Morgunblaðið - 21.12.1984, Page 15

Morgunblaðið - 21.12.1984, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984 B 15 Uröarstígur 3: Þorlákur R. Haldorsen Þorlákur R. Haldorsen, listmálari, heldur nú sýningu á verkum sínum í vinnustofu sinni, Uröarstíg 3 í Reykjavík. Á sýningunni eru rúmlega 30 myndir, unnar með olíulitum, pastel og kolum. Sýningunni lýkur á sunnudag, Þorláksmessu, en hún er opin daglega frá kl. 14—19. Nýlistasafnið: Ský og gjörn- ingar I kvöld lýkur sýningu banda- ríska listamannsins Geoffrey Hendricks í Nýlistasafninu viö Vatnsstíg. Hendricks hefur nú tek- iö aftur upp fyrri iöju sína viö aö mála skýja- og himnamyndir, en listamaöurinn notar einnig gjörn- inga sem listform. Sýningunni lýk- ur í kvöld meö gjörningi, en hann hefst kl. 20.30. Gallerí íslensk list: Einar G. Bald- vinsson Einar G. Baldvinsson, listmálari, heldur nú sýningu á verkum sínum í galleríinu islensk list, aö Vestur- götu 17. Sýningin er 8. einkasýn- ing listamannsins og sýnir hann nú 22 olíumálverk, sem flest eru máluö á síöustu tveimur árum. Ein- ar hlaut starfslaun listamanna áriö 1983. Sýning hans er opin frá kl. 9—17 virka daga og frá kl. 14—18 um helgar. Gallerí Langbrók: Jólasýning I Gallerí Langbrók stendur nú yfir jólasýning Langbróka. Á sýn- ingunni eru grafíkmyndir, gler- og vatnslitamyndir, textíl, keramik og fatnaöur, skartgripir og fleira. Sýningin er opin frá kl. 12—18 í dag og á morgun, en henni lýkur á sunnudag. Listmunahúsið: Jólasýning Ellefu listamenn halda nú sýn- ingu á verkum sínum í Listmuna- húsinu viö Lækjargötu. Á sýning- unni eru leirverk, tauþrykk og myndverk unnin meö ýmissi tækni. Þeir sem eiga verk á sýn- ingunni eru: Aöalheiöur Skarphéö- insdóttir, Ástrún Kristjánsdóttir, Borghildur Óskarsdóttir, Eyjólfur Einarsson, Helgi Þorgils Friöjóns- son, Herborg Auöunsdóttir, Kol- brún Björgólfsdóttir, Kolbrún Kjarval, Lísbet Sveinsdóttir, Ólöf Einarsdóttir og Sigurður örlygss- on. Sýningin er opin í dag frá kl. 10—18, á morgun frá kl. 14—23 og á Þorláksmessu frá kl. 14—18. Ypsilon: Rokkbræöur 4. Rokkbræður, þeir Stefán Jónsson, Þorsteinn Eggertsson og Garðar Guömundsson, hafa haldið hópinn frá því að þeir komu fram saman á Rokkhátíð ’83. Þeir hafa skemmt á danshúsum í vetur og í kvöld og á sunnudagskvöld skemmta þeir í Ypsilon í Kópavogi. Listamiöstööin: Jóhann G. Jóhannsson JÓHANN G. Jóhannsson hefur nú framlengt sýningu sína í Listamiðstööinni við Lækjartorg. Sýninguna nefnir Jóhann Litróf og verður hún opin til kl. 23 annað kvöld, laugardag. í dag verður hún opin á verslunartíma. Á sýningunni, sem er sölusýning, eru 68 vatnslitamyndir. í innri sal Listamiöstöðv- arinnar eru einnig til sýnis nokkur verka Jóhanns og Hauks Halldórssonar, sem þeir unnu í sameiningu og sýndu í des- ember í fyrra á sama staö. Eínnig býður Listamiöstöðin nú grafíkmöppu meö verkum franska listamannsins Jean Paul Chambas, sem fyrir skömmu hélt þar sýningu undir heitinu Mon Opera. Á sunnudag, Þorláksmessu, veröa báöir salir Listamiöstöðvarinnar opnir frá kl. 14—22 og opið er til há- degis á aðfangadag jóla. Akureyri: Ragnar og Iðunn Nú standa yfir tvær myndlist- arsýningar á Fjóröungssjúkrahús- inu á Akureyri. Ragnar Lár, listmál- ari, sýnir í boröstofu nokkur olíu- málverk og gvassmyndir og myndum eftir löunni Ágústsdóttur, listmálara, hefur veriö komið fyrir í setustofum og á göngum. Báöar munu sýningarnar standa fram á næsta ár. Akureyri: Valgarður Stef- ánsson í Alþýöubankanum á Akureyri stendur nú yfir kynning á verkum eftir Valgarö Stefánsson, rithöfund og listmálara. Þetta er þriöja einkasýning Valgarös, en hann hefur einnig tekiö þátt í samsýn- ingum. Menningarsamtök Norö- lendinga standa aö kynningunni og mun hún standa til 1. febrúar á næsta ári. Norræna húsið: Finnsk form í sýningarsölum Norræna húss- ins stendur nú yfir sýningin Finnsk form, sýning á finnskum listiönaöi og hönnun. Á sýningunni eru lista- verk unnin í gler, keramik og textíl og auk þess húsgögn, Ijósabúnað- ur, skartgripir og fleira. í anddyri Norræna hússins er sýning í tilefni þess, aö um þessar mundir eru 300 ár liöin frá fæöingu Ludvigs Holberg. Á sýningunni eru Ijósmyndir frá leiksýningum leik- húsanna og menntaskóla og bæk- ur um og eftir Holberg. Listasafn Einars Jónssonar Safnahús og höggmynda- garður Safnahús Listasafns Einars Jónssonar er opiö daglega, nema á mánudögum, frá kl. 13.30—16 og höggmyndagaröurinn, sem í eru 24 eirafsteypur af verkum listamannsins, er opinn frá kl. 10—18. SAMKOMUR Hótel Borg: Orator: Líf í Borgina Orator, félag laganema, hyggst hleypa nýju lífi í starfsemi Hótel Borgar í vetur og gengst því fyrir dansleikjum þar um helgar frá kl. 22—03. Dansleikir þessir eru öll- um opnir, en Orator heldur þá til aö afla fjár, svo unnt sé aö halda norrænt laganemamót hér á landi í ár. FERÐIR Ferðafélag íslands: Kerhólakambur Feröafélag islands fer í sína hefóbundnu göngu á Esju á Þor- láksmessu (sunnudag) kl. 10.30. Gengiö veröur á Kerhólakamb. Þaö skal sórstaklega brýnt fyrir feröagörpum aö búa sig sem best til fararinnar, svo hún megi veröa til ánægju. -Arrow*- 4 Vandaðar skyrtur í öllum stæróum LAUGAVEGI 61-63 SÍMI 14519 Söngva- bæRur við allra hæfi 22 jólasöngvar í léttum hljomborðsútsetningum. M.a. eru í bókinni flestlögin afplötunni eftirsóttu Bjart er yfir Betlehem, s.s. Bor- inn er sveinn í Betlehem, Gleðileg jól o.fl. Kátt er um jólin. Jólalög og sálmar hljómsett fyrir hljómborð og gítar. M.a. Adam átti syni sjö, Pabbi segir, Heims um ból, Núskal segja o.fl. Gullkorn. 12vinsælustu lög Magnúsar Eiríkssonar í léttum útsetningum fyrir hljómborð og gítar. M.a. Draumaprinsinn, Reyndu aftur, Róninno.fl. Leikum og syngjum. Vinsælustu barnalögin í léttum raddsetningum fyrirpíanó, eftirJón Ásgeirsson. M.a. Ef væri ég söngvari, Meistari Jakob, Litla Jörp o.m.fl. Söngvabækurnar frá ísalögum eru varanleg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.