Morgunblaðið - 15.08.1984, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 15.08.1984, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1984 PfaWgltStfllklfrifr Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoöarritstjóri Fulitrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösia: Skeifunni 19, simi 83033. Áskrift- argjald 275 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 25 kr. eintakiö. Staða ríkissjóðs David Hume Greiösluafkoma ríkissjóðs er betri fyrri helming þessa árs en á sama tíma í fyrra og nemur batinn um 941 milljón króna. Miðað við stöð- una strax á fyrstu mánuðum ársins þegar þing og stjórnar- flokkar þrefuðu um það vikum saman hvernig jafna bæri hallann á nýsamþykktum fjár- lögum ársins 1984 og gripu síðan til þess ráðs að gera það að mestu með því að þyngja skuidabyrðina í útlöndum kemur það þægilega á óvart að þrátt fyrir allt hafi greiðslu- afkoma rikissjóðs batnað. Hún var neikvæð um 322 milljónir króna í júnílok. Rekstarhall- inn nam 2,4% af gjöldum A-hluta ríkissjóðs fyrri helm- ing ársins og hefur hlutfallið aðeins einu sinni verið hag- stæðara frá árinu 1977 sam- kvæmt því sem lýst er í frétta- tilkynningu fjármálaráðu- neytisins. Albert Guðmundsson, fjár- málaráðherra, lýsir ánægju sinni yfir þessum tölum í Morgunblaðinu á sunnudag og segir að útkoman sýni að að- hald í öllum útgjöldum hafi verið „mjög strangt" og hann bætir við: „... og mér sýnist sem okkur ætli að takast að spara þó nokkuð bæði í út- gjöldum og launaliðum." Að jafnaði er tekjuöflun ríkis- sjóðs meiri á síðari hluta árs- ins en fyrri hlutanum þannig að standist það sem fjármála- ráðherra segir að tölurnar nú megi einkum rekja til aðhalds- aðgerða gæti staða ríkissjóðs um áramótin hugsanlega orðið enn betri. Sjálfur fjármála- ráðherra hefur þó í öðru sam- hengi lagt áherslu á að reikn- inga og stöðu beri að skoða við ársuppgjör en ekki á miðju reikningstímabili. Ýmsar blik- ur eru á lofti þegar litið er fram að áramótum með hag ríkisins að leiðarljósi og ber þar hæst kröfur starfsmanna ríkisins um stórhækkuð laun. Áður en Albert Guðmunds- son kynnti fyrrgreindar tölur opinberlega kallaði hann full- trúa stjórnarandstöðunnar á sinn fund og lagði dæmið fyrir þá. Morgunblaðið leitaði álits Ragnars Arnalds, sem var fjármálaráðherra á verðbólgu- árunum miklu 1980 og 1983 og Iét enda ná saman með því að hagnast á verðþenslu, hvers kyns spákaupmennsku og miklum innflutningi. Ragnar benti á að afkoma ríkissjóðs í ár bæri þess glögg merki að þeir þættir sem ríkissjóður hefur af mestar tekjur, sölu- skattur og tollar, hefðu hækk- að meira en tvöfalt meira í ár en hæsti útgjaldaliðurinn, launin. Undan því verður hvorki vikist af fjármálaráðherra né flokki hans, Sjálfstæðis- flokknum, að hið sama hefur komið ríkissjóði til bjargar nú og í ráðherratíð Ragnars Arn- alds, innflutningur sem stafar af of mikilli þenslu og byggist á því að eytt er umfram efni með tilstyrk erlendra banka- stjóra. Það hefur verið eitt af helstu stefnumálum Sjálf- stæðisflokksins að draga úr þessari þenslu. Heppilegast hefði verið að gera það þegar slegið var á verðbólguna eða í kjölfar kjarasamninganna sem gerðir voru í febrúar síð- astliðnum, hvorugt tækifærið var þó notað. Með aðgerðum ríkisstjórnarinnar í efna- hagsmálum 30. júlí síðastliö- inn var stigið róttækt skref með ákvörðuninni í peninga- málum. Ekkert sambærilegt skref hefur verið stigið í ríkis- fjármálum. Þar er enn í meg- inatriðum treyst á hið sama og i tíð Ragnars Arnalds að unnt sé að fleyta sér áfram á þenslu og miklum innflutningi. Söluskattur á gjafabækur Við það að Tollpóststofan flutti í nýtt húsnæði var hafist handa við að innheimta söluskatt á bækur sem metnar eru yfir 250 krónur að verð- mæti og einstaklingar kaupa eða fá sendar að gjöf frá út- löndum. Af upphæðinni má ráða að af öllum innbundnum bókum sem berast með þess- um hætti til landsins verði nú heimtur skattur í ríkissjóð. Þessi skattheimta sem sýn- ist í framkvæmd einkum byggjast á húsnæðisaðstöðu tollayfirvalda kemur á óvart og vekur spurningar um fleira en það, hvort skattheimtu skuli framkvæma eftir þvf hvort opinberir starfsmenn hafa nægilegt húsrými eða ekki. í samskiptum lýðfrjálsra menningarríkja er það megin- regla að leggja sem minnstar hömlur á miðlun lista-, vís- inda- og ritverka. Löngum hef- ur það verið aðal íslendinga að hér hafa búið fróðleiksfúsir og framtakssamir einstaklingar sem fylgst hafa náið með því sem gerist á áhugasviði þeirra um víða veröld og best hafa getað gert það með því að afla sér bóka. Það er til vansæmd- ar að leggja söluskatt á slíka þekkingaröflun einstaklinga. — eftir Þorstein Gylfason í dag hefst í Reykjavík alþjóðlegt þing fræðimanna um heimspeki Davids Hume. Af því tilefni fór Morgunblaðið þess á leit við Þor- stein Gylfason að hann ritaði um Hume í blaðið. I David Hume fæddist í Nine- wells á Skotlandi 26ta apríl 1711 og lézt i Edínborg 25ta ágúst 1776. Hann verður að telja í hópi mestu og beztu hugsuða á Vestur- löndum frá fyrstu tíð. Áhrif hans hafa verið eftir því: Isaiah Berlin, sem er mikilhæfur fræðimaður um hugmyndasögu á okkar dög- um, segir að enginn maður hafi haft dýpri áhrif í sögu heimspek- innar, né valdið meira raski, heldur en Hume. Á vettvangi hreinnar heimspeki hafa þessi áhrif að líkindum aldrei verið meiri, til góðs eða ills, en á allra- síðustu áratugum. Þar er einkum að verki höfuðrit Humes: Ritgerð um mannseðlið (A Treatise of Human Nature) í þremur bindum sem komu út á árunum 1739 og 1740. Hún vakti nógu litla athygli til þess að höfundurinn taldi hana andvana fædda, og vildi jafnvel ekki við hana kannast með köflum. Hún var góð fyrir því. Ritgerðina samdi Hume í einni striklotu á miðjum þrítugsaldri: að þessu leyti svipar honum meira til Mozarts eða Schuberts en nokkurs heimspekings. Að vísu lifði hann lengi eftir þetta afrek. Um ævina sem eftir var sinnti hann ekki heimspekinni einni, heldur gegndi hann ýmsum embættum; síðast var hann bóka- vörður í Edínborg. Hann lagði stund á sagnfræði og samdi fræga Englandssögu í sex bind- um. Hann skrifaði Hka ritgerðir um alla heima og geima. Með tímanum tók hann að skrifa af fágætri snilli, svo að við Gibbon og Voltaire eina er að jafna af stílsnillingum átjándu aldar. Til marks um handbragðið má hafa niðurlagið í kafla hans um kraftaverk i ritinu Rannsókn i mannlegum skilningi (An Enquiry Concerning Human Vnderstand- iog): Svo að i endanum er okkur óhætt að álykta, að kristinn dómar hafi ekki einasta orðið til f öndverðu fyrir kraftaverk, held- ur geti enginn maður, jafnvel allt til þessa dags, játazt honum nema fyrir kraftaverk. Skynsemin ein er þess ekki umkomin að leiða sanngildi hans í ljós; og hver sá er játar kristna kenningu af trú, verður þar með vitni að linnulausu kraftaverki f sjálfum sér sem umturnar allri reglu heillar hugsunar, og Ijær honum styrk til að kyngja því sem brýtur þverast í bág við háttu manna og reynslu. II Lesandann grunar væntanlega að þarna haldi trúlaus maður á penna, þó svo að ein hindin á sé sú að höfundurinn getur léttilega borið hönd fyrir höfuð sér í því efni. Sú er raunar ein sérstaða Humes í hugmyndasögunni að hann má heita fyrsti trúleysing- inn í hópi heimspekinga á vestur- löndum. Þessari hlið á Hume eiga íslenzkir lesendur hægt með að kynnast af einni bóka hans: Sam- ræður um trúarbrögðin heitir hún i islenzkri þýðingu Gunnars Ragn- arssonar skólastjóra i Bolungar- vík, og er eitt af Lærdómsritum Bókmenntafélagsins. Efasemdir Humes í trúmálum hafa ekki kostað hann litið strið, því að hann var alinn og upp- fræddur í strangkirkjulegu sam- félagi, líkustu þvi sem þeir Jón biskup Vidalín og Hallgrimur Pétursson hrærðust í á lslandi. Jón Vidalín þýddi raunar á is- lenzku eitt af þeim ritum sem mestu réðu um hreintrú Skota: Guðrækilegar Bæner og Skyllda Mannsens við Guð, Sjaalfan sig og Naaungann. Þessa bók las Hume i æsku, og fannst hann vera sekur um hverja hroðalega syndina af annarri sem útmáluð var á bók- inni. Þegar bækur Humes sjálfs eru lesnar i ljósi slíkra bóka og þessara tíma, verður freistandi að segja um þær það sem Steph- an G. Stephansson kveður um vantrúna: Hún kom eins og geisli í grafarhúm svart, og glóandi birtuna lagði yfir allt. Trúleysi eða guðleysi er næsta almennt á okkar dögum, þó að mest beri á því meðal kirkjunnar manna. Margar aðrar hugsjónir og kenningar Humes eru orðnar almennar líka. Satt að segja eru sumar þeirra alltof almennar. En gleymum því f bili. Höfuðkenn- ingar Humes má segja að séu tvær. Köllum aðra þeirra verald- arbyggju og raunhyggju hina. Um þær tvær vildi ég nú reyna að stikla á stóru. III öll viðtekin heimspeki Vestur- landa, fram á og fram yfir daga Humes, sem og kristin trú, kveða á um fullkomna sérstöðu manns- ins í náttúrunni: heimspekin í krafti mannlegrar skynsemi og siðferðis, og trúin i krafti guðlegs uppruna okkar allra. Nú er krist- indómurinn er ekki frægastur fyrir að vilja skilja hlutina. En sú er köllun heimspekinnar, og frá hennar sjónarmiði vildi það fylgja þessari sérstöðu að mann- eskjan verði ekki skilin neinum venjulegum skilningi, eins og kannski þeim sem við leitum eftir á jarðskálfta, pest i kúm eða afla- bresti. Maðurinn — með hugsun sína að vopni og siðferði að verju — virðist ekki verða skilinn nein- um veraldlegum eða náttúrlegum skilningi. Tökum dæmi af óbrotinni vitn- eskju sem menn hafa aflað sér af skynsemi sinni: fimm sinnum sjö eru þrjátiu og fimm. Þetta eru, höldum við, óumdeilanleg sann- indi. Og öll sannindi eru um eitthvað: það eru engin sannindi til sem eru ekki sönn um neitt. Dæmið sem við tókum er af sann- indum um tölur. En fimm og sjö og þrjátfu og fimm eru ekki ver- aldlegir eða náttúrlegir hlutir, sem stjarnfræðingar gætu reynt að sjá í sjónaukum sínum eða fornleifafræðingar að grafa úr jörð. Þessar tölur og allar aðrar tölur virðast vera andlegir hlutir fremur en veraldlegir, yfirnáttúr- legir hlutir fremur en náttúrleg- ir. Og mannlegt siðferði virðist vera andlegt eða yfirnáttúrlegt með áþekkum hætti, og það meira að segja alveg án tillits til trú- arskoðana eins og þeirrar að Guð hafi skapað manninn og sett hon- um lög. Það breytir til dæmis engu um þann heiðarleika sem við ætlumst til af náunganum að fyllilega heiðarlegt fólk hafi aldr- ei verið til. Það er engin afsökun á þjófnaði að þjófar steli. Ekki fremur en það breytir neinu um margföldun að fimm og sjö hafi ekki fundizt enn. Fólk i að vera Svo að á endanum er okkur óhætt að álykta, að kristinn dómur hafi ekki einasta orðið til í öndverðu fyrir krafta- verk, heldur geti enginn maður, jafnvel allt til þessa dags, játazt hon- um nema fyrir krafta- verk. Skynsemin ein er þess ekki umkomin að leiða sanngildi hans í Ijós; og hver sá, er játar kristna kenningu af trú, verður þar með vitni að linnulausu kraftaverki í sjálfum sér sem um- turnar allri reglu heillar hugsunar, og Ijær hon- um styrk til að kyngja því sem brýtur þverast í bág við háttu manna og reynslu. heiðarlegt, segjum við, og fimm sinnum sjö bljóta að vera þrjátíu og fimm. Það breytir engu hvern- ig veröldin hefur gengið fyrir sig til þessa. Állt virðist þetta vera með af- brigðum skynsamlega mælt, enda mestmegnis eftir Platón en ekki mig. En hér er það sem Hume kemur til sögunnar. Samkvæmt veraldarhyggju hans er engin þörf andlegrar spektar eða ann- arra yfirnáttúrlegra hluta til að skýra til fulls eðli og uppruna jafnt mannlegrar hugsunar og þekkingar sem mannlegs siðferð- is. Og það sem meira er: í Ritgerð um mannseðlið reyndi hann að sýna fram á það í nokkrum smá- atriðum hverjar hinar veraldlegu eða náttúrlegu skýringar mundu verða. Nú ber enn vel í veiði fyrir íslenzka lesendur. Páll S. Árdal, prófessor í Kingston í Ontario, hefur samið bókina Siðferði og mannlegt eðli (Hið íslenzka bók- menntafélag, 1982) og fjallar þar rækilega um ýmis höfuðatriði í siðfræði Humes og þeirri sálar- fræði sem siðfræðin rís á. IV Eitt höfuðtæki Humes til ver- aldlegrar greiningar og réttlæt- ingar á mannlegu siðferði er hugmyndin um mannasetningar; þessa hugmynd hefur hann ugg- laust sótt að hluta til í kenningar ýmissa forngrískra fræðara. Hann reynir, svo að dæmi sé tek- ið, að leiða í Ijós hvernig réttlætishugmyndir hafi orðið til — og hvers vegna þær eigi að vera til — með almennu sam- komulagi manna, án þess að nokkrar hugmyndir um himneskt réttlæti komi þar við sögu. Jafn- framt þverneitaði hann að taka alvarlega hugmynd þeirra Hobb- es og Lockes á undan honum, og vinar síns Rousseaus í samtíman- um, um sáttmila samfélagsins sem þeir kölluðu svo; enda vissi hann ekki til þess fremur en við að slíkur sáttmáli hefði nokkru sinni verið gerður. Samkomulagið eða mannasetningarnar sem Hume vildi lýsa voru skipulag án skipu- leggjara. Hér er reyndar á ferð- inni náskyld hugmynd þeirri sem er uppistaðan í Samræðum um trú- arbrögðin: alla skipan heimsins,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.