Morgunblaðið - 15.07.1984, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.07.1984, Blaðsíða 20
Hvernig verður lífið á 21. öld- inni? Sumir láta sér nægja að taka upp kristalskúluna á gamaldagsmáta og reyna að sjá á þann hátt eitthvað fram í tímann, eða leita á náðir þeirra sem kunna eitthvað fyrir sér í slíkum fræðum. Aðrir gera vísindalega úttekt á samtíman- um og reyna að spá í framtíðina í ljósi þess. Einn slikra manna er John Naisbitt sem sendi frá sér bókina Megatrends seinni hluta ársins 1982. Bókin vakti gíf- urlega athygli og umtal eins og reyndar er títt um framtíðarbækur, og var endurút- gefin í byrjun þessa árs. í bókarumsögnum sagði m.a.: „Bókin vekur til umhugsunar um framtfðina, en einnig um það sem er að gerast í þjóðfélaginu í dag. Og það er ekki minnsti ávinningurinn." Höfundurinn reynir að kryfja nútíma- samfélagið til mergjar til að leita svara við áleitnum spurningum um lífið eftir næstu aldamót. í formála seinni útgáfunnar seg- ist Naisbitt m.a. hafa orðið var við við- horfsbreytingar hjá almenningi frá því bókin kom út i fyrra sinn, sérstaklega varðandi þá fullyrðingu hans að samfélag- ið sé að breytast úr iðnaðarsamfélagi i upplýsingarsamfélag. Hann segir að flest- ir hafi tilhneygingu til að halda dauða- haldi i fortfðina og neita að horfast f augu við þær breytingar sem eru að gerast allt í kringum þá. Sannleikurinn getur verið of sársaukafullur, og of ógnvekjandi. Banda- riskt þjóðfélag hefur að undanförnu verið að breytast úr iðnaðarþjóðfélagi í upplýs- ingaþjóðfélag og með þvf að horfast f augu við þær breytingar er auðveldara að taka í mót nýjum tækifærum og hugsanlegum vandamálum sem koma í kjölfarið. En hvernig er þessi framtíðarbók unnin og á hverju byggist hún? John Naisbitt hefur undanfarin 15 ár unnið við rann- sóknir sem eru undanfari bókarinnar, en rannsóknin felst aðallega f þvi að lesa dag- blaðsgreinar víðs vegar að af landinu og fylgjast með þeim meginstefnum sem þar koma fram. Hann segist hafa orðið undr- andi á þvf að hve litlu leyti nýjar hug- myndir og stefnur komi fram f stórborgum eins og New York og Washington, en hið sama verði ekki sagt t.d. um Tampa, Hart- ford, San Diego, Seattle og Denver sem virðast uppsprettur nýrra hugmynda og breytinga, sem eiga eftir að setja svip sinn á framtfðina. Þær stefnur sem munu setja svip sinn á framtíðarsamfélagið vaxa upp frá fólkinu sjálfu en fara ekki niður pýra- mídakerfið. Sú aðferð sem Naisbitt notar hefur verið nefnd „content analysis", og ná rætur þeirrar aðferðar til heimsstyrjaldarinnar síðari. Þá leituðu spekingarnir að ein- hverri aðferð til að afla upplýsinga um óvinaþjóðirnar og undir leiðsögn Paul Laz- aresfeld og Harold Lasswell, sem síðar urðu frægir kenningasmiðir, var ákveðið að lesa þýsku dagblöðin og reyna að greina innihald þeirra, reyna að lesa á milli lín- anna eins og sagt var í gamla daga, og fá á þann hátt upplýsingar um það helsta sem var að gerast hjá Þjóðverjunum. Þetta gaf góða raun og var reynt að afla upplýsinga um Japani á sama hátt. Upp frá þessu hafa Bandaríkjamenn árlega varið mörg- um milljónnm dollara f slfkar blaðarann- sóknir víða um heim. Naisbitt og félagar hans, sem unnið hafa með honum að bók- inni, eru þó hinir fyrstu til að nota þessa tækni á eigið samfélag. Fimm ríki hafa sérstöðu Þeir félagar komust að því að fimm ríki í Bandaríkjunum hafa sérstöðu hvað varð- ar félagslegar breytingar, hin ríkin eru í reynd aðeins fylgjendur. Kalifornía er þar efst á blaði, þá Flórfda, Washington, Col- orado og Connecticut. Þegar leitað er að

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.