Morgunblaðið - 15.08.1984, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1984
39
fclk í
fréttum
Liza sneri við
á hengifluginu
Liza Minelli hefur fengið að reyna það, að sitt er hvað, gæfa eða gjörrileiki.
+ Eins og sagt hefur verið frá er
kvikmyndaleikkonan Liza Minelli
til meðferðar á Betty Ford-stofnun-
inni í Kaliforníu en hún var orðin
djúpt sokkin í áfengi og eiturlyf,
einkum kókaín, sem var á góðri leið
með að gera út af við hana. Hún
vildi ekki að eins færi fyrir sér og
móður sinni, kvikmyndaleikkon-
unni Judy Garland, sem varð eitur-
lyfjunum að bráð, og ákvað því að
leita sér hjálpar.
Liza, sem er 38 ára gömul, hef-
ur lengi liðið fyrir að vera barn-
laus og þegar systir hennar,
Lorna Luft, átti barn í vor er leið
fékk það svo á hana, að hún fékk
næstum taugaáfall, grét dögum
saman og staglaðist á þvi, að hún
yrði aldrei móðir.
Til að bæta sér upp barnleysið
reyndi Liza að gleyma ser í
glaumnum og gleðinni og drykk-
juveislurnar stóðu alltaf nætur-
langt. í júní síðastliðnum var
maðurinn hennar, Mark Gero,
búinn að fá sig fullsaddan á þess-
um lifnaði og fór frá henni.
nLiza var vön að drekka nokkur
glös strax og veislugleðin byrjaði
og þegar hún var í þann veginn að
líða útaf hressti hún sig á kóka-
íni. Þetta gat ekki endað nema
með ósköpum," er haft eftir ein-
um kunningja hennar.
{ síðasta mánuði hringdi Liza i
fyrrverandi mann sinn, Jack
Haley, og sagði honum, að hún
væri að hrapa fram af hengiflug-
inu en vissi þó ekkert hvað hún
ætti að gera. Hann sagði henni,
að ef hún vildi bjarga lífi sinu
yrði hún að leita sér hjálpar
strax. Liza féllst á það og daginn
eftir hafði hún samband við föður
sinn, Vincente Minelli, og fór síð-
an í fylgd systur sinnar, Lornu
Luft, á Betty Ford-stofnunina.
Brandarakarl reynir
við nýtt heimsmet
+ Það er víðar en á Ólympíuleikun-
um, sem menn reyna við heimsmet-
in. Magnus Jensen, 64 ára gamall
danskur öryrki, ætlar nú í septem-
ber að reyna að setja heimsmet í
því að segja brandara með því að
reyta þá af sér f 30 klukkustundir
og 30 mínútur samfleytt. Magnus
befur verið heimsmeistari tvisvar
áður en núverandi met á Svíi, 28
klsL og 4 mínútur.
„Ég ætla að segja þrjá brand-
ara á mínútu, 180 á klukkustund
eða um 6.000 alls. Svíinn sagði
aðeins 2.000 skrýtlur, þegar hann
sló metið mitt, en ég kemst yfir
miklu fleiri. Þó má ekki lesa
neina upp, aðeins notast við lista
með kenniorðum. Ég hef safnað
meira en hálfri milljón skrýtlna
en auðvitað eru þær ekki allar
jafn góðar,“ segir Magnus Han-
sen, sem er ekkert hræddur við að
verða syfjaður undir keppninni.
„Þegar ég reyndi fyrst við
heimsmetið og sló það kom mér
ekki blundur á brá í fimm sól-
arhringa. Síðustu tvær næturnar
þuldi ég brandarana fyrir munni
mér, þá þriðju sagði ég þá, fjórðu
nóttina gat ég ekki sofið af gleði
og þá fimmtu hafði ég gesti."
COSPER
— Hafið þið heyrt brandarann, íbúðin er í
næsta stigagangi.
Brandarakarlinn Magnus Jensen.
Einn gegn öllum
AGAINST ALL ODDS er nýjasta kvikmynd leikstjórans Taylors
Hackfords, sem einnig leikstýrði An Officer and a Gentleman. Hún
er gjörólik þeirri fyrri en ber greinilega merki hins fjölhæfa leik-
stjóra.
Aóalhlutverk:
Rachel Ward, Jeff Bridges, James Woods og Richard Widmark.
Sýnd i A-sal kl. 5, 7.30 og 10. DOLBY
Sýnd í B-sal kl. 11. STEREO
Bónnuö innan 14 ára. Hækkaó verö.
B-salur
Maður, kona og barn
Ummæli gagnrýnenda:
„Hún snertir mann, en er laus við alla væmni“
(Publishers weekly)
Myndin er aldeilis frábær“
(British Bookseller)
Sýnd kl. 5 og 9.
Educating Rita
Sýnd kl. 7. 4 sýningarmánuður.