Morgunblaðið - 20.03.1986, Page 6

Morgunblaðið - 20.03.1986, Page 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ, VgyjniTLAIVINNULÍF FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1986 Alþjóðleg viðskipti Alþjóðleg fyrirtæki hafa verið aflgjafar vaxtarins Ræða J.G. Maisonrouge, fyrrverandi forstjóra IBM í Evópu á aðalfundi Verzlunarráðs íslands 6. mars sl. „Góðan dag, herrar mínir og frúr. + Eg vil lýsa ánægju minni yfir því að vera hér í dag, ekki aðeins vegna þess mér gefst kostur á að ræða áhugamál min, heldur einnig vegna mögu- leika á að heimsækja landið. Ég hef þó komið tvisvar áður á flugvöll- inn, þegar ferðalagið milli Parísar og New York var ekki án milli- lendingar, eins og nú er. En eins dags dvöl í Keflavík nægir auðvit- að ekki til að kynnast Islandi. Þessi heimsókn mín hér lokar hringnum, þvi það eru fá lönd í heiminum sem ég hef ekki heimsótt á 36 ára ferli mínum hjá IBM og sannar, að engir hnökrar hafa verið á rekstri IBM á íslandi, og því vil ég þakka Ottó A. Michelsen og Gunnari M. Hanssyni fyrir að hafa staðið þannig að málum að ekki þurfti að koma til slíkrar ferðar. Þangað til nýlega hefur þekking mín á Islandi takmarkast af lestri bókarinnar „Á íslandsmiðum" eftir franska skáldið og sjóliðsforingjann Pierre Loti, og heimsóknum starfs- manna IBM fyrirtækisins hér, þeg- ar þeir hafa komið á fundi í Evrópu. Ég hef lært örlítið meira síðan þá, til dæmis veit ég að nafn mitt gæti verið Jacques Pálsson. Ég hef heyrt söguna af Eiríki rauða og syni hans Leifí, sem fyrstur Evr- ópubúa fann Norður-Ameríku. Ég lærði um eldfjöll og um ótrúlegt magn af heitu vatni. Þetta eru að vísu náttúruleg gæði sem erfítt er að flytja út. Einnig dáist ég að krafti þjóðar ykkar í skáldskap og er það ekki undrunarefni, að La_x- ness skyldi fá Nóbelsverðlaunin. Ég þekki enga aðra þjóð í heiminum með fjórðung milljónir íbúa, sem getur státað sig af því, að telja Nóbeisskáld meðal þegna sinna. Reynsla í alþjóðaviðskiptum hef- ur þó kennt mér, að það tekur langan tíma að kynnast þjóð sem hefur haldið menningu sinni og tungu í mörg hundruð ár, og er ekki mikið á vegi ferðalanga. Svo betra er að þið gangið út frá van- þekkingu minni um ísland, og ég mun reyna að halda mig að málefn- um sem ég hef þekkingu á, sem ég tei virðingarvott gagnvart áheyr- endum. Hvers vegna hafa við- skipti og fjárfest- ing aukist ört á síðustu 40 árum? Að meðaltali hafa heimsviðskipti vaxið tvöfalt hraðar en þjóðarfram- leiðsla á síðustu 40 árum. Árin 1979 til 1984 voru ár heimskreppu í viðskiptum, en á þessu tímabili uxu þau ívið meira en þjóðarfram- leiðsla, en beinar erlendar fjárfest- ingar jukust á hinn bóginn um 10,6%, sem er ekki svo lítið. Það má segja að fjölþjóðafyrir- tæki hafí verið undirstaða vaxtar, auk þess sem sumar ríkisstjómir mótuðu stefnu, sem hvatti mjög til beinnar erlendrar ^árfestingar. Skoðum málið nánar. Stjómend- ur kraftmikils fyrirtækis skilja að vöxtur að magni til, er skilyrði fyrir því að fyrirtækið haldi velli og að starfsmenn þess og hluthafar séu ánægðir. Þetta fyrirtæki stækkar við sig eins og kostur er á í heima- landi sínu og menn uppgötva fljótt, að innanlandsmarkaður er tak- markaður og þar að auki er hættu- legt fyrir fyrirtæki að vera háð óvissu og breytilegum efnahagsleg- um aðstæðum í heimalandinu. Til að vaxa, verður fyrirtækið að ráðast í útflutning. Seinna meir verður það að fjárfesta erlendis til að festa sig þar í sessi. Framfara- sinnaðir forstjórar byija að flytja út og fjárfesta fljótlega eftir stofnun fyrirtækja. IBM var stofnað í byrjun árs 1914 í Bandaríkjunum. Ifyrsta erlenda útibúið hóf starfsemi sína ll.júlí 1914 íFrakklandi. Hvers vegna fjár- festa fyrirtæki erlendis? Ég hef þegar bent á vaxtarlöng- un sem aðalástæðu, en þær em fleiri: Iðnaður þarf hráefni og okkur vanhagar einnig um matvöru sem 130 ÞÚSUND EINTOK — 98 AURAR HEILSÍÐA í LIT — Vinnsla Ferðablaðsins Land er nú á lokastigi. Blaðið minnir auglýsendur, sveitarfélög og aðra sem erindi eiga með efni í blaðið að hafa samband hið fyrsta. Land verður gefið út í tveimur útgáfum. Önnur er á íslensku, prentuð í 80 þúsund eintökum en hin á ensku, prentuð í 50 þúsund eintökum Blaðið verður litprentað í vönduðu broti, fullt fróðlegra greina og lágt hlutfall auglýsinga. Auglýsingaverð samsvarar 98 aurum á hverja prentaða heilsíðu í lit. Blaðið fer í dreifingu ^ fyrir 15. maí. . /7 SÍMAR 687896,687868 og 686535. MARKAÐSÚTGÁFAN h.f. Ármúla 19. 108 Reykjavík. fyrirfínnst aðeins í vissum löndum. Olía, kopar, gull, tin, pottaska, hnetur, baðmull o.s.frv., eru nokkur þessara efna. Velflestar vömr eiga uppmna sinn í þróunarlöndum. Á tímum nýlendustefnunnar var samgöngu- kerfí þessara landa mjög bágborið og þau skorti jafnframt menntað vinnuafl. Á þessum tímum fluttu fyrirtæki því inn sölumenn og tæknimennt- aða starfsmenn. Þau litu einnig svo á, að þau gætu á sama hátt keypt landsréttindi. Þetta átti sérstaklega við um námafyrirtæki og plantekm- eigendur í Afríku og Mið-Ameríku. Þegar meiri þróun varð svo hjá þessum þjóðum og þær fengu sjálf- stæði, tóku þær við framleiðslu og sölu á náttúmauðæfum landa sinna. Mjög oft sættu þær sig við uppruna- lega stofnandann. í iðnaðarframleiðslu em ástæður fyrir fjárfestingu af öðmm toga spunnar. Eins og Peter Dmcker sagði: „Veröldin er orðin að einum og sama stórmarkaðnum". í öllum iðnríkjum, a.m.k. þeim sem búa ekki við áætlunarbúskap, em vömr frá öllum heimshomum. Til að geta tekið þátt í samkeppni á innan- landsmarkaði verða fyrirtæki að vera samkeppnisfær á erlendum markaði. Til að standast samkeppni, veið- ur í öllum tilfellum að bjóða: 1. Einstökgæði 2. Lágan framleiðslukostnað 3. Lágan dreifíngarkostnað 4. Góðaþjónustu 5. Möguleika á áframhaldandi sölu þegar stjómvöld viðkomandi landa taka upp vemdarstefnu Þessi 5 atriði skulu útskýrð nán- an 1. Einstök gæði Ef framleiða á gæðavöm þarf að setja framleiðslustarfsemi niður í löndum sem búa við gott innra skipulag, nægan og vel þjálfaðan mannafla og gott menntakerfi. 2. Lágur framleiðslu- kostnaður Framleiðslukostnaður er háður bæði framleiðslumagni og kostnaði við að framleiða hveija einingu. Eftir því sem sjálfvirkni verður meiri lækkar vinnuaflskostnaður sem hlutfall af heildarkostnaði. Fyrr á tímum lögðu sum fyrir- tæki áherslu á lágan vinnuafls- kostnað og settu upp framleiðslu á stöðum eins og Taiwan, Hong Kong og Singapore. Þaðan var framleiðsl- an síðan flutt út um heim allan. Önnur kusu að hafa framleiðsl- una í löndum þar sem markaðurinn var stór, og framleiða svo mikið, að framleiðslan yrði samkeppnis- hæf við verksmiðjur á heimavelli. Þetta gerði IBM til dæmis. Fyrstu verksmiðjur IBM utan Bandaríkjanna voru í Þýskalandi, Frakklandi, Bretlandi, Ítalíu, Japan og Kanada. Til viðbótar eru nú verksmiðjur í Brasilíu, Argentínu, Ástralíu, Mexíkó, Hollandi, Svíþjóð og Spáni. Við áttuðum okkur fljótt á kost- um stærri markaðar til að ná hag- kvæmni stærðarinnar, en evrópskir iðnjöfrar hafa þó stundum ruglast í ríminu að þessu leyti og haldið að mikilvægast væri að koma upp einu stóru fyrirtæki. Samruni fyrir- tækja var algengur, t.d. sameinuð- ust 3 rafeindafyrirtæki í Frakklandi og önnur þijú sameinuðust Siemens í Þýskalandi og svipað gerðist í Bretlandi. Stæið fyrirtækjanna var með öðrum orðum aukin, en þau stækkuðu ekki markaðinn. Þegar neikvæður árangur er lagður saman veður niðurstaðan neikvæð, hlutur sem margir hafa ekki enn skilið. Eftir Rómarsáttmálann 1958 ákváðum við að líta á Evrópu/Mið- Austurlönd og Afríku sem markað fyrir verksmiðjur okkar í Evrópu. Síðan fylgdi sú ákvörðun að fram- leiða skyldi tiltekna hluti í aðeins einni þessara verksmiðja fyrir allan markaðinn í því skyni að ná hag- kvæmni stærðarir.nar. Nú er IBM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.