Morgunblaðið - 21.06.1985, Page 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1985
HATIÐIN
martröð
— Frásögn af harmleiknum sem varö, þegar
Juventus og Liverpool léku saman í Briissel
___„Vlð erum ekki agn-
dofa, heldur lömuð af
skömm/* sagði frú
Margaret Thatcher for-
sætisráðherra Breta að
loknum ríkisstjórnar-
fundi morguninn eftir
óeirðirnar á leik ítalska
knattspyrnuliðsins
Juventus og enska
liðsins Liverpool í úr-
slitaleik Evrópukeppni
meistaraliða í Briissel.
______Á skömmum tíma
breyttist Heysel-leik-
vangurinn í vígvöll þar
sem stuðningsmenn
knattspyrnuliðanna
bárust á banaspjót. 38
áhorfendur féllu í val-
inn.
Klukkustund fyrir upp-
haf leiksins tóku
stuöningsmenn Juv-
entus og Liverpool
aö hrópa ókvæðisorö
hverjir aö öörum, en rúmlega
þriggja metra há gaddavírsgiröing
aöskildi stuöningshópana. Gam-
aniö tók aö kárna og brátt breytt-
ust vígoröin i slagsmál. Um
hálfáttaleytiö, 45 mínútum fyrir
upphaf leiksins, hófu drukknir
Bretar í stæöum X og Y viö annan
enda leikvangsins aö henda flösk-
um og steypumolum yfir giröing-
una í lítinn hóp ítala í stæöi Z þar
skammt frá. Þegar ítalirnir létu
undan síga, réðust Bretarnir á
giröinguna og rifu hana niður.
BRETARNIR VOPN-
AÐIR JÁRNSTÖNG-
UM
„Þetta var eins og aö horfa á
hryöjuverkamenn í bardaga,“
sagöi Giampietro Donamigo, einn
stuöningsmanna Juventus. „Sumir
okkar reyndu aö svara Bretunum,
en flestir voru skeifingu lostnir. Viö
reyndum aö færa okkur í burtu, en
þá hófst harmleikurinn. Öngþveiti
varö í stæöi okkar er þessir villi-
menn réöust á giröinguna. Einn
Bretinn kom á móti mér og sveifl-
aöi járnstöng. Munnvatnið fruss-
aöist út úr honum og augun stóðu
á stilkum. Hann hlýtur aö hafa ver-
iö í vímu. Ég hélt aö hinsta stund
mín væri runnin upp.“
Enda þótt nokkrir stuönings-
menn Liverpool væru vopnaöir
rúmlega meters löngum járnstöng-
Stæöi X og Y:
Miöasala um Liv-
erpool
Stæði Z: Miöasala
Belgíu, en miðar lentu
að stærstum hluta í
höndum stuönings-
manna Juventus
um, er þeir höföu losaö úr fallinni
girðingunni, snerust nokkrir ítalir
til varnar. Aörir reyndu aö klifra
yfir gaddavírsgiröingu og meters
háan múrvegg, sem skildi áhorf-
endur frá leikvellinum, eöa geröu
tilraun til aö klífa þriggja metra há-
an múrvegg á hliö stæöanna. En
hundruð manna ef ekki þúsundir
voru í gildru. Þrýstingur óx í
mannhafinu viö sífelldar árásir
stuðningsmanna Liverpool. Viö
átökin gaf sig hluti hins þriggja
metra háa múrveggs. Nokkrir ítalir
létust viö þaö falla út úr áhorfend-
apallinum en aörir létust, er
steypubrotum rigndi niöur. Þá
köfnuöu áhorfendur í mannþröng-
inni. „Illa útleikin lík voru hvar-
vetna," sagöi Renzo Rocchetti,
einn stuðningsmanna Juventus.
„Ég varö vitni aö því, er ofsahrætt
fólkið tróö áhorfendur undir fótum
sér.“
HORFÐUAANDLAT
SONARINS í BEINNI
ÚTSENDINGU
í bænum Mesagne á Suöur-
ítalíu kveikti eiginkona Bruno
Guarini á sjónvarpstæki heimilisins
og hún og 16 ára dóttir hennar
settust viö tækiö til þess aö fylgj-
ast meö knattspyrnuleiknum í
Belgíu. Bruno haföi boöiö syni
Áhugavert að
starfa hjá fyrir-
tæki er byggir
á hugviti
Rætt viö Sigrúnu Halldórsdóttur
skrifstofustjóra
Ung kona var nýlega
ráöin skrifstofustjóri
hjá einu stærsta raf-
eindafyrirtæki á ís-
landi, Pólnum hf. á ísa-
firði. Þessi kona er
Sigrún Halldórsdóttir, fædd á Akra-
nesi, alin upp í Reykjavík, en fluttist
til Isafjaröar fyrir 4 árum. Þar em
konur hafa hingaö til ekki fjölmennt í
skrifstofustjórastóla og þaöan af
síöur til starfa hjá fyrirtækjum sem
hanna og smíöa rafeinda- og tölvu-
búnaö, lék okkur forvitni á aö fræö-
ast um Sigrúnu, starfiö og fyrirtæk-
iö.
„Póllinn hf. er oröiö eitt af 10
fremstu fyrirtækjum í heimi í fram-
leiöslu á rafeindatækjum fyrir fisk-
iönaö,“ sagöi Sigrún, er viö sett-
umst niöur og fengum okkur kaffi-
bolla eftir skoöunarferö um fyrir-
tækiö. „Þaö sýnir betur en flest ann-
aö hvers íslendingar eru megnugir,
þegar þeir taka sig til. Fyrirtækiö
var stofnaö á ísafirði 1966 af 3 raf-
virkjum, útvarpsvirkja og hagfræð-
ingi. í fyrstu var rekin rafverkastarf-
semi og viögeröarþjónusta. Síðar
var opnuö verslun. Fyrir u.þ.b. 10
árum var rafeindatæknifræöingur
ráöinn til starfa. Um sama leyti barst
beiöni frá frystihúsi um aö hannað
yröi og smíöaö einfalt og öruggt inn-
vigtunarkerfi og var þaö gert. Ör-
tölvubyltingin var aö ryöja sér til
rúms og miklar tæknilegar framfarir
voru á ýmsum sviöum. Næsta verk-
efni sem fyrirtækið fékk var aö
hanna og smíöa boröavog. Var unn-
iö aö því í samvinnu viö Hagræð-
ingafélag frystihúsanna viö (safjarö-
ardjúp. Gerður var rammasamning-
ur um þróun og smíöi tölvuvoga og
tölvubúnaöar.
Nú starfa 60 menn hjá Pólnum og
er helmingur þeirra að miklu eöa
öllu leyti tengdur hinni nýju starf-
semi. Fyrirtækiö framleiðir tölvu-
vogir, tölvukerfi, samvalsvélar,
flokkunarvélar og raftæki. Það rek-
ur raftækjaverslun og býöur upp á
vigtareftirlit, alhliöa rafþjónustu,
siglingatækja-, kæli- og frystiþjón-
ustu. Erfitt er aö anna eftirspurn, en
nú eru um 800 POLS-vogir í 120
fyrirtækjum á íslandi og fjöldi
POLS-voga og tölvukerfa í Færeyj-
um, Noregi, Bretlandi og Bandaríkj-
unum. Forráöamenn fyrirtækisins
eru bjartsýnir á framtíöina, þeir ætla
aö stækka viö sig húsnæöiö og fá
fleira tæknimenntaö fólk til starfa.
Þeir kaupa mikiö af fagtímaritum,
sækja sýningar, senda sína fram-
leiöslu á sýningar og hagnýta sér
þær upplýsingar sem fram koma
þegar sett eru upp ný kerfi á þeirra
vegum. Póllinn hf. hefur hlotið viöur-
kenningar, bæöi innan lands og
utan fyrir uppfinningar og framfarir
á sviöi örtölvutækni.
Starf mitt sem skrifstofustjóri er
fólgið í daglegri umsjón meö fjár-
málum fyrirtækisins (þ.m.t. sam-
skipti og samningar viö viöskiptavini
og lánastofnanir),“ sagöi Sigrún.
„Ennfremur umsjón og ábyrgö á
fjárhags-, viðskiptamanna- og
birgöabókhaldi fyrirtækisins, um-
sjón með innflutningi og almenn
skrifstofustjórn. Áöur en ég byrjaöi
hér annaðist ég bókhald fyrir rækju-
verksmiðju og skil því vel aöstæöur
þeirra er nú eru mínir viösemjendur.
Þaö er aö nokkru leyti tilviljun aö ég
er í þessu starfi nú, en mér líkar þaö