Morgunblaðið - 09.06.1984, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 09.06.1984, Blaðsíða 36
 r»r» ► ^Tr»V n «TTTr> t rrrr t r\rt » ▼ ^tt MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1984 36 Minning: Sigurjón Valda- son, Vestmannaeyjum Fsddur 29. október 1912 Dáinn 13. maí 1984 Sigurjón fæddist í Sandgerði við Vesturveg í Vestmannaeyjum. En þar bjuggu foreldrar hans Guðrún Stefánsdóttir og Valdi Jónsson. Þau voru bæði að ætt og uppruna úr Rangárþingi, undan Eyjafjöll- um. Með þeim ólst hann upp í hópi systkina sinna. Af þeim lifa Guð- jón skipstjóri og útgerðarmaður, kominn yfir nírætt og systurnar Kristný og Guðbjörg. Erfið kreppuár einkenndu upp- vaxtartíð Sigurjóns. Ungur var hann því, er hann tók til höndum, til hjálpar á heimilinu. Hann hafði mjög sterka sjálfsbjargar- viðleitni og náði góðum árangri, með eljusemi og dugnaði. Hann var bráðungur er hann gerðist íþróttamaður og gekk í Tý. Þótti hann snjall glímumaður og knattspyrna var honum hollur leikur. En brauðstritið var ekki satt með því. Því fór hann ungur að klífa björg og stunda fuglaveið- ar. Náði hann því að verða snjall veiðimaður. Tvisvar sótti hann Eldey og lenti í miklum svaðilför- um í bæði skiptin. Um árabil stundaði Sigurjón síldveiðar fyrir Norðurlandi, á „Hilrni", með Haraldi Hannessyni. Nær við 25 vetrarvertíðir stundaði Sigurjón sjó frá Eyjum. Var hann eftirsóttur liðsmaður og réri með ýmsum köppum. Lengi með Guð- jóni bróður sínum, sem um mörg ár stýrði „Kap“ VE 272. Sigurjón var með á „Snyg“ þegar hann strandaði austan við Stokkséyri árið 1936. Einnig á Búrfelli þegar það strandaði í Brimurð á Heima- ey. Mannbjörg var í bæði skiptin, en skipin urðu ónýt. Árið 1945 réðst hann á „Vest- mannaey", sanddæluskip Eyja- manna, fyrst sem sumarmaður, síðar fastur starfsmaður árið um kring. Við andlát hans var hann búinn að starfa hjá Hafnarsjóði nærfellt 40 ár. Þar áttum við Sigurjón samleið um 7 ára bil. Bæði á Létti og grafskipinu. Hann var vel byggður líkamlega og ósérhlífinn. Handtök hans föst og örugg. Hann var óáreitinn og ljúfur í skapi. Ef það ýfðist þá var betra að hann sýndi samstöðu, en mótstöðu. Sáttfús var hann og mikill vinur vina sinna. Tel ég Sigurjón hafa verið meðal minna bestu vina og geymi ég hugljúfar minningar um hann og blessa mjög gott samstarf um árabil. Sigurjón var lánsmaður í einka- lífi sínu. Hann kvæntist Mínervu Kristinsdóttur 13. september 1941. Heimili þeirra stóð alla tíð f Eyj- um. Árið 1952 flytja þau í nýtt einbýlishús, sem þau hjónin byggðu við Vallargötu 8. Þar bjó Minerva manni sínum mjög fagurt og yndislegt heimili. Þau hjón voru mjög samstæð um að skapa sér fallegan samastað og tókst það svo naumast var á betra kosið. Þau ólu upp Sigríði Minervu frá 4ra mánaða aldri. Hún er nú eig- inkona Kristins Baldvinssonar og stendur heimili þeirra f Mos- fellssveit. Drengirnir þeirra þrír hafa verið mjög hændir að afa og ömmu og dvalið langtímum saman í heimili þeirra. Nú við leiðarlok er góður dreng- ur kvaddur. Maður sem ekki vildi vamm sitt vita. Hafði hreinan skjöld. Sáttur við Guð og menn. Sá drottinn sem hann trúði á og bað til, brást honum ekki. Sigurjón vissi að Jesús er „vegurinn, sann- leikurinn og lífið“. Fyrir Hann var opin leið að Föðurhjarta Guðs. Ég blessa minningu Sigurjóns Valdasonar og sendi eiginkonu og öllum ástvinum samúðarkveðjur. Einar J. Gíslason „Vertíð er á enda ævi runnar tíðir hel fyrir stafni stár..." (Bólu-Hjálmar) Við vertíðarlok á þessu vori lauk æviskeiði Sigurjóns Valdasonar frá Vestmannaeyjum. Hann and- aðist á sjúkrahúsinu þar, tveim dögum eftir lokadaginn en hann hafði átt við vanheilsu að strfða síðustu mánuði. Útför hans var gerð frá Landakirkju laugardag- inn 26. maí sl. Sigurjón var fæddur 29. október 1912 í Sandgerði í Vestmannaeyj- um. Þar ólst hann upp f stórum systkinahópi við örbirgð þess tima, sem þroskaði með honum viðleitni til þess að vilja standa á eigin fótum f lífinu. Foreldrar hans voru Valdi Jónsson og kona hans, Guðrún Stefánsdóttir. Á uppvaxtarárum hans var það algengt, að unglingar færu snemma að vinna. I Vestmanna- eyjum var það sjórinn, sem leitað var fanga til. Sigurjón fór ungur til sjós. Sextán ára gamall er hann á síldarvertíð við Norðurland og stundar sjómennsku upp frá því. Árið 1943 gerist hann starfsmaður Vestmannaeyjakaupstaðar og vinnur við hafnarframkvæmdir á sumrin en reri frá Eyjum á vet- urna. Kapp og vinnusemi voru honum f blóð borin. Hann kunni þvf illa, að á honum stæði við vinnu. Á síldinni var hann t.d. þekktur fyrir að vera með þeim fyrstu að koma sér í bátana eins og það var kallað. Þetta var á þeim tímum, þegar nótabátar voru notaðir til þess að kasta nótinni og þeim róið á höndum og nótin einnig dregin með handafli. Þá var veiðin oftast undir því komin, að menn væru fljótir, samtaka, og að enginn lægi á liði sínu. Við þessi störf svo og önnur var Sigurjón liðtækur mað- ur, enda eftirsóttur. Hann var og vel verki farinn. Eftir að hann hóf störf hjá Vestmannaeyjakaupstað var það eitt af hans verkefnum að manna lóðsbátinn til aðstoðar og björg- unar. Hann skoraðist aldrei undan kalli, hvernig sem á stóð, eða hvenær sólarhrings sem var. Sigurjón hafði sérstakan frá- sagnarhæfileika. Án málskrúðs og orðalenginga gæddi hann frásagn- ir sínar slíku lífi, að áheyrandinn sá atburðina ljóslifandi fyrir sér. Hann sagði oft frá atburðum tengdum starfi sínu, sjómennsk- unni. Sérstaklega er minnisstæð frásögn hans af hörmulegu sjó- slysi við Faxasker f janúar 1950, þegar vaskir menn reyndu að bjarga félögum sínum úr sjávar- háska, en fengu ekkert að gert vegna óveðurs. Sigurjón var dagfarsprúður maður. Hann átti gott með að um- gangast fólk og erjur og illdeilur voru honum fjarri skapi. Þegar svo bar undir, reyndi hann ávallt að slá á létta strengi. Sigurjón átti sér enga óvildarmenn, öllum var hlýtt til hans. Þó hann hefði gaman af þvf að gleðjast með kunningjum, gekk hann hægt um gleðinnar dyr. „Þjóðhátíðin“, þessi sérstæða há- tíð allra Vestmannaeyinga, var Óskar Guðfinns- son - Minningarorð Fæddur 16. janúar 1918 Dáinn 19. maí 1984 Hann lést um borð í b/v Júní hinn 19. maí sl. Það má segja að það var lífi hans samboðið að fá að kveðja það við starf um borð í skipi. Þarna hafði hann notað sína seinustu krafta við að splæsa sam- an víra og ekki sparað við það orku frekar en svo oft áður. Hann hafði verið kominn með heldur of háan blóðþrýsting og var búinn að ákveða það að fara nú f land í haust og fara þá að taka lífinu heldur hægar en hingað til, og hefði nú þess vegna heldur þurft að fara að hlífa sér við miklum átökum, en það var bara ekki hans vani. En þarna sannaðist einnig sem svo oft áður, að enginn ræður sínum næturstað. Óskar var fæddur á Eyrar- bakka, sonur hjónanna Rannveig- ar Jónsdóttur frá Litlu-Háeyri og Guðfinns Þórarinssonar frá Nýja- bæ á Eyrarbakka. í báðum þessum ættum voru miklir og dugandi sjó- menn og vinna og sparsemi þar í hávegum höfð. Guðfinnur gerðist formaður ungur og eignaðist snemma sinn eigin bát með mági sínum, Sigur- jóni, sem seinna varð þekktur fiskmatsmaður í Reykjavík og víð- ar. Þessi bátur var í kringum 10 tonn að stærð og hét Sæfari. Á vertíðinni hinn 5. apríl 1927 þá róa allir bátar frá Stokkseyri og Eyrarbakka, en ekki var róið frá Þorlákshöfn þennan dag. Um morguninn var austan strekking- ur og útlit heldur vindlegt, og reru flestir bátanna vestur með landi. Þegar fram á daginn leið fór að hvessa og gerði austan kviku all skarpfc með hornriða, sem svo var nefndur, og gat reynst hættulegur þegar farið var inn sundið. ðskar er þá ásamt nokkrum fé- lögum sínum frammi í sjógarðs- hliðinu við kofann hans Jóa gamla í Frambæ og eru þeir að fylgjast með því þegar bátarnir eru að koma að. Þeir sjá þegar Sæfari leggur á sundið og þegar ólagið nær honum og hvolfir sér yfir þessa litlu fleytu, sem hverfur í svarrandi brimið með 8 menn innanborðs, alla á besta aldri. Þann dag var þungt yfir Eyr- arbakka og þann dag urðu mörg börn föðurlaus og ekkjur nokkrar. Hvaða áhrif þessi atburður mun hafa haft á Óskar er hann horfir þarna á föður sinn drukkna ásamt skipshöfn sinni án þess að nokkuð væri hægt að gera til bjargar, verður víst seint svarað. En þegar hann komst til vits og ára þá valdi hann samt sjómennskuna sem sitt æfistarf enda var þá ekki úr mörgu að velja. óskar elst nú upp með móður sinni og systur sinni Hönnu og áttu þau heima á Eyri. Hann var snemma látin fara að hjálpa til og vinna heimilinu sem hægt var og hann var ekki mikið yfir fermingu er hann komst í vegavinnu hjá ólafi Bjarnasyni á Þorvaldseyri og var hjá honum í nokkur sumur. Árið 1935, þá 17 ára, ræðst hann á mótorbátinn „Frey“ til hins kunna aflamanns, Jóns Helgason- ar frá Bergi á Eyrarbakka og er þá vertíð í Sandgerði. Það kom snemma í ljós hvað hann var ósérhlífinn og duglegur við hvaða verk sem hann vann enda var hann alla sína löngu sjómannstíð í úrvals skipsrúmum. Hann var nokkur ár með hinum fræga afla- og spilamanni, Torfa Halldórssyni á m/b Þorsteini RE 21, bæöi á síld og línu. Þorsteinn mun hafa verið í kringum 40 tonn og þar var bæði beitt og saltað um borð. Þessar útilegur voru oft æði slarksamar í svartasta skamm- deginu, einkanlega þegar verið var vestur undir Jökli, og það var ekk- ert sældarbrauð að beita lfnuna í ágjöf og brunagaddi þó svo að skýli hafi nú verið í ganginum bakborðsmegin. Þá var ekki alltaf um mikinn svefn að ræða, og það fór ekki vel með hendurnar að þurfa bæði að beita og vera svo í saltinu líka, enda urðu menn oft sárhentir og fengu sár og fleiður á úlnliðina undan stakknum og átunni úr síldinni, til þess að verjast þessu voru menn með eirkeðjur um úln- liðinn. Þröngt mun einnig hafa verið í lúkarnum því þar var allur matur eldaður og þar urðu menn að þrífa sig og sofa og þurrka af sér lepp- ana. En á þessum árum fyrir stríð voru menn ekki að fást um slíkt. Það þótti bara gott að geta komist í góð pláss, menn voru ekki vanir öðru betra. Lengst af var hann þó með hin- um kunna aflaskipstjóra Vil- hjálmi Árnasyni, bæði á togaran- um Venusi og svo Röðli, og hann sigldi öll stríðsárin bæði á þessum skipum og svo um tíma á línuveið- aranum Jökli, sem var í fiskflutn- ingum til Englands. Þá var hann einnig með hinum þekkta aflamanni og loðnuskip- stjóra Haraldi Ágústssyni á vél- skipinu Guðmundi Þórðarsyni úr Reykjavík og síðan lengi á afla- skipinu Víkingi með Hans Sigur- jónssyni. Einnig starfaði hann í nokkur ár hjá ögurvík hf., bæði á skipum þess og í landi. Óskar var afburða duglegur og góður sjómaður og vel liðinn sem félagi af öllum sem með honum voru. Hann var hægur og rólegur og var ekki að troða öðrum um tær né trana sér fram á nokkurn hátt, en hann hafði sínar ákveðnu skoð- anir á hverju sem var. Og ég hygg að það sé ekki fjarri lagi og lýsti honum vel í starfi með tilvitnun í þessar vísur eftir Jónas Árnason: Bærist afli inná dekk eins og það gat borið, svo menn óðu villivekk vel í mitti slorið, í aðgerð fram hann ólmur gekk eins og Ijón í geitastekk, en fáir hafa af fínni smekk af fiski hausinn skorið, af fiski hausinn fagurlegar skorið. Og líka þegar allt var í einu djöfuls volli, hlerar brotnir, hafarí og hundrað göt á trolli, kunni hann með kurt og pí að kippa öllu í lag á ný, þó býsn hann gæti bölvað því bæði í dúr og molli! sumt í dúr, en meira þó í molli. honum oftast tilefni gleðskapar. Hann veitti af rausn og velvild þeim, sem sóttu hann heim. Á sínum yngri árum var hann virkur þátttakandi í íþróttum. Hann lærði glímu og lék um árabil knattspyrnu með félögum sínum í Tý. Áhugi fyrir þeirri íþrótt hélst alla tíð. Árið 1941 kvæntist hann eftir- lifandi eiginkonu sinni, Mínervu Kristinsdóttur. Bjuggu þau fyrstu 9 ár búskapar síns á Bakkastíg 3, en síðar í Sólnesi, þar til þau fluttu í eigið hús að Vallargötu 8, árið 1952, sem þau höfðu þá byggt. Þar hafa þau búið síðan að undan- skildum 10 mánuðum, sem þau urðu að fara frá Eyjum vegna jarðeldanna 1973. Þau hjónin fóru strax út í Eyjar aftur og hægt var að vera þar eftir gosið, þrátt fyrir það áfall og tjón, sem þau höfðu orðið fyrir í gosinu. Mínerva bjó manni sfnum vina- legt og fagurt heimili. Þar sat gestrisni í fyrirrúmi og þar var gott að koma. Þeim Sigurjóni og Mínervu varð ekki barna auðið, en þau fóstruðu upp systurdóttur Sigurjóns, Sig- ríði Mínervu, sem nýverið lauk prófi í viðskiptafræði frá Háskóla lslands. Hún er gift Kristni Bald- vinssyni, byggingameistara úr Vestmannaeyjum. Þau eru búsett i Mosfellssveit og eiga þrjá syni, Sigurjón, sem varð stúdent á þessu vori, Þóri, sem er nemandi í Menntaskólanum við Hamrahlíð, og Baldvin á barnaskólaaldri. Þeir nutu í ríkum mæli umhyggju afa síns og ömmu. Eldri drengirnir, sem báðir eru fæddir í Vestmannaeyjum, en fluttu burt í gosinu 1973, leituðu fljótlega á heimaslóðir aftur í frí- um sínum. Afa þeirra var umhug- að um að útvega þeim vinnu strax og þeir hefðu þrek til og vakti yfir því, að þeim farnaðist vel. Sigurjón Valdason vann sitt ævistarf af elju og samviskusemi. Hann hófst af eigin rammleik úr fátækt til bjargálna. Hann er nú genginn. Megi minningin um góð- an dreng varðveitast. Sólveig og Einar Óskar var sæmdur heiðurs- merki sjómannadagsins 1979. Er ég var ungur kom ég oft að Eyri til þeirra Rönku og óskars og margar ánægjustundirnar átti ég þar í litla og hlýja eldhúsinu, og þar var margt skrafað og spjallað og margan sopann drakk ég þar, en stundum þótti nú gömlu kon- unni óþarflega vel bætt í maskín- una þegar Óskar var heima. Eitt sinn gaf Ranka mér blá- svarta peysu sem var orðin of lítil á Óskar, ég var þá að byrja að róa og er ég var svo kominn í hana þá fannst mér einhvern veginn að nú yrði ég að standa mig og láta nú mitt ekki eftir liggja þar sem Óskar hafði verið í henni áður. Óskar kvæntist eftirlifandi konu sinni, Hallveigu Ólafsdóttur, sem alin var upp hjá afa sínum og ömmu á Ásabergi á Eyrarbakka. Þau eignuðust fimm börn en urðu fyrir þeirri þungu raun, að sonur þeirra aðeins tvítugur að aldri varð bráðkvaddur um borð í togar- anum Ögra hér rétt sunnan við Eyjar 1. des. ’78. Missir þessa unga og efnilega manns fékk verulega mikið á óskar og það mun ekki hafa verið fyrr en nú á síðasta ári sem hann var að nokkru farinn að sætta sig við þessi örlög. Þó leiðir okkar óskars hafi ekki legið mikið saman eftir að við fluttum báðir frá Eyrarbakka þá hittumst við alltaf öðru hvoru og þá oftast á æskustöðvunum. Þau systkinin áttu Eyrina áfram og voru þar mjög oft og um hverja helgi yfir sumarið, þau hföðu þar kartöflugarð og svo var verið að dytta að húsi og lóð og finna þar þann frið og ró líkt og í gamla daga. Það er eins og Bakk- inn hafi ekki ennþá komist að fullu í takt við tímann ennþá, og breytingar þar orðið minni en víð- ast annars staðar. Og er ég nú kveð með þessum línum hinn góða dreng og vin, þá sendi ég fjölskyldu hans mfnar innilegustu samúðarkveðjur. Sigmundur Andrésson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.