Morgunblaðið - 20.03.1986, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 20.03.1986, Qupperneq 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, VIDSKIFTI/AIVINNULÍF FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1986 Sjávarútvegur Eigendur Akureyr- innar semja á ný við Luby’s-keðjuna Góður markaður fyrir sjófryst flök í Bandaríkjunum NÝLEGA voru tveir af eigendum frystitogarans Akureyrinnar, bræðurnir Þorsteinn og Kristján Vilhelmssynir, á ferð í Bandaríkj- unum ásamt eiginkonum á vegum Coldwater Seafood Corp. Til- gangur ferðarinnar var m.a. að heimsækja veitingahúsakeðjuna Luby’s, sem er með aðalstöðvar sinar i San Antonio í Texas. Luby’s er stærsti kaupandi flaka af Akureyrinni. Luby’s rekur tæplega 90 veitinga- hús í Texas, New Mexico og Okla- homa. Heildarsala Luby’s 1985 nam 196 milljónum dollara eða tæpum 8 milljörðum ísl. króna og var það um 15% aukning frá árinu 1984. Luby’s þykir ört vaxandi fyrirtæki og er arðbærasta veitingahúsakeðjan í Bandaríkjunum um þessar mundir. Á vegum fyrirtækisins starfa nú 5.900 manns. Við komuna til Texas tóku stjóm- armaður, forstjóri og aðalforstjóri Luby’s á móti gestunum. Fyrirtækið var skoðað og rætt um áframhald- andi viðskipti á sjófrystum flökum. Á síðasta ári seldi Coldwater Sea- food Luby’s meginhlutann af fram- leiðslu Akureyrinnar á Bandaríkja- markað, og eru horfur á því að erfitt verði að fullnægja eftirspum- inni á yfirstandandi ári, samkvæmt upplýsingum Coldwater. Luby’s er þekkt fyrir góða vöru- meðferð og vörugæði. Til þessa hefur Luby’s lagt áherslu á fiskrétti úr ýsublokk og flökum, en forráða- menn fyrirtækisins telja þó að þorsk- flök frá Akureyrinni gefi ýsunni ekkert eftir. Að þeirra sögn em sjó- fryst flök ein besta afurðin, sem völ er á á Bandaríkjamarkaði nú. Þeir segja einnig að frágangur og gæða- eftirlit þeirra sem vinna fískinn um borð í Akureyrinni sé til fyrirmyndar og að greinilegt sé að allir sem þar komi nálægt leggi sig fram um vandaða vinnu. Coldwater-menn taka þó fram, að Luby’s sé betur sett við með- höndlun sjófrystra flaka en margar aðrar veitingahúsakeðjur. Skera þarf flökin sérstaklega áður en þau em framreidd og hafa matreiðslu- menn Luby’s náð á þessu góðum tökum. Aðrar veitingahúsakeðjur vilja yfirleitt frá vömna fullunna og tilbúna til matreiðslu. Samkvæmt upplýsingum Cold- water má ráða af ummælum þeirra Luby’s-manna að góður markaður sé fyrir sjófryst flök i Bandaríkjun- um, svo framarlega að þess sé gætt að gæðin sitji í fyrirrúmi við fram- leiðslu, eins og raunin sé á um þá Akureyrarmenn. AKUREYRIN — Eigendum Akureyrinnar var vel tekið af helsta kaupanda þeirra á sjófrystum flökum í Bandaríkjunum. Á myndinni em frá vinstri: William Robson hjá Luby’s, Herbert Knights frá Luby’s, Gerald McGuire, sölustjóri hjá Coldwater, Þorsteinn Wilhelmsson, skipstjóri á Akureyrinni, Ralph Erbon, forstjóri hjá Luby’s, Kristján Vil- helmsson, vélstjóri á Akureyrinni, Páll Pétursson, yfirmaður gæðaeftirlits hjá Coldwater og E.A. Kelly frá John Magnum Co. Hlutafélög Gjörbreyting á við- skiptum með hlutabréf Á SÍÐASTA hálfa öðru árinu hefur velta á hlutabréfamarkaði aukist verulega og dæmi er um að menn hafi hagnast vel i við- KRISUÁN SIGGEIRSSON Tölvuborð sem uppfylla þínar þarfir. Verð kr. Vinsamlegast athugið breytt heimilisfang að Hest- hálsi 2—4 og nýtt símanúmer 91-672110. SKRIFSTOFUHÚSGÖGN Hesthálsi 2-4 • sfmi 672/10 skiptum með hlutabréf hér á landi, svo sem í Flugleiðum og Eimskipafélagi íslands. Þorsteinn Guðnason hjá Fjárfest- ingafélagi íslands segir engan vafa á því að gjörbreyting hafí orðið á verslun með hlutabréf á síðustu missemm allt frá því að Fjárfest- ingafélagið mat hagrænt mat verð- gildi hlutabréfa í Flugleiðum og Eimskipafélaginu fyrir flármála- ráðuneytið og seldi á margföldu nafnverði. „Allt síðan má segja að virkni hlutabréfamarkaðar hafí aukist talsvert enda þótt ennþá sé talsvert í land með að unnt sé að tala um virkan hlutabréfamarkað hér á landi. Þrátt fyrir verulega veltuaukningu á hlutabréfamarkaði þá er uppbygging þessa markaðar þess eðlis og tíðni þessara viðskipta slík að við teljum engan veginn unnt að þessi viðskipti geti staðið undir gengisskráningu hlutabréfa nema e.t.v. í tilviki hlutabréfa í Flugleiðum og Eimskip," segir Þorsteinn. 100-200% ÁRS- ÁVÖXTUN Þorsteinn segir að helstu ein- kenni hlutabréfamarkaðarins nú séu þau að seljendur séu margir en kaupendur færri. Markmið kaup- enda er ennþá það að fjárfesta í áhrifum, sem ekkert er við að at- huga, en í færri tilvikum sé um hreint fjárfestingarmarkmið að ræða. „Hitt er svo annað mál að mér er kunnugt um að einstakir aðilar hafi hagnast verulega á við- skiptum með hlutabréf, eins og segir sig sjálft, ef þeir hafa keypt þessi bréf á nafnverði t.d. fyrir hálfu öðru ári og selja þau síðan á 4-5 földu verði f dag. Þessir aðilar hafa fengið á milli—100 og 200% ársávöxtun. Slíkt verður auðvitað mönnum hvatning til að líta á hluta- bréf sem arðvænlega fjárfestingu og það eru einmitt þessir sömu aðilar sem gera þennan markað virkan. Þessi þróun er ánægjuleg og bendir til þess að spá okkar um vísi að virkum hlutabréfamarkaði innan fárra ára hér á landi hafi átt við rök að styðjast." MIKIL BREYTING Þorsteinn Haraldsson hjá Hluta- bréfamarkaðnum tekur í svipaðan streng. Hann segir að vísu að við- skipti með hlutabréf í þeim fjórum fyrirtækjum sem H-Mark skráir, hefðu verið fremur dauf í janúar, lífleg í febrúar en hins vegar dofnað verulega aftur í mars, eins og eðli- legt væri, því að menn héldu að sér höndum fyrir aðalfundi félaganna, þar sem menn gætu átt von á því að gefin yrðu út jöfnunarhlutabréf og greiddur út arður af hlutabréfun- um. „Það er alveg ljóst hins vegar að það er til hópur manna hér á landi sem er farinn að skoða hluta- bréf sem flárfestingu og sem hefur hagnast á slíkum viðskiptum. Hversu stór þessi hópur er eða hversu mikið þeir hagnast er auðvit- að afstætt. En ég held að það segi samt sína sögu um þróunina í þess- um efnum að samkvæmt ársreikn- ingum Eimskipafélagsins, sem lagðir voru fram á þriðjudag, þá var upphæð virkra hlutabréfa 86,7 milljónir en heildarfjárhæð hluta- bréfa hins vegar 90 milljónir. Það virðist því að frá því í janúar 1985 og fram að aðalfundi það ár hafi Eimskip haft til sölu talsvert af bréfum á nafnverði og ekkert verið slegist um þessi bréf. Núna seljum við hins vegar þessi bréf á þreföldu nafnverði og sitjum síður en svo uppi með þau,“ segir Þorsteinn Haraldsson hjá Hlutabréfamark- aðnum. Breskirkaup- sýslumenn gera stuttan stans UNDANFARNA daga hafa dval- ist hér á landi 22 breskir kaup- sýslumenn og eru þar á meðal fulltrúar stórra og heimsþekktra fyrirtækja á borð við BP, Nabis- co og barckleys Bank. Kaup- sýslumennimir halda aftur utan í dag en að sögn Noel Burgess hjá Breska sendiráðinu hefur ferð hópsins gengið vel. Ein- hveijir úr hópnum ætluðu jafnvel til Akureyrar í gær, ef veður leyfði, en Burgess sagði að eftir þvi sem hann best vissi hefðu kaupsýslumennimir átt árang- ursríkar viðræður við viðskipta- vini í Reykjavík en hópurinn kom til landsins 16. mars. Þetta er Ijórða árið í röð sem Verslunarráðið í London efnir til slíkrar ferðar að vori með stuðningi breskra stjómvalda, en Skoska iðnaðar- og þróunarráðið hefur skipulagt áþekkar ferðir að hausti til undanfarin ár. Eftir talsverðu virðist vera að slægjast samkvæmt upplýsingum sendiráðsins, því að Skotamir sem hingað komu í októ- ber sl. segjast hafa náð að auka útflutning sinn til íslands um röskar 50 milljónir króna. I hópi bresku kaupsýslumannanna vom nokkrir sem fyrst og fremst voru hingað komnir til að heimsækja umboðs- menn sína hér á landi og treysta langvarandi viðskiptasambönd meðan aðrir voru að leita að nýjum viðskiptavinum og í sumum tilfell- um umboðsmönnumn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.