Morgunblaðið - 03.06.1986, Side 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ1986
Sjálfsmark f
upphafi tryggði
Val sigur
• Boltinn í netinu og sigurinn varð KefMkinga á Laugardalsvelli á sunnudaginn. Freyr Sverrisson, lengst
til hægri, og Óli Þór fagna ákaft en Framarar eru niðurdregnir.
Framarar sterkari
en ÍBK skoraði og
hlaut sín fýrstu stig
KAPLAKRIKI l.deild:
FH - Valur0:1 (0:1
Mark Vals: Kristján Gíslason úr FH geröi
sjálfsmark á 2. mínútu.
GuK spjald: Ólafur Jóhannesson úr FH.
Dómari: Þóroddur Hjaltalín og var slakur.
Áhorfendur: 820.
EINKUNNAGJöFIN:
FH: Halldór Halldórsson 3, Viöar Halldórsson
1, Leifur GarÖarsson (vm. á 46. mín.) 2, Krist-
ján Gíslason 2, Kristján Hilmarsson (vm. á 67.
mín.) 1, Henning Henningsson 3, Pálmi Jóns-
son 2, Ólafur Danivalsson 1, Ingi Björn Al-
bertsson 3, Ólafur Hafsteinsson 2, Ólafur Jó-
hannesson 3, Guömundur Hilmarsson 2,
Magnús Pálsson 2.
Samtais: 25.
Valur: Stefán Arnarson 4, Bergór Magnússon
2, Magnús Magnússon 3, Sigurjón Kristjáns-
son 2, Ársæll Kristjánsson 2, Guöni Bergsson
3, Hilmar Sighvatsson 2, Valur Valsson 3,
Ingvar Guömundsson 2, GuÖmundur Kjartans-
son 2, Óttar Sveinsson 2.
Samtals: 27.
VALSMENN kræktu sér í þrju
stig á Kaplakrikavelli á laugar-
daginn þegar þeir unnu FH-inga
með einu marki gegn engu og var
markið skorað strax í upphafi
leiksins — af FH-ingi. Undir lokin
gerðu FH-ingar mikla orrahríð að
marki Vals en Stefán Arnarson
varði þá mjög vel og kom í veg
fyrír að þeim tækist að jafna.
Á annari mínútu leiksins gáfu
Valsmenn inní vítateig FH þar sem
Kristján Gíslason FH-ingur fékk
knöttinn og hugðist senda aftur á
markvörð sinn Halldór Halldórs-
son. Ekki vildi betur til en svo að
knötturinn fór yfir Halldór og í netið
og þar með haföi Valur náð foryst-
unni.
Þetta var eiginlega það eina
merkilega sem gerðist í fyrri hálf-
leiknum. Valsmenn voru sterkari
aðilinn án þess þeir geröu þó
nokkuð sem ógnaöi marki heima-
manna.
Síðari hálfleikurinn var mun
opnari og skemmtilegri en sá fyrri
en langt frá því að vera það
skemmtilegasta sem hægt er að
hugsa sér.
Valsmenn fengu tvö ágætis
færi en Halldór var á réttum stað
í bæði skiptin. Nú var komið aö
FH-Valur
0:1
orrahríðinni miklu sem nefnd var
hér að framan. Síðustu tíu mínútur
leiksins voru flestir leikmenn vall-
arins við eða innanvið vítateig
Vals. Hvert skotið af fætur öðru
en Stefán var vel á verði og kom
í veg fyrir að boltinn kæmist inn
fyrir línuna.
FH-liðið virkaði ekki mjög sann-
færandi í þessum leik en sýndi þó
í lokin aö þeir geta bitið frá sér
ef sá gállinn er á þeim.
Hjá Val var Stefán hetjan að
þessu sinni. Hann lék eins og hann
gerir best. Allt sem hann geröi var
gott og undrr lokin var hann frá-
bær. Valsliðið er heilsteypt liö sem
verður ofarlega í sumar en þó
vantar einhvern neista til að leik-
menn skori mörk.
Þóroddur Hjaltalin dæmdi þenn-
an leik og geröi þaö illa. Hann
flautaði allt of mikið á smábrot út
um allan völl og ef einhverjum leik-
manni mislíkaði dómgæsla hans
talaði hann við menn og gaf einum
gult spjald fyrir það en lét gróf
brot Ársæls Kristjánssonar á Inga
Birni trekk í trekk óáreitt. Það þarf
að taka harðar á grófum brotum
þar sem menn hugsa greinilega
ekkert um knöttinn — bara mann-
inn — en loka frekar eyrunum fyrir
smánöldri í leikmönnum í hita
leiksins. Þetta á við um mun ffeirí
dómara en Þórodd.
LAUOARDALSVÖLLUR, 1. DEILD
Fram — IÐK 0:1 (0:0)
Mark (BK: Freyr Sverrisson á 89. mínútu
Ahorfendur: 611
Dómari: Magnús Jónatansson
EINKUNNAGJÖFIN:
Fram: Friörik Friðriksson 3, Þorsteinn Þor-
steinsson 2, Þórður Marelsson 3, Pétur
Ormslev 3, Viðar Þorkelsson 3, Kristinn R.
Jónsson 2, Jón Sveinsson 2, Guðmundur
Steinsson 3, Steinn Guðjónsson 3, Guðmund-
ur Torfason 3, Örn Valdimarsson 2, Arntjótur
Davíðsson (vm. á 67. mfnútu) 2, Ormarr ör-
lygsson (vm. lék of stutt).
Samtals: 29.
IBK: Þorateinn Bjarnason 3, Sigurður Guðna-
son 2, Jóhann Magnússon (vm. á 62. m(nútu)
2. Valþór Sigþórsson 3, Rúnar Georgsson 2,
Siguröur Björgvinsson 3, Gunnar Oddsson 2,
Einar Á. Ólafsson 3, Freyr Sverrisson 3, Óli
Þór Magnússon 3, Sigurjón Sveinsson 2, Skúli
Rósantsson 3, Ægir Kárason (vm. lék of stutt).
Samtala: 29.
Kefivfkingar fengu 3 dýrmæt
stig í rígningunni á sunnudaginn,
þegar þeir unnu Fram 1:0 f mikl-
um baráttuleik, þar sem Fram réð
gangi leiksins og spilaði vel úti á
vellinum, en ÍBK varðist vel. Bæði
liðin fengu nokkur góð marktæki-
færí I leiknum en Freyr Sverrís-
son skoraði eina mark leiðsins á
89. mínútu.
Strax á 5. mínútu kom fyrsta
marktækifærið. Pótur Ormslev gaf
góða sendingu frá hægri ó Guð-
mund Torfason, sem var í opnu
færi en skaut í stöng Keflavíkur-
marksins. 10 mínútum síðar náði
Óli Þór knettinum eftir varnarmis-
tök Fram, en hann skaut beint á
Friðrik markvörð. Næstu mínútur
sóttu Framarar stíft án árangurs.
Á 28. mínútu fékk Óli Þór knöttinn
inni í vítateig Framara, lók á Friðrik
markvörð, en Jón Sveinsson náöi
að skalla knöttinn i horn eftir skot
Óla Þórs. Skömmu síöar léku
Framarar vel í gegnum vörn ÍBK,
en skot Guðmundar Torfasonar
var varið. Steinn Guðjónsson átti
gott skot mínútu síðar, en Þor-
steinn varði. Á 36. mínútu skaut
Sigurður Björgvinsson yfir Fram-
markið af stuttu færi og á 43. mín-
útu skallaöi Guðmundur Torfason
í hliðarnet (BK eftir hornspyrnu.
Framarar héldu áfram að spila
vel í síðari hálfleik og sköpuðu sér
mörg færi sem ekki nýttust. Á 51.
mínútu gaf Guðmundur Steinsson
góöa sendingu á Kristinn, sem
skallaði til Péturs en hann skaut
af markteig. Á 56. mínútu var Viðar
með hörkuskot frá vítateig en
Þorsteinn varði glæsilega í horn.
Guðmundur Steinsson skallaði
framhjá á 69. mínútu og skömmu
síðar skaut Steinn af löngu færi,
sem Þorsteinn bjargaöi i horn. Á
82. mínútu komst Sigurður Björg-
vinsson í gott færi við Frammarkið
en skotið fór yfir. Framarar héldu
áfram að sækja en á 89. mínútu
skoruðu Keflvíkingar eina mark
Fram — ÍBK
0:1
leiksins. Siguröur Björgvinsson gaf
á Frey sem sneri sór hjá Ormarri,
skaut að marki, knötturinn fór í
Þorstein Þorsteinsson og inn.
„Ég er mjög ánægður með að
fá okkar fyrstu stig í ár,“ sagði
Hólmbert Fríðþjónsson, þjálfari
ÍBK eftir leikinn. „Strákarnir börð-
ust vel, liðið var samstillt og hélt
haus, nokkuð sem ekki hefur gerst
í hinum leikjunum." „Þetta var eins
og við reiknuðum með," sagði
Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram.
„Þeir ætluðu að halda stiginu sem
þeir höfðu í upphafi leiksins, og
treystu á heppnina og ná öllum
sem þeim tókst. Við spiluðum
þokkalega, fengum mikið af færum
en nýttum þau ekki og því fór sem
fór.“
1. deild:
Markahæstu
leikmenn
ÞRÍR leikmenn f 1. deild hafa
skorað þrjú mörk. Það eru þeir
Ingl Björn Albertsson FH, Jón
Þórir Jónsson UBK og Valgeir
Barðason ÍA.
Markahæstu leikmenn eftir leiki
helgarinnar eru þessir:
Ingi Björn Albertsson FH 3
JónÞórirJón88onUBK 3
Valgeir Baröason ÍA 3
Bjöm Rafnsson KR 2
Hlynur Birgisson Þór 2
Hilrnar Sighvatsson Val 2
Júlíus Þorfinsson KR 2
Valur Valsson Val 2
• Hár sást þegar boltinn er á leið yfir Halldór Halldórsson marvörð FH á 2. mfnútu leiksins gegn Val.
Kristján Gfslason sást lengst tii hægrí og anglstarfullur er hann á svipinn pihurínn.