Morgunblaðið - 15.07.1984, Side 7

Morgunblaðið - 15.07.1984, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 1984 55 „ . . . þegar maðurinn minn tók við embœtti fannst mér erfitt að segja álit mitt, því ég hafði alltaf gert það í samrœmi við álit og gerðir Francois “ endurbyggt, og gömlu íbúarnir fluttu á brott. IG: Eigið þið heima i einbýli eða fjölbýli? MM: Einbýli, eða reyndar litlu fjölbýlishúsi, sem eitt sinn var dæmt til niðurrifs. Þegar átti að fara að rífa húsið varð ljóst að í því var stórbrotinn stigi frá 16. öld eða upphafi 17. aldar. Sjálft húsið er allt skakkt og skælt. En hvað sem því líður, við fengum leyfi til að lagfæra það; við urðum að taka niður loftin og leysa fleiri vanda- mál. IG: Eru húsgögnin einnig gömul? MM: Nei, inni er allt nýlegt, her- bergin eru mjög lítil, en okkur hefur tekizt að hreiðra vel um okkur. Börnin ólust þarna upp. (Mitterrand-hjónin eiga tvo syni.) Nú búa þau í eigin íbúðum í sama húsi. Við vorum lánsöm. Þau studdu ætíð Francois á stjórn- málaferli hans. Tengdadætur mín- ar hjálpuðu einnig til. IG: Farið þér til skrifstofu yðar á morgnana? MM: Við förum á hverjum degi til Elysee (forsetahallarinnar) að loknum morgunverði heima, sem er fastur liður hjá okkur. Eins og þér vitið, búum við ekki í Elysee, en við erum þar alla daga. Frá klukkan 9.30 eða 10 á morgnana þar til klukkan 9.30 eða 10 á kvöld- in, þá förum við heim til okkar, sem mér finnst ágætt jafnvægi. IG: Ákváðuð þið strax í upphafi að búa ekki í forsetahöllinni? MM: Já, við höfum okkar eigið hús, og gátum ekki hugsað okkur að búa annarsstaðar. Ég þorði ekki að hugsa um það fyrirfram. Við ákváðum ekki fyrr en eftir að maðurinn minn tók við embætti að búa áfram heima. Ég forðast jafnan að taka ákvarðanir fyrir- fram. Ég er mjög jarðbundin, einnig í einkalífinu. Ég bíð eftir að hlutirnir gerist, veg þá og met, og ákveð síðan hvernig bregðast skuli við. IG: Voruð þið bæði sammála varð- andi Elysee? Var enginn ágrein- ingur? MM: Nú, hann hafði sjálfsagt sín- ar hugmyndir um það — sem hann reyndi ... Ég veit ekki ... Hann sagði mér aldrei hvort hann lang- aði þangað. Hann hlýtur að hafa verið — hann hlýtur að hafa hug- leitt það. IG: Hefur líf yðar tekið breyting- um? Meiri heimilisaðstoð? MM: Ég hef enga heimilisaðstoð. Okkur datt það aldrei í hug. Hús- verkin eru hluti af lífi mínu. Ég útbý alltaf morgunverðinn sjálf, og við snæðum hann í eldhúsinu. Hádegisverðinn borðum við í El- ysee, vegna þess hve ég hef lítinn tíma. Það er þá, sem ég get leitað ráða og aðstoðar hjá starfs- mönnum Francois — svo venju- lega er þetta vinnutími. Yfirleitt borðum við ekki kvöldverð, en fáum okkur eitthvað snarl áður en við förum heim. Francois verður oft eftir á skrifstofunni og heldur áfram störfum eftir að ég fer heim. IG: Ræðið þér við yfirkokkinn í Elysee til að segja honum hvað ykkur langar að fá? MM: Ó, nei, þetta er fyrirmyndar starfslið. Ég hef alls engar áhyggjur af því. IG: Eruð þið samrýnd fjölskylda? MM: Stöku sinnum komum við saman heima hjá okkur, þótt fjöl- skylda Francois sé svo stór að hús- ið rúmi hana varla. Hann er einn átta systkina, og þegar fjölskyld- an kemur saman geta 80 manns mætt — börn, barnabörn, og jafn- vel barna-barnabörn. Ég á aðeins systur og bróður; hann er for- stöðumaður Alliance Francaise og alltaf á ferðalagi. IG: Hvernig bar fundum ykkar forsetans saman? MM: Ó, um það hefur svo mikið verið sagt! Það var í stríðinu ... Ég kann ekki við að tala um sjálfa mig. IG: Verður hjá því komizt að tala um yður á þessum tímum? MM: Það skiptir máli hvað ég geri, ekki hvað ég er. Ekki vegna þess að ég vilji fá að vera í friði, ég á engin leyndarmál. Ég á við að kona getur aðeins komið fram sem hún sjálf í gjörðum sínum. í byrj- un, þegar maðurinn minn tók við embætti, fannst mér erfitt að segja álit mitt, því ég hafði alltaf gert það í samræmi við álit og gerðir Francois. Ég hafði ekkert á móti þvi að ræða hverju ég hef áorkað á liðnum árum, en mér finnst ekki ég hafa haft mikil áhrif. Því miður eru nú margir sem halda að ég hafi mikil völd og geti gert margt fyrir þá, sem er ekki rétt. Ég get samt verið mjög sannfærandi þegar það varðar málefni, sem ég hef mikinn áhuga á. IG: Það hlýtur að veita mikla ánægju. MM: Já, ég finn hjá mér hvöt til að gera meira og meira. Til dæmis „Cause Common“-samtökin, eru dæmi um það sem mig langaði alltaf að gera, en gat ekki. Að koma á fót örlitlu efnahagssamfé- lagi, vera í sambandi við menn með hugmyndir, sem þarfnast að- stoðar og leiðbeiningar til að koma þeim í framkvæmd. Upphaf- lega langaði mig að gefa eldri og yngri kynslóðunum til að koma saman og skiptast á skoðunum, svo þær gætu hjálpað hvor ann- arri og aukið skilning sín í milli. Það er svo erfitt að ná til núver- andi kynslóðar, og hún á erfitt með að tjá sig. Þetta verkefni er orðið mjög mikilsvert. I fyrstu lét- um við ekki mikið á því bera, og það var smátt í sniðum, en eftir að það tók að bera árangur, gátum við farið að kynna það betur. Ég vildi aldrei að ríkisstjórnin hefði afskipti af verkefninu, því ég vidi ekki að menn gætu sagt: „Skatt- greiðendur standa undir langsótt- um hugmyndum Mme. Mitterr- and.“ I upphafi var aðeins um sjálfboðavinnu að ræða. Seinna stofnuðum við „un institut de valeurisation d’economie locale", en félagar þar eru bankastjórar og iðnrekendur, sem hafa aðstöðu til að hjálpa. Nú erum við að missa suma yngri aðstoðarmenn okkar af því þeir eru svo hæfir. IG: Er nokkur munur á hlutverki yðar sem eiginkonu forseta Frakklands og á hlutverki frú Reagan? MM: Ég veit að frú Reagan tekur mjög virkan þátt í baráttunni gegn ofneyzlu eiturlyfja. Við eig- um allar sömu kosta völ, held ég, sem forsetafrúr, að nota aðstöðu okkar til að vinna að góðum mál- efnum. IG: Frú Reagan stundar einnig samkvæmislífið, situr veizlur, móttökur, kvöldverðarboð. MM: Það geri ég alls ekki! Á því hlutverki forsetafrúar hef ég eng- an áhuga. Það hlaut að vera um fleira að velja. Annaðhvort að standa sig vel á þessu sviði, og þá tæki það allt of mikinn tíma — nei, mér finnst betri leiðir færar til náinna samskipta við aðra en með þátttöku f einhverjum heið- urssamkomum. IG: Án þess að hafa þekkt yður, varð mér oft hugsað til ykkar, þegar þið biðuð ósigur í kosning- um. Hvernig ykkur hafi orðið við. MM: Systir mín segir oft sögu frá kosningunum ’74, þegar við áttum mjög góða möguleika á að sigra. Skoðanakannanir sýndu einnig að við ættum að sigra. Að vanda vor- um við á hóteli í Chateau Chinon og biðum spennt eftir úrslitunum. Um klukkan 6.30 síðdegis fór okkur að skiljast að við gætum engan veginn borið sigur úr být- um, vegna þess hve margir kjós- endur sátu heima. Við höfðum lagzt á rúmið til að hvflast meðan við biðum. Þegar ósigurinn blasti við, fór ég fram úr, f sturtu, klæddi mig og fór svo niður. Ég var alveg sannfærð um að við yrð- um bara að byrja upp á nýtt, án tafar. Ég vissi að Francois tæki þetta mjög sárt. Hann flutti dá- samlegt ávarp. Seinna fórum við að sofa, og um fimmleytið um morguninn fór ég á fætur — ég átti lítinn hund — til að fara með hundinn út til að „faire pee pee“. Þegar ég gekk gegnum veitinga- salinn niðri, sá ég eiganda hótels- ins, sem var góður vinur okkar, sitja grátandi við borð. Það varð mér ofviða; ég settist hjá honum og við grétum saman í klukku- tíma. Næsti dagur var erfiður. Ég var alltaf að mæta fólki úr öllum stéttum, sem tók þessu jafn illa og ég. Þá sendi vinur okkar, í hugg- unarskyni, okkur labrador-tík, dásamlegan félaga. Francois ákvað að við yrðum að gera allt til að ala þennan hund rétt upp, og lagði til að ég keypti hundahús. Svo ég fór í stórmarkaðinn, og fólk tók að elta mig, unz þar var saman kominn mjög fjölmennur hópur til að lýsa yfir samúð og vorkunn. Af- greiðslustúlkan kastaði sér í fang mitt grátandi. Ég fann innilega til þess að við yrðum að hefja barátt- una á ný til að svíkja ekki þetta fólk. IG: Og hvernig var það þegar þið sigruðuð? MM: Við höfum aðeins einu sinni farið með sigur af hólmi, og þá vorum við alveg uppi í skýjunum. Sem betur fer minnist ég þess dags eins og hann kom öðrum fyrir sjónir. Sjálf vissi ég lítið hvað gerðist. Ég var eins og svefngengill. IG: Þegar vandi steðjar að, hvern- ig takið þér þá gagnrýni? MM: Það venst. Þér vitið, þegar maður veit nákvæmlega hvað maður vill, er það eina, sem hægt er að álasa sjálfan sig fyrir að hafa ekki verið nógu sannfærandi. Ég hef búið með manninum mín- um í 40 ár, og heyrt hann halda ræður hvað eftir annað. Ég hef algjörlega meðtekið það, sem hann hefur fram að færa, svo það er auðvelt fyrir mig. Við verðum að herða róðurinn til að fá aðra á sömu skoðun, þá að stefnan sé sú rétta. IG: Hafið þér stefnt að ákveðnu marki þessi 40 ár? MM: Já, það hef ég gert ... og það hefur ekki breytzt. Fyrir mér er lífið framhald af lífi foreldra minna. Þegar faðir minn neitaði samvinnu við Vichy-stjórnina um að framselja alla Gyðingana i skólanum, tók hann á sig ábyrgð. Það var aldrei um neitt annað að ræða. Ég finn þessa sömu ábyrgð- artilfinningu hjá Francois í dag. Líf okkar var andspyrnuhreyfing- in. Við fengum okkar skerf af ótta. Við höfðum falið konu, sem var merkur foringi í andspyrnunni, og Gestapo handtók hana fyrir fram- an húsið okkar. Því næst komu þeir til okkar, en ákváðu að láta okkur ganga laus svo við gætum komið þeim á spor annarra. Eftir að þeir fóru horfðum við hvert á annað; það var kraftaverk að við skyldum hafa fengið að halda lífi. Móðir mín vann við að vélrita á fjölritunarpappír fyrir málgagn andspyrnuhreyfingarinnar, sem nefndist „Combat", og var bannað. Francois gekk þá undir öðru nafni, og bar fölsuð skilríki. Það var lengi sem ég vissi ekki hans rétta nafn. IG: Þegar þið Francois Mitterrand hittust, var hann þá þegar í and- spyrnuhreyfingunni, eins og þér, eða fenguð þér hann til þess? MM: Nei, alls ekki. Við kynntumst í andspyrnuhreyfingunni. Við hefðum raunar getað kynnzt fyrr, því kona ein, sem fjölskyldan mín faldi til að Gestapo næði ekki til hennar, var einn félaganna í and- spyrnuflokki Francois. IG: Voruð þér þá félagi í Sósíal- istaflokknum? MM: Nei, en faðir minn var það. Hann var Frímúrari. Ég var ekki höfð með þegar foreldrar mínir ræddu stjórnmál, en innst inni fann ég á mér um hvað málið snerist. Það skiptir ekki máli hvort það er nefnt sósíalismi eða eitthvað annað. IG: Komuð þér á fót frönskum tízkusamtökum ? MM: Ég átti ekki hugmyndina. Það var „Cause Common", sem ákvað að ná saman öllum yngri tízkuhönnuðunum til að skiptast á skoðunum. Það var alls ekki ég. IG: Hver hefur hannað fötin yðar fyrir þessa ferð? Louis Feraud? MM: Nei, þetta er Torrente, Fau- bourg St. Honore tilbúinn fatnað- ur, þótt ég gangi oft í fötum frá Louis Feraud. Eg er mjög kæru- laus á þessu sviði, svo Mme. Torr- ente sá um það. Hún bauðst til þess, og það var mér léttir —. hún bað mig aðeins að láta sig fá dagskrá heimsóknarinnar, og hún skyldi svo skipuleggja klæðnað- inn. Það var einnig hún sem sagði mér frá hugmyndinni um stofnun franskra tízkusamtaka, sem lengi hafði verið reynt að koma á fót. Nú eru þau staðreynd; forstöðu- maður þeirra er Pierre Berger (forstjóri Yves St. Laurent). IG: Líkar þér betur við boutiques en haute couture? MM: Mér líkar einnig mjög við haute couture. Ég geng oft í fötum frá Yves St. Laurent eða Balmain. Ég hef mínar eigin skoðanir varð- andi klæðnað; þær skipta bara ekki neinu megin máli. Sjáið þér til, ég var allt'af vön að ganga í felldu pilsi og peysu á veturna, en blússu og öðru felldu pilsi á sumr- in. En mér varð fljótt ljóst að ég varð, hvað sem öðru leið, að vera fulltrúi eins aðal-iðnaðar Frakk- lands, sem er haute couture. Þar að auki er ég sem betur fer þannig vaxin að ég ber fötin enn vel. Ég tek þessu sem hluta starfs míns sem fulltrúa Frakklands. Ég á ekki sjálf allt, sem er í klæða- skápnum mínum. Eftir þessa ferð mína mun ég til dæmis skila öllu því, sem ég tók með mér. Ég á minn eigin fatnað, sem ég geng í daglega, en þegar ég þarf að bera kvöldklæðnað eða koma fram opinberlega útbúa hönnuðirnir fatnað, sem þeir lána mér. Þannig get ég valið úr og sýnt fleiri gerðir tízkufatnaðar. Eg kemst í hvað sem er — ég nota númer 38 (evr- ópskt), en er svo miklu lágvaxnari en sýningarstúlkurnar að það þarf að stytta allt. Okkur kemur ágæt- lega saman. IG: Yður hlýtur þrátt fyrir allt að þykja gaman að fallegu fötunum. MM: Svona okkar á milli sagt verð ég að játa, í rauninni ekki. Þegar mér líður ekki vel í einhverju, þeg- ar ég hef ekki valið rétt, þykir mér það leitt, en nenni ekki að fara að skipta um ... allar þessar mátan- ir. Hinsvegar elska hönnuðirnir verk sín, svo ég verð að meta þau. IG: Ætlið þér til Silicon Valley án forsetans? MM: Já, mér leikur forvitni á að fara þangað, því þetta verður mér ný reynsla. Þar get ég einnig feng- ið nytsamlegar upplýsingar varð- andi margt, sem er á döfinni hjá mér. IG: Vilduð þér breyta einhverju frá því sem nú er? MM: Ég vildi hafa enn meira að gera. Ég á dásamlegan eiginmann, sem hvetur mig. Þegar ég spyr hann hvort ég eigi að gera þetta eða hitt, og hann svarar, „Gerðu það bara, þú sérð hvað gerist," þá veit ég að ég verð að fara að með 'gát, því ég er mjög fljótfær. Ég gæti gert einhverja vitleysu. IG: Hafið þið haldið sömu vinun- um? Sumir geta verið svo hlé- drægir. MM: Nei, nei. Það eru margar ánægjustundir i opinberu lífi Francois, en það koma einnig hræðilegir tímar — tímar örvænt- ingar. Við eigum mjög trygga vini, meir að segja suma stjórnmála- andstæðinga, sem eru kærir og innilegir vinir okkar. Þeir eru ekki sammála okkur í stjórnmálum, en þegar stjórnarandstaðan hefur í frammi illkvittnislegar árásir, mótmæla þeir. Þeir eru alltaf reiðubúnir þegar við þörfnumst þeirra. IG: Bjóðið þið gestum í heimsókn á sveitasetrið? MM: Við gerum það ekki, en ein- hvernveginn er alltaf margmenni þar. Þá fær ég starfsfólk frá Elysee. Annars yrði þetta of þreytandi. IG: Dansið þér nokkurn tíma — gerðuð þér það í Hvíta húsinu? MM: Nei, við gerðum það ekki. Mér fannst það gaman þegar ég var mjög ung. Nú langar okkur ekki til þess. Þér vitið að við erum að ganga í gegnum mjög erfitt og þrúgandi tímabil. Ég vona að það standi ekki lengi. Þetta eru bara erfiðir tímar fyrir okkur. (Vin- sældir Mitterrands í skoðana- könnunum hafa aldrei verið minni.) IG: Hefur þetta nýja líf breytt yð- ur? Er hugsanlegt að breytast ekki? Allt og allir standa yður til þjónustu. MM: Ég trúi því fastlega að ég sé óbreytt. Ég sækist ekki eftir völd- um; þau eru mér einskis virði, nema að því leyti að nú get ég gert það, sem mig alltaf langaði að gera — en ég breytist ekki. Úr Interview Magazine Mg sœkist ekki eftir völdum, þau eru mér einskis virði, nema að því leyti að nú get ég gert það sem mig alltaf langaði að gera — en ég breytist ekki“ „Sjálf vissi ég lítið hvað gerðist Ég var eins og svefngengill. . . Ég settist hjá honum og við grétum saman í klukkutíma

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.