Morgunblaðið - 09.06.1984, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 09.06.1984, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNl 1984 Fiskar í litum Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson BÍóHÖLLIN: RUMBLE FISH Leikstjóri: Francis Coppola. Hand- rit: ('oppola og S.E. Hinton, byggt i skáldsögu þeirrar síðarnefndu. Kvikmyndataka: Stephen H. Bur- um, AÍ5.C. Tónlist: Stewart Cope- land. Aðalhlutverk: Matt Dillon, Mickey Rourke, Diane Lane, Dennis Hopper, Dana Scarwid, Christopher Penn. Bandarísk frá Universal/PSO. Sýningartfmi: 94 mín. Gerð 1983. Af kvikmyndasnillingum nú- tímans eru fáir jafn mistækir og Francis Coppola, nema þá ef vera skyldi John Huston. Rumble Fish er þriðja mynd hans í röð sem engan veginn stenst sam- anburð við hans bestu verk. Það ber þó að hafa í huga að slappar Coppola-myndir eru mun bita- stæðari en meðalmennskan uppá sitt besta. í Rumble Fish heldur Coppola áfram að fjalla um unglinga- vandamál stórborgarslumm- anna, en hún gerist á svipuðum slóðum og tíma og segir frá hliðstæðum persónum með sömu vandamál og næsta mynd hans á undan, The Outsiders. Á meðal unglingaglæpagengja sjötta ára- tugarins, í hvaða stórborg sem er vestan hafs. Það er heldur engin tilviljun, því báðar eru myndirnar gerðar af S.E. Hint- on, sem jafnframt hefur hjálpað til við handritsgerð. Það breytir þó engu þar um að Rumble Fish er flöt hvað efnið snertir en þeim mun ásjálegri sem kvikmynd. Matt Dillon fer hér með hlut- verk heldur torgefins strætis- jaxls sem reynir að erfa kon- ungdæmi og orðstír bróður síns (Mickey Rourke) á meðal hinna upprennandi glæpagerla þess óhrjálega hverfis sem er sögu- svið myndarinnar. En í upphafi Mickey Rourke fylgir hér eftir góðum leik í Diner. hennar er Rourke búinn að vera horfinn af sjónarsviðinu i nokkra mánuði. Tilburðir Dillons ganga ekki of vel, einkum er það kollurinn sem tefur hann í uppgangi met- orðastiga strætispönkaranna. En þegar allt er að bregðast birtist bróðir hans (sem reyndar getur tæpast talist heill á geðsmunum) og kemur honum til bjargar. Reynt er að kafa niður í sálar- líf þeirra bræðra, sem alist hafa upp hjá sídrukknum föður (ynd- islega undirleiknum af þeim fornfræga mótorhjólatöffara Dennis Hopper) eftir að móðir þeirra stakk þá af, börn að aldri. Þær vangaveltur segja fátt. Myndatakan, sviðsetningar og sviðsmunir eru fullir af táknum. Mest er þó notað af reyknum. Grunar mig að meistarinn hafi ofnotað hann og tæpast séð út úr honum á köflum. Rumble Fish er haganlega gerð, eins og Coppola er von og vísa. Kvikmyndatakan er yndi fyrir augað en efnið fer fyrir ofan garð og neðan og persón- urnar haldlitlar og óglöggar. Þessi meginatriði ná aldrei sam- an sem skyldi svo árangurinn verður aðeins athyglisverður smá-kapítuli á listaferli meist- ara Coppola. Töffaragengi Matt Dillons í Rumble Fish. í þessari nýjustu mynd Copp- ola er allt mismunandi gritt utan ránfiskar í fiskibúri. Gullöld plastpokans Bókmenntír Jóhann Hjálmarsson Gyrðir Elíasson: TVÍBREITT (SVIG)RÚM eða póesíbók númer eitt komma tvö. Mál og menning 1984. TVÍBREITT (SVIG)RÚM er önnur ljóðabók Gyrðis Elíassonar. Það sem einkennir þennan unga höf- und er rík tjáningarþörf og lofar það út af fyrir sig góðu. Aftur á móti er Gyrðir ekki sáttur við nakta tjáningu, það að bera tilfinningar sinar á torg i formi öskurs. Hann vill hafa ljóðið í umbúðum. Hann leggur mikið upp úr því hvernig orðum og setn- ingum er raðað á blað, iðkar til- raunir í því efni. Auk þess er hann hallur undir skeytasendingar milli skálda, útilokað er fyrir óupplýsta lesendur að hafa gagn af ljóðum hans. í a rhetoric poem in semi-iceland- ic dedicated to einar már and allen ginsberg yrkir Gyrðir Elíasson um gullöld plastpokans. Það sem gerist á fyrrgreindri öld er m.a. þetta: leikur inspíra- sjónin af fíngrum fram í grafískum nethimnum skáldanna alibíur glæpamyndanna lullabíur barnabókanna alt næstum alt hefur sinn einstreingíngslega vitjunartíma Ég skal játa að ég kann ágæt- lega við þann æskulega tón sem hljómar í þessu Ijóði og einnig í lokaljóði bókarinnar: another poem for allen ginsberg and einar már. En yfirleitt yrkir Gyrðir Elías- son hnitmiðaðri ljóð, hann breiðir sig ekki yfir margar blaðsíður í inspírasjóninni. Eitt sem hlýtur að duga honum til árangurs í framtíðinni er það að hann beitir sjálfan sig aga, hefur þrátt fyrir ungan aldur náð tökum á máli og þeirri erfiðu list sem kalla má takmörkun. Ung skáld ber kannski ekki að lofa fyrir þessa kosti, en þeir vekja vonir og eru virðingarverðir. Gyrðir Elíasson Við skulum líta á eitt ljóða Gyrðis sem eru til vitnis um þetta: aö sja ray charles spila sjón- lausan á píanó (20 tommu litsjón- varpi uppi á hjara mynd- veraldar ABSÚRD (eða hvað) Mörg ljóða Gyrðis Elíassonar lýsa þeirri fáránleikaveröld sem við búum í: absúrdtilveru. Hann hefur valið sér það hlutskipti að lýsa þessari veröld með hennar eigin vopnum. Hann speglar hana með spegli sem hún hefur sjálf smíðað. Spegillinn er vel slípaður, en sýnir óhugnað fremur en fegurð. Það er líklega við hæfi. Skáld eins og Gyrðir Elíasson er vitanlega að þreifa fyrir sér. Hann er allur í tilraunum og eðlilegum ungæðishætti. Með þessu er for- vitnilegt að fylgjast, ekki síst í þeirri von að það eigi eftir að leiða af sér annað og meira en Tvíbreitt (svig)rúm. Notaðu okuljósin -alltaf TOYOTA Dómsdagsviðbrögð Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson ísak Harðarson: RÆFLATESTAMENTIÐ. Mál og menning 1984. Þrengsta ljóð i heimi nefnist eitt ljóðanna í Ræflatestamenti ísaks Harðarsonar. Þar er stefnu- skrá um veruleikann: Mörkum murkum hann niður með ORÐ um Að murka veruleikann niður er það sem ísak Harðarson fæst við í Ræflatestamentinu. Og hvað er annað að gera þegar „okkur dreymir enga drauma lengur og hugsjónirnar horfnar"? Isak birtir kaldhæðnislega af- stöðu til lífsins. Orð eins og til- gangur hafa glatað merkingu sinni. Írónían er eina svarið. ísak er oft beinskeyttur og tekur stórt upp í sig. Fyrirlitningin leynir sér til dæmis ekki þegar annað eins smælki er á dagskrá og ástin og Guð. 20. aldar ástarljóð segir frá manni sem „er andfúll eins og opið klóakrör“ og í Guðsi (b) lýsir hann eftir Guðsa sem er „ráðríkur en skilningsríkur/ dáldið farinn að kalka". Dómsdagsviðbrögð sem dreift er tölusettum um bókina spegla and- rúmsloft hennar; númer 4 er svona: „Þeir segja atómstríð í vændum/ Væri ekki ráð að fá sér í feita pípu?“ Næst síðasta ljóðið er hvatning til sjálfsmorða. Það er satt að segja lítil von í þeim ræflaheimi sem Isak Harðarson sér alls stað- ar blasa við. Ljóð ísaks Harðarsonar eru vel orðuð og sýna að hann hefur þegar náð skáldlegum þroska. Flest þeirra eru af því tagi sem kalla mætti kennsluljóð, þau eru viðvar- anir, meinlegar athugasemdir um samtímann. Þau eru nokkuð ein- hæf vegna þeirrar afstöðu sem sí- fellt er klifað á. Háðið verður ádeilunni lyftistöng, bjargar því að skáldið geri út af við lesandann með prédikunum og svartsýni. Til þess að sýna vinnubrögð skáldsins er hér birt eitt ljóðanna, Bróðir fugl: Innimúraði bróðir — þú ert ekki innimúraður! Bróðir með steinsteypuhjartað — hjarta þitt getur flogið! Þú, sem ert hér, varst hér og munt verða hér bundinn — þú ert hér ekki! Yfir steinsteyptri borginni fljúga fuglar í átt til sólar. Framkvæmdanefnd Rannsókna- ráðs hefur skipað starfshóp til að gera drög að samræmdri stefnumót- un á sviði upplýsingamála, gagna- vinnslu og fjarmiölunar á íslandi. Er hlutverk hópsins að gera almenna grein fyrir stöðu þessara mála, gera grein fyrir þróun þeirra, þýðingu, þjóðfélagslegum afleiðingum og hættum eða tækifærum, sem upplýs- ingabylting skapar, auk þess að gera tillögur um skipulag og aðgerðir stjórnvalda til að beina þessum mál- ísak Harðarson Yfir steinsteyptri borginni á himininn sér engin takmörk. Yfir steinsteyptri borginni munu þeir rembast við að skjóta niður hjarta þitt á leið til solar, svo það rotni í ræsinu. um í heppilegan farveg. I nefndinni eiga sæti: Dr. Oddur Benediktsson, prófessor og for- maður hennar, Sigurður Þórðar- son, deildarstj., Hjalti Zóphonías- son, deildarstj., Páll Kr. Pálsson, framkvæmdastj. tæknideildar FÍH, Þorvarður Jónsson yfir- verkfr. Pósts og síma og Þorbjörn Broddason, lektor, en Jón Er- lendsson, forstöðumaður upplýs- ingaþjónustu Rannsóknarráðs verður ritari nefndarinnar. Samræmd stefnumótun á sviði upplýsingamála

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.