Morgunblaðið - 28.12.1985, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985
21
„Tóm vitleysa
að tefla aftur“
Kasparov gagnrýnir áskorunarrétt Karpovs
Mosltvu, 27. desember. AP.
GARRI Kasparov, heimsmeistari í skák, sagöi í dag að það væri út í hött
aö hann þyrfti að tefla aftur við Anatoli Karpov, landa sinn og keppinaut,
um heimsmeistaratitilinn í skák í febrúar.
Kasparov, sem vann titilinn 9.
nóvember, gagnrýndi Alþjóðlega
skáksambandið (FIDE) fyrir að
breyta reglunum um heimsmeist-
araeinvígi þrisvar sinnum á fimm
árum í samtali við TASS-frétta-
stofuna, sovésku.
í viðtalinu lagði Kasparov
áherslu á að hann væri ekki and-
ófsmaður og veittist að því, sem
hann kallaði ögrandi tilraunir
vestrænna fjölmiðla til að segja
sig gagnrýnanda stjórnarfarsins í
Sovétríkjunum.
Kasparov sagði að lýjandi átök
sín við Karpov á skákborðinu gætu
orðið til þess að Hollendingurinn
Jan Timman yrði næsti heims-
meistari í skák og Sovétmenn
misstu þar með skákkrúnuna út
fyrir landsteinana.
Karpov skoraði 5. desember á
Kasparov og há þeir einvígi sitt í
febrúar. Kasparov hefur ekki tjáð
sig um ákvörðun Karpovs opin-
berlega fyrr en í dag í viðtali sem
TASS-fréttastofan átti við hann í
Bonn í Vestur-Þýskalandi.
„Að minni hyggju er það tóm
vitleysa að við skulum tefla aftur,"
var haft eftir Kasparov. „Fyrsta
einvígið var stöðvað af „mannúð-
arástæðum" að því er sagt var.
En það er varla hægt að segja það
skynsamlega ákvörðun að halda
enn eitt einvígi þremur mánuðum
eftir að öðru einvíginu lauk og því
næst eitt einvígi um heimsmeist-
Kasparov
aratitilinn til viðbótar áður en árið
1986 er á enda,“ sagði Kasparov.
Kasparov sagðist hafa samþykkt
reglur FIDE um að Karpov fengi
heimsmeistaratitilinn ef hvor
þeirra um sig hefði tólf vinninga
að síðasta einvígi loknu og Karpov
fengi rétt til að tefla aftur um
titilinn ef'hann tapaði. En hann
sagði að hefði hann ekki fallist á
þessar reglur hefði ekki verið um
neitt einvígi að ræða og gaf í skyn
að FIDE hefði þar með talið að
hann hefði fyrirgert áskoranda-
rétti sínum og Karpov sjálfkrafa
haldið heimsmeistaratitli sínum.
Felipe Gonzales um aðild Spánar að NATO:
Evrópuríkin leggja áherzlu
á áframhaldandi aðild
Selja ófædd börn
sín á 460.000 kr.
OFRÍSKAR konur í Danmörku selja barnlausum hjónum ófædd
börn sín á yfir 100.000 dkr. (um 460.000 ísl. kr.). Frá þessu segir
í danska blaðinu Aktuelt á þriðjudag. Verslun með börn er ólög-
leg, en sölunni er komið í kring með því að sniðganga ýmis
ákvæði ættleiðingarlaganna, að sögn blaðsins.
Salan eða ættleiðingin eins
og hún er kölluð á pappírunum,
fer þannig fram að konan lýgur
til um faðerni barnsins. Sam-
kvæmt samningi sem hún hef-
ur undirritað, gefur hún upp
nafn manns þess sem ætlar að
ættleiða barnið, og segir hann
kynföður þess. Getur ættleið-
ingin þá farið fram án rann-
sóknar og samþykkis yfirvalda
eins og annars þyrfti til.
Erik Ninn-Hansen dóms-
málaráðherra hefur nú í undir-
búningi lagabreytingu, sem
m.a. á að koma í veg fyrir, að
auglýst sé eftir „leigumæðr-
um“, en Bo Warmning, sem
haft hefur milligöngu um sölu-
mál þessi, segir, að ráðherran-
um muni seint takast að setja
undir allan leka.
— Ef bannað verður að
auglýsa gerir það okkur vissu-
lega erfiðara fyrir um að
komast í samband við mæðurn-
ar, segir Warmning í samtali
við Aktuelt. — En þetta berst
skjótt frá manni til manns, og
það verður hægara ort en gjört
að breyta löggjöfinni þannig,
að komið verið í veg fyrir
ættleiðingu eins og við stönd-
um að henni.
Hann segir, að mæðurnar fái
frá 25.000 dkr. (um 115.000 ísl.
kr.) upp í 150.000 dkr. (um
690.000 ísl. kr.) fyrir með-
gönguna og kveðst hafa margt
barnlaust fólk sem vilji ætt-
leiða börn með fyrrnefndum
hætti.
Warmning hefur nýlega
tryggt sér auglýsingabás í
nokkrum blöðum, þar sem
hann mun óska eftir að komast
í samband við „leigumæður“,
en mörg blöð hafa neitað að
birta slíkar auglýsingar, m.a.
Aktuelt, Politiken, Ekstra
Bladet, Alt for Damerne og
Information. Meðal þeirra
blaða sem samþykkt hafa birt-
ingu auglýsinganna, eru BT,
Berlingske Tidende, Den blá
Avis og nokkur héraðsblöð.
PLO vill fá
Madríd, 27. desember. AP.
FELIPE Gonzales, forsætis-
ráðherra Spánar, sagði í sjón-
varpsviðtali í gær, að ríki
Vestur-Evrópu legðu á það
áherzlu að Spánverjar héldu
áfram aðild að Atlantshafs-
bandalaginu. Þjóðaratkvæða-
greiðsla um aðild Spánar að
NATO verður haldin í marz
eða aprfl á næsta ári.
Gonzales sagði að friður
hefði haldizt í Evrópu frá lok-
um heimsstyrjaldarinnar
vegna „einarðrar samstöðu"
ríkja Vestur-Evrópu. Hann
sagði leiðtoga ríkja Evrópu-
bandalagsins telja aðild Spán-
ar að NATO mjög mikilvæga
fyrir öryggi í Evrópu.
Gonzales sagði að staðið yrði
Sovétríkin:
Aðstoðarforsætisráð-
herra leystur frá störfum
Moskvu, 27. desember. AP.
VENIAMIN Dymshits, sovcskur aðstoöarforsætisróðherra, æðsti ráðgjafi
Leonid Brezhnev, fyrrum leiðtoga Sovétríkjanna, og formaður þróunar-
nefndar gas- og olíumála í Síboríu, var leystur frá störfum á laugardag, að
sögn hinnar opinberu fréttastofu TASS.
Dymshits, sem er 75 ára að
aldri, hafði gegnt embætti aðstoð-
arforsætisráðherra í 23 ár og var
eini gyðingurinn, sem opinberlega
er vitað um, að náð hafi upp í efstu
þrep stjórnkerfisins.
Dymshits er sjöundi af tíu að-
stoðarforsætisráðherrum, sem
leystir hafa verið frá störfum, frá
því að Mikhail S. Gorbachev Sovét-
leiðtogi tók við stjórntaumunum í
marsmánuði.
TASS tilkynnti að æðstaráðið
hefði tilnefnt Yuri Batalin, sem
unnið hefur við stjórnunarstörf í
gas- og olíuiðnaðinum, til að taka
við embættinu. Þegar fréttastofan
hafði tíundað starfsreynslu Batal-
ins og menntun, bætti hún við stutt
og laggott, að Dymshits hefði
„verið leystur frá störfum í sov-
ésku ráðherranefndinni" jafn-
framt því sem hann léti af ráð-
herradómi.
Laganemi leiðir
nýja héraðsstjórn
Gauhati, indlandi, 23. desember. AP.
FRAFULLA Kumar Mahanta, 32 ára gamall laganemi, var á sunnudag
valinn forsætisráðherra næstu héraðsstjórnar í héraöinu Assam á Indlandi.
Iléraðsflokkurinn Asom Gana Parishad (Þjóðarráð Assam-héraðs) hefur
mest völd í héraðsstjórninni. Flokkurinn vann mikinn sigur á Kongress-
flokki Rajivs Gandhi í síðustu viku.
Mahanta sver líklega embættis-
eið sinn sem forsætisráðherra i
dag eða á morgun, þriðjudag, og
verður hann fyrsti forsætisráð-
herra héraðs á Indalndi, sem jafn-
framt er námsmaður.
Þjóðarráðið berst fyrir því að
rúmlega einni milljón innflytjenda
frá Bangladesh verði gert að snúa
aftur til síns heima þar sem hætta
sé á að innflytjendurnir kæfi
menningu innfæddra og hafi slæm
áhrif á efnahag héraðsins.
Gengið var til kosninga í Assam
eftir að Gandhi gerði friðarsátt-
mála við Þjóðarráð Assam með
Mahanta í broddi fylkingar. í sátt-
málanum er gert ráð fyrir því að
ólöglegir innflytjendur, sem komu
til Assam milli 1966 og 71, verði
sviptir borgararéttindum sínum
og þeim, sem komu eftir að sjálf-
stæðisstríði Bangladesh lauk 1971,
verði gert að fara.
við loforð um þjóðaratkvæði
um áframhaldandi aðild Spán-
ar að NATO snemma á næsta
ári. Sósíalistar lofuðu slíkri
atkvæðagreiðslu fyrir kosning-
arnar 1982 og unnu meirihátt-
ar kosningasigur m.a. út á það
loforð.
flugræningja
framseldan
ValletU, Möltu, 23. desember. AP.
FRELSISFYLKING Palestínumanna (PLO) hefur farið þess á leit við stjórn
Möltu, að hún framselji flugræningjann, sem lifði af flugránið 23. nóvember
sl. Þá biðu 60 manns bana, er egypzkri farþegaþotu var rænt og hún látin
lenda á Möltu.
Maöurinn heitir Omar Ali
Rezaq. Hans hefur verið ákærður
fyrir 16 brot, þar á meðal bæði
morð og morðtilraun. Ekki hefur
enn verið ákveðið, hvenær réttar-
höldin yfir honum fara fram.
Stjórn Möltu hefur hafnað til-
mælum Egypta um framsal á
manninum og sagt, að lög á Möltu
eigi að ná fram að ganga, enda
hafi ránið verið framið þar.
Rezaq, sem er enn á sjúkrahúsi
í Valletta, hefur skýrt lögreglunni
svo frá, að hann sé Palestínumaður
og sé fæddur árið 1963 í Líbanon.
VINNINGSNÚMER
í Happdrætti
Krabbameinsfélagsins
--------DREGIÐ 24. DESEMBER 1985 -
AUDI 100: 149610
TOYOTA COROLLA 1300: 40283 123687
BIFREIÐAR Á KR. 350.000 : 82798 159458
VÖRUVINNINGAR Á KR. 50.000:
3998 41849
4858 45189
8067 53655
13590 56845
17187 58978
69174 84765
70735 88436
72822 90036
74178 95795
80902 101746
120648 135821
128094 139674
128193 142465
128906 148636
131301 154340
157796 170744
159758 173891
166066 180587
168613 180737
168864 181928
Handhafar vinningsmiða framvísi þeim áskrifstofu Krabbameinsfélagsins
að Skógarhlíð 8, sími 62 14 14.
Krabbameinsfélagið
þakkar landsmönnum
veittan stuðning.
Krabbameinsfélagið