Morgunblaðið - 20.07.1984, Page 21

Morgunblaðið - 20.07.1984, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1984 53 Stephen Jones í Palace í Paría, en þar voru meOal annarra samankomnir vinir frá London og audvitad allir með höfudföt fré meistaranum. viö Steve Strange, yfirmann Palace í London — þetta fólk neitar sér ekki um aö vera meö í leiknum. Og hjá hverjum ætli viöskiptin séu gerö öörum en Stephen Jones? Stephen ber sjálfur litla gula koll- húfu efst á krúnurökuöum skallanum. Þá hugmynd getur hann þakkaö gamansömum vinum, sem léku sér aö því aö raka af honum allt háriö aö honum sofandi nótt eina eftir erfiöan dag. Dagleg fæging tekur 45 mínútur og árangurinn má ábyrgjast. Frá London til Parísar Toppurinn á ferli Stephen Jones var kvöldiö, sem hann sýndi list sína í Palace í París. Allir helstu vinirnir frá London mættu á staöinn! Þar mátti sjá málarann Duggie Field, Steve Strange, Sybille de Saint-Phalle, listagyöju meistarans, og svo höfuö- paura Parísartízkunnar. Úrval hattanna var fjöl- breytt. Þeir voru flottir, fríkaöir, fyndnir, fráleitir, hrein kollsteypa hugarflugsins. En hattur er ekki eyland. Til þess að sem beztur árangur náist, þarf aö búa hann til á væntanlegum eiganda. „Slík vinnubrögð gera gæfumuninn," út- skýrir Stephen Jones. Hvort sem um er aö ræða sérstaka viöskiptavini eins og Lady Charr, Faye Dunaway, Grace Jones eöa hönnuðina Thierry Mugler, Jean-Paul Gaultier og Junko Shimada, þá er nauösynlegt aö setja sig í spor hvers og eins þeirra. í sköpuninni getur þurft aö helga sig því broslega eöa því fína, látleysinu eöa þokkanum. En meistarinn er sannfæröur um, aö hattar fari ölium vel. Auk þess geri þeir fólk öruggara meö sig. „Enginn getur veriö öruggur um, hvernig hann lítur út í augum annarra. Hattur getur hins vegar gefiö góöa von um, aö maöur sé þaö sem maöur sýnist vera.“ Stephen Jones mátar sjálfur alla hatta, sem hann framleiöir. Rökuö höfuökúpan mun jöfn aö ummáli og um væri aö ræða konuhöfuö meö sæmi- legan hadd. Meö galdratökum — enn ótrúlegri fyrir þá sök, aö Stephen nýtur aöeins tveggja fingra hægri handar — lyftir meistarinn verkum sínum í svimandi hæöir, þar sem öll lög þyngdar og flat- armáls eru þverbrotin. Stórir baröahattar, marókk- anskar herhúfur, blómum skreyttir stráhattar, túrb- anar meö fellingum, kaskeiti, slörhattar, öll ber framieiöslan merki sjaldgæfrar snilligáfu. Fyrir hverja gerö af hatti gerir Stephen Jones blokk — ekki úr viöi eins og venjulegt er aö gera, — heldur úr „spartríti", nokkurs konar stífu „tjull“- efni, sem gerir honum kleift aö framfylgja órum sínum jafn auöveldlega og væri han aö þeyta rjóma. 1 hópi gínuhvítingjanna í vinnustofunni, eld- rauöu varanna, umvafinn felldum tjöldum og lýstur upp af litlum Ijósberum frá himni, líkist Stephen Jones mest þægum strák í heimsókn hjá ömmu. En sparisvipurinn getur breytzt í einu vetfangi, viöstöddum til óblandinnar ánægju, og þá má sjá, hvernig hver andlitsgrettan af annarri leiöir aö lok- um til skellihláturs. Stephen er spjátrungslegur miöaö viö marga. Viö víö jakkaföt notar hann köflótta skyrtu, rósótt bindi, hvítan flibba og tvílita skó. Hann nefnir hatta sína upp á frönsku: „Mimi Chic“, „Croisette Prom- enade", Chapeau Guiche", eöa „Flamenco", „Si- erra Nevada". Tengsl viö Ijúfar minningar frá feröa- lagi um Suöur-Ameríku eöa leyndar þrár til París- ar... Jafnvel Maggie (Thatcher) blandar sér í málin. Og enda þótt hún hafi enn ekki sést í Lexington Street hjá Stephen Jones, hefur hún boöiö honum til tedrykkju í Downing Street 10, ásamt öðrum tízkufrömuöum. En hvaö sem því líður, kæra Maggie, þá veröur erfitt aö keppa viö Elizabeth Taylor, Caroline af Mónakó og Nancy Reagan, sem Stephen dáir hvaö mest og drevmir um aö skipta viö. Þetta var nú svona til upplýsingar fyrir áhuga- fólk. Þýdd grein eftir Franka de Mailly úr tímaritinu City.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.