Morgunblaðið - 14.12.1985, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 14.12.1985, Qupperneq 1
3Bt>rguubTaí»tí> MENNING LISTIR n PRENTSMIÐJA MORG UNBLA ÐSINS LA UGARDAGUR14. DESEMBER1985 BLAD JLÞ ÞÓRARINN ELDJÁRN ÓKVÆÐA VIÐ „En strax þegar ég var búinn að líta lauslega yfír yrkingar Gunnars varð mér Ijóst, að ef eitthvað var hægt að gera til að sverta og ván- helga minningu míns kæra vinar, þá var það einmitt aö koma á fram- færi þessum ömurlegu hugarfóstr- um hans. Ýmist var hér um að ræða gjörsamlega mislukkaðar og rangt kveðnar hagyrðingavísur, marflöt spakmæli og hundavéfréttir eða „heimspekilegar“ hugleiðingar og lífsvisku á Norman Vincent Peale- plani.“ B8 HALLDOR LAXNESS Brot úr ferðasögu Morgunblaðið birtir hér kafla úr bók nóbelsskáldsins, í Austurvegi, sem nýverið kom út hjá Vöku-Helgafelli. Þetta er önnur útgáfa. í formála bókarinnar segir Ólafur Ragnarsson, útgefandi, að þetta sé bók tengd sínum tíma: alþjóðlegri baráttu fólks fyrir bættum kjörum í von um fyrirmyndarþjóðfélag á næstu grösum. Hún hafi verið þáttur í umræðum áranna milli stríða, fróðlegt plagg í Ijósi þróunar sem orðið hafi síðan. í frétt frá forlaginu kemur fram að Halldór hefur lagfært allmargt í textanum og gert ýmsar brey tingar, en í heild sé hér komið aftur kverið sem hann tók saman fyrir 53 árum. Á bókarkápu segir: Margt sem síðar kom á daginn breytti afstöðu skáldsins til fyrirmyndarríkis Leníns og Stalíns. En Halldór hefur engu að síður samþykkt endurútgáfu þessarar umdeildu bókar. „Þær hug- myndir sem ég hef haft eru og verða fróðlegur partur af sjálfum mér eins fyrir því þó fyrri skoðanakerfi hafi að einhverju leyti eða í heilu lagi verið gerð upp gjaldþrota andspænis staðreyndum,“ segir hann. 1. Yfir landamærin Ég ferðaðist frá Helsíngfors í svefni um nótt. Um morguninn eftir að ég kom á fætur settist ég við gluggann í svefnklefa mínum og virti fyrir mér landið. Eitt af sérkennum finnskra sveita, einsog þær birtast auga ferðamanns, er hrörnun og hreyfíngarleysi. Það er einsog hvergi verði vart við verulegt lífsmark. Timburhús sveitabýla og þorpa standa gisin skæld og veðurbarin með brostn- um rúðum eða hleraslegnum gluggum meðfram brautinni, en önnum kafið líf, verkfærahljóð eða vélagnýr, fjörgar landslagið hvergi í dapurleik haustsins. Rolulegir sveitamenn híma á stángli undir B2 CRYMOGÆA ÚR INNGANGI Arngrímur samdi Crymogæu framar öllu með erlenda lesendur í huga, og því er eðlilegt að spurt sé hver áhrif hennar urðu utan lslands. Því er fljótsvarað; hún ásamt öðrum ritum hans varð kveikjan að áhuga erlendra manna á íslenskum fræð- um og sá grundvöllur sem rannsóknir þeirra voru reistar á um langt skeið. Þar fengu erlendir menn fyrst vitneskju um að á Islandi væru til merkilegar bókmennt- ir sem veitt gætu nýstárlega fræðslu um fornsögu Norðurlanda og jafnvel annarra þjóða. Enn fremur var þar vakin athygli á því að íslendingar ættu sér sína menn- ingu og sérstæðu sögu, þeir hefðu átt sínar hetjur sem unnið hefðu mikil afrek og merkileg, þeir væru allt annað en siðlausir fiskimenn á hjara veraldar. Danskir fræðimenn urðu fyrstir fyrir beinum áhrifum af Crymogæu. Sagnaritar- arnir sem Arngrímur hafði ætlað heim- ildasöfn sín höfðu þeirra sama sem engin not. Krag og Venusin dóu báðir á miðjum aldri og áður en þeir hefðu samið neitt um sögu Norðurlanda þar sem rit Arngríms hefðu getað komið þeim að haldi. En í næstu kynslóð risu upp tveir menn sem öðrum fremur hófu afskipti af íslenskum BIO CRYMOGAEA rerum" islan< D IC A R V M L I B R I III. Pct ^ÍKNGKIMP'M ] ONAM t S L A N D V M Prov«b. tt. Divtt ÍS'paupcr ob vuverunt fili: utmn& optrá- tor cfl T3ommm. HAMBURGI. Tjpi Puiíirrt sí Our. TITILSÍÐA CRYMOGÆU 1609 Sögufélagið gefur nú út hið fræga rit Arngríms lærða CRYMOGÆA sem hann skrifaði á sínum tíma á lat- ínu. Ritið var saman sett til varnar Islandi en þá höfðu útlendingar margvíslegar ranghugmyndir um land og þjóð, ekki síður en nú. Jak- ob Benediktsson skrifar inngang og þýðir ritið á ís- lensku. Hér á eftir fara kaflar úr inngangi Jakobs og riti Arngríms lærða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.