Morgunblaðið - 15.08.1984, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1984
mmmn
1J3.
» Ej er oÁ leitcx a$> óbygg&r'i eyju
aciisgengiS n»e.t<-ir1iT."
Eigum við ekki að slökkva ijósið,
vina?
Með
morgunkaffinu
i LiiJJíllJ
Ég er nú búinn að bíða svo lengi
eftir þér, að þú ættir að geta beðið
eftir mér meðan ég lýk við þessa
leynilögreglusögti ?
HÖGNI HREKKVÍSI
„ HVEN/ER KO/VA PÁP\ plMN HINGAP ? 'r
Lögreglumenn borgarinnar eru ötulir við að stöðva menn fyrir of hraðan akstur þó að þeir þverbrjóti öll lög sjálfir,
segir bréfritari.
Virðingarleysi lögreglu-
manna við landsins lög
Tryggvi Þórisson skrifar:
Kæri Velvakandi:
Hvernig er það eiginlega, er það
ekki í verkahring lögreglunnar að
halda uppi lögum og reglu? Ég hef
alltaf haldið að lögreglumenn
ættu að gæta velsæmis í umferð-
inni og sýna landsmönnum í hví-
vetna gott fordæmi.
Leyfilegur hámarksökuhraði
innan- og utanbæjar er í gildi sem
og annars staðar í heiminum og
vaskir starfsmenn lögreglunnar
fylgjast ötullega með því að sett-
um reglum sé framfylgt. Öðruvísi
er heldur ekki hægt að halda um-
ferðarmenningunni í sæmilegu
lagi.
Því kemur það fólki ákaflega
spánskt fyrir sjónir, þegar að lög-
Peningunum
betur varið
til vega-
og gatnamála
Árni Helgason skrifar:
Kæri Velvakandi!
Samkvæmt upplýsingum Áfeng-
is- og tóbaksverslunar ríkisins
seldi þessi stofnun áfengi fyrir níu
hundruð áttatíu og fimm milljónir
króna árið sem leið. Einnig
tóbaksvörur fyrir sjö hundruð sjö-
tíu og sjö milljónir, eða alls fyrir
einn milljarð sjö hundruð sextíu
og þrjár milljónir króna.
Fyrir þessar fjárhæðir mætti
leggja varanlegt slitlag á veginn
kringum landið og betur þó, miðað
við að hver kílómetri bundins
slitlags kosti eina milljón króna.
Þegar maður hugleiðir það tjón
á sál og líkama sem áfengi og
tóbak valda, og eins þá nauðsyn
sem er að fá góða vegi um land
allt, væri gaman ef fólkið í land-
inu tæki sig saman og verði því fé,
sem fer fyrir þessa vímugjafa, til
að byggja varanlega vegi. Hugsa
sér, eyðsla eins árs eða framtíðar-
brautir. Það eru ólíkir vegir.
Er ekki kominn tími til að fara
að athuga sinn gang?
reglumenn á Volvo-„kerrum“,
þeysa fram úr ökumönnum á
hraðbrautum á ökuhraða, sem er
langt fyrir ofan leyfilegt hámark,
og eru ekki einu sinni með neyð-
arsírenuna í gangi.
Ég ek sjálfur ætíð á settum
hraða og verð því ósjaldan fyrir
því að sjá í bakspeglinum óþol-
inmóða lögreglumenn, sem reyna
allt hvað þeir geta til að komast
fram úr. Greinilegt er að þeir eru
sjaldnast að flýta sér enda hef ég
margkannað það með því að fylgj-
ast í humátt með ferðum þeirra og
eru þeir oftast í skyldurúntum um
hin ýmsu hverfi borgarinnar.
Varla er hægt að ætlast til að
menn fylgi settum reglum í um-
ferðinni ef að þeir, sem sjá eiga
um að þeim sé viðhaldið, brjóta
þær í hvívetna á bak aftur.
Að mínu mati er það lágmarkið,
að þessir ökuglöðu lögreglumenn
þykist alla vega vera á hraðferð og
hafi kveikt á neyðarsírenunum,
svo að almenningur átti sig ekki
svo glöggt á virðingarleysi þeirra
við landsins lög.
Að mati bréfritara væri peningunum sem eytt er í tóbak og áfengi betur varið
í annað.