Morgunblaðið - 28.12.1985, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985
35
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Laugardag 28.
desember
„Ég hef mikinn áhuga á
stjörnuspeki en ég veit ekki
mikið um fæðingardag minn.
Ég er stelpa, fædd 27. apríl
1970, kl. 19.15 (um kvöld) í
Reykjavík. Mig langar aðal-
lega að vita hvers konar at-
vinnu ég gæti valið mér, en
heldur pú að ég gæti orðið
(góður) rithöfundur? og auð-
vitað langar mig líka til að
vita hvernig manngerð ég er,
samkvæmt stjörnuspánni. Ég
er frek, finnst þér ekki, en
vona samt sem áður að þú
getir svarað mér og helst ekki
birta bréfið. Kær kveðja."
Svar:
Fyrirgefðu að ég birti bréfið.
Ég vil láta bréf fylgja með til
að lífa upp á þáttinn. Það
ætti að vera í lagi fyrir þig.
Það veit enginn hver þú ert.
27. apríl 1970 er Sól í Nauti
(lífsorka, vilji og grunntónn),
Tungl er í Steingeit (tilfinn-
ingar), Merkúr er í Nauti
(hugsun), Venus er í Nauti
(samskipti), Mars er í Tvíbura
(starfsorka), Rísandi merki
er í Vog (fas og framkoma).
Jarðbundin
Þú ert jarðbundinn persónu-
leiki, þarft öryggi og varan-
leika í líf þitt. Þú parft að
hafa fæturna fasta á jörðinni
og sjá eftir þig áþreifanlegan
árangur. Þess vegna á starf
sem gefur öruggar tekjur vel
við þig.
Ritstörf
Satt best að segja get ég ekki
svarað þessu. Eg held að við
getum gert hvað sem er, bara
ef við viljum, og erum reiðu-
búin að leggja á okkur vinnu.
Þú getur pví sjálfsagt orðið
góður rithöfundur ef pú legg-
ur þig fram. Þú þarft að læra
málfræði, sitja og æfa þig við
skriftir og lesa bækur eftir
góða rithöfunda.
Úthald
Þú ert þolinmóð og viliasterk.
Einn helsti styrkur pinn er
fólginn í seiglu og úthaldi.
Þú hefur skipulagshæfileika
og hæfileika í stjórnun og
viðskiptum.
Veikleikar
Þar sem Satúrnus er í sam-
stöðu við Sól getur þig skort
sjálfstraust og sjálfsálit. Þú
þarft að varast að gera of
miklar kröfur til sjálfrar þín
og gera of lítið úr eigin hæfi-
leikum. Sem Rísandi Vog ertu
vingjarnleg og ljúf í fram-
komu, en pú þarft að varast
óákveðni og að þóknast öðrum
um of. Þetta tvennt getur
táknað að þú þarft að temja
þér meiri ákveðni.
Framkvœmdaorkan
Mars í Tvíbura táknar að þú
ert eirðarlaus í vinnu og vilt
fást við fjölbreytileg við-
fangsefni. Þessi staða getur
bent á hæfileika í ritstörfum
og á sviðum sem hafa með
upplýsingamiðlun að gera.
Tilfinningamálin
Tilfinningamálin hafa á sér
einkenni Nauts og Steingeit-
ar. Það táknar að þú þarft
öryggi og laðast að traustum
og jarðbundnum manni, sem
samt sem áður er hugmynda-
ríkur, félagslyndur og ræð-
inn. Hið síðasttalda er vegna
þess að þú hefur Mars í Tví-
bura og Vog Rísandi.
Samantekt
Vegna Vogar Rísandi hefur
þú gott auga fyrir fegurð og
listræna hæfileika sem
byggja á góðu formskyni. Þú
ert rómantísk, en ert jarð-
bundin og þarft að skapa þér
öryggi. Þú ættir því að sækj-
ast eftir góðri menntun sem
heldur ýmsum möguleikum
opnum.
X-9
tflNA SA&fi/ Af£ff
írrÁ/et/A/t//* *f> ..
‘£s lftSGAi/6 ff/tKA X/JtA
fe/f/ArA sjá s/6 ffffi
þ/r/ff Vfff£*)SV*/Y/f/ff
Ítp KOMt/MS/tATT^(1Á/0(,/W//r/l,
r/t-#/fC////>Si/£P/S/HÍ. I ..<?£ St/O
M/ry/'rc//*£#.fiPSSJ*t*n>/£/rA
fáyr/f>:/Js £/t \Ó,Þt/ &fit///í£///>4
Tý/VPC/K. K-r/At/(í///\ f’££4ff/-//K4P£
//Offr/zY^ Ært/þ>£rrA \/t/£Actt£Gr
7£Mr/SrS4*/A/t f [AtfreT?
A A £///*u 7
DYRAGLENS
—........................
LJOSKA
WEJZNIG £J éG eXTV ,UU
5THNDUeY\/IE> SKEMMTIATKIPI
VERÐHKKKIJU) J\7/
lUR.') / HEPPINN-
H4NKI EK
HKÆPIUCQOR.’
TOMMIOG JENNI
^HELPUfZ&U AE>
TUMM TfZÚI PW
Ap pú SéRT
^uecisuNöi T
UJt
£ ___ £
SMAFOLK
THE 5I6N SAlP,' NO
EATINS OR C7KINKIN6
INSIPE THE THEATEK"
tr
50 KI6HT IN FRONT OF
ME I5 THI5 KIP
EATIN6 AN ORANGEÍ
AN ORAN6E...CAN
YOU IMA6INE7!
Á skiltinu stóð: „Bannað að Og beint fyrir framan mig er Sagðirðu eitthvað?
borða eða drekka í leikhús- þessi strákur að éta appels-
inu“. ínu! Appelsínu ... geturðu
ímyndað þér?
Nei, ég lamdi hann með pyls-
unni minni!
Umsjón: Guöm. Páll
Arnarson
Eftirfarandi spil kom upp í
undanrásum . HM í kvenna-
flokki í Sao Paulo í Brasilíu
sl. október. Sömu spil voru
spiluð á öllum borðum og réð-
ust úrslitin í þessu spili mest
á því hvort A/V-pörin notuðu
veikt eða sterkt grand:
Norður
♦ -
VK43
♦ D432
♦ A86432
Vestur
♦ 1097
♦ 9876
♦ K65
♦ KG10
Austur
♦ Á8
♦ DG2
♦ ÁG109
♦ D975
Suður
♦ KDG65432
♦ Á105
♦ 87
♦ -
Eftir pass frá norðri opnaði
austur ýmist á einu veiku
grandi eða einum tígli og suður
stökk beint i fjóra spaða.
Þar sem austur vakti á
grandinu spilaði vestur iðulega
út hjarta og þar með var
samningurinn auðunninn.
Sagnhafi gaf aðeins einn slag
á spaða og tvo á tígul. Laufás-
inn sá fyrir einum hjartatap-
ara.
En þar sem tígull kom út
gekk vörninni betur. Austur
fékk fyrsta slaginn á gosann
og spilaði tígli á kóng makkers,
sem spilaði enn tigli. Suður
trompaði og réðst á spaðann.
En austur drap strax á spaðaás
og spilaði þrettánda tiglinum
og upphafði þar með spaðatíu
vesturs.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á opnu alþjóðlegu móti í
Belgrad í nóvember, kom þesi
staða upp í skák júgóslavneska
stórmeistarans Milans Mat-
ulovic, sem hafði hvítt og átti
leik, og alþjóðlega meistarans
Popovs frá Búlgaríu.
25. HÍ7 ! — Rxf7,2 6. Dxf7 —
Kxd6, 27. Hxe6 mát. Búlgarski
stórmeistarinn Padevsky og
alþjóðlegi meistarinn Cabrilo
frá Júgóslavíu, sigruðu á mót-
inu. 118 þátttakendur voru á
mótinu, þar af fjölmargir titil-
hafar.