir eru Einar Hákonarson, Ingiberg Magnússon, Ingunn Eydal, Jón Reykdal og Richard Valtingojer. Alls eru um 40 verk á sýn- ingunni og öll til sölu. For- ráðamenn Listamiðstöðvar- innar hf. segjast sérstaklega gera sér vonir um að fulltrúar fyrirtækja sæki sýninguna til þess að kynnast möguleikum á að leigja myndverk eða kaupa á mjög hagstæðum skilmálum. „Opin sýning" stendur yfir meirihluta sumars og verður skipt reglulega um myndir og nýir listamenn kynntir. Sýn- ing grafíklistamannanna 5 verður opin næstu 2—3 vikur frá kl. 14—18 alla daga. „Átak ’84“ AÐ undanförnu hefur Ferða- málaráð undirbúið „Átak '84“ sem sameinar það tvennt að hvetja til aukinna ferðalaga inn- anlands og til bættrar umgengni um landið. Slagorð þessa átaks er: „Njótum lands, níðum ei“. Á uppstigningardag var stutt athöfn á Þingvöllum, þar sem forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, flutti ávarp og hóf formlega átakið. Við það tækifæri var komið fyrir tveimur myndarlegum skiltum í þjóðgarðslandinu til að minna á bætta umgengni og með hvatningu um að njóta landsins. Athöfnin hófst klukkan 14:00 skammt innan við þjóð- garðsgirðinguna með stuttu ávarpi Heimis Hannessonar, formanns Ferðamálaráðs. Að loknu ávarpi forseta var gest- um boðið að þiggja veitingar í Valhöll. Ljósmynd: Ferðamálaráö íslands. Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands ávarpar viðstadda á Þingvöllum. VIÐ FENGUM RAUÐA ROS í SLOPPANA ÞEGAR VIÐ FLUTTUM í SÍÐUMÚLA 4 Veggfóðrarinn hf. og Málning & Járnvörur hf. hafa um áratuga skeið séð viðskiptavinum sínum fyrir vönduðum bygginga- vörum. Eins hafa starfsmenn þessara rótgrónu verslana gefið öllum sem leitað hafa til þeirra holl ráð og leiðbeiningar. Mú hafa starfsmenn beggja verslana tekið höndum saman, og starfa framvegis undir sama þaki, í nýjum og rúmgóðum húsakynnum í Síðumúla 4. Vs VíCGFÓÐRARINN - ARINN - MALNING A JARNVÖRVR^KJ Áffam verða á boðstólum þrautreyndar gæðavörur: málning, dúkar, veggfóður, járnvörur, verkfæri og ótalmargt annað sem húseigendur og iðnaðarmenn þurfa á að halda. Engar breytingar verða í starfsliði eða í þjónustu. Það er aðstaðan sem breytist. Þú munt örugglega finna það sem þú leitar að í björtun^og rúmgóðum húsakynnum okkar. Við munum leggja okkurfram við að liðsinna þér.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.