Morgunblaðið - 15.07.1984, Síða 22

Morgunblaðið - 15.07.1984, Síða 22
70 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JÚLf 1984 Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir Pélag guðfræðinema Sköpun Guðs í upphaTi skapaði Guð himin og jörð, Akureyri og Isafjörð. Þannig komst einn vinnufélagi minn að orði í síðustu viku. Ekki veit ég nú hvar hann fékk þessa speki og læt allt ósagt um hana. En eftir svona marga sólardaga verður manni tíðhugsað um Guð sem skapara og þá sérstaklega þegar horft er á hina stórkost- legu náttúrufegurð sem alls staðar blasir við. Fjöllin standa tíguleg ásýndum og baða sig i geislum sólarinnar. Ilmur af nýslegnu túni berst að vitum manns og öll náttúran skartar sínu fegursta. Á slikum stundum sem þessum finnur maður svo vel hvað maðurinn er agnarsmár í samanburði við þetta allt sam- an, eins og eitt lítið sandkorn á sjávarströnd. En þrátt fyrir hve litil og ófullkomin við erum, þá erum við samt ráðsmenn Guðs á jörðu. Þess Guðs sem hefur skapað allt og hefur allt í hendi sinni. Hann hefur lagt allt að fótum okkar til þess að við getum notið þess og notað og farið vel með. Og þegar hugsað er um þetta, þá getur maður ekki annað en lofað og þakkað guði fyrir allar þessar dásemdir sem við fáum að njóta. ... og þér vitjuðuð mín Maðurinn, sköpun Guðs, er félagsvera. Honum er það þvi eðlilegt að leita eftir félagsskap við aðra. Þó við séum félagsverur, oft og iðulega í góðum hópi kunningja og vina, getum við verið ákaflega einmi.na. Ef til vill erum við þau kátustu í hópnum, en undir niðri býr vitneskjan um óleyst vandamál eða þungar áhyggjur sem við berum. Þetta getum við ekki borið á borð fyrir hvern sem er. Oft þarf ekki mikið til að lækna stundareinmanaleika. Eitt lítið bros á vegum úti til manneskju getur yljað, svo um munar. Eða einhverjum hrósað fyrir smekklegan klæðnað, svo einhver dæmi séu tekin. En ein- manaleiki getur átt sér svo miklu dýpri rætur. Þá er ákaf- lega mikilvægt að finna sér ein- hvern sem trausts er verður, opna sig og óska jafnvel hjálpar eða aðstoðar. Oskandi er að þeir sem leitað er til reynist einmana sál hlustendur góðir. Sjúkir og aldraðir finna sig oft ákaflega einmana. Hjá þeim eru það ef til vill ekki áhyggjur eða vandamál sem á hvíla, heldur finnst þeim ef til vill þeir ætt- ingjum og vinum gleymdir. Hjá okkur sem yngri erum fer mikill timi í vinnu. Við þurfum auðvit- að líka að sinna fjölskyldum okkar. Gefur því að skilja að lít- ill tími gefst til annars, svo sem heimsókna til þeirra sem sestir eru í helgan stein. í Matteusarguðspjalli segir Jesús, eitthvað á þessa leið: Sjúkur var ég og þér vitjuðuð mín. Mennirnir svöruðu á móti: Herra, hvenær sáum við þig sjúkan og vitjuðum þín. Svaraði þá Kristur aftur AUt það sem mínum minnsta bróður er gert, hefur mér verið gert. 1 dag skulum við, á sérstakan hátt, fela Drottni Jesú Kristi alla þá sem eru á einhvern hátt einmana. Og biðjum þeim öllum blessunar Drottins. Kynning á bókum Biblíunnar: JÓNAS Bókin fjallar um það þegar Guð kallaði spámanninn Jónas til að fara og boða dóm yfir borginni Níníve, höfuðborg Assýríu. Spámað- urinn var ófús að taka að sér þetta örðuga og jafnvel hættulega verkefni og flúði í þveröfuga átt, tók sér far með skipi í vestur til borgarinnar Tarsis. Þá kom mikill stormur sem áhöfnin tengdi saman við nærveru Jónasar um borð. Því köstuðu þeir honum fyrir borð og storminn lægði. Stórfiskur gleypti Jónas og skilaði honum upp á austur- strönd Miðjarðarhafsins eftir þrjá sólarhringa heilum á húfi. Eftir þetta vildi Jónas hlýða Guði og fór til Níníve og pred- ikaði dóminn. íbúarnir iðruð- ust og snerust til trúar. Borgin bjargaðist frá dóminum. Jónas reiddist út af því að Guð hafði breytt um skoðun og lét ekki refsingu sína bitna á Níníve- búum. Kraftaverk sem varð við rísínusrunna sýndi Jónasi að Guð er miskunnsamur og elsk- ar alla menn, ekki aðeins ísra- elsmenn heldur einnig aðrar þjóðir. Sagan um Jónas spámann er dæmisaga. Hún hefur ekki sögulegan bakgrunn. Jónas táknar ákveðinn hóp gyðinga, sem vildu ekki að heiðingjun- um yrði boðuð trú. En Guð vill ekki að nein mannleg vera glatist án þess að hafa haft tækifæri til að snúast til trúar. Guð lætur sig alla menn skipta, því hann er miskunn- samur og kærleiksríkur. Biblíulestur vikuna 15.—21. júlí Allir eiga rétt á fagnaðarerindinu Sunnudagur: Jónas k. 1—4 Mánudagur: Jóhannes 8:1—11 Þríðjudagur: Matteus 15:21—28 Miðrikudagur: Matteus 28:16—20 Fimmtudagur: Postulasagan 8:26—40 Föstudagur: Galatabréfíð 3:21—29 Laugardagur: Postulasagan 10:1—33 R il rn 9 ll rhrVI i A HÉR er lítR Stafaþraut. Þið U<1>1 llaliui IIIU eigið að finna út orð sam- ^ Nafn kvæmt skýringunum og skrifa unni á að koma út nafn á ein- um spámanni Gamla testa- mentisins. Frelsari heimsins Hann smíðaði örk Hann skírðist í Jórdan Móðir Jesú Upprisuhátíð Jesú VARMO SNJOBRÆÐSLUKERFI VARMO snjóbræðslukerfið nýtir affallsvatnið til að halda bílaplönum, götum, gangstéttum og heimkeyrslum auðum og þurrum á veturna. Við jarðvegsskipti og þess háttar framkvæmdir er lagn- ing VARMO snjóbræðslukerfisins lítill viðbótar- kostnaður og ódýr þegar til lengri tíma er litið. VARMO snjóbræðslukerfið er einföld og snjöll lausn til að bræða klaka og snjó á veturna. VARMO = íslensk framleiðsla fyrir íslenskt hitaveituvatn. VARMO = Þolir hita, þrýsting og jarðþunga. VARMO = Má treysta í a.m.k. 50 ár. VARMO = Heildarkerfi við allar aðstæður. BYGGINGAVÖRUR HE SUÐURLANDSBRAUT 4. SlMI 33331. Ágætu viðskiptavinir. Vegna sumarleyfa lokum við Fólks og vörubílaverkstæði okkar frá 16. júlí til 20.ágúst Á þessum tíma verðum við með símavörslu og neyðarþjónustu. Smurstöðin verðuropin. BILVANGURsf HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.