Morgunblaðið - 28.12.1985, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985
Náttúrufræðidagur/ fuglatalningardagur
Fuglaskoðarar við
talningu á Garðskaga
Sunnudaginn 29. desember 1985
verður haldinn síðasti náttúru-
fræðidagur ársins, sá 8. á þessu
ári. Áhugahópur um byggingu
náttúrufræðisafns hefur staðið að
þessum kynningardögum, þar sem
teknir eru fyrir ýmsir þættir úr
ríki náttúrunnar, svo og dæmi um
starfsemi væntanlegs safns. Til
dæmis má telja sýningar, fræðslu-
ferðir og eins og nú, samstarf
áhugamanna og vísindamanna við
rannsóknir. Tilgangurinn með
náttúrufræðidögunum er að vekja
athygli ráðamanna og almennings
á nauðsyn þess, að byggt verði
alhliða, nútímalegt náttúrufræði-
safn, þar sem aðstaða er til sýn-
inga á ýmsu því sem við kemur
náttúrunni, svo og til ýmissa rann-
sókna.
Að þessu sinni ber náttúrufræði-
daginn upp á sama dag og fugla-
áhugamenn halda árlegan talning-
ardag. Fuglatalningardagar eru
haldnir ár hvert, oftast milli jóla
og nýárs. Hefur svo verið síðastlið-
in 33 ár, eða frá árinu 1952. Þetta
er eini dagurinn sem segja má að
sé almennt útkall meðal fuglaskoð-
ara á öllu landinu í einu. Alls taka
50—60 áhugamenn þátt í þessum
talningum.
Hvers vegna fuglatalningar?
Tilgangur þess að telja fugla að
vetrarlagi er einkum þríþætttur:
1) Að kanna hvaða fuglategundir
lifa í landinu um hávetur.
2) Að kanna hversu algengar hinar
ýmsu tegundireru.
3) Að fylgjast með ástandi fugla-
stofna, hvort fuglum fækki, fjölgi
eða hvort stofnar standi í stað.
Fuglatalningar af þessu tagi
gefa þverskurð af því fuglalífi sem
hér er á þessum árstíma. Sá mis-
skilningur hefur komið upp meðal
þeirra sem þekkja ekki nægilega
til, að taldir séu allir fuglar í
landinu. Slíkt er vitaskuld ógjörn-
ingur, enda athugendur sárafáir,
landið stórt og hver talningarmað-
ur kemst aðeins yfir takmarkað
svæði.
Hvernig fara talningar fram?
Talningar fara þannig fram:
Valinn er hentugur dagur, en talið
er sama daginn um land allt. Tekið
er mið af því, hvenær flestir at-
hugendur eiga frí frá sínum dag-
legu störfum. Talningarsvæðin eru
ákveðin fyrirfram. Birtan tak-
markar hversu lengi er hægt að
telja hinn valda dag, en birtu-
tíminn er ekki nema 5—6 klukku-
stundir á þessum árstíma. Talning
hefst í dagrenningu og talið óslitið
fram í myrkur. Veður ræður að
sjálfsögðu miklu um hvernig til
tekst, og oft er kalsasamt við þessa
iðju. Stundum verður að telja á
öðrum degi en þeim sem hafði
verið ákveðinn vegna veðurs. Á
þessum tíma komast menn yfir um
3—8 kmz svæði.
Hvað á e.ð gera á Náttúrufræðidag-
inn?
Á náttúrufræðidaginn 29. des-
ember er öllum sem vilja boðin
þátttaka í fuglatalningu. í stað
þess að leita langt yfir skammt,
skulu þátttakendur taka upp kík-
inn og skoða fuglana í næsta ná-
grenni sínu. Þátttakendur skulu
hafa eftirfarandi hluti við hönd-
ina: kíki, fuglabók (besta bókin
sem til er á íslensku til að greina
fugla er Fuglar íslands og Evrópu,
öðru nafni Fuglabók AB), vasabók
(eða blað) og blýant.
Þátttakendur skoða ákveðið
afmarkað svæði í nágrenni síns
heima, t.d. garðinn við húsið,
næsta nágrenni sveitabýlis,
ströndina neðan við húsið. Á þessu
svæði er leitað að öllum fuglum
og reynt að finna hvað þeir heita.
Rita skal i bókina allar fuglateg-
undir sem sjást og hve margir eru
af hverri tegund. Ef fuglahópur
er svo stór að ekki er hægt að telja
fuglana, má giska á hve margir
þeir eru. í stað þess að telja allan
tímann meðan birta endist (eins
og margir fuglaskoðarar gera) skal
aðeins talið tvisvar sinnum meðan
bjart er, kl. 12 og kl. 15.
Þeir sem taka þátt í talningunni
skulu rita athuganir sínar skipu-
lega á blað á þennan hátt: Fugla-
talning 29.12.1985 og síðan
1) lýsa svæðinu sem var athugað,
hvar það sé og hvað stórt,
2) gera lista yfir allar fuglateg-
undir sem sjást og hve margir
fuglar (ef þeir eru taldir),
3) rita nafn sitt og heimilsfang.
Blaðið er sfðan sent til Náttúru-
fræðistofnunar íslands, Pósthólf
5320, 125 Reykjavík. Þeir sem
senda inn athuganir sínar munu
fá sent yfirlit yfir fuglatalninguna,
þegar allar skýrslur hafa borist
og búið er að taka upplýsingarnar
saman.
Er fjölskrúðugt fuglalíf hér á vet-
urna?
Margir halda, að þegar sumarið
er búið og vetur gengur í garð,
hverfi nánast allir fuglar brott til
suðlægari landa og sjáist ekki fyrr
en næsta vor. Þessi hugmynd á
eflaust rætur sínar að rekja til
þess tíma, er flestir bjuggu á
sveitabýlum inn til landsins áður
fyrr. Þar er vissulega fábreytt
fuglalíf á veturna, nema þar sé
opið vatn. Ef það er ekki til staðar,
má nánast segja að þar sjáist varla
fleiri tegundir en rjúpa, hrafn og
snjótittiingur, e.t.v. einmana fálki.
Út til sjávarins og þar sem vatn
helst íslaust er hins vegar mun
meiri fjölbreytni og fuglafjöldi
langtum meiri. Það kemur víst
ýmsum á óvart, að alls hafa sést
í þessum talningum um 100 fugla-
tegundir. Þó eru aðeins liðlega 70
tegundir sem verpa hér á landi
reglulega. Því er þó við að bæta,
að meiri hluti þessara tegunda er
sjaldgæfur og skipta því litlu í
fuglalífi íslands. Það eru engu að
síður rúmlega 40 tegundir sem
fuglalíf íslands að vetrarlagi bygg-
ist á.
Þær tegundir sem helst er von
á að sjá eru taldar hér á eftir, en
það fer mjög eftir hvar skoðandinn
á heima (inni í landi, út við sjó, í
þéttbýli): lómur, himbrimi, flór-
goði, fýll, dílaskarfur, toppskarfur,
álft, stokkönd, urtönd, rauðhöfða-
önd, húsönd, hávella, straumönd,
æðarfugl, gulönd, toppönd, fálki,
smyrill, rjúpa, tjaldur, fjöruspói,
stelkur, tildra, hrossagaukur,
sendlingur, silfurmávur, svart-
bakur, hvítmávur, bjartmávur,
hettumávur, rita, teista, músar-
rindill, svartþröstur, gráþröstur,
skógarþröstur, snjótittlingur,
auðnutittlingur, stari, hrafn.
Að endingu hvetjum við alla sem
vettlingi geta valdið til þess að
taka þátt í fuglatalningunni. Þetta
er tilvalið tækifæri fyrir unga sem
aldna að líta upp úr jólabókunum
stutta stund og fá sér ferskt loft.
Ekki má gleyma því, að börnin
geta líka hjálpað til.
Ahugahópur um byggingu
náttúríræðisafns.
Fuglaskoðarar við talningu i Garðskaga. Gamli Garðskagavitinn í baknýn.
Neðstaleiti 2—4 í nýja miöbænum.
Verkamannabústaðir í Reykjavík:
Fyrstu íbúðirnar í
Neðstaleiti afhentar
STJÓRN Verkamannabústaða í
Reykjavík afhenti fyrstu átta íbúð-
irnar í Neðstaleiti 2—4 í nýja mið-
bænum sl. föstudag, en þar hafa
vcrkamannabústaðir byggt 31 íbúð.
íbúðirnar voru afhentar fullfrá-
gengnar að utan og innan með frá-
genginni lóð og bílskýli í kjallara
Áætlað söluverð tveggja her-
bergja íbúða er um 2 milljónir
króna, þriggja herbergja íbúða um
3,3 milljónir og fjögurra herbergja
um 3,6 milljónir. Fyrir stæði í
bílskýli greiðist 200 þúsund krón-
ur.
Rétt til íbúðakaupa hafa þeir
einir sem eiga lögheimili í Reykja-
vík, eiga ekki íbúð fyrir, og fara
ekki yfir tekjumörk sem eru kr.
318.000 þ.e. meðaltal nettótekna
sl. þriggja ára að viðbættum kr.
29.000 fyrir hvert barn innan 16
áraaldurs.
Greiðslukjör eru með þeim hætti
að kaupandi greiðir 10% af íbúðar-
verði fyrir afhendingu, en 90%
sem eftir eru greiðast á 43 árum
með 1 % vöxtum og verðtryggingu.
Hönnun íbúðanna annaðist
Tæknideild Húsnæðisstofnunar
ríkisins. Útboð, umsjón og bygg-
ingaeftirlit önnuðust verkamanna-
bústaðir. Aðalverktaki við bygg-
ingunaerRöst hf.
Aðrar framkvæmdir verka-
mannabústaða eru 137 íbúðir á
Ártúnsholti og er afhending þeirra
vel á veg komin. Vinna er hafin
við 108 íbúðir í Grafarvogi og verða
fyrstu íbúðir þar væntanlega af-
hentar seinnipart árs 1986.
15 styrkjum úthlutað til
framhaldsnáms í Bretlandi
FIMMTÁN íslenzkir nemcndur stunda nú framhaldsnám í háskólum og
öðrum æðri mcnntastofnunum í Bretlandi án þess að þurfa að greiða skóla-
gjöld. Af þeim hlutu 13 styrk frá FCO (utanríkisráðuneytinu brezka) en
hinir tveir eru styrktir af British Council. í öllum tilfellum nema styrkirnir
upphæð sem nægir til að greiða öll skólagjöld í heilt skólaár og sparast
þannig að jafnaði £3.800 eða um kr. 230.
Heildarupphæð styrkja sem
brezk stjórnvöld veita að þessu
sinni er £56.613 eða um 3,4 milljón-
ir króna.
Námsgreinar sem styrkþegar
stunda spanna breitt svið, frá fisk-
eldi til flugréttar svo og frá klín-
ískri sálarfræði til kvikmynda-
tækni. Styrkþegarnir eru: Elísabet
Sigríður Magnúsdóttir — £4.350
eða um 261.000 ísl. kr. til að nema
næringarfræði við Lundúnahá-
skóla. Sigurður Örn Hansson —
£4.350, eða um 261.000 ísl. kr.,
kjötvísindi, Bristolháskóla. Sig-
urður Grendal Magnússon —
£4.925 eða um 297.500 ísl. kr., fisk-
eldi og eldisstjórnun, Stirling-
háskóla. Birgir Ómar Haraldsson
— £3.700 eða um 222.000 ísl. kr.,
skipaútgerð og fjármál, Cityhá-
skóla. Guðrún Nordal — £4.301 eða
um 258.060 ísl. kr., enskar bók-
menntir og fornnorræna, Oxford-
hásk. Gunnar Ágúst Gunnarsson
— £3.150 eða um 189.000 ísl. kr.,
stjórnarfar, LSE. Björg Bjarna-
dóttir — £3.300 eða um 198.000
ísl. kr., sálarfræði, Stirlinghá-
skóla. Ásthildur Kjartansdóttir —
£3.627 eða um 217.620 ísl. kr.,
kvikmyndun og sjónvarp, Middle-
sex Polytechnic. Ingvar Sigur-
geirsson — £3.700 eða um 222.000
ísl. kr., kennslufræði, Sussexhá-
skóla. Laufey Arnardóttir —
£3.310 eða um 198.600 ísl. kr., nú-
tímaenska, Lundúnaháskóla. Nína
Margrét Grímsdóttir — £3.500 eða
um 210.000 ísl. kr., píanónám (
einkakennslu. Elín Jórunn Bjarna-
dóttir — £3.410 eða um 204.600
ísl. kr., fornmál og fornsagnfræði,
St. Andrewsháskóla. Jón Þorarins-
son — £3.310 eða um 198.600 ísl.
kr., flug- og geimréttur, Lundúna-
háskóla. Ivar Jónsson — £3.600
eða um 216.000 ísl. kr., félagsfræði,
Sussexháskóla.
,000 hjá hverjum og cinum.
Um þessar mundir er auglýst
eftir umsóknum um styrki vegna
skólaárs 1986—87, en umsóknir
eiga að berast brezka sendiráðinu
fyrir 15. mars nk. Styrkirnir eru
ætlaðir til greiðslu kennslugjalda,
að hluta eða að fullu, vegna fram-
haldsnáms eða rannsókna við
brezka háskóla, fjölfræðastofnun
(polytechnic) eða aðra æðri
menntastofnun. Umsækjendur
skulu hafa lokið háskólaprófi og
skulu útvega sér námspláss sjálfir.
Umsóknareyðublöð og nánari upp-
lýsingar fást í sendiráðinu.
Nefnd háskólarektora í Bret-
landi úthlutar á hverju ári styrkj-
um vegna ' rannsókna erlendra
fræðimanna. Upplýsingar um
styrki þessa (sem nefnast „ORS-
styrkir") fást í Háskóla íslands,
Kennaraháskóla íslands, í
menntamálaráðuneytinu svo og í
sendiráðinu.
(FrétUtilkynning)
Flugelda-
sýning
hjá KR
ÁRLEG flugeldasýning KR verður
haldin á KR-svæðinu laugardaginn
28. desember kl. 17.30 og hafa verið
fluttir inn sérstakir flugeldar fyrir
sýninguna.
Sýningin hefst stundvíslega kl.
17.30 og er fólk hvatt til að mæta
tímanlega því ekki verður hægt
að hleypa áhorfendum inn á gras-
vellina vegna umgangs sýningar-
innar.
(KrótUCilkTnninK)
•nsrv
w»n