Morgunblaðið - 27.09.1985, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 27.09.1985, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER1985 B 13 Hártoppurinn er klipptur þvert eöa þynntur, yfirleitt frekar stuttur. Hárid er sleíkt fram á andlit og minnir á árin í kringum 1920 og 1960. Klippmgm er undirstrikud med dýptinni í litunum, sem eru gjarnan brúnir eóa rauóleitir. Blástur er stórt atridi og þá med bursta sem gefur hárinu meiri gljáa. Khan. í Beauborg stendur yfir mikil indversk kvikmyndahátíð, og í Pavillion des Arta er sýning á indverskri alþýöulist (s. mynd: „Beyond the Wall“ eftir Gulam Mohammed Sheikh). í forsölum Parísaróperunnar sjá indverskir dansarar og söngvarar gestum fyrir litríkri og ógleymanlegri austurlenskri hátíö. NEWYORK Indverakur innbtáatur. í Metropolitan Museum of Art stendur yfir einstæö sýning á indverskum listmunum, þar sem mörgum af hinum mestu gersemum í málaralist, skartgripum, handritum og veggteppum hefur veriö safnaö hvaðanæva aö úr heimin- um. Meðal sýningargripa má nefna rauö- gulliö tjald frá 17. öld, dýrmæt málverk (s. mynd: Vatnslitamynd frá 18. öld) og skraut- ker (s. mynd: Skrautker frá Deccan, 17. öld). Sýningin er gífurlega umfangsmikil, litrík og áhrifamikil og er einn helsti þáttur fjöl- breyttrar menningarhátíöar í borginni, sem ber yfirskriftina „lndia“. Framundan er m.a. viöburður eins og sérstakir hijómleikar New York Philharmonic undir stjórn Zubin Meh- tas. Sjaldaéðir aöngleikir. „Chovansjtsjína— furstarnir" eftir Modest Pjotr Mussorgskíj og „Samaonu eftir G.F. Hándel eru óperur, sem sjaldan eru settar á sviö, en eru á sýn- ingarskrá Metropolitan-óperunnar á kom- andi starfstíð. Þaö eru 35 ár síðan aö „Cho- vansjtsjína-furstarnir" voru síöast teknir til sýningar í Met-óperunni, og þetta er í fyrsta sinn sem „Samson" er sýndur á því óperu- sviði. Til þess aö allir fái eitthvaö viö sitt hæfi, veröa auk þess sýndar tvær öruggar og sívinsælar óperur: „Brúökaup Figaroa“ eftir Mozart og„Carmen“eftir Bizet. Öperu- húsiö hefur leikáriö meö „ Tosca"-sýningu hinn 23. september, þar sem Luciano Pa- varotti upphefur söngraust sína meöal margra annarra framúrskarandi lista- manna. Síöar kemur svo rööin aö Richard Wagner meö viöamiklum sýningum á „Fal- ataff" og „Paraifal". Ekki gleymist heldur bandarísk söngleikjahefö, því „Porgy and Beaa“ veröur líka þar á fjölunum seint á leikárinu. Broadway. Eitt má teljast alveg öruggt, og þaö er aö frammistaöa Broadway-leik- húsanna á komandi leikári getur ekki annaö en batnaö og þaö til mikilla muna — og er þá höfö í huga sú einstæöa lágkúra og list- ræn deyfö, sem einkenndi Broadway-leik- sýningar á síöasta ári. Miklar vonir eru bundnar við nýjan söngleik „Song & Dance“ eftir hinn kunna breska höfund Andrew Lloyd Webber, sem nýlega er byrjaö aö sýna meö Bernadette Peters í aöalhlutverkinu (s. mynd). Hinn stórsnjalli sólisti Chriatopher d'Amboiae frá New York City Ballet, þreytti f rumraun sína á Broadway með sólósýningu hinn 18. þ.m. en dansana samdi Peter Martins. Skartgripa-hof. Andreas Barandun og Hans-Peter Sturzenegger, hínir tveir nafn- toguöu stofnendur skartgripaverslunarinn- ar „Bijoux Fox“ í Kruggasse 8, hafa látiö sér detta nokkuö nýstárlegt í hug: I lok ágúst var opnuð ný og allsérstæð „Bijoux Fox“— verslun í Torgasse 6, og er viöskiptavinum nú boöið beint inn í Etrúska-hof, stórglæsi- legt, dulmagnaö og heillandi umhverfi. Þarna er til sölu allt sem heitiö getur nýjasta nýtt í nútímalegum skartgripum og raunar ekkert af því ódýrt: Plexi meö hálfeöalstein- um frá Frakklandi, barokskartgripir frá London, stranglínu-hönnun frá New York, belti frá verkstaBÖi Barry Kielstein-Cords o.fl. Söluvarningnum er komiö fyrir á lítt áberandi hátt í skúffum og skyggir því engan veginn á litríkar freskurnar á veggjunum. Versluninni í Kruggasse 8, verður hins vegar breytt í „ Fox Glasses“, þar sem pistaz- íugrænt, vanillugult og múrsteinsrautt veröa ráöandi litir í innréttingunum, en sölu- varningurinn veröur fágæt, sórhönnuö gler- augu frá Laffont, Optical Affair og Stephan Rotholz. Geraema-úr. Þeir sem reika um glæsi- götuna Bahnhofstrasse í Zurich ættu ekki aö láta hjá líöa aö skoöa „Muaeum fllrZeit- measung". Safniö er til húsa á neöri hæö elstu úraverslunar Svisslands, Chrono- metrie Beyer — þaö fyrirtæki er 225 ára í ár. Á safninu getur aö líta tímamæla frá því um 1500 — sólarúr gert úr fílabeini — og fram til 1955. Þarna eru ýmsir einstæðir gripir eins og þríhyrnt frimúrara-vasaúr (s. mynd), vasaúr þaö, sem Patek Philippe hannaöi fyrir Ibn Saud konung Saudi-Arab- íu (s. mynd) meö greyptri andlitsmynd þjóö- höföingjans á skífunni og alsett gimsteinum. „Museum fúr Zeitmessung" er í Bahnhof- strasse 31, opiö virka daga milli kl. 10 og 12og 14 til 16; álaugardögumfrá 10-12. Veaalingarnir — söngleikur eftir Alain Boublil og Claude-Michael Schönberg, byggöur á sögu Victors Hugo, veröur sýnd- ur í Barbican-leikhúsinu frá 27. september til 23. nóvember. Sýning á þróun akartgripa árin 1966— 1985 verður í British Crafts Centre frá 20. septembertil 19.október. Penguin-útgáfufyrirtækiö veröur 50 ára um þessar mundir. í tilefni þess veröur sýn- ing í Royal Festival Hall og mun hún standa frá 20. septembertil 27. október. Þýak list ó 20. öld er yfirskrift sýningar er verður i Royal Academy of Arts dagana 11. október til 22. desember. Ýmsar frægar jazz- og rokkstjörnur halda tónleika í London á næstunni. Má þar nefna David Cassidy er 21. og 22. október syngur í Royal Albert Hall og Cliff Richard er syngur i Hammersmith Odenon 5. til 9. nóvember.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.