Morgunblaðið - 27.09.1985, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 27.09.1985, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER1985 B 15 Matkrákan: Bjarni Ragnar Bjarni Ragnar heldur nú sýningu á Matkrákunni Laugavegi 22. Þar sýnir hann akrýlverk, sem hann kallar mennska fugla og gerð voru á Hornströndum I september i fyrra. Sýningin stendur yfir I tvær til þrjár vikur og eru verkin til sölu. Bjarni hefur haldið sjö einkasýningar og hefur tekið þátt í samsýn- ingum. Gestgjafinn: Eyjakvöld Svokölluð Eyjakvöld eru haldin föstudags- og laugardagskvöld á Gestgjafanum I Vestmannaeyjum. Yfirskrift þeirra er: Ég vildi geta sungiö þér. Flutt veröa lög og Ijóö eftir Odd- geir Kristjánsson, Ása I Bæ, Arna úr Eyjum, Glsla Helgason og Gylfa Ægisson. Þar að auki verður flutt hið nýja þjóðhátíðarlag eftir Lýð Ægisson og Guðjón Weihe. I tengslum viö Eyjakvöldin verður boðið upp á pakkaferðir til Eyja. Framreiddur verður ýmiss konar matur sem dæmigerður má teljast fyrir Vestmannaeyjar. Ölkeldan: Þjóölagakvöld Grétar, Matti og Wilma munu sjá gestum Olkeldunnar viö Laugaveg fyrir fjörugri þjóölagatónlist næstu föstudags- og laugardagskvöld. Tónlistin er margvlsleg en Irsk, skosk, norræn og slavnesk þjóðlög verða mest áberandi. Skíöaskálinn í Hveradölum: 50áraafmæli skálans Sklðaskálinn I Hveradölum heldur um þessar mundir upp á fimmtlu ára afmæli sitt. (tilefni af þvi hafa Haukur Morthens og félagar leikið og sungið fyrir gesti og gangandi. Þeir munu halda þvl áfram fram á haustið, hvert föstudags- og laugardagskvöld. Pöbb-lnn: Hljómsveitin Rock-óla Hljómsveitin Rock-óla leikur fimm daga vikunnar á Pöbb-lnn við Hverf- isgðtu 46, það er að segja frá mið- vikudegi til sunnudags. Hljómsveitina skipa Agúst Ragnarsson, Bobby Harrison, Pálmi Sigurhjartarson og Rafn Sigurbjörnsson. Hótel Saga: Hljómsveit Giétars Örvarssonar Hljómsveit Grétars örvarssonar leikur fyrir dansi á Hótel Sögu á föstudags- og laugardagskvöldum. HLH-flokkurinn skemmtir gestum staðarins sömu kvöld. Húsakynni MÍR: Sovéskar myndir Kvikmyndir eru sýndar I húsakynn- umMÍRallasunnudagakl. 16.00. Sýndar eru sovéskar kvikmyndir, frétta-, fræðslu- og heimildakvik- myndir og leiknar myndir, gamlar og nýjar. Nk. sunnudag verða sýndar nokkrar frétta- og fræðslumyndir úr ýmsum áttum, m.a. mynd um neðan- jarðarbrautir I Sovétrlkjunum og nyrstu borg Sovétrfkjanna. Skýringar með kvikmyndunum eru á ensku og (slensku. Aðgangur er öllum heimill. LEIKLIST Þjóöleikhúsiö: Grímudansleikur Fjórða sýning Þjóöleikhússins á Grlmudansleik veröur I kvöld og fimmta sýning á sunnudagskvöld. Leikstjóri er Sveinn Einarsson og hljómsveitarstjóri er Maurizio Bar- bacini. Með helstu hlutverk fara Kristján Jóhannsson, Ellsabet F. Ei- rlksdóttir, Kristinn Sigmundsson, Katrln Sigurðardóttir, Sigrlður Ella Magnúsdóttir, Viöar Gunnarsson og Robert Becker. Þjóöleikhúsiö: Islandsklukkan A laugardagskvöld hefjast á ný sýningar á Islandsklukkunni I Þjóð- leikhúsinu. Einungis eru þó fyrir- hugaðar fáar sýningar. Uppfærsla þessi var frumsýnd á 35 ára afmæli þjóðleikhússins I aprll sl. og gekk fyrir fullu húsi þegar leikárinu lauk I júnl. Leikstjóri er Sveinn Einarsson, en leikmynd og búninga geröi Sigurjón Jóhannsson. Með helstu hlutverk fara Helgi Skúlason, Tinna Gunn- laugsdóttir, Þorsteinn Gunnarsson, Arnar Jónsson, Róbert Arnfinnsson, Sigurður Sigurjónsson og Pétur Ein- arsson. Stúdentaleikhúsið: Ekkó Stúdentaleikhúsiö feröast nú um landið með tillegg sitt til árs æskunn- ar, rokk-söngleikinn „Ekkó — eöa guðirnir ungu“. Verkið er eftir Svíann Claes Ander- son, en Ólafur Haukur Slmonarson þýddi það og samdi söngtexta. Tón- list er eftir Ragnhildi Gfsladóttur. Andrés Sigurvinsson leikstýrir. (kvöld verður sýning á Laugar- vatni og hefst hún kl. 20.30. Fyrir- hugaðar eru leikferðir um helgar I október og nóvember til m.a. Vest- mannaeyja, Keflavíkur, Aratungu, Stokkseyrar og Þorlákshafnar. Leik- ritið verður slðan sýnt (miöri viku ( félagsmiöstöðinni Tónabæ I október- mánuöi. SOFN Gallerí Borg: „Sjödægra“ Stefán Axel Valdimarsson opnaði sýningu á sjö akrýlmálverkum I Gall- erl Borg f gær. Sýningin stendur I sjö daga og hefur hlotið nafniö Sjö- dægra. Stefán Axel, sem nú stundar nám I erlendum listaháskóla, hefur tekiö þátt f allmörgum samsýningum, m.a. I Nýlistasafninu, á Kjarvalsstööum og vfðar. Sýningunni lýkur 2. október. Hún er opin virka daga kl. 12.00 til 18.00 og um helgar kl. 14.00 til 18.00. Gallerí Grjót: „Konan til gagns og gamans“ (dag kl. 18.00 verður opnuð sýn- ing I Gallerf Grjóti viö Skólavörðustfg á nokkrum skúlptúrverkum og smá- munum eftir Magnús Tómasson. Sýningin ber heitið „Konan til gagns og gamans". Eins og nafnið ber meö sér eru myndirnar um konuna úr reynsluheimi karlmanns og eru þau gerð á árunum 1968-1972 en þá var listamanninum þetta sérlega hugleik- ið. Verkin eru öll úr málmi og hafa sum þeirra verið sýnd áður hér heima eða erlendis. Sýningin verður opin daglega milli kl. 12.00 til 18.00 virka daga og 14.00 til 18.00 um helgar. Henni lýkur 10. október nk. Hér er ekki um eiginlega sölusýn- ingu að ræöa þvl mörg verkanna eru f einkaeign. Listasafn Einars Jónssonar: Safnoggarður Listasafn Einars Jónssonar er opið alla daga nema mánudaga I sumar kl. 13.30 og 16.00. Höggmyndagarðurinn er opinn daglegafrákl. H.OOtil 17.00. Sædýrasafniö: Dýrin mín stórogsmá Sædýrasafnið veröur opið um helgina einsog alla daga frá kl. 10.00 til 19.00. Meðal þess sem er til sýnis eru háhyrningar, Ijón, (sbjörn, apar, kind- ur og fjöldi annarra dýra, stórra og smárra. Þjóöminjasafniö: Islenskar hannyrðir íBogasal Nú stendur yfir I Bogasal Þjóö- minjasafnsins sýning á verkum Is- lenskra hannyrðakvenna og nefnist hún „Með silfurbjarta nál“. Þar getur að Ifta verk eftir rúmlega 40 konur sem uppi voru frá þvl á 12. öld og fram undir sföustu aldamót. A sýn- ingunni er leitast við aö draga fram helstu einkenni hinnar Islensku út- saumshefðar. Mjög vegleg sýningar- skrá hefur verið gefin út og er I henni meðal annars að finna æviágrip allra þeirra kvenna sem verkin á sýning- unni eru eftir. Sýningin er opin daglega frá kl. 13.30 til 16.00 fram foktóber. Ásmundarsafn: Konanílist Ásmundar Nú stendur yfir I Asmundarsafni við Sigtún sýning sem nefnist „Kon- an I list Asmundar Sveinssonar". Er hér um að ræða myndefni sem tekur yfir mest allan feril Asmundar og birtist I fjölbreytilegum útfærslum. Sýningin er opin I vetur á þriðju- dögum, fimmtudögum, laugardögum og sunnudögum kl. 14.00 til 17.00. Listmunahúsiö: Eyjólfur Einarsson Laugardaginn 28. september kl. 14.00 opnar Eyjólfur Einarsson sýn- ingu f Listmunahúsinu, Lækjargötu 2. A sýningunni verða um 40 málverk og vatnslitamyndir unnar á slðast- liðnum tveimur árum, meðal annars Nýlistasafnið: Ljósmyndasýning Opnuð verður samsýning tuttugu kvenna á morgun, laugardag, I Nýlistasafninu. Sýningin ber nafnið „ Augnablik" og er það Ijós- myndasýning. Margar kvennanna hafa aldrei sýnt verk sln opinberlega áður. Konurnar eru flestar á aldrinum 23 til 36 ára og er það fyrsta kynslóð Islenskra kvenna sem hefur getað öðlast þá menntun sem hugur stendur til. Nokkrar þessara kvenna eru búsettar erlendis og þvf fengur aö þvf aö fá nú tækifæri til aö skoöa verk þeirra. Laufey Helgadóttir er búsett (Parls og sýnir nú myndir af fegruna- rskurðaðgerðum þar. Nanna Buchert er búsett I Kaupmannahöfn. Hún sýnir uppstillingar I lit af fiskum, blómum og blúndum. Birgit Guðjónsdóttir býr f Vfn og er meö athyglisverðar myndir þaöan á sýningunni. f Hollandi þar sem hann dvaldi sfðast- liðinn vetur. Eyjólfur er fæddur 1940 f Reykja- vfk. Hann stundaöi myndlistarnám á íslandi og fór slðan I Listaakademl- una f Kaupmannahöfn 1962 og var þar I fjögur ár. Eyjólfur hefur haldið fjölda einka- sýninga og tekið þátt f samsýningum. Sýningin, sem er sölusýning, er opin virka daga frá kl. 10.00 til 18.00, laugardaga og sunnudaga frá kl. 14.00 til 18.00. Lokað á mánudög- um. Sýningin stendur til 13. október. FERÐIR Hana-nú: Gönguférð Frístundahópurinn Hana-nú I Kópavogi fer I göngutúr á morgun, laugardag, kl. 10.00 árdegis. Hópur- inn mun fara að skoöa listaverk eins Hana-nú-félaga I Hvömmunum. Markmið hinnar vikulegu göngu er hreyfing, súrefni og samvera. Lagt verður af stað frá Digranesvegi kl. 12.00. Allir Kópavogsbúar eru vel- komnir. Feröafélag íslands: Haustlitaferð í kvöld verður farin haustlitaferð f Þórsmörk og helgarferð I Land- mannalaugar. Sunnudaginn 29. september er gönguferö kl. 10.30. Þá verður gengið frá Grindaskörðum um Lönguhllð, Grófina og að Vatnshllö viö Kleifarvatn. Kl. 13.00samadag er önnur gönguferð og er þá gengið meöfram Kleifarvatni undir Vatnshlfö að Gullbringu og út á veg. Náttúruverndarfélag Suövesturlands: Náttúruskoðunar- ogsöguferð Náttúruverndarfélag Suðvestur- lands fer náttúruskoðunar- og sögu- ferð um austurhluta Reykjavlkur- borgarlands á morgun. Farið verður frá Norræna húsinu kl. 13.30, frá Náttúrugripasafninu, Hverfisgötu 116, kl. 13.45 og frá Arbæjarsafninu kl. 14.00. Aætlað er aö feröinni Ijúki millikl. 18.00og 19.00viðofan- greinda staði. Fargjald verður 200 krónur, en fritt fyrir börn I fylgd full- orðinna. Leiðsögumenn verða Sigrföur Theódórsdóttir, jarðfræðingur, Krist- inn Pétur Magnússon, líffræðingur, Guðmundur Ölafsson, fornleifafræð- ingurog Tómas Einarsson, kennari. Utivist: Haustlita- og helgar- feröir Útivist fer á sunnudaginn I tvær gönguferöir á Keili. Þetta eru slðustu feröirnar í tilefni 10 ára afmælis fé- lagsins. Kl. 10.30 verðurekiðað eyðibýlinu Vigdlsarvöllum og gengið þaðan um Selsvelli á Keili. Kl. 13.00 verður farið á Höskuldarvelli og gengin leiö með Oddafelli á Keili. Oddafellssel verður skoðaö I leiöinni. Þeir sem það kjósa geta sleppt göngunni á fjallið, þannig aö allir geta verið með. Kl. 8.00 á sunnudagsmorgun er haustlitaferð I Þórsmörk. Brottför I ferðirnar er frá BSÍ, benslnsölu. A föstudagskvöldið kl. 20.00 verður farið I tvær helgarferðir. Annars vegar er haustlitaferð f Þórsmörk og hinsvegar ferð f Landmannalaugar-- Jökulgil og Eldgjá.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.