Morgunblaðið - 20.03.1986, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, VIÐSKIPn/AIVINNUlJF FIMMTUDAGUR20. MARZ 1986 B 11
Vandvirkni og gæði
Utflutningur gæða vöru
eftir Gunnar H.
Guðmundsson
Nýlega hófst kennsla í nýstofn-
uðum Utflutningsskóla Stjómunar-
félagsins. Skólinn er merkt framtak
og miklar vonir bundnar við af-
raksturinn af starfi hans. Hér er
bætt úr brýnni þörf.
Verð
I útflutningi er eftirsóknarvert
að selja vöru í hærri verðflokkum.
Þetta er mjög eðlilegt markmið
þegar við lítum á hátt menntunar-
stig þjóðarinnar. Við ættum að geta
framleitt þróaðar vörur. Það er
jafnvel nauðsynlegt með tilliti til
aðstæðna að flestar útflutningsvör-
ur okkar liggi ofan til í verðskalan-
um. Því verður að byggja á sérstöðu
og flnna markaðshom. Framleiðni
í hérlendum fyrirtækjum er ekki
sérstaklega há. Þegar framleitt er
lítið magn verður því ekki breytt
nema á löngum tíma.
Vöruþróun
Undanfarið hefur borið mikið á
vömþróun. Ýmsar nýjar vömr hafa
komið fram jafnframt því að eldri
vömr hafa fengið andlitslyftingu.
Við búum samt ekki enn við vöm-
þróunarhefð. Reynslan sem safnast
hefur er ekkert ýlq'a mikil ennþá.
Þar sem unnið hefur verið að vöm-
þróun lengi skapast aðferðir til að
tryggja árangur vinnunnar. Með
kerfisbundinni yfirferð og prófun-
Gunnar H. Guðmundsson
um má tryggja að varan standist
ítmstu kröfur. Hérlendis fara vörar
í gegnum misjafnlega ítarlega yfir-
ferð fyrir markaðssetningu. Við
hverja nýja vöm er væntanlega
tekin nokkur áhætta varðandi gæði.
Kröfur til verðmeiri vöm em
yfirleitt háar. Hún má ekki hafa
mikla gallaáhættu. Viðskiptavini
þykir það sjálfsagt að varan stand-
ist kröfur. Það þarf að hanna gæði
inn í vömna þannig að henni sé
ekki bilanahætt og auðvelt sé að
framleiða hana án galla. Þetta
krefst mikillar þekkingar og reynslu
í vömþróun.
Vandvirkni
Gæðamál byggjast á stjómend-
um. Þeir verða að kunna að meta
þær aðferðir og hugmyndir sem
auka gæði og koma þeim á í sínu
fyrirtæki. Þær aðgerðir sem stjóm-
endur þurfa að grípa til em til
dæmis að koma á gæðakerfi eða
að efna til herferðar til að auka
vandvirkni. Gæðagát er orð sem
Pétur Maack, prófessor, leggur til
að notað sé til að lýsa starfi fyrir-
tækja til að tryggja gæði. A ensku
kallað „quality assurance". Það
tekur til allra þátta frá vömþróun
til notkunar á vömnni.
Vandinn er sá að það tekur mörg
ár að byggja upp gæðastig fyrir-
tækja. Það þarf að endurhanna,
endurskipuleggja, endurþjálfa og
ef til vill endurijármagna fyrirtæki
sem vill komast á efsta gæðastig.
Tíminn vinnur á móti okkur, þar
sem aðrar þjóðir hafa nú þegar
tekið þessi mál föstum tökum.
í útflutningi verður allt að fylgj-
ast að: Markaðssetning, eiginleikar
vömnnar og vömvöndun. Ef einn
þáttur bregst fellur varan.
Höfundur er rekstrarriðgjafi
hjá Riðgarði.
Aðalbókari
Einstakt tækifæri
Eitt stærsta og virtasta þjónustufyr-
irtæki landsins vill ráða aðalbókara
til að sjá um daglega stjórnun bók-
haldsdeildar þess.
Um er að ræða mjög sjálfstætt starf.
Viðkomandi skal vera viðskiptafræðingur
og/eða löggilturendurskoðandi.
Reynsla í bókhaldsstörfum skilyrði, en við
erum einnig opnir fyrir ungum aðila.
Sá sem við leitum að þarf að hafa góða
stjórnunarhæfileika, vera fljótur að taka
ákvarðanir, eiga gott með að vinna með
öðrum, opinn fyrir nýjungum og fljótur að
tileinka sér þær, geta unnið undir álagi og
hafa mikið eigið frumkvæði.
Þjálfun, fræðsla og námskeið er tengjast
þessu starfi fara fram hér á landi og erlend-
is. Launakjör samningsatriði.
Þar sem hér er um einstakt tækifæri, að
komast í krefjandi og spennandi framtíðar-
starf, hvetjum við alla þá, er áhuga hafa, að
hafa samband og ræða málin í algjörum
trúnaði.
Við viljum ráða í þetta starf fljótlega en
gerum okkur grein fyrir, að við gætum þurft
að bíða í allt að þrjá mánuði eftir réttum
aðila.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og
starfsreynslu sendist skrifstofu okkar fyrir
27. mars nk.
QiðntTónsson
RÁÐCJÖF & RÁÐNINCARÞJÓN USTA
TÚNGOTU 5, 101 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322
ERJÞÚ VELÁ VERÐI..?
Síðustu kjarasamningar hafa það m.a. í förmeð sérað
Verðlagsstofnun ríkisins, ASÍ sem og allur
almenningur fylgist nú betur og rækilegar með verði
á vöru og þjónustu en nokkru sinni fyrr. Sértþú í vafa
um stöðu þína gagnvart þessum aðilum og gagnvart
samkeppnisaðilum þínum - þá eru verðkannanir Miðlunar ómetanlegt
hjálpartæki sem auðvelda þér verðákvarðanir og styrkja stöðu þín á
markaðinum.
Miðlun fylgist náið með verðlagsþróuninni og
kannar ennfremur hugmyndir neytenda með
skoðanakönnunum. Með þátttöku í
verðkönnunum Miðlunarert
þú reiðubúinn að mæta „stóradómi“
Verðlagsstofnunar jafnt sem kröfum
neytenda. Verðkannanir Miðlunar
birtast ekki opinberlega, þær eru einungis
ætlaðar viðskiptavinum Miðlunar,
þeim fjölmörgu forsvarsmönnum fyrirtækja
og verslana sem sjá sér augljósan hag í
því að vita nákvæmlega um stöðu sína á
markaðinum - þeir eru vel á verði.
Ægisgötu 7, pósthólf 155, 121 Reykjavík. Sími: 91-62 22 88
l
i
I
J
4