Morgunblaðið - 15.08.1984, Page 48
OPIÐ ALLA DAGA — ÖLL KVÖLD
AUSTURSTRÆTI 22
INNSTRÆTI, SIMI 11340
OPIÐALLA DAGA FRÁ
KL. 11.45-23.30
AUSTURSTRÆTI22
INNSTRÆtl, SlMI 11633
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Leitinni að skoska ferðamanninum Nick Mason, sem týndist í Skógá
á sunnudaginn, var haldið áfram í allan gærdag án árangurs. Svæðið
er erfitt til leitar vegna djúpra gilja og margra fossa. Leitinni verður
haldið áfram í dag, strax í birtingu. Unnusta Masons, Lynn Gibson,
sem komst lífs af þegar straumurinn hreif þau með sér, hélt tií
Englands í gær, þar sem hún býr. Hún er kennari í Hampshire en
hann var rafmagnsverkfræðingur. Hún óskaði eftir þvi við breska
Mbl./Árni Sæberg.
sendiráðið í Reykjavík við brottförina, að innilegu þakklæti sínu yrði
komið á framfæri við þá, er veittu henni aðstoð, og faðir Masons
hefur sömuleiðis beðið fyrir þakkarkveðjur fyrir hönd fjölskyldunnar
til þeirra, sem leitað hafa að líki sonar hans. Myndin var tekin af
björgunarmönnum við leit neðan við slysstaðinn síðdegis í gær.
Sjá „Nauónynlejft að merkja helstu dauðagildrurnar" i bls. 26.
ísafjarðartogararnir eiga eftir eina til þrjár veiðiferðir:
Hrun atvinnulífsins
og fólksflótti blasir við
— segir Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri
Ölvun við akstur
í Kópavogi í ár;
Jafnmargir
teknir og allt
árið í fyrra
Bjórkrár orsökin?
ÞAÐ sem af er þessu ári hefur Kópa-
vogslögreglan tekið einum fleiri
ökumenn grunaða um ölvun við
akstur en allt árið í fyrra, eða 175
ökumenn samanborið við 174 árið
1983.
Valdimar Jónsson, aðstoðaryf-
irlögregluþjónn í Kópavogslög-
reglunni, kvað það sína skoðun að
skýringa á þessari miklu aukningu
mætti einkum rekja til tvenns. í
fyrsta lagi hefði verið um herta
löggæslu að ræða í ár og í öðru
lagi teldi hann að tilkoma
svonefndra bjórkráa, hefði haft
þarna áhrif á til hins verra, sér
virtist af skýrslum að ærið oft
bæru menn því við, að þeir hefðu
verið að koma af bjórkrám, er þeir
voru teknir.
Rúmlega 600 manns voru teknir
fyrir meinta ölvun við akstur
fyrstu sjö mánuði ársins í Reykja-
vík sem er álíka og var á síðasta
ári, samkvæmt upplýsingum
óskars J. ólasonar, yfirlögreglu-
þjóns í Reykjavík. Hins vegar voru
15 aðilar, sem aðild áttu að um-
ferðaróhappi í júlímánuði, grun-
aðir um ölvun við akstur, sem er
meira en helmingi hærra en var í
júlímánuði í fyrra, en þá voru sjö
teknir. Samsvarandi tölur fyrir
fyrstu sjö mánuði ársins í ár og í
fyrra eru 73 í ár á móti 78 sem
áttu aðild að umferðaróhappi í
fyrra.
í þeim tilfellum, sem menn eiga
aðild að umferðaróhöppum og
slysum undir áhrifum áfengis,
eiga tryggingafélögin endurkröfu-
rétt á viðkomandi ökumann, sem
getur þannig átt yfir höfði sér að
þurfa að greiða háar fjárkröfur.
Sagði óskar að menn virtust eng-
an veginn gera sér grein fyrir
þeim hrikalegu afleiðingum sem
ölvunarakstur gæti haft, fyrir þá
sjálfa og þeirra nánustu.
„Ef togararnir verða bundnir
í höfn, eins og útlit er fyrir á
næstunni, þá mun allt atvinnulíf
hrynja hér, sem þýðir brottflutn-
ing fólks af svæðinu því hér bygg-
ist allt upp á fiski,“ sagði Harald-
ur L Haraldsson, bæjarstjóri á I
ísafirði, í samtali við Morgunblað-
ið í gær er hann var spurður um
hugsanlegar afleiðingar þess fyrir I
atvinnulíf staðarins ef togarar I
þeirra ísfírðinga þyrftu að stöðv-
ast vegna þess að þorskveiðikvóti
þeirra er að klárast.
Að sögn hans munu togarar
þeirra ísfirðinga eiga mismikið
eftir af þorskveiðikvótanum,
mest 600 lestir, en minnst 200
lestir. Togararnir eiga því eftir
eina til þrjár veiðiferðir, ef afla-
brögð verða eins góð og undan-
farið.
„Fram að þessu hefur verið
mikil eftirspurn eftir vinnuafli á
ísafirði og margir eru aðeins
vegna mikillar vinnu, þeir verða
með þeim fyrstu sem fara. Ef út-
gerðin stöðvast munu þjónustu-
fyrirtækin gera það einnig, at-
vinnulífið er allt samtvinnað.
Þetta þýðir það að þessi fyrirtæki
geta ekki borgað sín gjöld, hvorki
til hins opinbera eða til sveitarfé-
lagsins og annarra. Eftirspurn
þessara aðila hlýtur því að
minnka."
Að sögn Haraldar L. Haralds-
sonar hefur rækjuveiði og
-vinnsla komið að nokkru leyti i
stað minnkandi þorskveiði og
hefur mikil drift verið í vinnsl-
unni, en það horfir ekki vel þar
heldur. „Miðað við það ástand
sem er í dag og yfirlýsingar er
útlitið að verða ansi dökkt."
Aðspurður sagði Haraldur L.
Haraldsson að ástandið i ná-
grannabyggðunum væri svipað.
Eftirköst flugslyssins á Eiríksjökli:
„Okkur munar ekkert um
að skila flakinu á jökulinn“
— segir Þorsteinn í Húsafelli — eigandi vélar-
innar neitar að borga útlagðan björgunarkostnað
SVO GÆTI farið að eigandi
bresku flugvélarinnar, sem brot-
lenti á Eiríksjökli 21. júní sl., þurfí
að sækja hana á jökulinn — þótt
hún sé nú í öruggri geymslu í
flugskýli í Húsafelli í Borgarfirði.
Fimm ungir Borgfirðingar
undir forystu Þorsteins Krist-
leifssonar i Húsafelli sóttu flakið
á jökulinn skömmu eftir slysið og
voru í um það bil viku að björgun-
inni. Nú hefur flugmaður vélar-
innar og eigandi, Michael Dukes,
boðað komu sína til landsins til
að taka úr henni ýms tæki.
Fimmmenningarnir borgfirsku
segjast fúsir til að láta tækin af
hendi en vilja fá borgað fyrir
björgun flaksins. Um það er Duk-
es ekki til viðræðu, að sögn Þor-
steins Kristleifssonar, og hafa
björgunarmennirnir látið að því
liggja, að þeir geti allt eins skilað
flakinu aftur á sinn stað.
„Okkur munar ekkert um að
fara með flakið aftur á jökulinn
jafnvel þótt það sé dálítið á fót-
inn,“ sagði Þorsteinn f samtali
við blaðamann Mbl. í gær. „Þeir
vilja fá draslið og við viljum
gjarnan afhenda það en við vilj-
um Iíka fá fyrirhöfnina borgaða
eða að minnsta kosti eitthvað af
henni. Okkur heyrist á þessum
manni, að hann sé ekkert til við-
ræðu um slíkt — hann heimtar
flakið í sínar hendur og segir að
við höfum ekkert leyfi haft til að
hreyfa við því á jöklinum.
Það kann vel að vera en við
töldum þó á sínum tíma ráðlegast
að sækja það sem fyrst — það
hefði orðið miklu erfiðara síðar f
sumar. Við vorum fyrst og fremst
að hugsa um að bjarga verðmæt-
um og vorum ekkert að tala um
nein björgunarlaun þá. Beinn
kostnaður, sem við höfðum af
þessu, er nálægt tvö hundruð þús-
undum króna," sagði Þorsteinn.
Hann sagði að þeir félagar
hefðu ekki kannað til fulls hver
réttur þeirra væri í þessu máli en
þó væri ljóst, að þeir ættu kröfu á
að fá greidd vinnulaun. Ef flug-
maðurinn vildi sækja flakið aftur
upp á jökulinn myndi kostnaður
við þá björgun aldrei verða undir
300 þúsundum. „Við erum til i að
semja við hann um að við fáum
flakið og til dæmis mótorinn en
hann fái þau tæki önnur, sem
hann kærir sig um,“ sagði Þor-
steinn. „Flakið er í dag í ná-
kvæmlega sama ástandi og það
var þegar þeir skildu við það á
jöklinum, við lögðum mikla vinnu
f að setja ekki á það eina skrámu
til viðbótar.“
Þorsteinn og félagar hans voru
meðal þeirra tuga manna, sem
tóku þátt f leitinni að Dukes og
félaga hans, Francis Sikora, eftir
að þeir týndust á leið frá Reykja-
vík til Grímseyjar að kvöldi 21.
júní sl. Meðal annars voru þeir á
flugi í vél sinni mestalla þá nótt.