Morgunblaðið - 20.07.1984, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1984
63
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu ...
Undarlegar
upplýsingar
Elísabet hjá Kvennaathvarfinu
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja:
Mig langar að gera athugas-
emd við grein sem birtist í Vel-
vakanda þann 7. júlí sl. eftir Ás-
dísi Erlingsdóttur og bar heitið
„Að afnema þjóðina".
I grein Ásdísar segir orðrétt:
„Stofnun og tilvera Kvennaat-
hvarfsins var stórátak og þess
vegna skildi ég ekki af hverju
forsvarskonur athvarfsins voru
að óvirða sitt ágæta framtak
með guðlasti. Þegar ómar Ragn-
arsson fréttamaður sjónvarpsins
fékk viðtal hjá þeim, þá benti
hann m.a. á ein af myndum sem
prýddu veggi stofnunarinnar og
vildi vita merkingu hennar. Sú
mynd var af holdugri konu í
vinnugalla sem brosti breitt og
hélt hún á bandi með hengdan
karl i snörunni."
Ég bendi hér með Ásdísi og
öðrum lesendum blaðsins á, að
hvorki ómar Ragnarsson né
annar fréttamaður hefur nokkru
sinni stigið fæti in fyrir dyr
Kvennaathvarfsins. Myndina,
sem Ásdís talar um, hef ég aldr-
ei á æfinni séð innan veggja at-
hvarfsins og er ég þó starfsmað-
ur þess.
Er mér því óskiijanlegt hvað-
an Ásdís hefur upplýsingar sín-
ar.
Best að ferðast
með íslenskum
ferðaskrifstofum
Valborg hringdi og hafði eftir-
farandi að segja:
Mig langar hér til að koma dá-
litlu á framfæri í sambandi við
þáttinn um sólarlandaferðir sem
var í sjónvarpinu sl. þriðju-
dagskvöld.
Eg verð að viðurkenna að sól-
arlandaferðir eru orðnar ansi
dýrar og hafa þær hækkað all
verulega frá því sem áður var.
Fyrsta sólarlandaferðin okkar
hjónanna var til Mallorca fyrir
mörgum árum og mánaðarkaup-
ið þá dugði til að borga slíka
ferð. Nú hins vegar dugar ekkert
venjulegt mánaðarkaup hjá ts-
lendingi fyrir slíkri ferð, a.m.k.
hjá konum. Gengisbreytingin
réði mestu um það hvað allt hef-
ur hækkað gifurlega á undan-
förnum árum, fólk er bókstaf-
lega hætt að hafa nokkurt verð-
skyn.
Varðandi þáttinn um sólar-
landaferðirnar í sjónvarpinu, þá
verð ég að segja að ekki kom þar
allt fram sem vert er að geta um.
Fyrir u.þ.b. tuttugu árum höfð-
um við íslendingar ekki kost á að
fara í slíkar ferðir og ég held að
Ingólfur í Útsýn hafi átt mestan
þátt í þvi hve fjölbreyttar þessar
ferðir eru orðnar, að öllum hin-
um ólöstuðum. Vera má, að við
getum farið til Norðurlandanna
og ferðast þaðan til sólarlanda
ódýrara en frá íslandi, en það er
ekkert sambærilegt við það og að
ferðast með innlendu ferðafélagi
eða ferðaskrifstofu. Þjónusta er
til dæmis mjög góð hjá okkur
ferðaskrifstofum og auk þess
sem það er viss stemmning að
fara með svona hópi, svo ég tali
ekki um hvað það er mikils virði
að hafa góða fararstjóra og lip-
urt fólk sem hægt er að snúa sér
til, ef eitthvað bjátar á.
Fari maður með erlendri
ferðaskrifstofu er það vitað mál
að maður kæmi ekki til með að
þekkja neinn og sjálfsagt myndi
maður ekki blanda geði við aðra
í slíkri ferð. f hópferðum með
íslendingum eru allir sem einn
ákveðnir í að skemmta sér og
njóta ferðarinnar og venjulega
kynnist maður mörgu fólki sem
maður heldur gjarnan kunn-
ingsskap við, eftir að heim er
komið.
Við íslendingar eru ákaflega
kröfuharðir um allt sem snertir
húsnæði og almenna þjónustu og
sættum okkur ekki við ýmislegt
sem erlendir ferðalangar verða
að láta sér lynda. Ég verð því að
segja að ég sem hef farið í marg-
ar sólarlandaferðir og oftast
með Útsýn, hef notið frábærrar
þjónustu og kurteisi allra sem ég
hef orðið að skipta við og er það
ekki lítils virði. Því vona ég að
við drepum ekki niður viðleitni
íslenskra ferðaskrifstofa til að
halda uppi íslenskum sólar-
landaferðum, með því að fara til
Norðurlandanna og styrkja
ferðaskrifstofurnar þar.
Ég held að það sé númer eitt
að styrkja íslenskan iðnað í
hvaða mynd sem er og veitir
okkur ekki af, að standa saman í
þessu sem öðru. Með því móti
getum við kannski orðið þess
valdandi að ferðakostnaður
verði lækkaður.
Dýrt
flugfargjald
Ó.Ó. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja:
í framhaldi af þættinum um
sólarlandaferðir sem var á
dagskrá sjónvarpsins sl. þriðju-
dag, langar mig til að bera fram
eina spurningu fyrir ráðamenn
Flugleiða:
Hvernig stendur á því að fs-
lendingar þurfa að greiða fyrir
fargjald milli Keflavíkur og New
York u.þ.b. tvö hundruð dölum
meira en Bandaríkjamenn
greiða fyrir fargjald milli New
York og Lúexemborgar? Hér er
ég að miða við venjulegt far-
gjald, vissulega getur umrætt
flug frá Keflavík kostað miklu
meira.
Góðar Rokkhátíðir
María Óskarsdóttir skrifar:
Ég er ein af þeim lánsömu sem
var ung á svonefndum rokkárum.
Langar mig nú að koma fram
þakklæti mínu við aðstandendur
Rokkhátíðar. Skemmtanirnar á
Broadway ’83 og ’84 voru frábær-
ar.
Éinnig vildi svo til að ég var
stödd í Vestmannaeyjum helgina
7.-8. júlí. Voru þar samankomnir
skemmtikraftarnir frá Rokkhátíð
’84 og viti menn. Þar var troðfullt
hús og skemmti fólk sér langt
fram eftir nóttu.
Vildi ég gjarnan koma þakklæti
mínu á framfæri til allra okkar
góðu rokksöngvara fyrir þessa
frábæru skemmtun og hvet alla að
láta hana ekki framhjá sér fara.
Dreifing Morgunblaðs-
ins góð í Garðinum
5959-9313 skrifar:
Það vill ætíð vera svo, að oftar
er þess getið sem miður fer en vel
er gert. Mig langar að fara nokkr-
um orðum um dreifingu Morgun-
blaðsins í Garðinum. Það eru tvær
húsmæður hér í þorpinu, sem sjá
um dreifinguna og er hún til mik-
illar fyrirmyndar. Þar skiptir ekki
máli hvernig viðrar, blaðið er allt-
af komið í ganginn þegar maður
vaknar. Ég fyrir hönd margra
kaupenda Morgunblaðsins í Garð-
inum þakka Kristjönu Óttarsdótt-
ur og Sigrúnu Oddsdóttur fyrir
frábæra þjónustu undanfarin
misseri.
húsgögn
fyrir höfðingja
syni og dætur
3 er það besta sem þú getur sett í
barnaherbergið.
Það er ekkert vafamál.
ÉrSer smíðaö úr massífri furu og marg
lakkaö.
22 mismunandi
raðeiningar
sem gefa ótakmarkaða möguleika til
að innrétta stór eða lítil herbergi.
BVSCA6NAHÖLL1N
BlLDSHÖFDA 20 -110 REYKJAVlK * 91-61199 OQ 81410