Morgunblaðið - 20.07.1984, Síða 13

Morgunblaðið - 20.07.1984, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚLl 1984 45 Vææ, kvíkígt rokk... Ljósmyndir Frlðþlótur Helgason. fullkomnir nú þegar. Blm.: Þið talið um að lifa af því, som þiö geriö, er það erfitt? Seli: Já, ennþá. En viö veröum að geta lifaö af því sem viö fram- leiöum til þess aö geta veriö sannir. Blm.: Er þaö eitthvaö nýtt, sem þið eruö aö fást viö? Seli: Þaö er ekki okkar aö skilgreina þaö. Keli: Þaö er nýtt fyrir okkur, við erum ekki að endurtaka það sem þegar hefur veriö gert. Blm.: Hvernig menn eruö þiö? Óskar: Kúnstugir grallarar. Viö höfum mjög svo eðlilega starfandi heilabú og ekki svo ýkja lága greindarvísitölu. Blm.: Eruö þiö mikið saman? Seli: Já. Kommi: Já. Keli: Já, við vinnum saman allan daginn. Óskar: Já, við höfum þekkst frá þvi í barnaskola. Blm.: Kemur aldrei upp ágreiningur? Seli: Auövitaö koma upp alls konar ágrein- ingsmál, af því viö erum í þessu afalvöru, en við höfum einstaka hæfileika til aö sætt- ast. Blm.: Hvert er takmark ykkar i lífinu? Óskar: Aö verða „homo universalis“, hinn alhæfi maöur. Sherlock Holmes sagði ein- hverju sinni: Það má ekki fylla háaloftið af rusli og við veröum aö hafa á hreinu hvaö þarf að læra og hvaö má framkvæma meö aðstoð annarra. Þetta er okkar takmark. Blm.: Leikrit, segiö þiö. Seli: Viö settum upp leikrit, þegar viö vorum í Myndlistar og handiðaskólanum. Síöan settum viö upp sjálfstætt verk, sem viö sýndum á Hólma- vík og heitir Hryöjuverkahóran. Blm.: En hvað er að segja um perform- ansana? Óskar: Þetta eru sjálfstæðir per- formansar frá OXSMÁ. Formiö sem slíkt finnst okkur geta verið skemmtilegt. Blm.: Það var sýnd mynd með ykkur i Skonrokki. Kommi: Já, viö viljum koma á framfæri athugasemdum í því sambandi. Við sendum inn þessa mynd, sem kostaöi okkur 15.000. krónur, sem var algjör lág- markskostnaöur. Þar eð við erum ekki meölimir í FÍH fengum viö ekki greiddan fullan taxta heldur aöeins 1.600 krónur upp i kostnaöinn. Keli: Við höfum orðið fyrir vonbrigöum með sjónvarpiö. Þeir gleypa viö auglýsingamyndum frá plötuinnflytj- endum, en gera ekkert tll aö ýta undir inn- lenda framleiöslu. Seli: Það er spurning, hvort Skonrokk er auglýsingaþáttur eöa spanni þaö sem er aö gerast i tónlist. Blm.: I hverju felst metnaöur ykkar? Seli: Aö geta gert það , sem okkur langar til aö gera og lifað af því. Keli: Hluti af þessu er að læra tæknina og fullkomna þaö sem viö erum aö gera án þess aö staðna. Óskar: Það er endalaust hægt aö reyna aö ná fullkomnun, tll dæmis erum við jjglýsinga- in er 2 24 80 Nfjtt líf Nýtt líf er komiö út, stútfullt af skemmtilegu efni og glæsilegt útlits sem jafnan fyrr. Þaö er þess viröi aö kíkja á: ðtal við konu sem gerðist leigubifreiðarstjóri þegar hún varð ekkja. /ndaalbúm „afmælisbarnsins" Steingrlms Hermannssonar. ðtal við Guðrúnu A. Þórarinsdóttur Jensen, eiginkonu hins fræga plötusnúðs Kids Jensens. ötal við Málmfrlði Siguröardóttur sem sannarlega „veit svarið". ávarrétti eins og þeir matreiða þá I Vestmannaeyjum. Og auövitaö er margt fleira í Nýju lífi sem fróölegt er aö lesa og kynnast. Nýtt líf fæst á næsta blaðsölustað.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.