Morgunblaðið - 20.07.1984, Qupperneq 2
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1984
Lítil kapella, sem staösett er í
Curie-rannsóknastofnuninni miöri
og bíöur niöurrifs, syngur svana-
söng sinn i óvæntum félagsskap.
Ungir listamenn úr listaskólanum
andspænis (École des Beaux-Arts)
hafa tekiö sér þar bólfestu og
halda sýningar á listaverkum, sem
sumir mundu kalla fersk, aörir
brotakennd t.d. beygluö mótor-
hjól. í kórnum, sem er aö hruni
kominn, syngur Callas af mynd-
bandi. Kapellan er aö 26, Rue
d’Ulm, 75005 París. Sýningin
stendur til loka júlí og er opin
föstudaga, iaugardaga og sunnu-
daga.
Grand Palais:
Sýnd eru málverk, höggmynd-
ir, vefnaöur og aðrir hlutir, sem
valdir hafa veriö úr Menil-
safninu í Houston, Texas og
New York. Sýningunni lýkur í
lok júlí.
Theatre Maubel
sýnir verölaunaleikritið Fool for
Love eftir Sam Shephard. Leik-
stjóri er Judith Burnett.
Le Petit Journal:
Þann 20. júlí leikur Ciryl Jazz-
band.
Opéra:
Sýndur veröur ballettinn Les
Nocew, tónlist Stravinsky.
Sýningín er 21. júlí.
„Kettirnir“ slá í gegn
Söngleikurinn „Cats" hefur veriö sýndur í Tokyo viö metaösókn í
marga mánuöi. Þetta er fyrsti vestræni söngleikurinn, sem hlýtur
slíkar móttökur. Stykkinu leikstýrir Keita Asarl og leikararnir eru
japanskir. Sagt er, aö ekki borgi sig aö missa af þessari sýningu, þó
svo maöur hafi séö hana í Evrópu eöa Bandaríkjunum. Og þá er
bara aö bregöa sér í sýningartjald „Kattanna" í hinu nýja borgar-
hverfi Tokyo, Nishishin Juku. Um helgar.
frl
Yfirlitssýning á gouache-myndum
Tatsuo Takayama er haldin í Yam-
atane-safninu, 7—2 Kabuki cho
Nihanbashi Chuo-ku og stendur til
5. ágúst. Aögangseyrir er 500 yen.
Einn af frumherjum í vídeólist,
Namjun Palk, hefur verið festur á
filmu. Hann vakti mikla athygli,
þegar hann sendi list sína í Beau-
bourg-miöstööina í París um
gervihnött. Sendingu þessari mun
hafa veriö misvel tekið. En nú sýnir
Metropolitan-safniö í Tokyo sem
sagt mynd um þennan Kóreubúa,
þar sem hann fær tækifæri til þess
aö útskýra list sína fyrir almenn-
ingi. Myndin er sýnd alla daga
nema mánudaga til 29. júií og
safniö er við Ueno Parc.