Morgunblaðið - 15.07.1984, Side 4
52
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 1984
Texti og myndir.
Emil Gunnar
„Ást YÍÓ
fyrstu
" ' ÍL
syn
/E, greyið! Fengið gat á hausinn,
augun eru ónýt og fóturinn brotinn.
Við erum tvær hérna, stalla min
og ég. Hún sér um verslunina og
ég geri við dúkkurnar. Seinni
partinn er ég heima og vinn þar.
Ég hef meira næði heima og vinn-
an gengur oft betur. En mér er
það nauðsynlegt að vera í sam-
bandi við viðskiptavininn. Þetta er
nefnilega þakklátt starf. Þeir sem
koma með dúkkur í viðgerð eru
aðallega litlu stelpurnar, karl-
menn og eldri konur.
Þær litlu halda að ég sé alvöru
læknir. Þess vegna get ég einfald-
lega ekki stungið dúkkunum i
plastpoka meðan þær bíða eftir
viðgerð. Það særir stelpurnar, svo
ég legg „sjúklinginn" í þetta rúm.
Þær eru svo viðkvæmar gagnvart
dúkkunum sínum. Stundum koma
þær með dúkku sem borgar sig
ekkert að gera við, en maður gerir
það samt. Þegar þær koma svo að
sækja dúkkuna eru þær ekkert að
hugsa um hvernig viðgerðin sé
heldur faðma sjúklinginn. Það er
nú meira hvað hausinn er fastur.
Þessa kemur pabbinn með. Hann
er hér alltaf af og til vegna þess að
hann vill að stelpan leiki sér að
gamalli dúkku og hún er pínulítið
harðhent en líkar dúkkan. Enda
hefur hún sál.
Mennirnir sem koma hingað eru
aðallega safnarar. Þeir eru með
ævagamlar dúkkur. Já, finnst þér
það skrítið, en þetta er árátta.
Eins og t.d. fjárhættuspil. Maður
sér dúkku og verður að fá hana.
Ást við fyrstu sýn. Svo einfalt er
það.
úr postulíni eða þá þessu hræði-
lega efni zelloloid. Jæja, greyið þá
er að sjá hvort ég finn fót handa þér.
Ég fæ svo lítið af varahlutum og
þess vegna verð ég að safna að
mér heillegum hlutum úr ónýtum
dúkkum. Annars framleiða þeir
hluti á gömlu dúkkurnar, en það
fer ekki vel á þeim þegar þær hafa
náð vissum aldri. Liturinn er aldr-
ei sá sami og nýtt er alltaf nýtt. í
dag eru dúkkurnar úr PVC skulum
við segja, en eiginlega er það
leyndarmál. Hvert fyrirtæki hefur
sína eigin uppskrift sem það gefur
ekki upp. Tuskudúkkurnar hafa
alltaf verið til og munu alltaf
verða til. Þær koma svo sem líka í
viðgerð en þá verð ég að nota nál
og tvinna. Eins og amma.
Verkfærin sem ég nota eru eig-
inlega það sem ég finn, tangir,
sagir, skæri. Ég er búin að panta
sérstök verkfæri og þá léttist
vinnan. /E, annað augað þitt er
sprungið, ég verð að finna eitthvað
sem fellur vel að hinu. Veistu, þessi
Hjá konunum verð ég oft vör við
endurminninguna. Þetta eru
dúkkur sem börnin þeirra léku sér
að eða þær sjálfar í æsku. En það
eru líka til konur sem eru safnar-
ar. Ég hef kynnst einni sem hefur
komið með meira en hundrað
dúkkur á einu ári. Slíkar konur
eru sérstakar og ákaflega hressi-
legar. Þær fyrirfinnast nefnilega
sem geta ekki átt börn ... Þarna
losnaði hann. Eg tala svo mikið um
gamlar dúkkur því það er
skemmtilegast að gera við þær.
Þessi er úr zelloloid. Leiðinlegasta
efnið sem maður vinnur með. Það
er svo stökkt. Sem betur fer er það
ekki mikið notað núna. í þessu til-
felli loka ég gatinu á hausnum
með gipsi og mála yfir. Þá fyrst
get ég farið að vinna í augunum á
henni. Það kemur mikið af dúkk-
um til mín þar sem augun hafa
losnað. Skrokkurinn er aftur á
móti úr leðri eða viði en ég hef
aldrei séð gamla dúkku þar sem
hausinn er úr viði. Hann er alltaf
r ^
Kork-o-Plast
Gólf-GIjái
Kyrir PVC-filmur, linoleum,
gummi. parket og steinflisar
('C-Kloor Polish 2000 gefur end-
ingarKÓða pljáhúð.
Notkun: Þvoið gólfið.
Iterið CC-Floor Polish 2(K)0 óþynnt
á gólfið með svampi eða rakri
tusku.
Notið efnið sparlega en jafnt. Lát-
ið þorna í 30 mín.
Á illa farin gólf þarf að bera
2—3svar á gólfið.
. Til að viðhalda gljáanum er nóg að
setja 1 tappafylli af (’C-Kioor Pol-
ish 2000 i venjuletta vatnslotu at
volgu vatni.
Til að fjarlægja gljáann er best að
nota R-1000 þvottaefni frá sama
framleiðanda.
Notið aldrei salmíak eða ónnur
sterk sápuefni á Kork-o-Plast.
KinkaumhoA á Islandi:
1». I»orj;ríni.s.son & ('o.,
Ármúla 16, Keykjavík, n. 3M640.
L J
löfóar til
fólksíöllum
starfsgreinum!
Al iva
. - Verð tilboð
Þetta stórglæsilega tæki frá AIWA meö LW — MW — SW og FM stereo, 2x14 w. magn^ra og
lausum hátölurum, 5 banda tónjafnara, segulband meö Dolby og fyrir CrO2 og Metal-spófur og
marga aöra mjög skemmtilega möguleika, kostar nú aöeins kr.
AMt tH Mfómfíutnmgs fyrir: Á _D_ ii i r
HEIMILHD - BÍLINN
OG X ) ARMULA 38 (Selmúla megin) 105 REYKJAVIK
DISKÓTEKIO y SIMAR; 31133 83177 POSTHÓLF 1366