Tíminn - 07.09.1965, Qupperneq 14

Tíminn - 07.09.1965, Qupperneq 14
ÞRIÐJUDAGUR 7. september 1965 14 Etísabet Guðmundsdóttir Melum Árneshreppi í dag verður gerð frá Dómkirkj- unni útför Elísabetar Guðmunds dóttur, Melum í Árneshreppi, Strandasýslu. Hún lézt í Landa- SKIPAUTGCRÐ RÍKISINS M.s. Esja fer vestur um land í hringferð 11. þ.m. Vörumóttaka á þriðju dag og miðvikudag til Patreks- fjarðar, Sveinseyrar, Bíldudais Þingeyrar, Flateyrar, Suðui> eyrar, ísafjarðar, Siglufjarðar, Akureyrar, Húsavíkur og Rauf arhafnar. Farseðlar seldir á fimmtudag. Ms. Skjaldbreið fer austur um land 10. þ.m. Vörumóttaka á þriðjudag og miðvikudag til Hornafjarðar, Djúpavogs, Breiðdalsvíkur, Stöðvarfjarðar, Fáskrúðsfjarð- ar, Reyðarfjarðar, Eskifjarðar, Norðfjarðar, Seyðisfjarðar, Mjóafjarðar, Borgarfjarðar, Vopnafjarðar, Bakkafjarðar, Þórshafnar og Kópaskers. Far seðlar seldir á fimmtudag. Kýr til sölu Fjórar kýr til sölu Upplýsingar í síma 92-75-70. kotsspítala 1. sept. s. 1 eftir langa og Þunga sjúkdómslegu Elísabet var fædd í Ófeigsfirði 31. des. 1878, dóttir hins þjóð kunna hákarlaformanns og óðals- bónda í Ófeigsfirði Guðmundar Péturssonar og konu hans, Elísa- betar Þorkelsdóttur. Dvaldist Elísa bet í foreldrahúsum til 19 ára aldurs, er hún giftist Guðmyndi Guðmundssyni, Jónssonar bónda á Melum og hófu þar búskap árið 1897. Elísabet missti mann sinn j 1923. Eignuðust þau tólf mann j vænleg börn, sem öll eru á lífi. Afkomendur þeirra hjóna munu nú vera 70 að tölu. Börn þeirra eru: Guðmundur, bóndi á Melum, Árni, fyrrv. út- gerðarmaður í Súðavík, Elísabet, ekkja Guðmundar Halldórssonar, skipasmíðameistara í Reykjavík, Sigrún, ekkja Ingólfs Ketilssonar, trésmíðameistara í Reykjavík, Þor kell, fyrrv. kaupfélagsstj. og bóndi á Óspakseyri, Ragnheiður, ljósmóð ir í Reykjavík, Sigmundur, fyrrv. bóndi á Melum, Magnús, sjómaður í Reykjavík, Ingólfur, trésmíða- meistari í Reykjavík, Gunnlaugur tollgæzlumaður í Hafnarfirði, Ás- geir trésmiður í Reykjavík og Guðmunda, verzlunarstúlka í Reykjavík. Þau munu öll verða við útför móður sinnar í dag. Er Elísabet missti mann sinn, tók Guðnjuudur, #l|ti wnijpe^eni} ar, þá rúmlega tvíárguf. í®í>bú* inu og annaðist ásatnt ■^ldrt'fSyst* kinum og móður, uppeldi þeirra barna, sem eftir urðu heima. Bjuggu þau mæðgin á Melum til ársins 1942, er Guðmundur kvænt ist Ragnheiði Jónsdóttur frá Broddanesi. Það fór ekki á milli mála, að það var mikill kærleikur og þakklæti, sem hún bar til þeirra hjóna, enda dvaldi hún alla tíð síðan hjá þeim, utan þann tíma, sem hún var í Reykjavík hjá bömum sínum. Það má nærri geta, að það hef- ur verið mikil lífsreynsla fyrir Elísabetu að standa eftir sem BÍLASALINN VIÐ VITATORG SÍMI 12500 AUGLÝSIR Óskum eftir góðum Volvo P 544, árgerð '63—65. Upplýsingar í síma 12-500. ÞAKKARÁVÖRP Eg þakka öllum þeim, er sendu mér gjafir og skeyti á afmælisdaginn 2. september s.l. Gunnar Ólafsson. Móðir okkar. Herdís Jónsdóttir frá Þverhamri, Breiðdal lézt 5. þ. m. á Borgarsjúkrahúsinu. Þórdís Árnadóttlr og Guðmundur Árnason. ekkja með stóran barnahóp í þeirri sveit, sem talin er einna harðbýlust á landi voru, á þeim tíma, sem engrar hjálpar var að vænta utan frá og hver og einn varð að treysta á manndóm sinn. Má segja með sanni, að Elísabet hafi leyst það verkefni vel að hendi, ásamt börnum sínum. Elísabet var meðal kona að vexti, sviphrein og fríð sýnum, afkastakona til allra verka- skap föst og hafði fastmótaðar skoðan ir á mönnum og málefnum, átti létt með að blanda geði við fólk, kunni að gleðjast og gleðja aðra, enda voru allir velkomnir að Mel- um, sem þar fóru um garð. Er fólk ræddi við hana, kom ótvírætt fram hvað hún ann sveit sinni mikið og því fólki scm Þar býr, enda hafði hún miklar áhyggjur út af þeirri fólksfækkun, sem þar er orðin. Mun mörgum sveitung um hennar og öðrum verða hugs að hlýtt til hennar í dag. Þrátt fyrir harða og langa lífsbaráttu og heilsuleysi , síðustu árin, held ég að hún hafi verið hamingjusöm kona og séð ætlunarverki sínu lokið. Þessar fátæklegu línur eiga að vera þakklætisvottur til þín. amma mín, fyrir þann tíma sem þú fóstr aðir mig sem lítið barn. Eg mun ávallt minnast þín sem góðrar konu og bið guð að blessa minn ingu þína. Torfi Þ. Ólafsson. SÝNING í NOREGI stöðuna i björtum, líflegum lit- ljóðum hennar. Það er þó eitt- hvað þögult og óleyst fyrir mynd byggingu hennar, það er erfitt að komast til botns í því línuneti, sem þekur smekklega samsetta lit fleti. Þörfin virðist einnig vera rík hjá myndhöggvurunum að losa sig undan klafa hefðbundins natúr alisma. En hvorki Jóhann Eyfells eða Jón Benediktsson virðast hafa þann nauðsynlega bakhjarl til að leysa þann vanda. Það er erfitt að skilja tilganginn með hraunkökum Eyfells, sem verka alltof sundur lausar og tilviljunarkenndar til þess, að þær veiti veruleg mynd- ræn áhrif. Myndir Jóns Benedikts sonar vantar lifandi myndrænt samhengi, sem jafnvel óhlutbundn ar höggmyndir verða að hafa til þess að geta öðlazt listrænt líf. Hið óþægliega yfirborð myndanna eykur enn á veikleika þeirra, en myndir hans eru bæði deigai og ónákvæmar. Adresseavisen: Jan Zibrandt- sen: Undir eins og komið er inn í íslenzku sýningardeildina, rekur maður augun í höggmyndir Jó- hanns Eyfells, sem gerðar eru úr alúmín, járni og kopar. Þær eru útfærðar á mjög smekklegan og fínan máta, járnrauð efnisáferð er ráð.andi. Þessar sérstæðu forma myndir minna fremur öllu á stcrrknað hraun. í sama sal gefur og að líta á óhlutbundnar myndir eftir Eirík Smith settar breiðum litflötum. til orðnar auðsæilega | undir áhrifum frá franska málar anum Soulages. Guðmunda Andrésdóttir deilir myndum sín- um upp í netverk af beinum blý antsstrikum, hornalínur, sem mynda alls kyns flatarmynd ir. í gegnum þetta net brýzt fram fíngerð litahrynjandi, næstum eins og um teppi væri að ræða. Steinþór Sigurðsson vekur áhuga skoðandans vegna litameðferðar og blæbrigðaríkrar ' og lifandi myndbyggingar, en honum er ó- hætt að skipa á bekk með beztu málurum íslands. Ennfremur gleðst maður yfir hinni glitrandi dýpt í mynd Gunnlaugs Schevings ,,Búðin“. Listamaðurinn leiðir okkur beint inn í islenzka náttúru og raunveruleik. (Frétt frá Félagi íslenzkra my ndlistarmanna.) SKEIÐARÁ unni, sem það stóð á, gaf á að líta. Þar fyrir austan var vatnsflóð tekið að belja sem ekkert vatn átti að vera og í því var talsverður jakaburður. Vatnið streymdi fram í mörg um álum þarna austan öldunn- ar og mér flaug strax í hug, að þetta væri byrjunin á Skeið- arárhlaupi. Ég var því á báðum áttúm, hvort ég ætti að halda áfrám, einkum þar sem stúlkan var með mér, en fannst þó hálf hart að snúa við, ef þetta væri nú alls ekkert hlaup, þegar til kastanna kæmi. Það ^arð því úr, að við héldum a. am, og sagði ég stúlkunni ekkert frá grun mínum, til þess að fara ekki að hræða hana að óþörfu. Ferðin austur yfir gekk vel, þótt ég jiyrfti að gæta mín vel á jökunum. En þegar austur að Skeiðará kom, sá ég, að hlaup myndi örugglega i aðsigi. Er við vorum komin austur yfir vestustu álana mættum við þeim Oddi og Runólfi i Skafta felli, sem höfðu séð til ferða okkar og komu á móti okkur. Því varð ég feginn, og fól öðr- um þeirra að gæta stúlkunnar austur yfir, en hinn fór á undan til að velja leiðina. Ég fór síðan austur að Svínafelli með póstinn og fékk Svínfell- inga til þess að fara með hann áfram austur, en er ég kom aftur að Skaftafelli, hafði vatnið lítið vaxið. Varð iþví úr, að ég fór út yfir, og réði þar mestu, að ég gat engum boðum komið heim, um hvernig mér hafði reitt af, og bjóst við að fólkið heima yrði áhyggjufullt, er það sæi til hlaupsins og ég væri ókominn. Oddur fylgdi mér vestur yfir Skeiðará. Er ég var kominn að vatnsfallinu nýja austan sæluhússins, stanz- aði ég aðeins, heyri þá skruðninga í átt til jökulsins. Tafði ég þá ekki lengur, en flýtti mér allt hvað ég gat vest- ur yfir. Það var farið að skyggja, en ég held, að ég hafi séð flóðbylgju æða fram sand- inn að baki mér, er ég var kom inn yfir. Fleira bar ekki til tíð- inda í ferð minni, en sælu- húsið fór af í þessu hlaupi, og daginn eftir að ég fór vestur yfir var engum fært yfir sand inn, nema fuglinum fljúgandi. í hlaupinu og gosinu 1934 fór Hannes á Núpstað eina mestu ofdirfskuför, sem um get ur á landi hér, þótt sjálfum finnist honum lítið til koma. Samvizkusemi hans var svo mik il að hann vildi heldur leggja sig i þá hættu að fara yfir titrandi skriðjökulinn yfir hinu tryllta hlaupi en missa af vest- anpóstinum, sem beið á Klaustri. Hans hógværa lýsing á þeirri för hljóðar svo: Svo hafði ég dálitil kynni af Skeiðarárhlaupinu 1934. Það hlaup kom á útmánuðum, að ég held í marzlok. Hlaupið var að byrja, þegar ég fór austur yfir, og meðan ég. var fyrir austan, komst það í algleyming. Ég átti að hitta vestanpóstinn á Kirkjubæjarklaustri laugar- daginn fyrir páska og vildi helzt ekki láta standa á mér, var alltaf illa við það. Það varð því úr, að ég fékk tvo menn til þess að fylgja mér út yfir jökuiinn, þá Odd Magnússon og Jón Stefánsson. Við urðum að fara inn úr hlíð- unum til þess að komast að útfallinu. því hlaupið lónaði upp um alla aura. Er við kom- um inn að jöklinum gaf vissu- lega á að líta. Það var stórkost leg sjón, sem ekki er hægt að lýsa með orðum, er jökulflóðið beljaði fram undan jöklinum með risastórum ísjökum, sem rákust saman með geysilegum hávaða og kaffærðu hvern ann an og brotnuðu Færðin var ekki góð á jökl inum, blotasnjór í miðjan legg. Ég hafði fengið lánuð skíðj í Skaftafeili. en var ekki vanur þeim og því ekki sérlega flink- ur. Enda notaði ég þau fvrst í stað til ‘ þess ,að draga dót mitt á þeim. Talsvert miklar sprungur urðu á vegi okkar og er við höfðum reynt að kræku fyrir þær árangurslaust. hæ!i- um við við það og reyndum að komast yfir þær. Urðuj r við að klifra upp og niður eftir veggjum sumra þeirra. Ég get ekki neitað því að þau voru hálf leiðinleg öskrin í henni Skeiðará, þar sem hún byltist fram undir jöklinum, og oft titraði hann undir fóturo okkar. En allt fór þetta veV og þegar við vorum komnir yfir sprungubeltið lét ég fylgd- armenn mína snúa við og spennti á mig skíðin. Eftir um það bil tveggja stunda skíða- ferð kom ég í skarðið á Súlu tindi og var þá búinn að vera alls um 4 stundir á jökli. Það var ekki síður stórkostleg sjón að sjá hlaupið þaðan, ég sá ekki betur en það breiddist yfir allan sandinn frá Ingólfshöfða að Veiðiós. Hér setjum við punkt. Eins og í upphafi sagði var aldrei ætlunin að skrifa merkilega grein um þetta efni, heldur að- eins rifja upp nokkur atriði því viðvíkjandi. Helztu heim- ildir eru Vatnajökulsbókin áð urnefnda eftir Jón Eyþórsson. þjóðsögur Jóns Árnasonar os frásögur ýmissa kunnugra mann, lærðra og leikra. mb KARTÖFLUR smásöluáðila gagnvart þeim yf irvöldum, sem með verðlagsmál fara á hverjum tíma. Harma ber að grípa þurfti lil sölubanns í einhverri mynd til þess að knýja fram leiðrétting ar á málefnum og hagsmunum dreifingaraðila og vonar nefnd in, að til þess þurfi ekki að koma í einni eða annarri mynd aftur við verðlagningu land- búnaðarafurða eða aðrar að gerðir. Nefndin vill benda á, að til þess að forðast slíka málsmeð ferð hljóti að teljast bæði rétt og eðlilegt að smásöludreifing araðilar fái aðild að þeim nefnd um, sem með máiefni stéttar innar fara, t. d. öllum verð lagsnefndum, þannig að réttur þeirra hljóti viðurkenningu til jafns við réttindi annarra, sem hlut eiga að máli. Nefndin itrekar, að í því að taka aftur upp dreifingu á kartöflum, felst fráleitt nokk ur viðurkenning á réttmæti á- lagningar á þessa vörutegund, og bendir jafnframt á, að álagning á landbúnaðarvörur í heild er langt fyrir neðan það, sem eðlilegt mætti teljast."

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.