Morgunblaðið - 09.06.1984, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 09.06.1984, Qupperneq 48
OPIÐ ALLA DAGA — ÖLL KVÖLD (líff /'árienbettj AUSTURSTRÆTI 22 INNSTRÆTI, SIMI 11340 OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 11.45 - 23.30 AUSTURSTRÆTI 22 INNSTRÆTI, SÍMI 11633 LAUGARDAGUR 9. JUNI 1984 VERÐ I LAUSASOLU 25 KR. Helgarveður HLÝINDIN halda áfram. Hjá veðurstofunni fengust þær upplýsingar í gær, að útlit væri fyrir hæga suðlæga átt um helgina og hlýtt verður um land allt. Á Suðvestur- og Vesturlandi verður skýjað að mestu en léttskýjað fyrir norð- an og austan. Súld verður sennilega öðru hverju við suð- urströndina, einkum á nótt- unni. Kristján Ragnarsson um stöðvun fiskiskipaflotans: „Tel að margir komi á eftir Austfiröingunum“ „ÉG TEL að það komi margir á eftir þeim en það þarf ekki að þýða að allir komi á eftir. Ekki er stefnt að neinni allsherjarstöðvun. Austfirðingarnir undanskildu humar- og rækjuveið- arnar þannig að þá er fyrst og fremst um togaraútgerðina að ræða á þess- um tíma, og ég tel líklegt að fleiri komi á eftir,“ sagði Kristján Kagn- arsson formaður Landssambands ís- lenskra útvegsmanna í samtali við Mbl. er hann var spurður að því hvort hann teldi að útvegsmenn færu al- mennt að dæmi forráðamanna aust- firskra sjávarútvegsfyrirtækja — sigla í land og hætta útgerð. Kristján taldi að staða útgerðar annars staðar á landinu væri alveg sambærileg við það sem er á Aust- urlandi og engin sérstaða þar. Sagði hann, aðspurður um afkomu fyrirtækjanna, að um áframhald- andi verulegan taprekstur væri að ræða sem bættist við tap undanfar- inna ára. Kristján sagði að tap út- gerðarinnar væri um 15% sam- kvæmt útreikningum LÍÚ sem nálgaðist það að vera milljarður á ári. Þjóðhagsstofnun segði tapið hins vegar vera 4—6%, að vísu með miklum fyrirvörum. Væri Þjóð- hagsstofnun með því að meta sókn- arminnkun sem sparnað í útgerð- arkostnaði en reyndin væri hins- vegar því úthaldið væri jafn mikið. Því væru útreikningar Þjóð- hagsstofnunar óraunhæfir. Krist- ján sagði að LÍÚ hefði nú afhent Þjóðhagsstofnun nýjar upplýsingar um sóknina og hver útkoman hefði verið fyrstu fjóra mánuði ársins. Þar kæmi í ljós að ekki hefði orðið nein sóknarminnkun á þessu tíma- bili. Aðspurður um hvað hann teldi að fiskverð þyrfti að hækka til að laga hag útgerðarinnar sagði Kristján að útvegsmenn hefðu ekki sett fram neinar tölur um það vegna þess að ekki lægi fyrir hvað gert yrði í sambandi við olíuverðið. Gætu þeir ekki lagt fram kröfu um fiskverðshækkun fyrr en fyrir lægi hvað ríkisstjórnin ætlaði að gera í þeim málum. Sagði Kristján að 9% hækkun á hráolíu og 19% hækkun á svartolíu eins og olíufélögin hafa farið fram á þýddi 200 milljóna kr. hækkun útgerðarkostnaðar á ári. Viðskiptaráðherra skrifar Seðlabankanum: Endurskoðun verði hraðað „ÞAÐ er orrtiö mjög brýnt art breyta afurfta- og rekstrarlánakerfinu á þann veg, að þau verði í ríkari mæli á vegum viðskiptabanka og sparisjóða. Af þeim sökum sendi ég bankastjórn Seðlabanka íslands bréf, þar sem óskað var eftir tillögum f þessu efni svo fljótt sem kostur er,“ sagði Matthías Á. Mathiesen, viðskiptaráð- herra, í samtali við Morgunblaðið í gær, en hann sendi í fyrradag bréf til Seðlabankans, viðskiptabankanna og sparisjóðanna, þar sem farið var fram á að framgangi málsins yrði flýtt svo sem unnt væri. í bréfinu er vísað til bréfs ráðu- neytisins frá 20. júní 1983, þar sem óskað var athugunar Seðlabankans á afurða- og rekstrarlánakerfinu. Fyrsta skref í þá átt að færa þessi lán í auknum mæli til viðskipta- banka og sparisjóða var stigið 20. maí sl. og í yfirlýsingum sem gefnar voru af því tilefni kom fram, að Seðlabankinn og viðskiptabankarnir muni hafa með sér samráð um frek- ari breytingar á endurkaupafyrir- komuiaginu. Einnig að uppfylltar verði óhjákvæmilegar lánsfjárþarfir framleiðslustarfseminnar um leið og gætt sé þess aðhalds í peningamál- um, sem efnahagsástandið útheimt- ir. Þá segir í bréfi viðskiptaráðherra til bankastjórnar Seðlabankans: „Þar sem brýna nauðsyn ber til að ljúka fyrrgreindri athugun hið allra fyrsta, óskar ráðuneytið eftir tillög- um Seðlabankans svo fljótt sem kostur er. Tvenns konar breytingar á afurðalánakerfinu eru einkum hafð- ar i huga: a) Aframhaldandi afnám beinna endurkaupa og þá með miðlunarað- gerðum eða millibankaviðskiptum og b) erlend fjármögnun á hluta af gengisbundnum afurðalánum. Þar sem undirbúningur þessara tveggja þátta málsins getur tekið mislangan tíma er æskilegt að fá fram tillögur um hvorn fyrir sig, þegar þær geta iegið fyrir." Tilbúinn foss (Ljósm. Vilbergur Kristinsson.) Þe8si tignarlegi foss myndaðist í fyrradag við að vatn í Sigöldulóni var látið hækka og renna um yfirfall fram á gilbrún gamla farvegsins við Sigöldu. Þaðan steypist vatnið ofan í gilið og rennur síðan gamla farveginn niður í Hrauneyjalón. Ekki er þó þessum fossi ætlað að vera þarna til frambúðar, enda var hann búinn til í þeim tilgangi að prófa yfirfallið, sem endurbætt var í fyrra. Um leið og vatnsborðið lækkar sjálfkrafa í Tungná á næstunni verður því hætt að láta vatnið renna um yfirfallið og fossinn hverfur. Austur-Skaf tafellssýsla: Slátturinn hafinn í Bæjarhreppnum FYRSTU bændurnir hafa hafið slátt. Þorsteinn Geirsson, bóndi á Reyðar- firði á Lóni í Austur-Skaftafellssýsiu, hóf í fyrradag slátt, fyrstur manna á þessu sumri, að talið er. Vel horfir með grassprettu um land allt, sérstaklega Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra: Veiðiheimildir til Portú- gala koma ekki til greina - segir þær opna fyrir kröfur annarra þjóöa, þ.á m. Rússa „ÞAÐ kemur ekki til greina og það hefur aldrei komið til greina, að mínu mati, að veita Portúgölum veiðiheimildir í landhelgi okkar,“ sagði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær, er hann var spurður hvort til greina kæmi að veita Portúgölum takmörk- uð veiðiréttindi í íslenskri landhelgi, gegn því að tollur af saltfiski sem við flvtjum til Portúgal yrði felldur niður, en Friðrik Pálsson framkvæmdastjóri SIF segir í samtali við Morgunblaðið í gær, þegar hann er spurður hvort hann telji að slíkt komi til greina til þess að fá tollunum aflétt að við höfum þegar gert samninga við erlendar þjóðir um fiskveiðiréttindi í íslenskri landhelgi, og það hafi verið mat þeirra sem þá samninga gerðu að um svo mikla hagsmuni væri að ræða, að slíkt væri réttlætanlegt. Forsætisráðherra sagði að galskra útgerðarfyrirtækja, sem Portúgalir hefðu alloft sent hingað hefðu sótt á um að fá veiðiheimild- fulltrúa til viðræðna, og það hefðu ir í íslenskri landhelgi og jafn- þá einkum verið fulltrúar portú- framt hefðu þeir sótt það fast að fá að kaupa ferskan fisk beint úr skipunum. „Hvorutveggja var ávallt algjörlega vísað á bug,“ sagði Steingrímur, „og við, sem i viðræðum við þessa menn stóðum, bentum þeim jafnan á, að við full- nýttum okkar fiskistofna sjálf." Steingrímur sagði jafnframt að ef einum slíkum viðskiptaaðila yrði veitt veiðileyfi í íslenskri landhelgi, þá væri ekki gott að sjá hvar slíkt gæti endað. Hann sagði að þeir, sem væru að sækjast eftir slíkum leyfum, vísuðu gjarnan til þess að Færeyingar veiða í ís- lenskri landhelgi. „Það tel ég vera allt annað mál,“ sagði Steingrím- ur, „því Færeyingar hafa alda- gamla sögu veiða hér við land. Ég hef allt aðrar tilfinningar fyrir því að þeim sé leyft að veiða hér.“ Forsætisráðherra sagði jafn- framt: „Rússar hafa margoft farið fram á það sama og Portúgalir, hvað varðar kolmunna. Auðvitað eigum við gífurlega mikilla við- skiptahagsmuna að gæta við Rússa, og við gætum varla neitað þeim, ef við færum að hleypa Portúgölum inn í landhelgi okkar.“ fyrir norðan og austan. Búist er við að bændur í Eyjafirði hefji slátt um miðj- an mánuðinn. Vorverkin ganga vel hjá bændum og er fénaður víðast kominn af gjöf. Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri sagði í samtali við Mbl. að gróður væri langt á undan miðað við undan- farin ár, jafnvel einum mánuði eða meira fyrir norðan, og vel liti út með grassprettu. Þó sagðist hann hafa heyrt um kal á Hólsfjöllum og víðar í háttliggjandi túnum í Þingeyjar- sýslu, til dæmis í Bárðardal. Sagði hann að sauðburður hefði alls staðar gengið vel og væri honum yfirleitt lokið eða að ljúka og menn búnir að sleppa fénu heimavið. Ekki yrði þó rekið á fjall fyrr en um mánaðamót. Síðustu dagar hefðu hjálpað gróðri mikið og fénaður yfirleitt kominn af gjöf. Nokkuð væri síðan bændur í Eyjafirði létu út kýr og hættu að gefa og væru menn nú almennt að láta þær út sunnanlands. Eggert Ólafsson bóndi, á Þor- valdseyri undir Eyjafjöllum, sagði í samtali við blm. að grasspretta væri ágæt en taldi að ekki yrði byrjað á slætti fyrir alvöru fyrr en undir mánaðamót. Menn væru enn I vor- verkunum og færi þetta eftir þvf hvernig þau gengju.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.