Morgunblaðið - 15.08.1984, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1984
19
Áfengismálanefnd:
Tillögur í 11 liðum sem
miðast að því að draga úr
áfengisneyslu landsmanna
Frá blaAamannafundi þar sem tillögur áfengismálanefndar voru kynntar. Talið frá vinstri: Nfels Árni Lund, Ingimar
Sigurðsson, Páll Sigurðsson, formaður nefndarinnar, Hrafn Pálsson, ritari nefndarinnar, og Ólafur Haukur Árnason.
Áfengismálanefnd skýrði á mánu-
dag frá tillögum sínum um sérstakt
átak í áfengismálum. Nefndin var
skipuð í maí 1983 í framhaldi af
þingsályktunartillögu um stefnu
hins opinbera í áfengismálum. Sam-
kvæmt tillögu alþingis miðast tillög-
ur nefndarinnar að því að draga úr
heildarneyslu áfengis, að stórauka
skipulagðar rannsóknir og fræðslu
um áfengismál, auka stuðning við
áhugamannasamtök um áfengismál,
skilgreina eðlilega meðferð áfeng-
issjúklinga og kveða á um flokkun
meðferðarsjúklinga, og að leggja
ríkisvaldinu, sem verslar með
áfengi, þær skyldur á herðar að
vinna gegn ofneyslu áfengis með
fyrirbyggjandi starfi.
Tillögur nefndarinnar eru í 11
liðum og efnislega á þessa leið:
Til að torvelda fólki aðgang að
áfengi verði opnunartími áfeng-
isverslana styttur, lagt er til að
sterkt áfengi verði aldrei veitt á
veitingastöðum fyrir kl. 18, inn-
flutningi á bjór og bjórsala verði
stöðvuð á Keflavíkurflugvelli,
enda brot á lögum.
Viðurlög gegn ólöglegri áfeng-
issölu eins og t.d. leynivínsölu
verði stórhert og verði einnig mun
strangari um sölu til ófullveðja
fólks.
Verðlag áfengis verði endur-
skoðað og það hækki í samræmi
við verðlagsþróun, en það hefur
ekki verið undanfarinn áratug. Til
að beina neyslu að veiku áfengi er
lagt til að á næstu tveimur árum
hækki sterkt áfengi helmingi
meira en almennt verðlag. Sér-
stakur áfengisskattur verði lagður
á vínvitingahús til að draga úr
neyslu sterks áfengis.
Bannaður verði innflutningur á
efnum og tækjum sem bersýnilega
eru ætluð til öl-og víngerðar.
Umboðsmannakerfið verði lagt
niður og þær fjárhæðir sem um-
boðsmenn fá nú renni í gæsluvist-
arsjóð og stæði þannig undir
stofnkostnaði og rekstri stofnana
fyrir áfengissjúka.
Fræðsla um áfengi og önnur
vímuefni verði aukin og ráðinn
verði sérstakur fræðslufulltrúi til
þess að skipuleggja og fylgja eftir
fræðslustarfi í skólum. Einnig
verði komið á mun meiri fræðslu
fyrir ökumenn og þá sem hyggjast
endurheimta ökuskírteini sín.
Verð á óáfengum drykkjum á
veitingastöðum verði lækkað, en
Norrænt lög-
fræðingaþing
hefst
í Osló í dag
í DAG hefst í Ósló norrænt lögfræð-
ingaþing, en það hefur verið haldið
þriðja hvert ár síðan 1872. Á milli
1.400 og 1.500 þátttakendur eru á
þinginu að þessu sinni og eru þar af
um 40—50 Islendingar.
Þingið stendur í þrjá daga og
verða 19 málefni rædd og verða
tvö framsöeuerindi um flest
þeirra. Tveir Islendingar halda er-
indi á þinginu, Garðar Gíslason,
borgardómari, fjallar um sifja-
réttarvandamál sem risa við
tæknifrjóvgun og Gunnar G.
Schram, prófessor, fjallar um haf-
rétt og Norðurlönd. Þór Vil-
hjálmsson, forseti hæstaréttar,
tekur þátt í pallborðsumræðum
um réttarkerfið og fjölmiðla.
Eins og áður segir verða 19 mál-
efni rædd og má þar meðal ann-
arra nefna eiturlyfjabrot, undan-
skot í skattamálum og skaðabætur
vegna mengunar frá ökutækjum.
Formaður íslandsdeildar nor-
rænu lögfræðingamótanna er dr.
Ármann Snævarr, hæstaréttar-
dómari.
nú getur það jafnvel verið hærra
en verð á áfengi. Vínveitingaleyfi
dansstaða verði jafnframt háð því
aö handhafar þess haldi áfengis-
lausa dansleiki samkvæmt nánari
reglum.
Viðurlög við ölvunarakstri verði
stórhert og komi til ökuleyfissv-
ipting við fyrsta brot í eitt ár. Við
ítrekuð brot komi til skilyrðislaust
varðhald, sekt og ævilöng ökuleyf-
issvipting.
Endurskoðaðar verði reglur sem
gilda um tollfrjálsan innflutning
áfengis hjá farmönnum og fluglið-
um.
Viðvörunarskilti verði sett upp í
áfengisverslunum og veitingahús-
um þar sem minnt er á lög um
ölvunarakstur og hversu lengi vín-
andi er í blóðinu sé hans neytt.
Einnig verði minnt á viðurlög við
útvegun áfengis til ófullveðja.
Nánar verði kveðið á um bann
við áfengisauglýsingum og hvern-
ig þeim skuli framfylgt. Verði þá
fyrirbyggt að farið sé fram hjá því
banni í búningi “óbeinna auglýs-
inga„.
Tillögur nefndarinnar eru í
fullu samræmi við núgildandi lög
og var því ekki fjallað um leyfi á
sterkum bjór. Allir nefndarmenn
voru sammála um að þessar tillög-
ur næðu þeim markmiðum sem
nefndinni voru sett í upphafi.
Finlux tilboð!
Nú er að hrökkva eða stökkva.
Hágæða tækí á otrulegu verði.
Ein mest seldu sjónvarpstæki á íslandi.
Tilboð gildir meðan birgðir endast.
Örfá tæki eftir...
Svo nú er að hrökkva eða stökkva.
" LAGMULA 7.
REYKJAVÍK - SÍMI 685333.
SJÓNVARPSBOMN