Morgunblaðið - 15.07.1984, Page 10
58
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 1984
KVIKMYNDIR
Argentínumenn
eiga að fá að
sjá sannleikann
Bretar draga upp
þjóAfána ainn og
fána ffotans á loft
eftir aö hafa
endurheimt Suö-
ur-Georgíu á
Falklandseyjum
úr höndum Arg-
entínumanna.
Aðeins tvö ár eru liðin frá því
að Argentínumenn biðu ósig-
ur í Falklandseyjastríðinu en
þrátt fyrir það eru þeir aftur farn-
ir að berjast við Bretana. Að þessu
sinni þó bara til að rifja upp fyrir
sér atburðina og til að athuga
hvaða lexíu megi af þeim draga.
Hér er um að ræða kvikmynd
um stríðið, sem frumsýnd verður í
Buenos Aires í ágúst nk. Er hún
byggð á bókinni „Los Chicos de la
Guerra", „Drengjunum úr stríð-
inu“, safni viðtala við hermenn,
sem börðust á Falklandseyjum, og
fjallar um ástæðurnar fyrir inn-
rásinni og ósigri Argentínu-
manna.
„Stríðið var síðasta óheillaverk
heillar kynslóðar Argentínu-
manna. Hermennirnir, sem sendir
voru til eyjanna, voru varla komn-
ir af barnsaldri árið 1976 þegar
herinn tók völdin og síðan höfðu
þeir ekki kynnst neinu öðru en
þjóðfélagslegri og stjórnmálalegri
kúgun,“ segir Daniel Kon, 28 ára
gamall höfundur bókarinnar og
einn af höfundum kvikmynda-
handritsins.
f þrjá mánuði unnu þeir Kon og
stjórnandi myndarinnar, Bebe
Kamin, að töku myndarinnar, sem
ekki á sinn líka í argentískri
kvikmyndasögu. Þar segir frá
þremur argentískum æsku-
mönnum, nokkrum „drengjanna" í
bók Kons, og umgjörðin um líf
þeirra eru „dauðasveitirnar“ sem
fóru sínu fram i Buenos Aires og
spilling og hræsni mið- og yfir-
stéttarinnar. Hámark myndarinn-
ar er þó stríðið sjálft en lokaorr-
ustan um Port Stanley var sett á
svið á litlu fjalli nálægt Tandil,
nærri 400 km fyrir sunnan Buenos
Aires.
Fyrrum hermenn í Falklands-
eyjastríðinu voru ráðgjafar við
töku myndarinnar og léku í henni.
Þeir komu mönnum líka átakan-
lega vel í skilning um hvað það er
mjór strengur á milli raunveru-
leikans, lífsins sjálfs og listarinn-
ar.
„Hermennirnir hjálpuðu okkur
að skilja hvernig það er að hírast
dag eftir dag i blautri skotgröf
með riffil, sem ekki er hægt að
skjóta af. Aðeins þeir gátu útskýrt
hvernig það er að þurfa að skera
fótinn af félaga sínum vegna þess
að hann hafði orðið fyrir skoti og
fengið blóðeitrun í sárið,“ sagði
Kon.
Gerð þessarar kvikmyndar var
lærdómsrík fyrir hermennina,
sem að henni unni, því að með því
að segja öðrum frá stríðinu lærðu
þeir sjálfir ýmislegt um sína eigin
þjóð.
„Þegar ég talaði fyrst við einn
leikaranna, hann var jafnaldri
minn en hafði aldrei verið í hern-
um, komst ég að því að þótt liðin
séu tvö ár frá stríðinu eru margir
mjög fáfróðir um það enn,“ sagði
Pablo Macharovsky. Þegar hann
kom heim úr stríðinu í júní 1982
lagði hann svefnherbergið sitt í
rúst með hríðskotabyssu. Frá því
segir líka í myndinni, byrjuninni á
taugaáfalli sem hann fékk.
Þessa mynd hefði ekki verið
hægt að gera áður en lýðræðisleg-
ir stjórnarhættir voru upp teknir
með kjöri Raul Alfonsins, forseta,
og það er jafnvel enn erfitt að gera
í Argentínu mynd, sem er gagn-
rýnin á herinn. öfgamenn í hern-
um reyndu líka hvað þeir gátu til
að trufla myndatökurnar og einu
sinni drógust þær i nokkra daga
þegar yfirmenn einnar herstöðv-
arinnar neituðu fyrirmælum um
að lána ýmsan búnað í fórum
- JIMMY BURNS
VERÐLAG
Þær erlendu
eru ódýrari
Ungir menn í Sameinuðu arab-
ísku fusrstadæmunum, sem
hafa hug á því að festa ráð sitt,
eiga nú von á óvæntum glaðningi
frá stjórnvöldunum, hvorki meira
né minna en 750.000 kr. „heiman-
mundi“ eins og eitt dagblaðið kall-
aði það. Þetta er þó bundið því, að
þeir kvænist stúlku frá sínu eigin
landi. Ef þeir ætla að taka sér „út-
lending" fyrir eiginkonu verða
þeir að leggja til hliðar jafnháa
upphæð.
Þessi mál eru ekki endanlega
frágengin ennþá en yfirvöldin
vilja með þessum hætti reyna að
fá menn til að hætta við að kvæn-
ast útlendum stúlkum. Tillögurn-
ar koma frá lagadeild Þjóðarráðs-
ins og eru niðurstöður tveggja ára
langrar rannsóknar félagsmála-
ráðuneytisins á hættunni, sem
Sameinuðu arabisku furstadæm-
unum stafar af „útlendingahjóna-
böndum“.
Kvennasamtökin fögnuðu rann-
sóknarskýrslunni mjög ákaflega
strax og hún var birt og mesta
virðingarkonan í landinu, hennar
hátign Sheikha Fatima, eiginkona
forsetans, lýsti yfir fullum stuðn-
ingi við hana og hvatti til upplýs-
ingaherferðar meðal karla svo að
þeim mætti skiljast hve alvarlegt
málið væri.
í skýrslunni kemur fram, að
helmingur karla í landinu er á
giftingaraldri en sífellt fleiri
kjósa að kvænast útlendum stúlk-
um með þeim afleiðingum, að
heima fyrir fjölgar þeim stöðugt
jómfrúunum, sem ekki bíður ann-
að en að pipra. „Ef við ekki
stemmum á að ósi munu siðir og
hefðir þessa samfélags rakna í
sundur og fjölskylduböndin veikj-
ast,“ sagði í skýrslunni.
Það eru aðallega rosknir menn,
sem sækjast eftir útlendum brúð-
um. Meðalaldur þeirra er um 60 ár
Innfseddu meyjarnar eru hættar
að vera samkeppnishœfar.
en kvennanna ekki nema 20.1 öðr-
um arabaríkjum við Persaflóa, t.d.
frak, Kuwait og Qatar, gera yfir-
völd ýmislegt til að hindra menn i
að kvænast útlendum stúlkum en í
engu þeirra hefur þó verið egnt
fyrir menn með jafn girnilegri
beitu og nú á að gera í Sameinuðu
arabisku furstadæmunum.
Þeir, sem skýrsluna unnu, segja
að ástæðan fyrir eftirsókninni eft-
ir útlendum stúlkum (stúlkum frá
öðrum arabaríkjum en Persaflóa-
ríkjunum) sé það háa brúðarverð,
sem foreldrar innfæddu stúlkn-
anna heimta af brúðgumanum. Á
síðustu árum hefur „verðið“ á
heimasætunum rokið upp úr öllu
valdi, er núna allt frá 45.000 kr.
upp í 1.350.000 kr., og svo getur
kostnaður við brúðkaupið sjálft,
sem virðing viðkomandi er metin
eftir, numið allt að 1.200.000 kr. í
viðbót. Útlendu brúðirnar fást
hins vegar á sannkölluðum kosta-
kjörum.
— MICHAEL FERNANDEZ
I»ETTA GERÐIST LÍKA
I
Gullvægt tækifæri
Stjórnvöld á Formósu (Taiwany
hafa lofað að gefa sérhverjum
flugmanni frá Rauða-Kína, sem
flýr land í orrustuþotu af gerðinni
F-8, 250 kg af gulli, sem er jafn-
virði 50 milljóna íslenskra króna.
Frá þessu var greint í varnar-
málaráðuneytinu í Tapei í vikunni
sem leið.
Ófrtskir
kynskiptingar?
Sex kynskiptingar (karlar sem
hafa látið breyta sér í konur) i
Melbourne í Ástraliu hafa óskað
eftir því að fá að ganga með
barn, sem getið er í tilrauna-
glasi. Sérfræðingar við lækna-
deild háskóla Viktoríu drottn-
ingar þar í borg, sem eru frum-
herjar á sviði slíks getnaðar,
segja að þetta sé fræðilega
mögulegt þótt kynskiptingarnir
hafi ekkert móðurlíf. Dæmi eru
um að konur hafi gengið með
börn utan móðurkviðar og fætt
þau heilbrigð. Beiðni kynskipt-
inganna vekur upp ýmsar sið-
ferðilegar spurningar og hefur
enn ekki verið svarað.
Getnaöarvöm fyrir karia
Hormónalyfið „anabólískur
steri“, sem margir vaxtarrækt-
armenn taka inn til að styrkja
vöðva sína, er mjög áhrifamikil
getnaðarvörn. Þessa staðhæf-
ingu setti dr. Ebo Nieschlag, sem
starfar við háskólann í Munster
í Vestur-Þýskalandi, fram á al-
þjóðaþingi innkirtlafræðinga í
Quebec í Kanada I fyrri viku.
Tuttugu karlmenn tóku lyfið inn
á vegum tilraunastofu Niesch-
lags í Munster og eftir tíu vikur
var líkami þeirra hættur að
framleiða sæði. Engar aukaverk-
anir komu í ljós, en vaxtarrækt-
armenn sem tóku þátt í sams-
konar rannsókn nokkru áður
bættu að meðaltali við sig sjö
kílóum.
Koo Stark
gengin út
Leikkonan djarfa, Koo Stark,
sem var í tygjum við Andrew
Bretaprins noklya hríð, ætlar að
ganga í það heilaga innan
skamms. Mannsefni hennar
heitir Timothy Jeffries og er 22
ára að aldri, 6 árum yngri en
leikkonan, sem upp á síðkastið
hefur reynt fyrir sér sem ljós-
myndari. Jeffries er enginn bón-
bjargarmaður, hann er einkaerf-
ingi afa síns, auðkýfingsins
Richard Tompkins.
Hitler og
Michelangelo
Nýlega var opnuð í Palazzo
Vecchio í Flórens sýning á 141
málverki eftir ýmsa fremstu
myndlistarmenn sögunnar,
þ.á m. Michelangeló, Rubens,
Tintoretto og Botticelli. Verkin
eiga það sameiginlegt að nasist-
ar stálu þeim úr listasöfnum á
ítaliu á dögum síðari heims-
styrjaldarinnar. Að stríðinu
loknu leitaði listráðunautur rik-
isstjórnar landsins, Rodolfo Si-
vero, þau uppi og fann hér og
hvar í Evrópu. Á sýningunni eru
líka 20 vatnslitamyndir eftir for-
ingja þjófanna, fristundamálar-
ann Adolf Hitler, og segja for-
mælendur safnsins að þær séu
hengdar upp i háðungarskyni.
Myndin sem þessari klausu fylg-
ir sýnir eitt af verkum Hitlers.
Slttlftiö
af hverju
Robert Coles, prófessor í
barnasálarfræði við Harvard-
háskóla, segir að börn úr yfir-
stéttum og millistéttum óttist
gereyðingu af völdum kjarn-
orkustyrjaldar meira en börn úr
lágstéttum. Þessa staðhæfingu
byggir hann á niðurstöðum skoð-
anakönnunar sem hann lét gera
fyrir stuttu í Boston og ná-
grenni... Einn lét lífið og 17
slösuðust í uppþotum i borginni
Slane á Irlandi á sunnudaginn
var, en mannsöfnuðurinn var að
bíða eftir því að hljómleikar Bob
Dylans hæfust þar... Hag-
skýrslur Bandaríkjastjórnar
leiða í Ijós að þarlendar konur
ná að meðaltali 77,9 ára aldri, en
karlar aðeins 70,4 ára aldri...