Morgunblaðið - 28.12.1985, Síða 38

Morgunblaðið - 28.12.1985, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985 Audrey Hepburn og Anouk Aimee létu sig ekki vanta. Arnold Schwarzenegger brosir þessa dagana Arnold Schwartzenegger hef- ur fulla ástæðu til að brosa þessa dagana enda á leiðinni, ef ekki genginn, í það heilaga með vinkonu sinni Mariu Shiver frétta- manni. Þau hafa þekkst í nokkuð langan tíma en Maria er barnabarn Jos- ephs Kennedy. Óþarft er víst að kynna Arnold sem sló í gegn þegar hann lék til dæmis í „The Terminator" og í „Conan". Erfingi á leiðinni Það ríkir mikill fögnuður i belgísku konungsfjölskyld- unni þessa mánuðina, því prinsess- an Astrid, sem er dóttir Paolu og Alberts og eiginmaður hennar, austurríski erkihertoginn Lorenz, eiga von á frumburðinum í byrjun febróar næstkomandi. Þau hjón búa í Basel en barnið mun eiga að fæðast í Brussel. Lorenz starfar við banka í Basel og bæði Astrid og Lorenz eru sögð una sér vel þar. íslenskt útvarp í Gautaborg 1 Gunnar Birgisson þulur. Ilok október síðastliðins hófust útsendingar í útvarpi hjá Is- lendingum í Gautaborg, en slíkar útsendingar höfðu legið niðri í eitt og hálft ár. Það eru félagar úr sænsk- islenska félaginu í Gautaborg, sem sjá um dagskrárgerð og eru send- ingar einu sinni i viku, það er að segja á mánudögum frá klukkan 19.00 til 19.30. Leikin er íslensk tónlist, barna- saga lesin og fréttir sagðar frá íslandi. Þegar ljósmyndari Morgun- blaðsins leit inn í stúdíóið sáu þeir um þáttinn, Gunnar Birgisson í þularstarfinu, Árni Finnsson tæknimaður og Björn Guðbrandur Jónsson útvarpsstjóri. Þessum heiðursmönnum til að- stoðar voru þeir Patrik Itzel og Peter Morud frá „Radio. Karen" en það er útvarp félagsstofnunar stúdenta í Gautaborg og þaðan senda íslendingarnir út þætti sína. Þeir Árni Finnsson, Björn Guðbrandur Jónsson, Gunnar Birgisson og Patrik Itzel. Morgunblaíið/Kristján Einarsson Cher kom í fylgd söngvarans Montana. ^ikkonan 'ftherinv Læneuve nætíi á nZ rres o, Uu re„t. Tískusýningin hlaut frábæra dóma. £T — -- A tískusýn- , ingu í París Atískusýningu sem haldin var í París á dögunum, mátti sjá margt þekktra andlita. Hönnuðum voru veitt verð- iaun og meðal þeirra sem hlutu viðurkenningu voru Yves St. Laurent, Pierre Cardin, Claude Montana og Azzedine Alaía. fclk í fréttum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.