Morgunblaðið - 31.12.1985, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER1985
B 21
Upprifjun um áramót
Stykkishólmi í desember.
Arið 1985 er að kveðja. I>að
hefir verið misvindasamt á sviði
viðskipta- og atvinnumála. Togara-
flotinn átti í erfiðleikum og safnaði
skuldum sem leitt hefir til uppboðs
og yfirtöku lánardrottna. Þeir sem
hafa verið minni í sniðum hafa
flotið. Um hvernig þessum tækjum
hefir verið stýrt og hvort ekki hefði
átt að gæta að stöðunni fyrr, verður
ekki sagt, en það er vissulega
umhugsunarvert þegar stórum
atvinnutækjum vegnar ekki vel.
Eitt hefir stórvaxið á árinu.
Það eru hin svonefndu Visakort
og virðast þau á góðri leið með
að koma í stað peningaseðla.
Verðbréfamarkaðir hafa verið
stærri í sniðum og tekið að sér
vissa þætti bankamála, þótt
bönkum sé alltaf að fjölga með
sínar veglegu byggingar og sú
starfsemi sem arðvænlegust er
í dag og þarf ekk.i að spara.
Frjálsir vextir blómstra og ber
mönnum ekki saman um hvað
gott þeir geri, en ekki minnka
þeir verðbólguna.
En hvað sem öllu líður þá hefir
þetta ár verið okkur Hólmurum
í mörgu blessunarríkt. Atvinna
hefir verið góð. Sjávarafli með
líku móti og áður, líkur skipa-
stóll og engin stökkbreyting þar.
íbúðabyggingar hafa verið
minni en áður en lokið við grunn-
skólabygginguna, bensínstöðina,
byggingar RARIK, flugstöðina
og fiskverkunarhús. Einnig
byggingu kvenfélagsins í Hólm-
garði. Haldið áfram byggingu
heilsugæslustöðvarinnar í við-
byggingu sjúkrahússins og eins
við nýju kirkjuna. Samgöngur
hafa verið ágætar, á sjó, landi
og í lofti. Ekki fallið niður áætl-
unarferðir rútunnar sem hefir
ekið eftir sumaráætlun þetta ár.
Það sér strax að bygging skólans
hefir haft sín áhrif. Aðstaða öll
til fyrirmyndar. Ekki skal því
gleymt að rekstur fyrirtækja
hefir verið þrengri í ár. Nýja
bílaver hf. hættir nú rekstri og
er það mikill bagi því þá verðum
við að leita annað með allar
viðgerðir. Er það von okkar að
rekstur bifreiðaviðgerða geti
hafist á ný. En erfiðleikarnir
hafa mest stafað af því að erfitt
hefir verið að fá lærða bifvéla-
virkja til starfa. Eigendur Nýja
bílavers hafa nú auglýst fyrir-
tækið til sftlu.
Heilsufar hefir verið gott og
hér starfa 3 læknar og er einn
þeirra yfirlæknir sjúkrahússins
hér og þar er góð aðstaða og
batnar um allan helming þegar
viðbyggingunni lýkur. Þá hefir
nýr bóksasafnsfræðingur tekið
við rekstri Amtbókasafnsins. Og
margar breytingar þar á döfinni
og er ekki langt í að byggja verði
við safnahúsið enda að verða
alltof þröngt þar. Sýslumanns-
embættið missti í desember lög-
lærðan fulltrúa og hefir enn
enginn fengist í staðinn. Þá hefir
yfirlögregluþjónninn verið ráð-
inii til Hafnarfjarðar svo nú er
hans sæti laust hér.
Stykkishólmshreppur hefir
haft mikil umsvif á þessu ári.
Þar má fyrst nefna gatnagerðina
og gangstéttirnar sem setja
mikinn og góðan svip á bæinn.
Sléttað hefir verið og stór svæði
víða um bæinn breyst í fagra
grasvelli, grasfræi sáð og marg-
ar umbætur oggóðar bæði á nýju
skólalóðinni og eins kringum
hótelið. Tjaldstæði fyrir ferða-
menn hefir nú verið fært á betri
og fegurri stað og öll aðstaða
færð í gott horf. Og margt annað
mætti nefna og meta bæjarbúar
þessi vel unnu verk.
Tveggja merkisafmæla skal
líka geta. Sjúkrahús st. Frans-
iskussystra átti 50 ára starfsaf-
mæli og eins elsta starfskona
þess. Trésmiðja Stykkishólms
átti 40 ára'starfsafmæli. Hótel-
reksturinn var með meira móti
og á húsinu voru gerðar margar
og góðar lagfæringar sem ferða-
menn meta mikils og það sér að
aukning er þar á gestum. Hótel-
stjórinn, Sigurður Skúli Bárðar-
son, hefir staðið sig vel og kann
sitt fag. Og um þessi jól er
bærinn okkar fallegur. Ég man
ekki eftir að hafa séð jafn mörg
falleg og skínandi ljós, utan húss
og í gluggum og jólatré víða um
bæinn og hið stóra jólatré sem
við fengum að gjöf frá Dramm-
en, vinabæ okkar. Þakklætið
ætti því að vera efst í huga
hverjum hugsandi bæjarbúa.
Með þessum orðum lýk ég
upprifjun og sendi öllum lands-
mönnum óskir um farsælt ár, til
lands, lofts og sjávar, og þess
að næsta ár megi færa okkur
nær bæn Matthíasar Jochums-
sonar um gróandi þjóðlíf með
þverrandi tár sem þroskist á
guðsríkis braut.
Nú sem fyrr veröa KR flugeld^ „ddlítiugnr
Þeir eru seldir á 4 útsölustöðurr) í Reykjavík, auk
þess í söluvagni á Lækjaiiorgi á gamlársdE
Við flytjum inn allar okkarvörur. Einkaumboð fyrir
risaflugelda frá WECO í V-Þýskalandi.
Kaupir þú fjölskyldupakkana næst allt að
25% afsláttur af útsöluverði einstakra hluta.
Að auki bjóðum við 10% afslátt, öllum þeim sem
versla fyrir hærri upphæð en 700 krónur 27.-28. des.
Þetta fyrirkomulag hefur verið mjög vinsælt.
Einnig er veittur magnafsláttur séu
keyptir fleiri en 5 pakkar.
ÞAÐER
0KKUR
HUERSU
HATT
UPPI
ÞU
VERDUR!
esió
reglulega af
öllum
fjöldanum!
BARMPAKKINN kostar kr.
700,- og er einkum ætlaður
bamafjölskyldum. Ágætis
skemmtun fyrir alla fjölskyld-
una.
SPARIPAKKINN kostar kr.
990,-. Hagkvæmur Qölskyldu-
pakki sem púður er í. Oóð
skemmtun sem allir hafa
ánægju og gaman af.
BÆJARINS BESTI kostar kr.
1A00,-. Nafnið segir allt. Við
erum sannfærðir um að ekki
er hægt að gera betri kaup í
bænum. Sérstaklega hentugur
fyrir unglinga.
TROLLAPAKKINN kostar kr.
2.400,-. Hér er á ferðinni
tröllsleg útgáfa af Bæjarins
besta. Pyllilega peninganna
virði fyrir þá sem setja markið
hátt. Tröllapakkinn veitir þér
og þínum ómælda ánægju og
eftirminnilega skemmtun.
BERSERKUR er stærsti pakk-
inn í bænum. Troðfullur af því
besta sem er á markaðinum.
Stórkostleg sýning sem slær
allt annað út. Verð kr. 4500,-.
15 tegundir af risaflugeldum,
20 tegundir af kökum,
tertum og tívolíbombum
Eigin innflutningur
Sölustaðir: KR-heimilið Sími 27181, JL-húsið, Hverfisgata 78, Borgartún 31 (hús Sindra Stáls) og söluvagn á Lækjartorgi 31. desember.