Morgunblaðið - 15.07.1984, Síða 18

Morgunblaðið - 15.07.1984, Síða 18
66 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 1984 Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR Teikningar: SIGURÐUR ÞQRKELSSON Sumarsalöt Mjög fallegt er að útbúa bakka með tilskornu hráu grænmeti og bera fram með ídýfu. Þetta er hægt að borða sem forrétt eða bera fram með drykk á sumarkvöldi. Á þessu fati eru rúllur úr gulrótum, tilskornar radísur, hrokknir scllerístönglar, rifflaðir gúrkustafir og tómatbát- ar. Margt fleira er hægt að nota svo sem blómkálsgreinar, papríkusneiðar eða ræmur og ferska sveppi. Þessi bakki sem hér er boðið upp á er ætlaður fyrir 5. Bakki meö hráu grænmeti og ídýfu: 20 radísur, 3 sellerístönglar, 2 stórar gulrætur, 'A stór gúrka, 4 frekar smáir tómatar. Notið oddmjóan beittan hníf. 1. Skerið legginn og rótina af radísunum. Skerið síðan skurði í radísurnar eins og sýnt er á meðfylgjandi mynd. Rennið síðan hnífnum undir flipann og losið örlítið frá. Setjið radísurnar síðan í ísvatn í 3—5 klst. 2. Þvoið sellerístönglana og skerið frá skemmdir ef ein- hverjar eru. Skerið síðan í 8—10 sm langan bita. Skerið síðan á nokkrum stöðum rifur djúpt í báða enda. Gætið Orðið salat er dregið af latnesku orðunum „herba salata" sem þýðir saltaðar jurtir. Bendir það til þess að í fyrstu salötunum hafi verið ferskt grænmeti stráð salti og borðað hrátt. Nú er sá árstími er salat er hvað best, ungt og fullt af vítamíni. Ekki spilla kryddjurtirnar, sem einnig ættu að vera upp á sitt besta. Því miður höfum við íslendingar ekki verið nógu duglegir að rækta þær, en það er auðveld, skemmtileg og arðsöm iðja — og gott er að hafa ferskar kryddjurtir saman við salatið. Ef þið ræktið salat sjálf, ættuð þið að geta séð af smábletti til ræktunar á graslauk, steinselju, dilli, kjörveli eða sítrónumelissu til að strá yfir salatskálina. Fleiri kryddjurtir er auðvelt að rækta úti, svo sem basilikum, anís, koriander, timian, salvíu, majoram, terragon, skessujurt og mintu. Fjölæru mintuplönturn- ar mínar voru orðnar fullþroskaðar í júnílok og líkjast nú smávöxnum runnum. Á heitum sumardegi er gott að borða eitthvað létt, t.d. hrátt grænmetissalat með örlítilli pylsu, kaldri skinku eða öðru kjötmeti, hvers kyns fiski eða þá osti. Ekki eru allir svo heppnir að hafa garð, en ferskt salat, graslaukur og steinselja fæst nú í hverri kjötvörubúð. Borðið það meðan það er ódýrt, það er ekki svo lengi. Innflutta salatið sem fæst á öðrum árstímum er mun dýrara. Þeir sem búa í fjölbýlishúsum geta auðveldlega ræktað salat og kryddjurtir úti á svölum, auk þess er vel hægt að rækta kryddjurtir inni í sólríkum glugga, jafnvel að vetrarlagi. þess þó að skera ekki alveg í sundur. Setjið í ísvatn í 3—5 klst. Gætið þess að setja selleríið ekki með öðru grænmeti í skál, þar sem það smitar bragði í hitt grænmetið. 3. Afhýðið gulræturnar, skerið síðan langsum með kartöfluhnífi í þunnar langar sneiðar. Vefjið upp og stingið tannstöngli í rúllurnar til að halda þeim saman. Setjið í ísvatn í 3—5 klst. 4. Skerið gúrkuna í 10 sm langa bita, skerið síðan hvern bita í stafi með riffluðum hnífi, sem ætlaður er til að skera grænmeti. Ef þið eigið ekki þess konar hníf verðið þið að nota venjulegan hníf, en þá verða stafirnir ekki rifflaðir. 5. Þvoið tómatana og skerið í báta. Idýfan 1 bikar sýrður rjómi, 1 msk olíusósa (mayonnaise), 1 marinn hvítlauksgeiri, 1 tsk sítrónusafi, 5 dropar tabaskosósa, 2 kúfaðar tsk karry, 9 stutt strá graslaukur. Blandið öllu saman, setjið í skál. Setjið síðan þrjú og þrjú graslauksstrá upp á endann í skálina til skrauts. Setjið skálina á miðju kringlótts fats. Þerrið grænmet- ið, takið tannstönglana úr gulrótunum. Raðið grænmet- inu hverju fyrir sig í hrúgu utan með skálinni. Salat úr hráu grænmeti með eggjum Nokkur falleg blaðsalatblöð, nokkur falleg grænkálsblöð, 2 harðsoðin egg, 'A kínahreðka, 1 súrt epli, væn grein ferskt dill, væn grein fersk steinselja, nokkur strá graslaukur, 2 msk hvítvínsedik, 1 msk sítrónusafi, 3 msk matarolía, salt milli fingurgómanna, 5 dropar tabaskósósa. 1. Harðsjóðið eggin og takið af þeim skurnina, skerið í báta. 2. Saxið graslaukinn, dillið og steinseljuna. Setjið í krukku ásamt hvítvínsediki, sítrónusafa, matarolíu, salti og tabaskósósu. Hristið krukkuna vel. 3. Rífið salatblöðin og grænkálið. Fjarlægið grófar æð- ar úr grænkálinu. 4. Afhýðið hreðkuna og skerið í þunnar sneiðar. Afhýð- ið ekki eplið en stingið úr því kjarnann, skerið síðán í þunnar sneiðar. 5. Setjið grænmetið í skál, hellið leginum yfir. Blandið saman með tveimur göfflum. Setjið síðan eggin saman við. Salat úr hráu grænmeti Nokkur blöð jöklasalat eða kínakál, 2 tómatar, V» hluti gúrka, væn grein fersk steinselja, safi úr 1 sítrónu, 2 msk matarolía, 2 tsk hunang, 5 dropar tabaskósósa, salt milli fingurgómanna. 1 hvítlauksgeiri til að nudda skálina að innan með. 1. Byrjið á að nudda skálina að innan með hvítlauks- geiranum. 2. Setjið sítrónusafa, matarolíu, hunang, tabaskósósu og salt í skálina, þeytið saman. 3. Rífið salatblöðin, skerið gúrkuna og tómatana í sneiðar og setjið saman við. Blandið með tveimur göffl- um. 4. Klippið steinseljuna yfir. Eigum nokkur hjól til afgreiðslu strax á þessu frábæra verði. Einnig hægt að fá með stuttum fyrirvara GPZ 750 turbo og GPZ 900 Ninja. SVERRIR ÞÓRODDSSON K-kawasaki Sími 91-82377 ==nu i i j LITGREINING MED CROSFIELD 540 LASER LYKILLINN AO VANDAORI LITPRENTUN MYNDAMÓT HF. Þú svalar lestrarþorf dagsins ásíðum Moggans! J

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.