Morgunblaðið - 15.08.1984, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1984
3
Flugvél með þrjá menn innanborðs hætt komin suður af landinu:
Lenti í Vestmannaeyjum
á síðustu bensíndropunum
EINSHREYFILS flugvél með
þremur mönnum innanborðs var
hætt komin suður af landinu í
fyrrinótt. Flugmaöur hennar var
villtur og fór flugvél Flugmila-
stjórnar henni til aðstoðar og gat
leiðbeint henni til lendingar í Vest-
mannaeyjum, þar sem hún lenti
tæplega hálf þrjú í fyrrinótt og var
þá eldsneyti vélarinnar nálægt því
á þrotum.
Flugmaður vélarinnar, Zeidler
að nafni, kvað í samtali við
Morgunblaðið í gærkveldi loft-
siglingabúnað vélarinnar hafa
bilað skömmu eftir að lagt hefði
verið af stað frá Narssarssuaq,
en þaðan var lagt upp til Reykja-
Flugmaðurinn Ziedler við flugvélina
(Vestmannaeyjum (gær.
víkur kl. 20.10, og áætlaður
flugtími 4 xh klukkustund. Hefði
hann því villst af leið, en hann
var á leið frá Kansas i Banda-
ríkjunum með vélina og ferðinni
heitið til Þýskalands.
í frétt frá Flugmálastjórn seg-
ir að engar staðarákvarðanir
hafi borist frá vélinni og ekkert
talsamband hefði verið við
flugmann vélarinnar mestan
hluta flugsins. DC-8-flugvél á
vesturleið hefði þó náð talsam-
bandi við vélina rétt eftir mið-
nætti og hefði þá flugmaðurinn
hvorki getað gefið upp staðar-
ákvörðun, né áætlaðan komu-
tíma til Reykjavíkur. Hefði þvi
Einshreyfilsflugvélin sem lenti ( hrakningum.
Lgósmynd Sigurgeir.
flugvél Flugmálastjórnar farið
tii móts við vélina og fundið
hana 140 sjómílur suður af Vest-
mannaeyjum, þar sem hún sendi
út neyðarkall.
Ziedler sagðist hafa reynt að
spara eldsneyti eins og kostur
hefði verið með því að fljúga vél-
inni hægt og teldi hann sig hafa
átt eldsneyti til 30—45 mínútna
flugs eftir lendingu i Vest-
mannaeyjum. Hann kvaðst hafa
reynt að leita strandlengjunnar
því hann þekkti nokkuð til henn-
ar, en hann hefði verið mjög feg-
inn að heyra í vél Flugmála-
stjórnar, enda þá enn langt frá
landi.
Ragnheiður Helga Þórarinsdóttir
Ráðinn safn-
*
vörður Ar-
bæjarsafns
Á FUNDI borgarráds í gær
var Ragnheiður Helga Þórar-
insdóttir mag. art., safnvörð-
ur við Safnastofnun Austur-
lands, ráðin forstöðumaður
Árbæjarsafns til eins árs í
stað Nönnu Hermannsson.
Ragnheiður hlaut atkvæði
þriggja Sjálfstæðismanna í borg-
arráði, en á móti ráðningu hennar
voru fulltrúar Kvennaframboðs og
Alþýðubandalagsins.
INNLENT
NY
SflNlTHS
TÓMflTSÓSA
Eftír maigra ára vöruþróun,
með bestu íaanleg hmeftií og ótal
bragðprófenír hefiir okkur tekíst að
fiamleíða fyrsta flokks tómatsósu,
sem nú faest á kynningaiveiðí.
Saniias
Veljum íslenskt.