Morgunblaðið - 14.12.1985, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.12.1985, Blaðsíða 4
4 B MORGUNBLALHÐ, LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985 SERSTAÐA ÉSLENDINGASAGNA EFTIR BJÖRN JÓNASSON I»aó er mér ánægjuefni að verða við þeirri bón Morgunblaðsins að gera grein fyrir hinni nýju tveggja binda útgáfu Svarts á hvítu áTs- lendinga sögum. Með þessari útgáfu rætist gamall draumur okkar á forlag- inu, að gefa út íslendinga sög- urnar með nútímastafsetningu á lægra verði en áður hefur þekkst. Áhuginn á þessum bókmenntum hefur farið vaxandi nú hin síðari ár. Það er hins vegar ljóst að hátt verð og fornleg stafsetning hafa fælt fólk frá sogunum nú um nokkurt skeið. Margar þjóðir eiga sér forn- bókmenntir, sígildar bækur sem kenndar eru í skólum og rann- sakaðar í háskólum. íslendinga sögur eru vissulega í þeim flokki, þær hafa það hins vegar fram vfir aðrar slíkar bókmenntir að þær eru ritaðan nútímalesend- um, þær eru að sönnu sameign þjóðarinnar. Þær eru bókmennt- ir sem allir kunna að meta, óháð þjóðfélagsstöðu, aldri og mennt- un. Sérstaða íslendinga sagna felst í því að þær eru enn lifandi bókmenntir, í engar bækur er jafn oft vitnað og engar bækur eru jafn mikið lesnar hér á landi. En sérstaða þessara bóka lýsir um leið sérstöðu þjóðarinnar. Það er ævintýri líkast að þessari litlu þjóð skuli hafa tekist að varðveita sérkenni sín og halda tungumáli sínu óbrengluðu í aldanna rás. íslendinga sögur eru einn rík- asti þátturinn í þessu ævintýri. í þeim er að finna allt sem hugurinn girnist. Þær eru spenn- andi, ógnvekjandi, rómantiskar og raunsæjar. í þeim er að finna djúpsæja hugsun í leikrænum búningi. Þær spanna allt litróf mannlífsins. Þar fer saman gaman og alvara. Þar er sagt frá átökum upp á líf og dauða. Þar er lýst valdabaráttu, heitum ástum og ástum í meinum, sæmd og orðstír eru hreyfiafl atburða. Þær eru bókmenntir sem láta engan ósnortinn. Mörgum hefur þótt sem ís- lenskar fornbókmenntir hafi lengi verið einkamál fræði- manna, almennir lesendur og áhugamenn jafnvel litnir horn- auga fyrir að vilja veg sagnanna sem mestan, aðgengilegar út- gáfur fáar og oft hamrað á því að venjulegu fólki sé ekki fært að lesa íslendinga sögur skýr- ingalaust eða án ítarlegra for- mála. Það stangast á við þá stað- reynd að islenskt mál er sérstætt í heimsbyggðinni fyrir að hafa breyst lítið frá örófi alda. Sú sérstaða kann þó að vera í hættu um þessar mundir. Yfir okkur flæðir í vaxandi mæli erlent efni óþýtt eða illa þýtt, og tungutak yngra fólks dregur dám af þess- um menningaráhrifum. Vissu- lega eru þarna stundum á ferð- inni ótvíræð listaverk sem auðga innlenda menningu. Hinu meg- um við ekki gleyma að við eigum sjálf lifandi menningararfleifð, lifandi sagnaheim, sem stendur hinum erlendu verkúm síst á sporði og mega ekki víkja fyrir þeim. Ég tel að íslendinga sögur og aðrar merkilegar fornbókmennt- ir séu almenningseign, fræði- menn þurfa vissulega að rann- saka þær og reyna að skýra það einstaka menningarafrek sem þær eru. Þeir þurfa að varpa ljósi á sögu þeirra, tengja þær erlend- um samtíma og þar fram eftir götum. En fólk þarf ekki að setja sig í stellingar fræðimannsins til þess að njóta íslenskra forn- bókmennta. læsendur þurfa ekki að vera miðaldafræðingar til að hafa ánægju af íslendinga sög- um, þær eru heillandi heimur sem öllum læsum íslendingum er aðgengilegur. Ég sagði hér að framan að þessar bókmenntir hefðu ef til vill lokast inni hjá fræðimönn- um. Og þar er ekki við þá að sakast. Nú hin síðari árin þykist ég hafa orðið var við vaxandi áhuga. Unglingar í framhalds- skólum telja Njálu, Eglu og aðrar Islendinga sögur í flokki bestu afþreyingarsagna, þeim finnst gaman að lesa þessar sögur. Hagur þjódarinnar, hagur tungunnar Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Sjálfstæðis- barátta okkar íslendinga út- heimti drjúga orku á sínum tíma. Það verður sjaldan of oft skýrt fyrir ungu fólki hvað i þvi felst að vera sjálfstæð þjóð í frjálsu landi. Hægt er að benda á dæmi af nágrannaþjóðum okkar sem tapað hafa sjálfstæði sínu. Og alltaf skal það fylgjast að, sjálf- stæði tapast og tungan týnist. Lítum á Wales og Skotland. Grænlendingar hafa átt í vök að verjast sem og Færeyingar og Samar. í ágætu ávarpi sem Baldur Jónsson forstöðumaður íslenskr- ar málstöðvar flutti á ráðstefnu í þjóðleikhúsinu 1. desember síðastliðinn, um varðveislu og eflingu íslenskrar tungu, sagði hann meðal annars: „Hagur þjóðarinnar og hagur íslenskrar tungu fara saman. Því er vel til fundið að ræða málefni tungunnar, um leið og fullveldis- ins er minnst. Án eigin tungu hefðum við aldrei orðið fullvalda þjóð aftur og ekki einu sinni reynt að verða það. Engar líkur eru til þess, að íbúar þessa lands — svo fáir sem þeir eru — gætu til lengdar verið sjálfstæð þjóð án sérstakrar þjóðtungu. Ef við glötum henni og tökum upp annarra mál, glötum við brátt sjálfsforræði okkar líka. Og ef við glötum því, missum við meðal annars af óteljandi tækifærum, sem við höfum nú til þess að hafa áhrif um alla heimsbyggð- ina. ... Blindur má sá maður vera, sem heldur, að umræða um varðveislu og eflingu íslenskrar tungu sé sprottin af tómri til- finningasemi. Við erum að vísu að tala um tilfinningamál, en ekki síður blákalt hagsmuna- mál.“ Baldur sagði einnig: „Þá má vekja athygli á því, þótt það hafi oft verið gert áður, að ís- lendingar eru læsir á bækur sínar lengra aftur í tímann en nokkur önnur þjóð, sem mér er kunnugt um. Sá, sem kann ís- lensku, hefir í hendi sér lykil að öllum ritverkum, sem fyrri kyn- slóðir hafa eftir sig látið, síðan mannabyggð hófst á íslandi." Sjálfstæðisbarátta smáþjóðar Við íslendingar höfum jafnan leitað til íslendinga sagna þegar á hefur bjátað, og þær hafa aldrei brugðist okkur. Á ofan- verðri síðustu öld varð þjóðin að þola ýmsar hörmungar. Baráttan gegn ofríki Dana hafði ekki enn fært okkur sjálfstæði. Það var þá sem Sigurður Kristjánsson og Valdimar Ásmundsson tóku sig til og hófu að gefa íslendinga sögurnar út í alþýðuútgáfu. Bækurnar fóru eins og eldur í sinu um allt land. Unga fólkið gleypti sögurnar í sig. Menn flykktust í nám í íslenskum fræðum. Vakning átti sér stað. Þjóðin öðlaðist aukinn kraft í sjálfstæðisbaráttunni. Enn á ný höfðu íslendinga sögur sannað að gildi sitt, að kraftur þeirra er óháð tíma og tækni. Halldór Laxness segir svo í Minnispunktum um fornsögur. „Gegnum myrkur lángra alda voru þessar sögur aleiga þjóð- ar sem þreyði vesturí hafi nær útsloknan, eftivill í meiri eymd en nokkur önnur vestræn þjóð. Sú öld, sem hafði bjargað lífi sínu með því að seljast í hend- ur erlendu konúngsvaldi gegn loforði um sex skipa siglíngu á ári, gaf niðjunum þessa gjöf í vegarnesti á hinni þúngu braut: fornsögurnar með minníngum sínum um hetjur og örlög bókfestar á sjálfu móðurmáli skáldskaparins. Á þessari gjöf nærðist þjóðin. Þessi gjöf var fjöregg hennar, líf hennar í dauðanum. Trúin á hetjuna sem bregður sér hvorki við sár né bana og kann ekki að láta yfirbugast, þessi manndómstrú var okkar líf. 1 lífsháskum aldanna var hún aflið sem deyddi dauða okkar. Og málið, hið fullkomnasta sem ritað hafði verið á Vest- urlöndum, mál sem eignaðist sígild listaverk áður en Evrópa fæddist til menníngar sinnar, það varð gimsteinn okkar. Þannig varð fornsagan fræið sem átti að lifa, græðlíngurinn í klakaþelanum, sem átti að skjóta sprotum á nýju þjóð- vori. Hetjuskáldskapur 13du aldar varð uppistaða þjóðar- sálarinnar. Á þeim tímum sem niðurlægíng okkar var dýpst kendi fornsagan að við værum hetjur og kynbornir menn. Fornsagan var okkur óvinnan- leg borg, og það er hennar verk að við erum sjálfstæð þjóð í dag.“ Ný útgáfa Ég ætla að víkja nokkrum orðum að útgáfu bókaforlagsins Svarts á hvítu á íslendinga sög- um. I samráði við ritstjóra út- gáfunnar var ákveðið að gefa sögurnar út með nútímastafsetn- ingu. Það er í anda þess viðhorfs að sögurnar séu lifandi bók- menntir, sígildar bókmenntir, sem eigi erindi til fólks nú á tímum. Svipað viðhorf ríkti reyndar hérlendis fyrr á öldum. Jón Helgason segir í Handrita- spjalli: „Síðan fornsögur voru fyrst skrifaðar upp á íslandi hefur verið hafður á þeim sá rit- háttur sem skrifurum sjálfum og lesendum þeirra var tam- astur. Fjórtándu aldar menn skrifuðu eins og þeim var lagið, fimmtándu aldar menn sömu- leiðis, og svo koll af kolli. ... Enginn þekkti það sem nú er kallað „samræmd stafsetning forn“, enda var þess engin von, því að hún var ekki búin til fyrr en á 19du öld og allsendis ókunn fornmönnum sjálfum. Þeir sem nú láta prenta ís- lenzkar fornsögur með rit- hætti vorra daga, breyta í fullu samræmi við þá venju sem tíðkazt hefur á Islandi frá alda öðli.“ Við þetta er að bæta, að fornleg stafsetning á íslendinga sögum hefur átt sinn þátt í því að skapa gjá milli þeirra og almennra lesenda. Ennfremur hafa menn að minni hyggju verið óþarflega örlátir á skýringar, því skýringar geta einnig haft þau áhrif að lesandinn sannfærist um að úti- lokað sé að lesa textann skýr- ingalaust. Víst er að okkur er snöggtum hægara að lesa íslend- inga sögur skýringalaust en allar þær byrðar amerískra og enskra reyfara sem hér eru bornar út úr bókaverslunum. Um vísnaskýr- ingar gilda önnur lögmál þar sem vísurnar eru oft dálítið snúnar, enda er vísnaskýringar einnig að finna í þessari nýju útgáfu. Markmiðið með nýrri útgáfu á íslendinga sögum er að fá fólk 504 tHLENDINCA SOCUR ECILS SAGA akuli þar vaka jrfir og yrkja um skjóld hans7 Nú takið hest minn. Skal eg rlða eftir honum og drepa hann " Honum var þé aagt að Einar hafði riðiðanemma um morgunmn „mun hann nú kominn vestur til Dala " Slðan orti Egill drápu og er þetta upphaf að: Méltrmðlýmo Htmn bjartm ékjoid rrtgþá orlála manmt lEimani banl betm hl mlm. Mtr tkula tkki vtrka muftagntr stýru taumar á tkipt dverga Imitlagðar hendmr tndtkáldtkaptnnl Hlyátö til oráa minna 54 Mál er lofs að lýaa Ijóogarð, er þá eg. barða. már kom heim að hendi hoddændu boð, enda Skalat að grundar Gylfú glauma misfengnir taumar, hlýðið ér til orða, erðgröina, mér verða Egill og Einar héldu vináttu ainni meðan þeir lifðu báðir. En avo er aagt að f*en akjöldurinn um afðir að Egill hafði hann með aér f brúðfor þá er hann fór norður á Vfðimýri með Þorkatli Gunnvaldaayni og þeir Rauða-Bjamaraynir. TrefUI og Helgi. Þá var apillt akildinum og kastað f sýruker. En afðan lét Egill taka af búnaðinn og voru tólf aurar gulls í apöngunum. QO Þorateinn,aon Egila, þá er hannóx upp, var allra manna frfðast- ur aýnum, hvftur á hár og bjartur álitum. Hann var mikill og aterkur og þó ekki eftir þvf sem faðir hans. Þorsteinn var vitur maður og kyrrlétur, hógvar, stilltur manna beat Egill unni honum litið. Þor- steini var og ekki við hann áatóðigt en þau Asgerður og Þorsteinn unn- uat mikið Egill tók þé að eldast mjbg Það var eitthvert lumar er Þorsteinn reiö til alþingis en Egill aat þá heima En áður Þoratemn f«n heiman stilltu þau Aagerður um og tóku úr kistu Egils ailkislæður Arinbjamarnauta og hafði Þorateinn til þinga. Og er hann hafði á þinginu þá voru honum dragafðar og urðu aaurgar neðan þá er þeir voni f Lögbergagóngu Og er hann kom heim þá hirti Aagerður siaðumar þar aem áður voru. En n\jög miklu aíðar þá er Egill lauk upp kiatu sfna þá fann hann aðspillt var slsaðunum og leit- aði þá mála um við Aagerði hverju það gegndi. Hún aagði þá hið sanna til. Þá kvað Egill: 55. Átti eg erfinytja, 6g ám trfingja, toa Ittm var) mér tkkt of arfa mér til þarfan þarfarlóþarfuri Sonmrlminn) ktfurtmk Mig hefr sonr of svikið, iá mug Ufandt Maáunnn mttttt vtt biáa avik tel eg f þvf, kvikan. þtttaðmtnn klMámgrjótiyflrmiglheygðu Vel mjrtti þeae vatna migj. viggriðandi bfða þintr hljód 0/1 tkal km im Hóráaland. * er hafakfða hlæði hljótendr of mig grjóti. Þorsteinn fékk Jófrfðar dóttur Gunnars Hlifarsonar. Móðir hennar var Helga dóttir ólafs feilans, systir Þórðar gellis. Jófrfði hafði átt fyrr Þóroddur son Tungu-Odda. Litlu eftir þetta andaðist Asgerður Eftir það brá Egill búi og seldi f hendur Þorsteini en Egill fór þá suður til Mosfeils til Grfms mágs sfna þvf að hann unni mest Þórdfsi stjúpdóttur sinni þeirra manna er þá voru á lífí Það var eitt sumar að skip kom út f Leiruvogi og stýrði sá maður er Þormóður hét. Hann var norraenn og húskarl Þorateins Þórusonar Hann hafði með að fara skjöid er Þorsteinn hafði sent Agli Skalla- Grímasyni og var það ágaetagripur. Þormóður færði Agli skjöldinn en hann tók við þakksamlega. Eftir um veturinn orti Egil) drápu um skjaldargjöfína er kölluð er Berudrápa og er þetU upphef að: 56. Heyri fúra á forsa HlýA þ fallhadda vinar stalla, Gtfi m< hyggi, þegn, til þagnar *< þinn lýðr, konungs, mína Oft akal amar kjafta örð góð of tröð Hörða, hrafnatýrandi hraera hregna, mfn of fregnaat. Þorsteinn Egilaaon bjó að Borg Hann átti tvo laungetna sonu, Hnflu og Hrafn, en síðan hann kvongaðist áttu þau Jófrfður tfu bóm. Helga hin fagra var þeirra dóttir, er þeir deildu um Skáld-Hrafn og Gunnlaug- ur ormstunga Grfmur var elstur sona þeirra, annar Skúli, þriðji Þor- geir, fjórði Kollsveinn, fímmti Hjorleifur, aétti Halli, sjöundi Egill, átti Þórður Þóra hét dóttir þeirra er átti Þormóður Kleppjámason Frá bömum Þorsteina er komin kynslóð mikil og mart atórmenni. Það er kallað Mýramannakyn allt það er frá Skalla-Grlmi er komið. Q O önundur sjóm bjó að Ánabrekku þé er Egill bjó að Borg. önund ur sjóni átti Þorgerði dóttur Bjarnar hins digra af Sncfells- strönd. Bóm þeirra Onundar voru þau Steinar og Dalla er átti Ogmund- ur Galtaaon, þeirra synir Þorgils og Kormákur Og er önundur gerðist gamall og sýndur Ktt þá seldi hann af hendi bú. Tók þá við Steinar son hana. Þeir feðgar áttu auð fjár Steinar var allra manna mestur og rammur að afíi. Ijótur maður, bjúgur f vexti, fóthár og miðakammur Steinar var uppivöðalumaður mikill og Akafamaður, ódæll og harðfeng- ur, hinn mesti kappsmaður OPNA ÚR HINNI NÝJU ÚTGÁFU ÍSLENDINGASAGNANNA. Kaflinn er úr Egils sögu og eins og sjá má eru vísnaskýringar á nútímamáli viö hlift hverrar vísu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.