Morgunblaðið - 27.04.1986, Blaðsíða 34
m rB
.MQRqpNBI^ÐIÐ, SUNlýyDAGUR27,. A1»RÍL 1986
J
IJC
Nikita
Michalkov
Andrei Konchalovsky sem
gerði Elskhuga Maríu og sýnd er
í Austurbæjarbíoi á bróður að
nafni Nikita Michalkov. Mic-
halkov er nokkuð mikils metinn
austan járntjaldsins, en nú hefur
hann fengið íeyfi til að taka næstu
mynd sína á Ítalíu að hluta.
Myndin nefnist „Skipið Ódyss-
eifur og konan“ (II Nava Ulyesses
et una Moglie) og er byggö á smá-
sögu eftir Tékov. Þetta mun vera
í fyrsta sinn sem Michalkov fær
að ferðast vestur yfir landamærin,
en áður hefur hann gert nokkrar
myndir (Slave of Love, Oblomov)
sem hafa fallið í góðan jarðveg.
Myndin fjallar um miðstéttarrfólk
rússneskt og ítalskt, á síðari hluta
19. aldar, og segir Michalkov að
handritið hafi verið skrifað með
ítalska leikarann Marcello Mastro-
ianni í huga. Mastroianni leikur að
sjálfsögðu aðalhlutverkið, en með
honum leikur Silvana Mangano,
eiginkona kvikmyndaframleiðand-
ans Dino De Laurentiis, en hún
hætti kvikmyndaleik fyrir mörgum
árum.
Bíóhöllin:
Einherjinn
Schwarzenegger
ARNOLD Schwarzenegger hefur
mikið dálæti á Sylvester Stallone,
en varar þó menn við að líkja
nýjustu myndinni „Einherjanum"
saman við Rambo Stallones. Þvi'
siíkt væri að bera saman tvær
gerólíkar kúrekamyndir.
Arnold Schwarzenegger heldur
tortímingunni áfram, að þessu
sinni í „Einherjanum" sem Bíó-
höllin sýnir.
Það er hins vegar samdóma álit
flestra sem skrifað hafa um Ein-
herjann að hún sé vel heppnuð
eftiröpun á Rambo, þær fjalli um
sama ofurmennið, kraftakarlinn
sem tekur málið í sínar hendur
þegar allt annað þrýtur. Þó þykir
Einherjinn hafa að minnsta kosti
eitt fram yfir Rambo; hún er miklu
fyndnari.
Schwarzenegger leikur mann
að nafni John Matrix, sérfræðing
í öllu sem snertir vopnabúnað.
Matrix er gamall foringi í víkinga-
sveit sem beitti sér aðallega í
Miðausturlöndum og Suður-Amer-
íku. Meðal verkefna hans var að
kála einræðisherra í ónefndu ríki í
Suður-Ameríku. Einræðisherrann
kann að sjálfsögðu ákaflega illa við
þetta uppátæki, og þegar myndin
hefst kemur hann fram hefndum:
hann rænir dóttur Matrix.
Schwarzenegger tekur ránið
óstinnt upp, svo ekki sé meira
sagt, hann heldur strax á leið
þangað sem hann telur að ein-
ræðisherrann fyrrverandi og menn
hans halda sig. Og blossar þar upp
mikill bardagi.
Schwarzenegger nýtur dyggrar
aðstoðar Rae Dawn Chong, dóttur
grínistans Chong, og er hún nán-
ast óþekkjanleg frá því við sáum
hana síðast í Leitinni að eldinum.
Þeir sem sáu 48 HRS, með Nick
Nolte og Eddie Murphy, vita hverju
þeir mega búast við, því handrits-
höfundur þeirrar myndar, Steve
Souza, skrifaði handritið að Ein-
herjanum. Steve Souza þykir nokk-
uð fær í að blanda húmor saman
við ofbeldi.
Lauqarásbíó:
Stórmyndir
í biðröð
Margar myndir bíða nú þess
að komast inn f Laugarásbíó, og
fjölgar þeim eftir því sem „Jörð
í Afríku“ er sýnd lengur.
Ákveðið hefur verið að sýna
eftirtaldar myndir strax og Meryl
Streep og Robert Redford víkja:
Ferðin til Nægtarlandsins (Trip
To Bountiful) sem er fyrst i röðinni.
Geraldine Page leikur aðalhlut-
verkið en hún fékk Óskarsverðlaun
í marz síðastliðnum. Bring on the
Night, tónlistarmynd með söngv-
aranum Sting, og Echo Park,
fyrsta mynd Tom Hulce eftir að
hann lék Amadeus, fylgja í kjölfar-
ið. Einnig finnsk/bandaríska mynd-
in Arctic Heat, en hún var bönnuð
í Finnlandi þar sem hún fjallaði um
eldfimt efni: þrjó unga Finna sem
fara yfir landamærin til Rússlands
og eru hnepptir þar í fangelsi. í
júlí er fyrirhugað að endursýna
vinsælustu mynd allra tíma, ET
sem Spielberg gerði fyrir fjórum
árum og var sýnd í Laugarásbíó
jólin 1982 við mikla aðsókn eins
ogallirmuna.
abíó tekur næst til 8ýnl£?“d®^h"n™yftuívaxna grínista
Ihlutverkið í henn, er í hondum h,n» • Brawster.s
I I IMI rVirMyNLANNA
Regnboqinn:
Lífskraftur
Tobe Hooper sérhæfir sig í hryllingsmyndum af ýmsum tegundum.
í „Poltergeist" sýndi hann og sannaði að hann er fullfær um að hræða
líftóruna úr fólki, án þess þó að kála nokkrum, ogí nýjustu myndinni
Lífskraftur (Lifeforce), sem Regnboginn sýnir um þessar mundir,
gengur hann skrefi lengra og lífgar upp á goðsögnina um vampírur,
nánar tiltekið forynjur utan úr geimnum sem bókstaflega sjúga lífið
úrfólki.
Hooper fékk til liös við sig sér-
fræðinga á þessu sviði. Fyrsta skal
þar nefna handritshöfundana, Dan
O’Bannon og Don Jaukoby, en
þeir sömdu söguna Alien sem
sýnd var fyrir nokkrum árum. En
maðurinn sem ber hita og þunga
tæknibrellnanna heitir John
Ðykstra, einn sá fremsti á sínu
sviði. Hann hefur séð um tækni-
brellurnar í flestum helstu stór-
myndum síðustu ára.
Vampírur hafa ætið fylgt mann-
kyninu en Tobe Hooper sagði áður
en hann byrjaði á Lífskraftinum að
myndin yrði engin venjuleg vamp-
írumynd. [ stað þess að sýna blóð-
þyrstan aðalsmann narta í háls
stúlkukindar lætur Hooper furðu-
verur detta af himnum ofan. Verur
þessar vekja furðu færustu vís-
indamanna, sem geta ekki einu
sírmi ságt til um hvort þær séu lífs
eða liðnar. Steve Railsback (hver
man ekki eftir honum í The Stunt
Man) og Frank Finlay leika vísinda-
mennina. Þeir fá hins vegar yfrið
nóg að gera þegar geimverurnar
í dulbúningi venjulegs fólks taka
upp á þeim andskota að fækka
Lundúnabúum í hundraðatali.
I