Morgunblaðið - 14.12.1985, Síða 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR14. DESEMBER1986
JÓLASYRPA
Myndlist »
Bragi Ásgeirsson
Víða í stórborgum erlendis
rekst maður á litla sýningarsali,
sem hafa á boðstólum hvers
konar listvarning — myndlist,
listiðnað og heimilisiðnað. Sums
staðar eru þessar verslanir næst-
um hlið við hlið í listamanna-
hverfum og maður tekur eftir
því, að stöðugur straumur fólks
er í þær. í þessum sýningarsölum
er nefnilega einungis höndlað
með handunninn varning, sem
verður æ vinsælli á þeirri plast-
öld sem við lifum og hrærumst
í.
Fyrir jólin er sérstaklega
gaman að koma á þessa staði,
þvi að þá er mikil áhersla lögð á
að færa þá í hátíðarbúning —
kertaljós loga víða og boðið er
upp á góðgæti og jafnvel jóla-
glögg á stundum. Innandyra er
vingjarnlegt fólk og brosandi, og
þó ríkir þar engin átroðningur
um sölu á varningnum. Maður
er kvaddur með sömu alúðinni,
hvort sem maður kaupir eða ekki.
Þetta eru vissulega verslanir,
sem fólki líkar við og eru mjög
svo frábrugðnar stórmörkuðum
nútímans með öllum þeim hraða,
er þar ríkir, rafmagnströppum
og manngrúa. í litlu sýningarsöl-
unum og listmunaverslununum
liggur ekkert á — fólk er einung-
is ánægt og glatt, sátt við lífið
og tilveruna og vill lýsa upp sál-
artetur þeirra er inn rekast.
TRÖLLEYKIÐ
Þegar Desmond Bagley lést fyrir
tveim árum kom á daginn að
hann átti nokkur handrit í fórum
sínum. í fyrra kom út í nætur-
villu, sem seldist upp viku fyrir
jól, en hefur verið endurprentuð í
takmörkuðu upplagi.
Nú kemur Trölleykið, sem
dregur nafn af feiknastóru farar-
tæki, sem er notað til flutninga í
Nyala, ríki í V. Afríku.
í Trölleykinu nær Desmond
Bagley hámarki í frásagnasnilld
sinni; hraða í frásögn, baktjalda-
makki og unnum sigri.
Trölleykið er hörkuspennandi
Bagleybók.
SUÐRI
Sumir sýningarsalir hér í borg
hafa reynt að bregða sér í hátíð-
arbúning á undanförnum árum
og nú hefur þeim fjölgað í þeim
mæli, að Reykjavík er að fá yfir
sig eins konar stórborgarbrag að
þessu leyti og vil ég í þessum
línum geta nokkurra þeirra.
- O -
í gallerí Langbrók getur að líta
fjöldann allan af listmunum,
grafíkmyndir, leirmuni, skart-
gripi, teikningar og smámyndir
hvers konar. I nýopnuðu útibúi
gallerísins á horni Bókhlöðustígs
og Laufásvegar hefur verið opn-
uð textíldeild, og þar sýnir m.a.
Steinunn Bergsteinsdóttir mjög
listilega hannaðar flíkur, sem
eru módelverk hver og ein. Vil ég
vekja sérstaka athygli á þeim,
því að hér blómstrar íslenzk list-
hönnun og myndi ég umsvifa-
laust festa mér eina, væri ég af
„sterkara" kyninu ...
- O -
Það var sérstök jólastemmn-
ing er mig bar að garði í Gallerí
Borg á dögunum. Galleríið er nú
eitt um það að halda uppi merki
sölugalleríis á alþjóðamæli-
kvarða, síðan Listmunahúsið
lokaði dyrum sínum fyrir fullt
og allt. Þar eru á boðstólum
grafikmyndir, vatnslitamyndir,
krítarmyndir og olíumálverk
ásamt gleri og keramik. Um leið
stundar það umfangsmikla um-
boðssöiu á myndverkum, og þar
er að finna verk eftir marga
helstu málara þjóðarinnar af
eldri og yngri kynslóð og þarf
Eruð þið hagsýn?
Hytsamar
gjafir
Þeir eru margir sem í gegn um árin hafa notið
góðrar þjónustu Vogue.
Tökum daglega upp nýjar tískuvörur í miklu úrvali.
Jóladúkar, jólaefni.
Gardínu- og fataefni.
Rúmfataefni úr bómull og damaski.
Rúmteppi og efni úr indverskri bómull,
einnig vattstungin rúmteppaefni.
Dúkar úr bómull og púðar úr bómull og silki.
Rúmföt, veggteppi og gólfmottur.
Södahl dúkar, diskamottur og ýmsir smáhlutir eins og
kökubox, kertastjakar, glasabakkar og fleira.
búðirnar
digra sjóði til að festa sér sum
þeirra.
- O -
Þá ber að nefna Verkstæði V í
Þingholtsstræti 28, þar sem
fimm einstaklingar vinna á
staðnum að gerð textílverka
hvers konar, aðallega ofin og
þrykkt. Þar getur að líta fatnað,
gluggatjöld, dregla og myndverk.
Nokkrir vefstólar eru á staðnum
og er einkar skemmtilegt að líta
þar inn, því að stemmningin er
svo hlýleg. Ég hef ekki getað
komið því við að geta þessa
ágæta framtaks fyrr og vil hér
upplýsa, að eigendurnir eru allir
nýútskrifaðir nemendur úr text-
íldeild Myndlista- og handíða-
skóla íslands. Er hér um sjálfs-
bjargarviðleitni að ræða, sem
fróðlegt verður að fylgjast með,
hvernig gengur, en víst er, að hún
á fullan rétt á sér og varningur-
inn er hinn girnilegasti.
Svo vil ég minna á verzlanir ís-
lenzks heimilisiðnaðar, þar sem fá
má mikið úrval hvers konar list-
og heimilisiðnaðar, sem íslenzk-
ar hendur hafa farið um og mót-
að af alúð og listfengi.
— Það sem máli skiptir og er
kveikjan að þessu skrifi er mikil-
vægi þess, að fólk geri sér ljóst,
hve mikilvægt er að lyfta undir
og styrkja íslenzka list — listiðn-
að svo og heimilisiðnað til að
þetta allt verði það, sem stefnt
er að, — á heimsmælikvarða að
gæðum. Hér hefur markinu verið
náð í sumum tilvikum, en við
þurfum að gera betur, langtum
betur og getum gert betur.
- O -
Loks vil ég geta þess í leiðinni,
að inn úr dyrunum var að berast
dagatal Eimskips 1986 með for-
kunnarfögrum ljósmyndum í lit
eftir hinn nafnkennda listamann
í því fagi Rafn Hafnfjörð. Mynd-
irnar eru hugsaðar sem eins
konar óður til landsins, og það
eru þær sannarlega og eru höf-
undinum, útgefandanum og
prentverkinu, sem er Kassagerð
Reykjavíkur, til mikils sóma.
esið
reglulega af
ölmm
fjöldanum!