Morgunblaðið - 15.07.1984, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 15.07.1984, Qupperneq 14
62 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 1984 ('‘£1717-^^*/ (y<í/y?r'rr’'/ ' "rtUf'/f ááSsasí, ^WAf, «J/(tS/yV"r4 y' szísýj- stAhy<?J7 ^///í /w x # y;^c. ? <? ‘-f/'firt d'^drf'//l4 /fiyttu ti '^ Vif/bsryz* SSh&fáf* ýaá/i y< M * ‘Ml MjfM Rithönd Símonar Dalaskálds. Úr Mera-Eiríkssögu. ’/yt/y Kristmundur Bjarnason með handrit Konungsskuggsjár og Srerrissögu frá þrí um 1660. Rætt við Kristmund Bjarnason fræðimann á Sjávarborg um Héraðsskjalasafnið á Sauðárkróki og fleira „Segðu mér frá aðdragandanum að stofnun Héraðsskjalasafnsins." „Upphaf safnsins má rekja til stofnunar Sögufélags Skagfirð- inga 1937, en rætur að því liggja langt aftur í tímann," sagði Kristmundur. „Á fyrri hluta 19. aldar stóð sagnaritun í Skagafirði með mikl- um bióma. Alþýðumenn og emb- ættismenn tóku höndum saman, unnu að fræðistörfum undir for- sæti Jóns sýslumanns Espólíns. Séra Skúli Gíslason á Breiðaból- stað í Fljótshlíð segir svo í bréfi til Jóns Árnasonar þjóðsagnasafn- ara: „Með þeim fróðleiksanda, er vaktist í Skagafirði með Espólín urðu ýmsir þar til að safna ýmsum fróðleik ... “ Og það var ekki látið við það sitja, fjöldi manna hóf sagnaritun, og var Gísli Konráðs- son mikilvirkastur þeirra að Esp- ólín slepptum. Það varð Skagfirðingum mikið áfall að missa prentsmiðju og skóla — Hólaskóla — við upphaf 19. aldar. Trúlega hefur sú tilhög- un ýtt óbeint undir Skagfirðinga að standa betur vörð um menning- ararfleifð. Handritasafnarar og afskrifar- ar spruttu upp I hverri sveit. Margir reyndust fastheldnir á hin fornu fræði. Svo segir í bréfi til Jóns Árnasonar 1859: „Hjálmar karl á Minni-ökrum... hefir margt til, en ekkert fæst nema í afskriftum, en það gengur seint, því bæði er hann orðinn mjög lasburða, fatlaður á höndum ... og þar til oft svo vésæll, að hann get- ur ekki á penna tekið tímum sam- an.“ Söfnun handrita verður ýmsum árátta: Svo segir í bréfi: „Maður er nú fyrir skömmu dáinn norður í Skagafirði, sem átti töluvert af gömlum skrifum, og vona eg að geta náð í það sem slægur er i af druslum hans.“ Þarna var veiði sýnd, en ekki gefin. Bréfritara mun ekki hafa tekizt að krækja í neitt. Sökum þessarar fastheldni Skagfirðinga geymdist furðu margt heima í héraði, og kom loks Héraðsskjalasafni Skagfirðinga til góða. Þegar kemur fram um aldamót- in síöustu, verður handritum hætta búin, því að öll viðhorf til bókaramenntar höfðu breytzt. Prentaðar bækur — alþýðleg rit — verða í hvers manns eigu. Ein- angrunin rofin, lífsvenjur að breytast. íslandsljóð Einars Bene- diktssonar reyndist æskufólki þörf brýning. Hann boðar bylt- ingu gegn öllu hinu gamla og feyskna. Þar segir m.a. svo: Bókadraumnum, böguglaumnum breyt í vöku og starf. Holl og tímabær áminning, ekki sízt Skagfirðingum, því að sagna- þul og vísnaglamur hafði stungið þeim svefnþorn, stóð jafnvel at- vinnulífi fyrir þrifum. Eitt er að kynna sér fortíðina, annað að bera sig að lifa hana upp. — Ég fer ekki frekar út í þá sálma. Nýr lífsstíll, sem ruddi sér til rúms á fyrstu áratugum aldarinn- „Qft er býsnast yfir því, hve illa Skagfirðingar hafi búið að sagnamönnum sínum og skáldum. Raunar munu þeir allajafna hafa setið við sama borð og aðrir alþýðumenn, en undu hag sínum misjafnlega vel og er slíkt persónubundið. Sumir hverjir hlutu nokkra umb- un fyrir sagnamennskuna í matgjöfum og peninga- greiðslum. Má þar nefna Bólu-Hjálmar og Gísla Kon- ráðsson. Þeir mátu ekki fræðastarfið til fjár; það var þeim lífsnauðsyn, uppbót á lífið, andlegar sárabætur. Gísla gamla Konráðssyni varð að orði, þegar sendimað- ur hans kom með mjölmatinn heim úr kaupstað, svo sem um var beðið, en engan pappír: „Hvað átti ég að gera við rúginn, þegar enginn fékkst pappírinn?“ “ Þetta ritaði Kristmundur Bjarnason fræðimaður á Sjávarborg í Skagafirði í „Glóðafeyki“, félagstíðindi Kaupfélags Skagfirðinga árið 1977, þegar hann rifjaði upp forsögu og stofnun Héraðsskjalasafns Skagfirðinga. Kristmundur er skjalavörður á safninu og þegar blaða- maður Morgunblaðsins var á ferð í Skagafirðinum fyrir nokkru heimsótti hann Kristmund á Sjávarborg til að inna hann eftir ýmsu varðandi safnið og handritasöfnun í firðinum. ar, einkum meðal æskufólks, dró úr almennum áhuga á skrifuðum skræðum frá fyrri tíð, sem fjöll- uðu um ættfræði, steinatök og sterka menn, svo að eitthvað sé nefnt! Þegar líða tók á 4. áratug þessarar aldar — á kreppuárunum — vaknar aftur nokkuð almennur áhugi í Skagafirði fyrir fornri menningararfleifð, hlutlægari söguskoðun en áður þekktist. Og því var það, að Sögufélag Skag- firðinga var stofnað, eins og ég gat um áðan, en það hóf umfangs- rnikla bókaútgáfu, sem kunnugt er. Svo var það á sýslufundi Skaga- fjarðarsýslu 1947, að samþykkt var einróma „að stofna þegar til héraðsskjalasafns fyrir Skaga- fjarðarsýslu, samkv. lögum þar um ... “ Þau höfðu tekið gildi nokkrum vikum fyrr, svo að ekki var beðið boðanna, enda auðsætt, hve mikilvægt það var, að koma skjalgögnum hreppa og sýslu á einn stað og auðvelda sögufélags- mönnum aðgang að þeim. Þegar hér var komið, átti Sögu- félagið allnokkurt safn handrita, afrit kirkjubóka, safn til skag- firzkra ætta og örfá handrit frá 19. öld. Þetta safn var nú afhent Héraðsskjalasafni Skagfirðinga og varð fyrsti vísir þess.“ „Hvert er meginhlutverk safns- ins?“ „Héraðsskjalasafniö er sjálfs- eignarstofnun, og samkvæmt „anda laganna" náði hlutverk þess aðeins til innheimtu og varðveizlu opinberra skjalgagna. Sú inn-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.