Morgunblaðið - 12.01.1986, Blaðsíða 4
ÞANNIG ERU
VERÐTRYGGÐU
SPARISSKÍRTEININ
MEÐ VAXTAMIÐUM
OG SLÍKT BÝÐUR
ENGINN ANNAR
MOEGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR12. JANÚAR1986 C 5
Ríkissjóður íslands býður þér nú þrjár mismunandi
tegundir af verð- og gengistryggðum spariskírtein-
um. Spariskírteinin bera ríkulega ávöxtun, þau eru
áhættulaus og skila bæði þér sjálfum og þjóðarbúinu
öllu ómetanlegum arði.
Spariskírteini ríkissjóðs með vaxtamiðum.
Ein tegund spariskírteina ríkissjóðs er verðtryggð
spariskírteini með vaxtamiðum. Veljir þú þessa tegund
getur lánstíminn lengst orðið 14 ár.
Vextir af þessum skírteinum greiðast ekki við inn-
lausn, heldur tvisvar á ári - allan lánstímann, gegn
framvísun vaxtamiða sem skírteinunum fylgja. Vextirn-
ir eru 8,16% á ári - fastir allan lánstímann, og eru þeir
reiknaðir af verðtryggðum höfuðstólnum eins og staða
hans er á greiðsludegi vaxtanna. Fastir greiðsludagar
eru 10. janúar og 10. júlí ár hvert.
Þremur árum eftir útgáfu skírteinanna er þér heimilt
að innleysa þau, og þá getur ríkissjóður einnig sagt
þeim upp. Segi hvorugur aðilinn skírteinunum þá upp,
bera þau áfram ofangreinda vexti til loka lánstímans.
Þegar þú innleysir skírteinið færð þú greiddar verð-
bætur á höfuðstólinn í hlutfalli við þá hækkun sem
orðið hefur á lánskjaravísitölu.
Spariskírteini með vaxtamiðum eru arðbær eign.
Segjum t.d. að þú eigir einbýlishús að verðmæti 6
milljónir, sem vegna breyttra fjölskylduaðstæðna er
stærra en þú þarfnast. Þú selur það og kaupir þér íbúð
af hentugri stærð fyrir helming þeirrar upphæðar og
fjárfestir í verðtryggðum spariskírteinum með vaxta-
miðum fyrir þrjár milljónir. Þá ertu laus við umtal-
sverðan eignarskatt, viðhaldskostnað, afskriftir, fast-
eignagjöld, tekjuskatt af leigutekjum ef svo ber undir
- og þannig mætti lengi telja. Þess í stað fengir þú um
það bil kvartmilljón (250.000) króna verðtryggðar
vaxtatekjur á ári og ættir þriggja milljón króna verð-
tryggðan höfuðstól í öruggri geymslu.
Sölustaðir spariskírteina ríkissjóðs eru:
Seðlabanki íslands, viðskiptabankarnir, sparisjóðir,
nokkrir verðbréfasalar og pósthús um land allt.
r r r
RIKISSJOÐUR ISIANDS
G0TT FÓLK / SÍA