Morgunblaðið - 24.08.1984, Side 8

Morgunblaðið - 24.08.1984, Side 8
48 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1984 Það er tekið tillit til gangandi fólks og bara ekið varlega „Umferðin er partur af umhverfinu“ Hjónin Gunnar og Valdís, verkfræðingur og arkitekt, læróu við tækniháskólann í Darmstadt í Vestur-Þýskalandi. „Ég tók sem valgrein skipulags- fræði í arkitektadeildinni, og hún tók námskeið í umferðar- tækni með már í verkfræöinni." Þau vinna líka gjarna saman að umferðarskipulagi. „Við unnum í Þýskalandi eftir nám, 1973 og 1974, og þá var þar oröin geysi- leg breyting á viöhorfum til um- ferðarskipulags. Þaö var jafnvel verið aö taka úr notkun nýleg og fokdýr umferðarmannvirki til aö koma á vistlegra umhverfi fyrir gangandi fólk.“ „Nei, nei, nei, þetta er allt annað.“ Gunn ar Ingi Ragnarsson og Valdís Bjarnadóttir eru að svara því, hvort verið sé að breyta Þórsgötunni í nokkurs konar göngugötu. „Hún verður öll opin fyrir umferð, ekki einu sinni einstefna, svo að Þórsgötubúar þurfi ekki að aka króka um nágrannagöturnar sem hafa nóga umferð fyrir. Og leyfileg bílastæði verða síst færri en var.“ Þau draga fram uppdrætti og útskýra, hvernig skipulag götunnar muni samt draga úr gegnum- keyrslu og hrööum akstri, og hvernig hún eigi aö veröa vistlegri og öruggari fyrir börn og aðra fót- gangendur. Þetta sé tilraun, og Þórsgatan valin af því aö henni þurfti aö umturna til aö skipta um lagnir. „Svona framkvæmd er auö- vitaö dýr, en þaö munar ekki eins miklu þegar hvort sem er þarf aö kosta upp á nýtt malbik og tilheyr- andi. Hún er byggö mjög þétt, 99 íbúðir í fremur háum húsum og svalalausum. Garöarnir litlir eöa engir og viö noröurhúsin eru þeir alveg í skugga. Svo aö þaö veitir ekki af aö fólk geti veriö eitthvaö úti á sjálfri götunni. Þórsgatan er líka gönguleiö upp á Skólavöröu- holt, svæði meö skólum, barna- heimili, kirkju og sundstaö.“ En ef þetta reynist nú vel, er þaö þá ekki í nýjum hverfum sem hægast er aö koma því viö? Þau samsinna því, hjónin, og benda á aö þaö sé einmitt áþekkt götu- skipulag í Suöurhlíöahverfinu, kringum Fossvogsskóla. Þar sé bara bráöabirgöafrágangur á göt- unum ennþá, sem gefi litla hugm- ynd um fyrirhugaða gerö þeirra. „Þarna veröa ekki sérstakir gang- stígar, nema einn smáspotti, held- ur á aö dempa umferöina á íbúö- argötunum svo aö þær veröi líka aölaöandi fyrir fótgangandi.” Taliö beinist aö bílstjórasál- fræöinni, hvaö þaö sé sem fær þá til aö aka hægt. Gunnar: „Þaö er t.d. aö bílastæöin snúi þvert á götu. Menn aka ekki hratt viö aft- urendann á kyrrstæöum bílum. Og efnisáferðin getur haft mikil áhrif, eins og helluiögn eöa steinlögn. En hellur eru dýrar, og það varö niðurstaöan að malbika meira af Þórsgötunni en viö höföum lagt til í fyrstu útfærslu." Valdís: „Viömiö- unin er aö þaö megi aldrei vera meira en 50 metrar sem maður sér beina og hindrunarlausa fram und- an. Þá kemur eitthvað, beygja, hæðarmunur, tré .. “ Gunnar dregur fram myndir og lesefni frá útlöndum, um vistgötur og umferöarsefun. „Hollendingar voru fyrstir til aö útfæra þetta þannig, aö allir séu jafnréttháir á götunni, bílar á ferö, fólk á gangi og börn aö leik.“ Þau eru spurö hvort eitthvaö slíkt sé innifalið í Þórsgötuskipulaginu. „Þaö er a.m.k. ekkert sem búiö er aö af- greiöa. En hver veit, umferöarlögin eru nú í endurskoöun. En þaö er auövitað ekkert nýtt fyrir islend- inga aö aka þannig. T.d. þegar maöur keyrir yfir gangstétt. Já, eöa segjum á bílastæöi hjá ein- hverjum stórmarkaönum. Þarna keyra menn, en þaö er líka gang- andi fólk á ferli, og þaö er ekkert réttlaust, þaö er tekiö tillit til þess og bara ekiö varlega.” -''WV •OO^STORG Gangstóttir verða breikkaöar á köfium og komið fyrir nokkrum gróðri. Trón gegna m.a. því hlut- verki að sýna ökumönnum greini- lega hvar beinu akbrautarkaflarn- ir enda. Bílastæðin verða hellu- lögð, og mislitar hellur koma í staö málaöra markalína. Akbraut- in hins vegar malbikuð, nema höllin á mótum upphækkuöu kaflanna, þau verða lögð brú- steini (eins og er í göturæsum gömlu hverfanna). Hluti af Þórs- götuskipulaginu Akbrautin mjó og bílastæöin þvert á götu. Skiptist í stutta kafla með bílastæðin á víxl til noröurs og suðurs, svo aö hlykkir veröa á akstursleiðinni. Á mótum götukaflanna, þar sem akbrautin liggur á ská yfir götuna, er hún tekin upp í gangstéttarhæö. Allt þetta á að hjálpast aö að halda niðri umferðarhraöanum, sér- staklega á upphækkuðu köflun- um, þar sem eðlilegast er að gangandi fólk fari yfir götuna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.