Morgunblaðið - 03.06.1984, Page 44

Morgunblaðið - 03.06.1984, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 1984 veróur sýnd á næstunni. . . Bíóhöllin: Einu sinni var í Ameríku Fyrsta mynd Sergio Leone í 10 ár Innan nokkurra daga mun Bíó- höllin frumsýna stórmyndina Einu sinni var í Ameríku (Once Upon A Time In America), sem er fyrst kvikmynda ítalska leikstjórans Sergio Leone í tfu ár. Það er óút- reiknanlegi fýrinn Robert De Niro, sem leikur staersta hlutverkið. Spól- ur myndarinnar eru svo glóheitar að enn er ekki búið að sýna þær erlend- is, neraa á heiðurssýningu á kvik- myndahátíðinni í Cannes á dögun- um. íslendingar eru því aðrir í röð- inni, sem fá að berja augum þetta stórvirki. Áður en lengra er haldið skal þess getið að hér á landi verður myndin sýnd í tveimur hlutum, sá fyrri nú í blábyrjun júní, og fær hann að ferðast milli allra sal- anna í Bíóhöllinni áður en seinni hlutinn birtist. Myndin er nefni- lega svo löng, þrír tímar og fjörtíu mínútur, að varla er vogandi né heilsusamlegt að sýna hana í heilu lagi. Framleiðandinn Milchan hef- ur að undanförnu átt i stappi við dreifingaraðilann í Bandaríkjun- um, sem vill sýna í tvennu lagi, þetta stapp hefur í för með sér að Kaninn fær ekki að sjá myndina fyrr en Islendingar hafa sagt álit sitt, einhverntíma miðsumars. Sergio Leone Heilinn á bak við þessa mynd, sem er ein dýrasta mynd síðari ára, er Sergio Leone. Hann er eng- inn venjulegur listamaður, það er eins og honum sé fyrirmunað að hugsa smátt. Nú eru tíu ár síðan hann leikstýrði mynd, en allan þennan tíma hefur hann legið sveittur yfir handritinu, og leitað að stórhuga aðila, sem vildi fjár- magna draumaverk hans. En það gekk ekki alveg andskotalaust. Til upprifjunar fyrir áhuga- sama má geta þess að það var þessi sami Sergio sem gerði „Hnefafylli af dollurum" með Clint Eastwood og hlaut hvorki meira né minna en heimsfrægð fyrir. Þar með komust spaghetti- vestrarnir í hámæli og allir vildu herma eftir Sergio. En hann sneri á tískuna og sneri sér að hinumg gamla (góða) vestra, brenndi til USA og kvikmyndaði „Once Upon A Time In The West“ með glitr- andi stjörnuliði þess tíma. Upphaflega átti sú mynd að vera fyrsti hluti þriggja mynda (trílógíu) sem spannaði þrjá helstu þætti í sögu Bandaríkj- anna: 1) kúrekar og indíánar; 2) mexíkanska byltingin 1910 (og átti að heita „Once Upon a Time, The Revolution), 3) mafían. Eitthvað skolaðist þessi áætlun til á skrif- borði Sergios, því millikaflann dagaði uppi. En hugmyndin að þriðja kaflan- um um mafíuna kom út á bók, sem fyrrverandi mafíóso samdi í fangaklefanum og gaf út sem „The Hoods“ undir dulnefninu Henry Gray. Árið 1973 slökkti Sergio á myndavélinni, byrjaði á handrit- inu, fékk nokkra þekktustu penna á í ta.Hu til liðs við sig, og nokkrum árum síðar, nánar tiltekið 1982, var handritið tilbúið. Nú segir Sergio að þáttur bókar glæpa- mannsins Gray sé í mesta lagi 10%. Myndin fjallar á „sergískan" hátt um glæpamenn i Bandaríkj- unum og líf þeirra frá bannárun- um upp úr 1920 allt fram til ársins 1968, sem sagt fimmtíu ár. Áður en Sergio byrjaði að kvikmynda og áður en hann valdi leikara, var hann staðráðinn í að þrír leikarar léku hverja persónu, sem næði því að lifa allan þennan tíma. En, eins og máltækið segir, tímarnir breyt- ast og mennirnir með: Þegar ísra- elinn Arnon Milchan ákvað að leggja fjármagn í myndina, lagði hann til að Robert De Niro léki aðalhlutverkið. Þeir þekktust því Milchan framleiddi „The King of Comedy". Robert De Niro heillað- ist svo af handritinu að hann tók hlutverkinu án þess að hugsa sig Robert DeNiro í hiutverki glæpa- mannsins Noodles. DeNiro þarf heldur betur að taka sig á í andlitinu því hann eldist um hvorki meira né minna en 50 ár. tvisvar um. En Róbbi vildi leika hlutverkið frá upphafi til enda, ekki bara afmarkaðan tíma. Serg- io samþykkti, og því var förðun- ardeildin stækkuð um að minnsta kosti helming. Sergio Leone trúir því statt og stöðugt að bestu ævintýrin séu alltaf sögð eða sýnd í smæstu smáatriðum. Allar senurnar í hinni nýju mynd hans voru vand- lega skipulagðar, allt var byggt frá grunni á eins nákvæman máta og nútímamönnum er mögulegt. Sergio telur það einu leiðina til að segja eða sýna sögu á sannfærandi hátt. En jafnframt verði sagan að vera á mörkum hins trúanlega, vera eina stundina hérna megin, aðra stundina hinum megin; það eru bestu sögurnar. Leikendur Robert De Niro er maður mynd- arinnar númer eitt. Hann leikur harðjaxlinn Noodles. Það er eng- um blöðum um það að fletta að De Niro er vandvirkasti leikari nú- tímans, enginn leikari leggur á sig DeNiro og Woods á yngri árum Leikstjórinn og heilinn að baki myndarinnar „Einu sinni var í Ameríku", ítalinn Sergio Leone; fyrir 20 árum þótti spaghettíið hans einstakt í sinni röð, en nú hefur hann gert epíska kvikmynd sem spannar yfir blómatíma jassins til Bítlanna. D e N i r o og Woods nokkrum áratugum síðar. jafn mikið erfiði þegar hann hefur valið sér hlutverk. Nægir þar að minna á spikið, sem hann safnaði utan á sig í gervi LaMotta, og hlaut Óskarinn fyrir. Ágætur maður hvíslaði því að undirrituð- um að leikur De Niro í „Once Upon A Time In America" sé einhver sá rosalegasti í sögu hvíta tjaldsins. Það er ekki annað hægt að segja en De Niro hafi tekist vel upp eftir að hann hætti í skóla sextán ára til að mennta sig. James Woods er maður myndar- innar númer tvö. Hann leikur æskuvin De Niros í myndinni og síðar félaga í heimi glæpanna. James Woods er vel þekktur og mikils metinn leikari, en meðal þekktustu mynda hans eru „Holo- caust“ í sjónvarpinu og „Laukak- urinn". Robert DeNiro sem glæpamaðurinn Noodles á gamals aldri. Förðunar- deildin þykir hafa unnið gífurlegt af- rek með gervi DeNiros. Elizabeth McGovern er annað tveggja fljóða, sem eitthvað kveð- ur að í myndinni. Leikur hún stúlku sem þegar i æsku heillast af De Niro og fölnar sá áhugi ekki þótt gráu hárunum fjölgi. Eliza- beth vakti heljarinnar athygli fyrir nokkrum árum þegar hún lék í „Ordinary People" og síðar í „Ragtime", sem að vísu er enn ósýnd hér, einhverra hluta vegna. Hitt fljóðið er Tuesday Weld, hún er á fimmtugsaldri þótt það sé ekki beint áberandi. Konan sú arna er hinn hvíti hrafn kvik- myndanna, svo sjaldan þiggur hún hlutverk. Enn eru þrír merkir leikarar ónefndir: Burt Young leikur kaldrifjaðan morðingja. Burt er auðvitað þekktastur úr Rocky-myndunum. Hann lék í þeim öllum, hvað sem þær voru margar. Treat Williams leikur verkalýðs- leiðtoga með háar hugsjónir, svo háar að hann stenst ekki spillingu stjórnmálanna til að ná markmiði sinu. Treat er eftirminnilegur úr „Hárinu" og „Prince of the City“. Joe Pesci hafa áreiðanlega fæst- ir heyrt nefndan, engu að síður er þessi náungi í náðinni hjá ekki ómerkari mönnum en De Niro, Sergio og Martin Scorsese. De Niro bauð Pesci hlutverk bróður- ins í „Raging Bull“ og þurfti meira að segja beita hann fortölum, og aftur hlutverkið í umræddri mynd. Pesci hafði sagt skilið við leikarann Pesci og stofnað veit- ingastað í stórborg þegar De Niro pantaði hjá honum mat fyrir sig og Scorsease og bauð honum eftir- sótt hlutverk. Þessarar myndar er beðið með mikilli eftirvæntingu úti í heimi, en eins og áður sagði gefst íslend- ingum kostur á að berja hana aug- um heilum mánuði á undan Bandaríkjamönnum; vonandi kunna íslenskir bíógestir að meta þetta einstaka framtak Bíóhallar- innar. HJó. I t WtMi NtiuiAJUlBtt - M MHI immmwK,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.