Morgunblaðið - 15.07.1984, Page 24

Morgunblaðið - 15.07.1984, Page 24
72 Árió 1924 gerói Guójón Sunnels- son uppdritt aó skipniagi Skóla- vörðnlueóar í Reykjavík. Bygg- ingarnar ern allar í endurreisn- arstfl. Safnhús Einars Jónssonar var þegar risió, þegar teikning þessi var geró. Byrjað var aó grafa fyrír stndentagarði í Skólavörón- holti, en ncr framkvemd komst þessi tillaga aó „Háborg íslenskr- ar menningar" ekki. Neóst fyrir miójn teikningarinnar er Skóla- vörónstígnr. Greint frá hugmynd Guð- jóns Samúlsson- ar húsameistara um menningar- miðstöð á Skólavörðuhæð- inni árið 1924 MORGUNBLAÐfP, SUNNUDAGUR 15. JÚLl 1984 Háborg íslenskrar Þetta var önnur tillaga Guðjóns aó skipulagi á holtinu, sem hann gerói 1924. Hér er kirkjan allfrábrugðin þeirri í háborgarskipulaginu, en kirkja er einnig á mióju holtinu hér. ímyndið yður, lesandi góð- ur, að þér séuð á gangi upp Skólavörðustíginn þessa stundina. Við getum sagt að veðrið sé með besta móti og þér stansið rétt áður en þér komið að Skólavörðuholtinu. Þér horfíð beint fram og við yður blasa fímmföld boga- göng í gotneskum stfl. Þér gangið inn undir bogana og stigið inn í „háborg íslenskr- ar menningar“. Á móti yður gnæfír dómkirkjan, sem byggð er í grískum krossstfl, eins og jafnarma grískur kross og hún stendur í miðju torgs, sem er rétthyrndur ferhyrningur, 150 metrar á hlið. Kirkjan stendur á stalli, sem er einn metri á hlið yfír aðalflöt torgsins. Allar hliðar hennar eru eins. Dyr eru á hverri hlið, sem snúa and- spænis götum þeim, sem að torginu liggja. í húsahringn- um, sem afmarkar torgið eða háborgina, sjáið þér háskóla- bygginguna, stúdentaheimil- ið, lista- og vísindasöfnin, Listvinafélagshúsið, safn Einars Jónssonar mynd- höggvara og Þjóðleikhúsið. Einnig barnaskólann og íbúðarhús. Allar eru bygg- ingarnar reistar í endurreisn- arstfl. Þér gangið áfram upp að kirkjunni en snúið þá til vinstri og gangið í norður inní Þjóðleikhúsið og þér komist að því að uppselt er á nýjasta stykkið, Gæjar og pí- ur. Ef... Ef hugmyndir Guðjóns Sam- úelssonar (1887—1950) húsameist- ara frá árinu 1924 um „Háborg íslenskrar menningar" á Skóla- vörðuhæðinni, hefðu náð fram að ganga á sínum tíma, er ekki ólík- legt að hæðin liti eitthvað svipað út í dag og hér að ofan er lýst. Þar myndi nú tróna stórt torg sem af- markaðist með öllum helstu menningarstofnunum borgarinn- ar samankomnum á einum stað sem eflaust mætti nú kalla hjarta borgarinnar. En hugmynd Guð- jóns komst aldrei í framkvæmd nema hvað byrjað var að grafa fyrir stúdentaheimilinu en þvi var fljótlega hætt. Háskólanum og Þjóðleikhúsinu, sem Guðjón teikn- aði, var seinna valinn annar stað- ur í borginni, en nú rís Hallgríms- kirkja, sem Guðjón einnig teikn- aði, á Skólavörðuhæðinni eins og allir vita, þar er Iðnskólinn í Reykjavík, styttan af Leifi heppna, Templarahúsið og þar er leigubílastöð svo eitthvað sé nefnt. I mars 1924 var skipuð sérstök nefnd um skipulag Reykjavíkur, sem í áttu sæti Geir G. Zoega vegamálastjóri, Guðjón Samúels- son húsameistari, Knud Zimsen borgarstjóri og Matthías Þórðar- son þjóðminjavörður. Þessi nefnd annaðist undirbúning hins fyrsta skipulagsuppdráttar af Reykjavík sem lagður var fram árið 1928. Skólavörðuholtið bar snemma á góma á fundum nefndarinnar. Þann 19. mars lagði Guðjón fram tvær tillögur að skipulagi á Skóla- vörðutorgi. „Leist nefndinni best á þá hugmynd hans að kirkjan standi á miðju torgi og fól honum frekari uppdrætti á þeim grund- velli.” Tveir uppdrættir Hugmynd Guðjóns um „Háborg íslenskrar menningar" varð opin- ber í ræðu, sem Ágúst H. Bjarna- son prófessor hélt við hátíðarhöld stúdenta 1. desember, 1924.1 ræð- unni sagði hann að svo væri ráð fyrir gert að sem flestar af opin- berum byggingum bæjarins, sem byggðar yrðu í framtíðinni, svo sem dómkirkja, háskóli, stúdenta- garður, listasöfn- og vísinda- ofl. yrðu reistar á Skólavörðuholtinu. Á háholtinu yrði gert torg eitt mikið og dómkirkjan reist á þvi miðju, en öðrum byggingum skip- að umhverfis það. Frá þessu er sagt í Morgunblað- inu og fylgir með viðtal við Guð- jón um hugmynd hans. Hann segir þar að þessi uppdráttur sé ekki annað en hluti þess, sem verið sé Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins, um það leyti sem hann setti fram hugmynd sína að háborginni. að vinna að í skipulagsnefnd. Hann segir, að sér sé ekki kunnugt um, hver eigi þá hugmynd að gera aðaltorg bæjarins á Skólavörðu- holti, en hún liggi nokkuð beint við, „því Skólavörðuhæðin er lang- hæsti staður bæjarins". Siðan seg- ir Guðjón: „Árið 1916 kom til orða, að farið yrði að hugsa fyrir byggingu handa þjóðminja- náttúrugripa- og málverkasafninu og bað Einar Arnórsson (þáverandi ráðherra) mig um, að gera uppdrátt að húsi fyrir þessi söfn. Var þá helst talað um, að það yrði byggt á Skóla- vörðuhæðinni. Uppdrátt þann gerði jeg, og datt mjer þá í hug, að vel væri viðeigandi, að reisa kirkju þarna líka, og gerði jeg uppdrátt að henni um leið. ... En svo þegar við fórum að vinna að skipulagi bæjarins í nefndinni, kom þetta upp á teningunum." Hugmynd Guðjóns Þá lýsir Guðjón í stórum drátt- um hugmynd sinni að gerð torgs- ins og segir hvar einstökum bygg- ingum sé ætlaður staður. Torgið skyldi vera rétthyrndur ferhyrn- ingur og á miðju þess skyldi reist dómkirkja landsins, á stalli, sem væri einn metri á hæð yfir aðal- flöt torgsins og byggð í grískum krossstíl. Kirkjan skyldi rúma 800 manns. Hvelfing hennar skyldi vera tvöföld, þannig að innri hvelfingin yrði lægri. I bilinu milli innri og ytri hvelfingarinnar skyldi komið fyrir stjörnuathug- unartækjum. (Þess má geta að í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.