Morgunblaðið - 15.07.1984, Page 2

Morgunblaðið - 15.07.1984, Page 2
50 MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 15. JtJLl 1984 Og ætlar þú þá að taka því rólega héðan í frá? „Ef nýi skólastjórinn vill hafa mig sem kennara þá er ég viljug- ur að taka fáeina nemendur. Bæði er, að það sem mér lætur best er að kenna á píanó og svo hefi ég ákaflega mikla ánægju af kennslunni. Það eru 61 ár síðan ég byrjaði að kenna sem at- vinnumaður, og síðan hef ég ein- göngu starfað að tónlist nema þau þrjú ár, sem ég var i banda- ríska hernum til að sigra Hitler. Þetta er orðinn langur tími. Það hefur að minnsta kosti enginn íslendingur, svo ég viti, unnið að kennslu í tónlist svona lengi. Þú veist, að samanlagður starfsald- ur og lífaldur er 95 ár til að kom- ast á eftirlaun en hjá mér eru þau að nálgast 150.“ þetta er langur tími. „Jú, en þetta hefur verið skemmtilegt, og þrátt fyrir erf- iðleikana hefur allt gengið vel. Þegar ég kom til landsins frá Bandaríkjunum 1948, eftir að hafa verið erlendis í næstum 30 ár, voru engir starfandi tónlist- arskólar á landinu nema í Reykjavík og á Akureyri. Tón- listarskólinn á ísafirði var í rauninni stofnaður 1947 en hann hóf ekki störf fyrr en þegar ég kom á ísafjörð sumarið eftir. Fyrst var ég eini kennarinn, svo fékk ég Jónas Tómasson eldri til þess að kenna á orgel og á næstu árum bættust við píanó- kennararnir Elísabet Kristjáns- dóttir og Guðmundur Árnason. Nemendur á 30 ára afmæli Tónlistarskólans á ísafirði 1978. Ragnar við kennslu. Nemandinn er Hólmfríður Sigurðardóttir. Við kenndum öll heima hjá okkur, og ég tók strax upp á því að halda samæfingar nemenda heima hjá mér á sunnudögum og hefur það haldist ætíð síðan. Nokkru seinna hófst kennsla á blásturshljóðfæri og svo bættust við fiðla og selló og ýmis önnur hljóðfæri. Þá hafa um margra ára skeið starfað lúðrasveit og hljómsveit við skólann auk kammersveita nemenda og kennara.“ Og hvar fór kennslan fram. í eldhúsinu hjá þér eða ... ? Nei, reyndar ekki, en við höf- um orðið að kenna í heimahús- um, skólum bæjarins og í leigu- húsnæði út um allan bæ. Nú eru hins vegar uppi áform um að byggja skólahús og vafalaust tekst ísfirðingum, af sínum al- kunna dugnaði, að reisa fagra og ágæta byggingu.“ Gekk hægt í fyrstu Var mikill áhugi fyrir skólan- um á ísafirði á fyrstu árum hans? „Þetta gekk ákaflega hægt í fyrstu, skal ég segja þér. Ég hefi alltaf verið sannfærður um, að börn ættu að byrja að læra á hljóðfæri sem allra yngst. Fyrstu árin voru flestir nemend- urnir unglingar eða fullorðið fólk, þangað til Anna Áslaug dóttir mín og Lára Rafnsdóttir innrituðust í skólann sex til sjö ára. Þær gerðu svo mikla lukku að fólk sá að það væri ekki svo vitlaust að láta krakkana fara til hans Ragnars." Er alltaf jafnmikill tónlistar- áhugi á ísafirði? „A síðastliðnu ári stunduðu um 170 nemendur nám við skól- ann. Skólinn hefur notið mikilla vinsælda og ég vona að svo verði um alla framtíð." Sækir fólk af öllu landinu skólann? „Það er aðallega frá ísafirði og víðar af Vestfjörðum." Heldur þú að það sé staðbund- ið fyrirbæri þessi tónelska Vest- firðinga? „Tónlistarskólum smáfjölgaði í landinu en þeim fjölgaði fyrir alvöru eftir ’75 þegar lög frá al- þingi komu um að ríkið greiddi helming af launum kennara og skólastjóra og bæjar- eða sveit- arfélög greiddu hinn helminginn af laununum. Allan annan kostnað greiddi skólinn sjálfur með skólagjöldum nemenda. Þetta hefur orðið til þess að í fyrra voru á níunda þúsund nemenda í tónlistarskólunum og á ellefta þúsund söngfólks voru í söngflokkum landsins og fjöldi hljómsveita hefur verið stofnað- ur. Þess vegna er það að ef ís- lendingar skera nú niður fram- Iag til tónlistarskólanna, til listamanna, til háskólamanna og ætla að fara að takmarka þekk- inguna þá er voðinn vís. Ef við höldum áfram styrknum til að auka þekkinguna, auka listirnar og styrkjum okkar nemendur til náms, ekki aðeins á íslandi held- ur líka erlendis, þá er okkur borgið. Eins og ég hef sagt nem- endum mínum: „Það verður eng- inn músíkant á ísafirði," þótt þeir fengju heimsins bestu kenn- ara. Til þess er umhverfið of fábreytt. Eg ráðlegg alltaf öllum nemendum minum, sem ætla að verða atvinnufólk, að fara til Reykjavíkur til náms og helst einnig til útlanda. Sú hugmynd að skera niður styrki til náms- fólks, sem vill fara að læra í út- löndum, verður til þess að eyði- leggja menningu þjóðarinnar gersamlega. Við verðum þá eins og lýsnar, sem vilja bara lifa til að éta. Látum okkur leggja allt í sölurnar til þess að vera menn áfram, mannast í orðsins sanna skilningi. Og upprunalega átti orðið „heimskur" við þann, sem ekki hafði farið að heiman og engu öðru kynnst. Við skulum ekki gleyma því. „Lúsasjónarmid“ Ég skal segja þér það, að mér finnst framþróunin í íslensku listalífi, frá því ég kom hingað að utan, hafa verið alveg ótrúleg. Og það, sem gerir íslendinga merkilega, er menningin. Það sem þjóðin þarf er þekking, þekking og þekking en hún er stoð menningarinnar. Menning er það að vera maður en ekki dýr. Ef við værum ekki að hugsa um neitt annað en það verald- lega og að komast af gætum við alveg eins verið lýs á líkama dýra. Ekkert þyrfti maður þá að vera að hugsa um menninguna, sérðu. En það eru sumir í land- inu, sem hafa það, sem ég vil kalla hrein lúsasjónarmið. Það er auðvitað sjálfsagt að hugsa um efnalega og fjárhagslega af- komu en það er ekki allt fengið með því. Skepnurnar bíta gras og fisk- arnir í sjónum éta hver annan en dýrin Iíta aldrei upp til stjarn- anna, upp til himins. Þau hafa enga hugmynd um neitt og vita ekki um sína eigin tilveru. Við þurfum að varast að vera ekki eins og dýrin.“ Segðu mér, þykir þér íslend- ingar vera illa mannaðir í dag? „Nei, ekki er það, en það eru til illa mannaðir menn á íslandi. Mér finnst nefnilega mikið til um íslendinga. En hver einasti unglingur á íslandi þarf að fá tækifæri til þess að mannast og verða liðtækur í þessu þjóðfélagi af því að við erum svo fámenn. Það á þó ekki að dæma Islend- inga eftir mannfjölda. Það á að heimta ágæti af þeim hversu fá- ir sem þeir eru. Við megum aldr- ei nokkru sinni gleyma að halda menningunni við. Hugsaðu þér nú bara það, að til eru menn, sem vilja gera íslendinga að verksmiðjuþrælum útlendra auðfélaga i staðinn fyrir að taka höndum til sjalfir eins og þegar þeir stofnuðu Eimskipafélag ís- lands 1913.“ íslendingar sérstak- lega músíkalskir Þú hefur sagt að það sé mikill tónlistaráhugi meðal íslendinga. Hvers vegna heldur þú að það sé? „Menningin hér á sér gamlar rætur og Islendingar eru alveg sérstaklega músikalskir. En ég held að það fari allt norður og niður ef ríkið hættir að styrkja menninguna og þá er ég ekki bara að tala um tónlistarskól- ana, heldur líka háskólafólkið til að það geti haldið áfram að mennta sig erlendis. Mér er al- veg sama hvað háskólinn er góð- ur eða'tónlistarskólarnir, nem- endur verða að hafa kost á því að fara utan til að kynnast heimin- um, eins og forníslendingarnir gerðu. Sjálfur var ég úti f næst- um 30 ár og ég hafði óendanlega gott af því. Ég vil bæta þvi við, að ef ríkis- styrkurinn til tónlistarskólanna verður felldur niður, verður að hækka skólagjöldin um helming eða meira og hvers eiga þá þeir fátækari að gjalda? Eg vil líka nefna það að börn sem leggja stund á tónlist og læra á hljóð- færi eru yfirleitt hæst í sínum deildum i öllum skólum, eða með þeim hæstu. Undantekningar- laust. Rifíst um orgelið Hvar hlýddir þú fyrst á tón- list? „Á heimili minu. Það var söngur á heimili mínu frá því ég man eftir mér. í bréfi frá seinni hluta nítjándu aldar stendur þetta: „Allur Laxárdalur glymur af hljóðfæraleik," svo tónlistin á sér djúpar rætur á mínum bernskuslóðum. Faðir minn var organisti i Þverárkirkju í Lax- árdal í hérumbil 50 ár og hann var fyrsti organistinn á Borg í Borgarfirði. Þegar ég var ungl- ingur keypti hann gamla orgelið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.