Morgunblaðið - 15.07.1984, Síða 38

Morgunblaðið - 15.07.1984, Síða 38
86 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 1984 m UC UriMM rVirHYNDANNA Háskólabíó: 48 stundir Drepfyndin rimma milli svarts saka- manns og hvítrar löggu Nick Nolte ÞaA er al sem áður var; leyní- löggur gamla tímans leystu gétur ( rólegheitum, en leynilöggur nú- tímans leysa ekki ósvipaöar gét- ur meö otandi byssu- og klém- kjöttum. Leynilöggur eins og James Bond geta allt, en í þeim myndum er húmorinn aldrei út- undan. Ætli þaö hafi ekki veriö Dirty Harry hans Clints Eastwood sem byrjaöi é ofbeldinu sem nú gersamlega tröllríöur öllum leynilöggumyndum. „48 stundir" (48 Hrs.) heitir tiltölulega ný bandarísk hasarmynd meö Nick Nolte og nýstirninu Eddie Murphy í aöalhlutverfcum, sem Héskólabió ætlar aö sýna fljót- lega. „48 stundir" er mynd sem vert er að taka eftir, því í henni er bryddað upp á mörgum nýjungum í samskiptum löggunnar (sem yfir- leitt er hvit) og misindismannsins (sem ekki ósjaldan er svartur). Þaö er ekki haagt aö segja annað en aö leynilöggur nútímans séu all ólíkar leynilöggum gamla tímans, a.m.k. Holmes gamla. Tveir sólarhringar í líffi tveggja oröljótra gaura Nick Nolte leikur Jack Cates, sem hefur veriö lögga mestan part starfsævinnar. Myndin hefst er tveir forhertir misindismenn skjóta sér leiö út úr fangelsi og sleppa. Eddie Murphy leikur Reggie Hammond, sem hefur veriö glæpa- maöur aö atvinnu síöan mamma hans gaf honum eitthvaö á 15. af- mælinu hans. Nú eru góö ráö dýr, hvernig á aö ná í skottiö á föntun- um sem sluppu. Jack þekkir til náunganna og þar sem máliö er honum skylt, svo skylt aö starfsheiöur hans er í veöi, þá lendir þaö á honum aö elta fantana. Til þess aö auövelda eftir- förina á vælandi löggubílum um fjölfarnar breiögötur stórborgar- innar og stórhættuleg öngstræti útborganna, fær Jack áöurnefnd- an Reggie, sem er ungur svertingi, til liös viö sig. Jack fær Reggie lausan úr fangelsi í tvo sólarhringa, nákvæmlega 48 stundir, og ef Jack hefur ekki náö í skottiö á mis- indismönnunum aö þeim tíma liön- um, þá getur hann fariö aö leita sér aö annarri vinnu. Þessir tveir sólarf.ringar eru vægast sagt viöburöaríkir, þvi hvita löggan og svarti sakamaöur- inn reynast hinir mestu mátar, mestan partinn. Báöir kunna meö byssur aö fara, en annaö í fari þeirra, sem einkennir myndina í gegn, er: gagnstætt bílunum, þá veröur kjafturinn á þeim aldrei bensinlaus, stundum er hreint al- veg unun hvaö þeir geta veriö orö- Ijótir. Þaö er engin nýlunda i mynd- um meö engilsaxnesku tali, en í þessari mynd eru gömlu klisjurnar færöar upp á hærra plan. Leikstjórinn, Walter Hill. Walter Hill Þaö er alveg á hreinu, Walter Hill veröur hressari og ferskari meö aldrinum. Hann fór rólega af staö — setti saman nokkur handrit sem hann seldi og sumar myndirn- ar uröu frægar, t.d. The Getaway meö Steve McQueen. Fyrsta myndin sem Walter geröi var Hard Times meö Charles Bronson, og er sígild. En þá fyrst færöist fjör í leik- inn: Walter gerði myndirnar The Driver (meö Ryan O’Neal), The Long Rivers, The Warrlors og Southern Comfort. Þessar myndir gengu misjafnlega í fólk, aöeins ein þeirra, Warriors, varö verulega vinsæl. En allar eiga þær sameig- inlegt aö fjalla um ofbeldi í ein- hvers konar formi, en Walter Hill viröist alveg fyrirmunaö aö gera mynd þar sem einhvers konar hrottabrögöum er ekki beitt. Þaö var svo 1982 aö Walter geröi „48 stundir", en gerö hennar var svolítiö sérstök. Walter fékk aöeins sjö mánuöi til aö semja handrit, velja samstarfsmenn (sem er tímafrekt), taka myndina og klippa. Tökur hófust 17. maí 1982, þann merka dag, en Walter varö aö gjöra svo vel og afhenda mynd- ina fullkláraöa sama ár, því þá átti aö frumsýna hana, sem hann stóö Nick Nolte og Eddie Murphy (hita viö eins og aö skola niöur vatns- glasi. Walter Hill hefur nefnilega þann sjaldgæfa hæfileika aö vanda til verka án þess aö þurfa 50 tökur viö hvert einasta atriöi. Walter Hill var eitt sinn gagn- rýndur fyrir aö myndir hans væru ekki nógu listrænar. Walter lét sér þaö í léttu rúmi liggja; hann sagö- ist frekar vilja geta gert eina þokkalega mynd á ári, en aö gera eina listræna mynd sem kolfélli oc síöan vera atvinnulaus þaö senr eftir væri. Nick Nolte og Eddie Murphy Nick Nolte hefur veriö tíöur gestur í reykvískum kvikmynda- húsum síöustu vikurnar. Fyrst sýndi Nýja bíó „Ægisgötu” meö Nick í aöalhlutverki, þá sýndi Há- skólabíó „i eldlínunni", en í þeirri mynd lék Nick ásamt Gene Hack- man, og enn sýnir Háskólabíó mynd meö Nick, „48 stundir*. Nick Nolte er 44 ára, og eru liðin átta ár síöan hann vakti fyrst eftir- tekt. Þaö var aö sjálfsögöu i sjón- varpsþáttunum klassísku, Rich Man, Poor Man (Gæfa og gjörvi- leiki). En Nick er ekki eina stjarna þessarar myndar. Ekki minni at- leiksins. hygli hefur hinn 22ja ára gamli Eddie Murphy vakiö fyrir frísklegan og frumlegan leik. Eddie er gríöar- lega vinsæll í öllum fylkjum Banda- rikjanna og er nú vinsælasti svarti leikarinn þar ásamt Richard Pryor. Eddie lék í sjónvarpsþáttunum „Saturday Night Live" í tvö heil ár, þar til aö hann lék í sinni fyrstu mynd, sem var „48 stundir". Eddie Murphy lék í annarri mynd á síöastliönu ári, og hét hún Trading Places, sú mynd varö þriöja vinsælasta mynd ársins 1983 í Bandaríkjunum. Og nú í júlí veröur enn ein Eddie Murphy- mynd frumsýnd, nefnist hún Best Defense, en í henni leiöa saman hesta sína Eddie og grínleikarinn Dudley Moore. Vegna mikilla vinsælda þessa unga leikara hefur Paramount- fyrirtækiö gert risasamning viö Eddie, hann fær 15 milljónir doll- ara fyrir aö leika í fimm myndum á vegum Paramount. Ekki aumt tímakaup þaö, en aö hiröa launa- umslagið er ekki áhugamál Eddie númer eitt; þaö er stelpur og bílar, bflar og stelpur, og enn fleiri stelp- ur, enda segja kunningjar hans aö hann heyri í nælonsokkum kíló- metra í burtu. HJÓ Fréttapunktar Þé er stærsta uppskeruhétíö bandarískra kvikmyndaframleiöenda hafin í Vesturélfu. Sumarkvöldin draga aö sér flesta kvikmyndahúsag- esti, síöan koma jól, péskar, löngu fríhelgarnar. öll kvikmyndaverin keppast viö aö setja sem frambærilegast afþreyingarefni é markaöinn é þessum érstíma, stundum getur hann jafnvel réöiö nokkru um tilver- uréH hinna stéru dreifingarfyrirtækja. Því géö skemmtimynd kostar tæpast undir 20 millj. dala. Hér er veriö aö kynna einn af élfunum ( GREMLINS, éöur en þeir hleypa öllu (héaloftl Þær myndir sem ganga best þar vestra í dag eru Ghostbusters, nýjasta mynd þeirra Dan Aykroyds og Bill Murray. Myndin, sem er satira um hryllingsmyndir nútím- ans, var í bígerö er John Belushi féll svo skyndilega frá fyrir tveim árum síöan, er hugmynd hans og Aykroyds. Fleiri kunnir gamanleikarar koma viö sögu meöal þeirra Har- old Ramis, Annie Potts, Rick Mor- anis og Sigourney Weaver. i framhaldi má geta þess aö æviminningar John Belushi, Wired: The Sort Life and Fast Times of John Belushi, (Simon & Schuster Inc. 1984), sem kom út í síöasta mánuöi og skráö af Pulitz- er verölaunafréttamanninum Bob Woodward, (All the President’s Men), hefur vakiö geysilegt umtal. Woodward lýsir þar einkum síö- ustu mánuöunum í lifi Belushis sem var oröinn forfallinn kókaín- og heróínneytandi undir þaö síö- asta. En Ghostbusters fær haröa samkeppni frá Gremlins, Indiana, Jones and the Temple of Doom og Star Trek III: The Search for Spock. Tvær þær síöarnefndu eru framhaldsmyndir frægra fyrirrenn- ara. Tlw Raiders of the Lost Ark og Star Trek-myndanna tveggja, og koma vinsældir þeirra síöur en svo á óvart. Gremlins er hinsvegar sú mynd sem kemur mest á óvart í sumar. Þetta er ævintýramynd um álfa og samskipti þeirra vlö menn. ET meö tennur, segir lelkstjórinn, Joe Dante, (The Hcwling, The Twilight Zone). Framleiöandinn er galdrakarlinn Steven Spielbergl Á næstunni mun Laugarésbíé taka til sýninga nokkrar af bestu myndum meistara Hitchcocks. Þetta eru myndirnar The Man Who Knew To Much, Vertigo og Rear‘ Window. Allt saman úrvalsmyndir, skemmtanagildi þeirra óumdeilan- legt. Þaö var sá armur Universal Pict- ures, sem sér um klassískar og listrænar myndir. UCL sem keypti sýningarréttinn og dreiföi myndun- um á síöasta ári. Og þaö sannaöist aö Hitchcock heldur svo sannar- lega velli því þær geröu allar stormandi lukku. Fallinn er í valinn einn af kunnari kvikmyndaframleiöendum á síö- ustu áratugum, Carl Foreman. Meöal þeirra mynda sem hann framleiddi (skrifaði handrit sumra) eru stórmyndirnar High Noon, (’52) The Guna of Navarone, The Victors, Born Free, svo nokkrar séu nefndar. Foreman var einn þeirra sem lenti á svarta lista McCarthy og nornaveiöara hans og hvorki játaöi því eöa neitaöi aö hann væri kommúnisti. Þessi afstaöa Fore- mans varö til þess aö hann hélt í útlegð til Bretlands áriö 1952 og dvaldist þar til ársins 1975. Á þessu tímabili skrifaöi Foreman m.a. handritiö aö The Brídge on the River Kwai. Sökum svarta list- ans varö hann aö skrifa undir dul- nefni og varö þar meö af Oscars- verölaununum. ★ * * Robert Duvall hlaut hvarvetna einróma lof fyrir frábæra túlkun á útbrunnum c/w söngvara í Tender Mercies, sem hér var sýnd fyrir skömmu. M.a. frá raunverulegum stjörnum þessarar tónlistar, eins og Johnny Cash og Wiile Nelson. Frami hans á þessari óvæntu braut leiddi svo aftur til þess aö karl er nú önnum kafinn viö upptökur niöur í Nashville, undir handleiöslu ekki ófrægari country-söngvara en June Carter Cash og Waylon Jenn- ings. Eftir þá útreiö sem Heaven’s Gate fékk hérna um áriö, hefur gengi leikstjórans, Michael Cim- ino, lækkaö ískyggilega. Nýjustu fréttir herma þó aö hann sé aö byrja á myndinni Year of the Dregon. Bravó! Aörar myndir sem gengiö hafa mjög vel þar vestra í vor eru Police Academy, Romancing the Stone, The Natural, Breakin, Splash, Firestarter, Moscow on the Hud-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.