Morgunblaðið - 09.06.1984, Side 22
22
Möftölitf ÖtAtfld, L'ÁÚÖ'AftÖÁÖdft's: JÚtfÍ Í984
Verkfóllin í V-Þýzkalandi:
Árangurslausir
viðræðufundir
Stnttgart, 8. júní. AP.
Viöræðufundir fulltrúa málmiðn-
aöarmanna og atvinnurekenda uröu
árangurslausir í dag og hafa næstu
fundir ekki veriö boöaðir fyrr en á
miðvikudag í næstu viku.
Verkfall málmiðnaðarmanna og
verkbann atvinnurekenda hafa
staðið í nær fjórar vikur og hermt
er að framleiðslutapið nemi millj-
örðum dollara.
Á sama tíma hvatti stéttarfélag
prentara 11 þúsund félagsmenn,
sem starfa hjá 140 útgáfufyrir-
tækjum, til að leggja niður vinnu
einn dag í næstu viku til að leggja
áherzlu á kröfur prentara um 35
stunda vinnuviku fyrir félags-
menn, sem eru 165 þúsund.
Hart hyggst ekki
draga sig í hlé
Frá fundi Fred Sinowats, kanslara Austurríkis og Pieter Botha, forsætisráðherra Suöur-Afríku, í gær. Á fundinum
gagnrýndi kanslarinn aöskilnaðarstefnu stjórnvalda f Suöur-Afríku.
GARY Hart, öldungadeildarþing-
maöurinn sem keppir að því að verða
útnefndur forsetaframbjóðandi
bandarískra demókrata, sagöi í gær
aö hann væri ekki reiöubúinn að
hætta baráttu sinni og lýsa yfír
Skákmótið í Bugojno:
Larsen
úr neðsta
sætinu
Bugojno, 8. júní. AP.
DANSKI stórmeistarinn Bent
Larsen lagöi Júgóslavann Lju-
bomir Ljubojevic aö velli í 11.
umferð stórmeistaraskákmótsins
í Bugojno á fímmtudagskvöld og
er því ekki lengur neðstur aö
vinningum.
Larsen stýrði svörtu mönn-
unum og átti allan tímann á
brattann að sækja, en síðan
gerði Ljubojevic mistök á mis-
tök ofan og tapaði viðureign,
sem lengst af virtist ætla verða
honum auðunnin.
Önnur úrslit urðu þau að
jafntefli gerðu Gligoric og
Spassky, og Tal og Belyavski.
Ribli vann Kovacevic, en í bið
fóru skákir Miles og Ivanovic,
Smyslovs og Torre og skák
Anderssons og Timmans.
Eftir sigur sinn er Ribli jafn
Timman að vinningum, báðir
með sjö, en Timman á ólokið
biðskák. Spassky er í þriðja
sæti með 6 vinninga.
stuðningi við helsta keppinaut sinn,
Walter Mondale.
Mondale hefur fengið kosna
nægilega marga kjörmenn til að
tryggja sér sigur í atkvæða-
greiðslu um forsetaefni demó-
krata á flokksþingi þeirra í næsta
mánuði. Formlega eru kjörmenn
ekki skuldbundnir til að greiða
þeim frambjóðanda atkvæði, sem
þeir eru kosnir fyrir, en sjaldgæft
er að út af því bregði í fyrstu um-
ferð.
Thomas O’Neill, forseti full-
trúadeildar Bandaríkjaþings og
einn helsti talsmaður Demókrata-
flokksins, hefur lýst því yfir að
Mondale hafi sigrað í forkosning-
um flokksins og hvatt keppinauta
hans, Gary Hart og Jesse Jackson,
til að lýsa yfir stuðningi við hann
og stuðla þannig að því að hann
beri sigurorð af Ronald Reagan
forseta í kosningunum í nóvem-
ber.
Botha í Austurríki:
Kanslarinn gagnrýnir
aðskilnaðarstefnuna
Vín, 8. júní. AP.
FRED Sinowatz, kanslari Austurrík-
is, gagnrýndi aðskilnaðarstefnu
stjórnvalda í Suður-Afríku og hvatti
til þess að blökkumannaleiðtoginn
Nelson Mandela yrði látinn laus úr
fangelsi, þegar hann átti f dag við-
ræður við Pieter W. Botha forsætis-
ráðherra Suður-Afríku.
Austurríki er sjötta landið sem
Botha heimsækir í tveggja vikna
ferð um Evrópu. Honum hefur yf-
irleitt verið tekið heldur fálega og
alls staðar þar sem hann hefur
komið hefur verið efnt til mót-
mælafunda.
Utanríkisráðherra Austurríkis
áréttaði gagnrýni kanslarans á
fundi sínum með utanríkisráð-
herra Suður-Afríku, sem einnig
var haldinn í dag. Ekkert hefur
frést um viðbrögð Suður-Afrfku-
manna við þessum aðfinnslum.
Botha kom til Vínar frá Frakk-
landi þar sem hann lagði horn-
stein að byggingu f Delville-skógi
fyrir norðan París, sem hýsa á
safn sem reist er til minningar um
þá hermenn frá Suður-Afríku sem
féllu í Frakklandi í síðari heims-
styrjöldinni. Frá Vín heldur for-
sætisráðherrann og föruneyti
hans til Rómar.
Stjórnarkreppa á Italíu
í kjölfar Evrópukosninga?
Róm, 8. júní. AP.
ÚRSLIT kosninganna til Evrópu-
þingsins 17. júní nk. eru talin geta
ráðið miklu um framtíð ríkisstjórnar
Ítalíu og hugsanlega geta valdið því
að hún fari frá. Þetta er haft eftir
ítölskum stjórnmálamönnum og
fréttaskýrendum dagblaða.
ítalska stjórnin, sem lýtur for-
ystu sósíalistans Bettinos Craxi,
er samsteypa fimm flokka og hef-
ur verið við völd í tíu mánuði. Hún
er fertugasta ríkisstjórn ítala frá
stríðslokum og innan hennar hafa
verið ýfingar á milli kristilegra
demókrata og sósíalista.
Fréttaskýrendur Corriere Della
Sera, sem er stærsta og áhrifa-
mesta dagblað ítalfu, segja að ef
sósíalistar auka þingmannafjölda
sinn á Evrópuþinginu á kostnað
kristilegra demókrata muni það
hugsanlega leiða til þess að hinir
síðarnefndu, sem lýst hafa yfir
mikilli óánægju með kosninga-
áróður sósíalista, slíti stjórnar-
samstarfinu.
Júgóslavneski útlaginn Dragan Jovius:
Segir frá 134 njósnurum
Sovétmanna í Danmörku
Fer hörðum orðum um friðarrannsóknastofnunina SIPRI
EINS og sagt var frá í Morgun-
blaðinu í gær er komin út í Sví-
þjóð og væntanleg í Noregi og
Danmörku bók eftir útlægan
Júgóslava og fyrrum leyni-
þjónustumann, Dragan Jovius,
þar sem hann skýrir frá viða-
miklum njósnum og hlerunum
Sovétmanna á Norðurlöndum. í
gær, fímmtudag, segir danska
blaðiö Berlingske Tidende frá
því, að Jovius nefni á nafn 134
njósnara, sem hafí verið eða séu
nú í Danmörku.
Berlingur endurtekur það,
sem áður hefur komið fram um
efni bókarinnar, en það er eink-
um frásagnir af umfangsmikl-
um hlerunum og iðnaðarnjósn-
um Sovétmanna á Norðurlönd-
um, sem stundaðar eru jafnt frá
austur-evrópskum vöruflutn-
BERLINGSKE TIDEN1
WU4W1 NK I»: 4 StKTIONÍK 4» WDM Tlf.WHí »»»»
Sovjet-agenter
tnmark afsloret
ingabifreiðum og bílaleigubíl-
um, sem norrænir kommúnistar
sjá um að útvega sovésku njósn-
urunum.
Jovius heldur því fram, að
margir flutningabílanna séu
Ingc
Fischer
Mollcr
búnir fullkomnum hlerunar-
búnaði og sænska leyniþjónust-
an hefur raunar staðfest þær
upplýsingar. Eftir heimildum
innan hennar er haft, að
flutningabifreiðar frá
Austur-Evrópulöndunum fari
oft hinar mestu krókaleiðir á
áfangastað og stansa þá bíl-
stjórarnir gjarna nálægt her-
stöðvum eða mikilvægum
mannvirkjum.
Sérstakur kafli í bók Joviusar
fjallar um sænsku friðar-
rannsóknasofnunina SIPRI,
sem oft er vitnað til. Fer hann
um hana mjög hörðum orðum
og segir, að hún sé afar gott
dæmi um samtök og stofnanir á
Vesturlöndum, sem hafi lagað
sig að skoðunum Sovétmanna.
Það er bara skrök, að SIPRI sé
hlutlaus stofnun og þeir
starfsmanna hennar, sem fást
við Austur-Evrópulöndin, eru
eins og strengjabrúður í hönd-
unum á sendiráðum þessara
landa í Stokkhólmi, segir Drag-
an Jovius i bókinni.
Veður
víða um heim
Akureyri 9 þokaí grennd
Amiterdam 19 ekýjaó
Aþena 34 heióskírt
Barcelona 19 lóttskýjað
Berlín 16 skýjaó
BrUsael 14 skýjað
Buenos Aires 30 skýjað
Chicago 30 skýjað
Dublin 22 heiðskírt
Feneyjar 18 hélfskýjað
Frankfurt 17 skýjað
Genf vantar
Helsinkis 19 heiðskirt
Hong Kong 32 heiðskírt
Jerúsalem 30 heiðskírt
Lissabon 22 heiðskírt
London 23 heiðskýrt
Los Angeles 24 heiðskýrt
Malega 20 lóttskýjað
Mallorca 21 lóttskýjað
Miami 28 skýjað
Montreal 28 úrkoma
Moskva 25 heiðskfrt
New York 33 heiðskýrt
Oslð 25 heiðskírt
Peking 33 skýjað
Reykjavik 11 skýjað
Ríó de Janeiró 32 skýjað
Róm 23 heiðskirt
Stokkhólmur 22 heiðskírt
Sydney 22 skýjað
Tókýó 28 heiðskírtð
Vínarborg 20 skýjað
Þórshöfn 9 lóttskýjað
Breti sakað-
ur um njósnir
London, 8. júní. AP.
KORPORÁLL við brezku herstöðina
á Suðvestur-Kýpur var í dag sakaður
um njósnir og hnepptur í varðhald.
Er hann áttundi brezki hermaðurinn
sem hnepptur er í varðhald á Kýpur
á stuttum tíma, grunaður um njósn-
ir.
Korporállinn, Anthony Glass,
sem er 31 árs og fæddur í S-Afr-
íku, er sagður hafa ljóstrað upp
um leyndarmál á tlmabilinu frá 1.
október 1982 til ársloka þess árs.
Að sögn brezkra blaða féllu
áttamenningarnir í þá gildru að
láta konur lokka sig upp í rúm til
sín, en það var síðan notað til þess
að kúga þá.