Morgunblaðið - 15.07.1984, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 15.07.1984, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 1984 85 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI k 1L FÖSTUDAGS l/JfXA UAV 'Ú tf KAUPÞING HF O 68 69 88 Að svelta tónlistina Sigrún Eðvaldsdóttir skrifar: Ágæti Velvakandi og allir landsmenn! Nú á tímum verðbólgu, atvinnu- leysis og fjárskorts langaði mig til að taka til íhugunar mál sem varðar alla námsmenn sem gera heiðarlega tilraun til þess að mennta sig erlendis og hér heima. Það eru launamálin. Getur ekki verið að peningun- um, sem ríkið á, sé eytt á mjög óhagkvæman hátt, svo ekki sé meira sagt? Tökum sem dæmi tón- listarnema sem fara utan í nám. Ef þeir fá einungis fé fyrir skóla- gjöldum en ekki fyrir húsaleigu, þá er alveg eins hægt að sleppa því að veita þeim lán, því að enginn getur búið á götunni og náð góðum árangri í tónlistarháskóla. Nem- inn lifir nefnilega ekki á náminu einu saman frekar en aðrir þegnar þjóðfélagsins. (Lífið væri ólíkt því sem nú gerist ef mannskepnan þrifist án þess að neyta matar eða svefns). Peningaleysið leiðir af sér að 10—12 ára nám hér heima fer til ónýtis sem ekki ætti að koma fyrir ef rétt væri haldið á spöðun- um. Viljum við íslendingar ekki eiga gott og öflugt tónlistarlíf? Tónlistin er ein af þeim listgrein- um sem við eigum auðvelt með að halda lifandi. Viljum við ekki ein- mitt hlúa að þeim mikilvæga lið í menningunni? Við starfrækjum sinfóníuhljóm- sveit hér, sem er því miður ekki skipuð íslendingum eingöngu, því að ekki eru til íslenskir híjóð- færaleikarar í öll sætin. Þá er not- ast við útlendinga sem eru at- vinnulausir í heimalandi sínu. Nú, íslenski námsmaðurinn sem heldur til náms erlendis fær fyrir- mæli frá erlendum stjórnvöldum Verðlag Þorleifur Kr. Guðlaugsson skrifar: Heiðraði Velvakandi! Mig langar endilega að senda þér lítið dæmi um verðlag á ís- landi og þenslu á því sviði. Þannig er að ég hef skrifað hjá mér verð á ýmsum vörum um 30 ára skeið, þó að hér sé engan veg- inn um að ræða tæmandi upptaln- ingu. Slíkt væri ógerningur. Mig langar til að bera saman verð árið 1975 og 1984. 1. Bíóferð fyrir einn er tuttugu og sjö sinnum dýrari nú en 1975. Inni í þessari ferð er innifalið tvær ferðir í strætisvagninum, ein gosflaska og pakki af sælgæti. 2. Saltkjöt, smjör, bananar, syk- ur og kartöflur hafa fimmtánfald- ast í verði. 3. Mjólk, tómatar, harðfiskur og kindakæfa hafa sextánfaldast í verði. 4. Kaupgjald er nú tuttugu og einu sinni hærra nú en fyrir níu árum. Hér hefur bara verið gripið niður og borið saman af handa- hófi, en gaman væri ef þessi skráning kæmi fyrir sjónir al- mennings. Vísa vikunnar GuArón Agnarndóttir, Alþingtnmaóur. Athyglisvert hve margir svara ekkí mar+ U.HM finnaat . varain Vafasöm kvennarúta Kvennarútan er komin heim klyfjuð öll meó vafa. Tekið er undir enn með þeim, sem enga skoðun hafa. Hákur um að hann megi bara vera í land- inu sem námsmaður og hann fær áritun á vegabréfið sitt upp á það. Hann má ekki vinna í landinu. Ef hann verður uppvís að slíku at- hæfi er hann tafarlaust sendur heim. Er ekki hægt að fara betur með peningana sem til eru og nota þá einungis i nauðsynjar? Ég tel meiri nauðsyn á því að veita ís- lenskum námsmönnum aðstoð sem eru í námi erlendis og koma til með að vinna fyrir þjóðina sina að loknu námi ef allt gengur vel. Það er nokkru nær en að veita stórar fjárupphæðir til ævintýra- manna sem halda sig geta fundið fjársjóði í jörðu og ef til vill úr gulli! Landið á nóg af öðrum auð- æfum sem eru dýrmætari en nokkurt gull. Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari. Hefur vegagerðin verið lengi í kaffi? Þessir hringdu .. . í áralöngu kaffi Kciður skrifar: Velvakandi minn! Ég er íbúi í Vestur-Landeyjum og nú eftir áralangt streð er kominn malbikaður vegur frá Reykjavík og austur til okkar. Óhemju fjármagni og tíma hefur verið eytt í þessar framkvæmdir sem eru ekki nema þakkarverð- ar. En svo virðist sem verkstjór- ar vegagerðarinnar hafi gleymt öllum malarvegum meðan á þessu stóð. Vegir í Vestur- Landeyjum hafa ekki verið jafn- slæmir í manna minnum. Hverj- um manni hlýtur að vera ljóst, að ástandið er ekki gott, þegar menn hætta sér ekki upp fyrir 30 kílómetra hraða sums staðar. Undarlegast í öllu þessu efni er að heflar vegagerðarinnar virðast standa ónotaðir. Ég hef haft spurnir af fyrirtæki sem óskaði eftir að fá hefil á leigu fyrir nokkrum vikum, en var hafnað vegna anna tækisins. Þessi sami veghefill hefur staðið ónotaður inni í porti á Hvolsvelli síðan. Eru þetta annir? Nei, nú er kominn tími til að vegagerðin hætti í áralöngu kaffi sínu og fari að gera eitthvað róttækt i vegamálum okkar Rangæinga. Kötturinn lifi Friðunarsinni skrifar: Heiðraði Velvakandi! Þau válegu tíðindi bárust snemma í þessum mánuði, að byrjað væri að rífa eitt merki- legasta hús Reykjavíkur, Fjala- köttinn. Við þessu mátti að vísu búast, þar sem borgarstjórn hef- ur lýst sig hlynnta verkinu. Ekki hafði ég þó áhyggjur af því. Ég þóttist viss um að mótmælaalda frá almenningi mundi stöðva framkvæmdir. Dagarnir liðu, urðu að vikum, en ekkert gerðist. Mér er spurn: Hvar er allt fólkið, sem vann á ýmsan hátt að verndun hússins? Hvar eru blaðaskrifin? Ég trúi ekki að allir hafi skipt um skoð- un á nokkrum mánuðum. Ég vil heldur ekki kyngja því að málið sé útrætt, því að nokkuð sem þetta á aldrei að lognast útaf. í Fjalakettinum liggja elstu minj- ar um kvikmyndasýningar í Evr- ópu, ómetanlegar heimildir. AUt tal um að húsið sé sigið er tóm della, því það er byggt í mörgum hlutum. Húsið þarf ekki að verða að dauðu safni, heldur er hægt að nýta það undir starfsemi ís- lenskrar kvikmyndagerðar sem nú er í örum vexti. Ég skora á alla þá, sem heils hugar vilja Fjalaköttinn áfram að láta í sér heyra svo um mun- ar. Baráttan er ekki töpuð, en ef ekki verður skjótt brugðið við, er allt um seinan. Látum ekki Morgunblaðshallarmistökin endurtaka sig í hjarta borgar- SÆGJK. afdmim viðskvptavuú okkar. Harm er áförum tií útlanda tií náms í 6 ár. í júLí 1984 seíái fiann ibúð sína og keyptiverðtryggð \al990. Pað ár íýkxir Fiann námi og við fieinúomuna á fiann arufvirði tveggja íbúða - eða éxvícrýfisfváss - í seðfum. Hefur pú fvugfáH tvöföfíun evgnar á sex árumi Sölugengi verðbréfa 16. júlí 1984 SPARISKÍRTEINIRÍKISSJÓÐS: sðlugengi mliað vii 5,8% vexti umfram veritr. pr. 100 kr. 1. FLOKKUR 2. FLOKKUR Útg. Sölugengí pr. 100kr. 5,8%vextirgildatil Sölugengi pr. 100kr. 5,8% vextirgildatil 1970 1971 01.879 15.09.1985 D 1972 4.886 25.01.1986 5.505 15.09.1986 1973 7.503 15.09.1987 2.115 25.01.1988 1974 0.531 15.09.1988 - - 1975 7.111 10.01.1985 8.020 25.01.1985 1976 2.230 10.03.1985 8.650 25.01.1985 1977 1.58121 25.03.1985 0.580 10.09.1984 1978 3.48S3) 25.03.1985 5.398 10.09.1984 1979 465 25.02.1985 833 15.09.1984 1980 540 15.04.1985 692 25.10.1985 1981 250 25.01.1986 980 15.10.1986 1982 249 01.03.1985 451 01.10.1985 1983 287 01.03.1986 111 01.11.1986 1) InnlausnatverðSeðlabankanspr 100 NÝKR. 5.febrúar 17.415,64 2) Innlausnarverð Seðlabankans pr. 100 NÝKR. 25 mars1984 2.122,16 3) InnlausnarverðSeðlabankanspr 100 NÝKR. 25 mars 1984 1.438,89 VEÐSKULDABRÉF VERÐTRYGGÐ ÓVERÐTRYGGÐ Með 2 qjalddöqum á ári Með 1 qjalddaqa á ári Láns- Ávöxtun SöluqerH J' Söluqerx 1' timi Sölu- umtram 18% 20% 18% 20% ár: gengi Vextir verðtr. ársvextir ársvextir HLV2' ársvextir ársvextir HLV21 IVfc 94,67 4 12% 89 90 91 84 86 86 2 91.44 4 12% 77 79 80 72 73 74 3 89,95 5 12% 68 70 71 63 65 66 4 87,52 5 12% 60 63 64 55 57 58 5 85,26 5 12% 54 56 57 48 50 51 6 83,16 5 12% 7 81,21 5 12% Hlutabréf: Kauptilboö óskast í hlutabréf frá Olíu- 8 79,39 5 12% félaginu hf 9 77.69 5 12% 2) hæstu leyfilegu vextir. 10 76,10 5 12% Kaupþing hf. reiknar gengi verðbréfa daglega ss KAUPÞING HF m. Husi Verzlunarmnar simi 6869 88 83? SlGGA V/öGÁ í 1/LVEWW

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.