Morgunblaðið - 28.12.1985, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985
„Ég sá konu deyja
af sárum sínum“
Frásagnir sjónarvotta af árásinni í Róm
Torino, 27. desember. Frá Brynju Tomer, fréttaritara Morjfunbladsin.s.
„ÉG VAR staddur þar sem vegabréfsskoðunin fer fram þegar ég heyrði
feiknlegan sprengjugný. Síðan hófst skothríð, sem varði í þrjár til fjórar
mínútur. Ég kastaði mér kylliflötum og hreyfði mig ekki fyrr en tiikynnt
var að allt væri um garð gengið. Ringulreiðin var alger og allt í kring um
mig sá ég slasað fólk, lík og blóðpolla. Þetta var ótrúlegt, hreint helvíti."
Þannig hljóðar frásögn Andrea, lítils drengs, sem staddur var í brottfararsal
flugvallarins í Róm í morgun, er arabískir hryðjuverkamenn gerðu árás á
flugstöðina.
„Ég fleygði mér í gólfið þegar
sprengjurnar sprungu," sagði þrít-
ugur maður, sem slasaðist í árás-
inni og rætt var við í fréttum ít-
alska ríkissjónvarpsins í dag. „Ég
var með eins og hálfs árs gamlan
son minn og hugsaði fyrst og
fremst um að ekkert kæmi fyrir
hann. Ég var staddur við flug-
stöðvarbarinn og hafði nýlokið við
að drekka kaffibolla þegar ólætin
hófust. Ég geri mér ekki grein fyrir
hversu lengi árásin varði, en ég
fékk skot í lærið og verð sennilega
skorinn upp í dag. Ég sá þegar
einn hryðjuverkamannanna var
fluttur slasaður burt, en við hlið-
ina á mér sá ég konu deyja af sár-
um sínum og allt í kringum mig
lá slasað fólk og lífvana líkamar.
Þetta var hræðileg lífsreynsla og
ég vona að ég lendi aldrei aftur í
öðru eins.“
„Lögreglan og öryggisverðir
flugvallarins brugðust mjög fljótt
og vel við,“ segir fertugur maður,
sem var á leið til Bandaríkjanna
ásamt konu sinni, er árásin dundi
yfir: „Við hjónin vorum nálægt
barnum þegar fyrsta sprengjan
sprakk og við lögðumst strax í
gólfið, sem sennilega varð okkur
til lífs því allt í kringum okkur
sáum við fólk liggja í blóði sínu.“
Atburður þessi hefur að vonum
vakið óhug hjá ítölum, sem orðið
hafa að þola margar árásir
arabiskra hryðjuverkamanna á
þessu ári.
Bettino Craxi, forsætisráðherra
Ítalíu, sagði við fréttamenn í dag
að eftir atburð þennan í Róm og
samskonar árás í Vín væri óhjá-
kvæmilegt að Evrópuþjóðir tækju
sig saman um að vinna bug á
hryðjuverkastarfsemi og verjast
hermdarverkum. Craxi vottaði
aðstandendum hinna látnu samúð
sína og var mjög harðorður í garð
hryðj uverkamanna.
AP/Símamynd
Látnir farþegar liggja á gólfinu við barinn í flugstöðvarbyggingunni á Leonardo da Vinci-flugvelli í Róm eftir árás
hryðjuverkamanna.
Hryðjuverkin á flugvöllunum í Vín og Róm:
Nýlega hafði verið var-
að við hryðiuverkum
Wa.shinpton, Róm. London. 27. desember. AP.
Washington, Róm, London, 27. desember. AP.
BANDARÍKJASTJÓRN sendi ríkisstjórnum í Evrópu viðvaranir í nóvem-
berlok þar sem varað var við hryðjuverkum á helztu flugvöllum á Miðjarð-
arhafssvæðinu og Miðausturlöndum. í viðvöruninni var sagt að ástæða virt-
ist til að vera á varðbergi gagnvart hermdarverkamönnum. í gær myrtu
arabískir hryðjuverkamenn 16 menn með köldu blóði á flugvöllunum f Róm
og Vín og særðust a.m.k. 90 til viðbótar.
Bandarískur embættismaður
sagði viðvörun hafa verið gefna út
í nóvemberlok þar sem vísbending-
ar hefðu þá þegar verið fyrir hendi
Gengi gjaldmiðla
BANDARÍKJADOLLARI féll í dag
gagnvart ýmsum helztu gjaldmiðlum
heims. Þannig varð gengi hans
lægra gagnvart vestur-þýzka mark-
inu en nokkru sinni síðan í maí
1983.
Síðdegis í dag kostaði sterlings-
pundið 1,4350 dollara (1,4250), en
annars var gengi doilarans þannig,
að fyrir hann fengust 2,4765 vest-
ur-þýzk mörk (2,5060), 2,0915
svissneskir frankar (2,1065), 7,6075
franskir frankar (7,6810), 2,7900
hollenzk gyllini (2,8280), 1.691,00
ítalskar lírur (1.711,75), 1,4005
kanadískir doliarar (1,3942) og
202,40 jen (202,90).
Gullverð hækkaði og var verð
þess 326,70 dollarar únsan (325,00
dollarar).
um að arabískir hryðjuverkamenn
myndu senn láta til skarar skríða
á flugvöllum. Á aðfangadagskvöld
gaf alþjóðalögreglan Interpol út
samskonar viðvörun þar sem yfir-
völd voru hvött til sérstakrar
aðgæzlu vegna gruns um að arabí-
skir hryðjuverkamenn myndu
grípa til ódæðisverka.
Af þessum sökum var öryggis-
gæzla stórlega efld á flugvöllum
og járnbrautastöðvum víðs vegar
í Evrópu, en að sögn lögregluyfir-
valda í Rómaborg var ekkert lög-
reglueftirlit í aðalafgreiðslusaln-
um á Leonardo da Vinci-flugvellin-
um, þar sem 13 manns voru vegnir
og yfir 60 særðust í vélbyssuskot-
hríð og handsprengjuárás hryðju-
verkamannanna. Vopnaðir verðir
voru víðs vegar annars staðar á
flugvellinum, m.a. þar sem farang-
ur er skoðaður og við brottfarar-
dyr.
Hryðjuverkamenn hafa margoft
látið til sín taka á flugvellinum í
Rómaborg, en árásin í morgun er
ein sú mannskæðasta. Árið 1973
voru þó 32 vegnir er fimm arab-
ískir hryðjuverkamenn sprengdu
flugvél frá Pan American-flug-
félaginu í loft upp.
Hraungos í Etnu
KaUníu, Sikiley, 27. desember. AP.
HRAUNGOS hófst í Etnu, virkustu eldstöð Evrópu, á miðvikudag, en gos-
inu lauk á fimmtudag. Vart varð jarðskjálfta í dag og er enn hættuástand
í nágrenni fjallsins.
Gosið varð í suðausturhlíðum
Etnu og streymdi hraun niður
hlíðar fjallsjns. Maður beið bana
og 12 manns slösuðust er hótel í
norðausturhlíðum fjallsins hrundi
í jarðskjálfta í upphafi gossins.
Styrkleiki skjálftans mældist 5
hótelið
og því
Beðið fyrir friði
um allan heim
Oaldarseggir eyðileggja jólatréð á Ráðhústorginu
New York; 27. desember. AP.
PÍLAGRÍMAR hvaðanæva úr heiminum sóttu um jólin helga staði heim
og krístnir menn í Kína og á öðrum fjarlægum stöðum héldu jólin hátíð-
leg með bænahaldi fyrir friði á jörðu. f El Salvador og Uganda þaggaði
vopnahlé niður í geltandi byssum- a.m.k. um sinn.
Klerkar, embættismenn og
pílagrímar komu saman á torgi
jötunnar í Betlehem fyrir dögun
á jóladag og kirkjuklukkur
hringdu til minningar um fæð-
ingu frelsarans.
Hermenn gerðu vopnaleit á
hverjum gesti í Betlehem, sem
er að 60 prósentum byggð af
múhameðstrúarmönnum. Betle-
hem hefur nú verið undir stjórn
ísraela nítján jól.
Um tvöþúsund tilbiðjendur
hlýddu á messu í kirkju heilagrar
Katrínar í Betlehem. Fyrir utan
kirkjuna sungu þúsundir manna
með, margir með kerti í hendi.
Kirkjan er reist yfir smáhelli,
sem kristnir telja að sé fæðingar-
staður Krists.
f Nazaret, þar sem Biblían
kennir að heilagur engill hafi
birst Maríu mey og boðað henni
fæðingu Jesú, sóttu 3.500 manns
guðsþjónustu í kirkju Boðunar
Maríu.
Jóhann Páll páfi II flutti á
jóladag boðskap sinn af svölum
Péturskirkjunnar í Róm til
heims, sem hann sagði þjakaðan
af mannréttindabrotum, hung-
ursneyð, kúgun og þjáningu.
Þrjátíu þúsund manns hlýddu á
ræðu páfa á Péturstorginu í
Vatikaninu. Jóhannes Páll skor-
aði á heiminn að láta ekki blekkj-
ast af tíbrá og tálsýnum fram-
fara, sem virtu að vettugi al.lt
siðgæði og væru aðeins til að
auka efnisleg gæði til skamms
tíma.
Margir viðstaddra slepptu
bleikum blöðrum til himins og
klöppuðu þegar páfi óskaði gleði-
legra jóla á þjóðtungu þeirra.
Páfi óskar gleðilegra jóla á 51
tungumáli á jóladag.
Stjórnin í Uganda og kirkju-
leiðtogar þar þökkuðu vopna-
hléssamning, sem undirritaður
var í síðustu viku og ætlað er að
binda enda á fimm ára átök við
skæruliða Hers þjóðarandstöð-
unnar. „Jólin eru að þessu sinni
friðargjöf til allra þeirra, sem
starfa af heilindum," sagði Tito
Okello, leiðtogi herforingja-
stjórnarinnar í Uganda.
Tíu daga vopnahléi var komið
á í E1 Salvador yfir hátíðirnar.
Þar hafa vinstrisinnaðir skæru-
liðar barist gegn stjórninni í sex
ár. Stjórnin samþykkti vopna-
hléð, sem leiðtogar rómversk-
kaþólsku kirkjunnar í E1 Salva-
dor hvöttu til, á þriðjudag, en
skæruliðar ákváðu að leggja
niður vopn á sunnudag.
Á Indlandi sungu milljónir
kristinna manna jólalög á jóla-
dag. Tuttugu og þrjár milljónir
Indverja eru kristnar. Jóhannes
Páll páfi heldur í febrúar til
Indlands.
í Bei Tang- dómkirkjunni í
Peking hlýddu fjögur þúsund
bæði innlendir og erlendir kaþó-
likkar á messu. Bei Tang- dóm-
kirkjan var nýlega opnuð aftur
sem guðshús eftir að hafa verið
vöruhús og skóli frá því að
Kommúnistaflokkurinn lokaði
henni 1958.
í Wackersdorf í Vestur-Þýska-
landi lögðust mörghundruð
manns á bæn til að mótmæla því
að reisa á fyrstu vestur-þýsku
verksmiðjuna til að endurvinna
kjarnorkuúrgang. Mótmælaalda
hefur gengið yfir Þýskaland eftir
að stefnu umhverfisverndar-
sinna gegn því að endurvinnslu-
stöðin yrði reist var hafnað í
rétti. Vinna hefst við stöðina á
næsta ári.
Ekkert jólatré var á Ráðhús-
torginu í Kaupmannahöfn á jóla-
dag. Að sögn lögreglu söguðu
óprúttnir æringjar um átta
metra ofan af trénu á Þorláks-
messu. Þar sem ekki var hægt
að bæta skaðann var tréð tekið
niður á aðfangadag. Danska lög-
reglan er ráðþrota og grunlaus
um hver framdi verknaðinn.
stig á richter-kvarða, en
stóð í skjálftamiðjunni
hrundi það til grunna.
Hundruð manna flúðu heimili
sín við fjallið er þrír skjálftakippir
fundust í morgun. Sterkasti kipp-
urinn mældist 4 á richter en
sprungur komu í húsveggi og mikil
skelfing greip um sig. Hættu-
ástandi hefur verið lýst fram yfir
helgina á gosstöðvunum.
Veður
L»g>t Hsest
Akureyri -6 alskýjaö
Amjterdam 1 5 skýjað
Aþena 8 16 skýjað
Barcelona 15 léttskýjað
Berlín 4 skýjað
BrUssel 6 rigning
Chicago -19 -1 skýjað
Dublín 3 5 heiðskírt
Feneyjar 6 þokumóða
Frankfurt 6 10 rigning
Qenf 3 9 rigning
Helsinki +7 3 heiðskírt
Hong Kong 15 20 skýjað
Jerúsalem 4 10 rigning
Kaupmannah. +4 6 heiöskirt
Laa Palmas 20 alskýjað
Lissabon 9 15 úrkoma
London 2 4 heiðakírt
Los Angeles 10 22 skýjað
Lúxemborg 3 alskýjað
Malaga 1« alskýjað
Mallorca 16 skýjað
Miami 5 14 skýjað
Montreal -r-26 +15 snjókoma
Moskva +3 +1 skýjað
NewYork -5-9 +4 skýjað
Osló -5-14 +7 heiðskírt
Paris 3 11 skýjað
Peking +8 0 heiðskirt
Rsykjavík +7 léttskýjað
Ríóde Janeiro 19 22 skýjaö
Rómaborg 10 16 rigning
Stokkhólmur +15 +10 heiðakfrt
Sydney 19 25 heiðskírt
Tókýó 4 13 heiðskirt
Vinarborg 1 3 skýjað
Þórshöln +4 alskýjaö